Þjóðviljinn - 30.03.1978, Page 7

Þjóðviljinn - 30.03.1978, Page 7
Fimmtudagur 30. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 3„Þótt umrædan um íslenskt mál hafi snúist um auka- atriði, grunar mig að hún boöi víötækar pólitískar deilur um menningarmál og þegar allt komi til alls II Gisli Pálsson verdi niöurstaðan síöur en svo „skaðlaus 9? frá sjónarmiði valdastéttanna i landinu”. Málhreinsun pólitík Nokkrir alþingismenn lögðu nýlega fram tillögu til þings- ályktunar um islenskukennslu i fjölmiðlum. 1 greinargerö sem tillögunni fylgir segir svo: „Engum dylst, að islenzk tunga á nú i vök að verjast. A þetta sérstaklega við um talaö mál, framburð og framsögn. Einnig fer orðaforði þorra fólks þverr- andi og erlend áhrif hvers konar vaxandi. Engum orðum þarf að fara um lifsnauösyn þess, aö stemma stigu við slikri óheilla- þróun, og snúa við inn á þá braut islenzkrar málhefðar, sem ein veröur farin.ef islenzk menning á að lifa og dafna.” Flutningsmenn tillögunnar, sem eru á góðri leið með að full- vissa almenning i landinu um aö skynsamlegast sé að banna um- ræðu um islenskt mál i þingsöl- um, eru greinilega ekki af baki dottnir. En kannski hefur þeim lika tekistað fullvissa sjálfa sig, þvi nú leggja þeir til að stofnuö verði opinber sorphreinsunar- deild skipuð þrettán mönnum — sem reyndar skulu kosnir af al- þingi. Þótt greinargerðina, sem fylgir áðurnefndri tillögu, megi skilja á marga vegu, dylst eng- um hver sú leið er „sem ein verður farin” aö mati flutnings- manna — svo er setunni m.a. fyrir að þakka. Þvi er gjarna haldið fram að setufárið sem jafnan ber hæst i allri umræðu um islenskt mál þessa dagana sé liður i tafli valdastéttanna, sem miðar að þvi að slæva vitund fólks og beina athygli þess inn á skað- lausar brautir. Eflaust er nokk- uð hæft i þessu, en þótt umræö- an hafi snúist um aukaatriði grunar mig að hún boði viðtæk- ar pólitiskar deilur um menn- ingarmál og þegar allt komi til alls verði niðurstaöan siður en svo „skaölaus” frá sjónarmiði valdastéttanna i landinu. Sennilega finnst mörgum full- langt gengið að „bendla staf- setningarumræðuna, sem fram hefur farið að undanförnu, við pólitik. En „það er bara allt pólitik” eins og Hulda sagði við Þórð karlinn föður sinn. Og það skyldi þó ekki vera aö frum- eindir málsins reyndust hafa pólitiskt inntak við nánari at- hugun? Vikjum nánar að þvi siðar. Sá hópur sem aðhyllist ný- breytni og einföldun i ritun is- lensks máls fer sem betur fer stækkandi. Ensumir þeirra sem teljast til þessa hóps hafa bara gefist upp. Sjálfir eru þeir upp- fullir af hugmyndum um hvaö sé „rétt” mál og hvað sé „rangt”, en þeir vita að hefð-, bundin móðurmálskennsla, þar sem miklum tima er sóaö i orö- sifjar og réttritun, er „von- laust” verk. Þessum mönnum liður eins og hershöfðingja sem hefur verið borinn ofurliöi, og það tekur suma þeirra jafnvel mörg ár að rétta lúr kútnum— að sætta sig við ósigurinn. 1 þess- um hópi eru menn sem reyndar telja tilgangslaust að kenna fólki að rita setu og jafnvel ypsi- lon, en þeir eiga varla orð til aö lýsa hneykslun sinni á þvi að menn skuli segja „kaseiru” i stað hvaö segirðu og „ranga ring” i stað rángárþing. Viðhorf af þessu tæi eru mjög áberandi á meðal þeirra sem hafa lagt stund á islensk fræði, eins og út- varpsþátturinn sem ber hið kynlega nafn „Daglegt mál” ber iðulega með sér, en senni- lega eru slik viðhorf almennt einkenni á hugmyndaheimi is- lenskra menntamanna. Ugglaust slikur rétttrúnaður á undanhaldi, þar sem þeirri skoðun vex fylgi að hverjum manni sé i sjálfs vald sett hvernig hann orðar hugsun sina. Hér er ekki aðeins um að ræða andóf gegn hriflukenndum of- sóknum á hendur einstökum listamönnum sem aðhyllast „framburðarstarfsetningu”, heldur er einnig bent á að i land- inu er andleg stéttaskipting. Slik stéttaskipting er, hvort sem mönnum likar betur eða ver, eðlileg afleiðing af þeim ójöfn- uði sem gegnsýrir allt þjóð- félagið — hinni eiginlegu stétta- skiptingu. Það er ekki á minu færi aö gera grein fy.rir mállýskum is- lenskunnar. En varla er mál- hreinsunaráráttan gersamlega tilefnislaus hugarburður, og þvi má væntanlega ganga út frá þvi að þjóðin greinist i málfélög. Reynt hefur verið að uppræta muninn á málfélögunum, sbr. herferðina gegn flámælinu og réttritunarstaglið i skólunum, á þeirri forsendu að sum afbrigði islenskunnar séu ljótari og ófullkomnari. en önnur. Ég held þvi fram (og hér er alls ekki um nýjan boðskap að ræöa) að mál- gerðirnar eigi allar rétt á sér og nauðsynlegt sé að hafa það i huga i róttækri endurskoðun á stöðu skólans i samfélaginu. Málfar og þjóðfélags- staða Málið er mikilvægur miðill i samskiptum fólks. Það er tæki sem einstaklingurinn notar til að koma hugsun sinni til skila. En málfar einstaklingsins segir einnig til um uppruna hans og þjóðfélagsstöðu, á svipaðan hátt og ættarnöfn og klæðaburður. Vegna þess að málgerðirnar njóta ekki jafnmikillar viður- kenningar i samfél. er hætt við að frami manna i skólakerfinu, sem ræöur nokkru um völd þeirra, tekjur og virðingu siðar meir, helgist af þvi hvernig þeir orða hugsun sina. Það málfar sem litillar virðingar nýtur er jafnan talið ófullