Þjóðviljinn - 30.03.1978, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. mars 1978
MINNINGARORÐ:
Jón Jónsson
Fœddur 6.6. 1889
D. 17.3. 1978
„Sælir eru hógværir, þvi að þeir
munu landið erfa.”
Um fáa menn eöa enga, sem ég
hef þekkt, eiga þessi orð betur við
en Jón heitinn, hógværð hans var
einstök. Það var fjarri honum að
trana sér nokkurs staðar fram
eða láta á sér bera, og sjálfsagt
var honum fyrir þá sök stundum
veitt minni athygli en verðugt
hefði verið. Sjálfum var honum
nóg að vita sig gera skyldu sina
og vinna störf sin af trúmennsku
og samviskusemi. Þá eiginleika
átti hann i rikum mæli, en þvi
miðureru þær dyggðir ekki mjög
hátt metnar eða virtar i þjóð-
félaginu á þessum timum.
Jón Jónsson var fæddur að
Litlu-Hvalsá i Hrútafirði, 6. júni,
1889. Hann ólst þar upp hjá móð-
ur sinni, en föður sinn missti hann
á unga aldri. Ungur fór hann að
vinna fyrir sér við ýmis sveita-
störf, eins og titt var um unglinga
á fátækum alþýðuheimilum þá.
Arið 1917 giftist Jón Ingibjörgu
ólafsdóttur frá Kolbeinsá i
Hrútafirði, og bjuggu þau fyrst á
Kolbeinsá, og siðar nokkur ár á
Fögrubrekku i sömu sveit, uns
þau fluttu til Reykjavikur, haust-
ið 1934. 1 Reykjavik stundaði Jón
fyrstu árin búskap á ýmsum býl-
um þar, einkum á Grimsstaða-
holtinu. En á hernámsárunum
hættu þau hjónin við búskapinn,
og eftir það stundaði Jón ýmsa al-
menna verkamannavinnu, meðan
heilsa og kraftar leyfðu. Lengst af
áttu þau hjónin heimili i Vestur-
bænum i Reykjavik, nú siðast á
Sólvallagötu 43.
Konu sina missti Jón fyrir all-
mörgum árum eftir mikla van-
heilsu, og hefur Elisabet,
dóttir þeirra, séð um heimilið
siðan og annast föður sinn hrum-
an siðustu árin, en hann lést i
Borgarspitalanum 17. þ.m., eftir
stutta legu þar.
Fósturson tóku þau Jón og
Ingibjörg nokkru eftir að þau
komu til Reykjavikur, og á heim-
ili þeirra ólst einnig upp sonur
Elisabetar.
Þetta er I örstuttu máli æviferill
Jóns heitins, þessa hógværa, fá-
láta alþýðumanns. En i þessa
mynd vantar mjög mikið. Saga
þrautseigs og eljusams bónda á
Kannski Gúndi á horninu, Steinka í mjólkurbúðinni eða jafnvel
Bensi frœndi (þó hann eigi það ekki skilið). Nú, það er tilfellið, þau eiga
ölljafnmikla möguleika og ég, því öll erum við áskrifendur að Vísi, (ég dreif
mig að vísu í það í gær). Þið hin sem ekki eruð áskrifendur fáið
sjálfsagt bara að hlaupa apríl eins og venjulega. Ekki satt?
■
Askrifendagetraun
Síminn er86611
erfiðum búskaparárum norður i
Hrútafiröi, er ekki sögð hér, ekki
heldur saga bóndans á mölinni
hér syðra á atvinnuleysisárunum
fyrir seinni heimsstyrjöldina. Ég
dreg ekki i efa, að oft hafi verið
dökkt i álinn hjá þeim Jóni og
Ingibjörgu, en hann kvartaði
aldrei né æðraðist, heldur tók
hverju þvi sem að höndum bar
með sömu æðrulausu róseminni.
Þvi fór þó viðs f jarri, að Jón heit-
inn léti sig hagsmunamál stéttar
sinnarengu skipta. Hann fylgdist
vel með i þjóðmálum og bar gott
skyn á kjör verkalýðsins, enda
skipaði hann sér þar i sveit, sem
einarðast var barist fyrir bættum
hag alþýðunnar. Hann var stétt-
vis og trúr Dagsbrúnarfélagi og
sótti jafnan fundi i þvi félagi
meðan hann hafði heilsu til þess
En það var ekki tilgangurinn met
þessum linum að segja ævisögu
Jóns heitins, þessa hógværa al-
þýðumanns, þótt vissulega vær
til þess full ástæða, heldur skulu
hér að lokum bornar fram inni
legar þakkir fyriráratuga löng og
ómetanleg kynni.
B.G
Fyrirlestrar
hjá MÍR
1 lok marsmánaðar og byrjun
april gengst MIR, Menningar-
tengsl íslands og Ráðstjórnar-
rikjanna, fyrir erindaflutningi
fyrir almenning i MlR-salnum,
Laugavegi 178.
Fyrsta erindið verður flutt i
kvöld fimmtudagskvöldið 30.
mars kl. 20.30. Þá ræðir Vladimir
K. Vlassof verslunarfulltrúi um
viöskipti Islands og Sovétrikj-
anna.
Laugardaginn 1. april kl. 15
ræðir Mikhail M. Bobrof, sovésk-
ur iþróttaþjálfari sem starfar hér
á landi nú, um likamsrækt i
Sovétrikjunum og undirbúning
Olympiuleikanna i Moskvu 1980.
Fimmtudaginn 6. april kl. 20.30
spjallar Ólafur Ag. örnólfsson
loftskeytamaður um Siberiu fyrr
og nú,og laugardaginn 8. april kl.
15 ræðir Ragnar Björnsson
organisti og hljómsveitarstjóri
um tónleikaferðir sinar til Sovét-
rikjanna og kynni af sovésku tón-
listarlifi.
Laugardaginn 15. april kl. 15
flytur svo dr. jur. Alexander M.
Jakovléf lokaerindið, og fjallar
það um hina nýju stjórnarskrá
Sovétrikjanna. Dr. Jakovléf kem-
ur hingað til lands i boði MIR frá
Danmörku þar sem hann flytur
fyrirlestra.
Fyrirlestrarnir i MlR-salnum
eru öllum opnir. Kvikmyndir
verða sýndar með hverjum fyrir-
lestri.
(Frá MIR).
Skrúfa fyrir
olíu til
Seydfirdinga
A Seyðisfirði eru reknar 2 disel-
stöðvar og þegar bræðslustöðv-
arnar eru i gangi er þær keyrðar
á fullu og eins þegar vatnslitið er.
Nú hefur Oliufélagið ákveðið að
hætta að afgreiða RARIK með
oliu vegna vanskilaskulda,en það
er einmitt Oliufélagið sem hefur
útvegað oliuna i diselstöðvarnar á
Seyðisfirði. Gisli Sigurðsson
fréttaritari Þjóðviljans á Seyðis-
firði sagði i gær að næg olia væri
til að keyra þessar stöðvar i 14
daga i viðbót. Hins vegar er
Austurland allt samtengt, og ef
skortur verður á rafmagni vegna
stöðvunar diselstöðvanna bjóst
hann við að Seyðfirðingar fengju
rafmagn annars staðar frá ef eitt-
hvað verður aflögu á Austurlandi.
—GFr
12 rithöfundar lesa
úr verkum sinum
Félag islenskra rithöfunda
heldur kvöldvöku i kvöld,
fimmtudagkl. 20.30,að Hótel Esju
(2. hæð). 12 rithöfundar lesa
valda kafla úr verkum sinum.
Ahugafólk um bókmenntir vel-
komið meðan húsrúm leyfir.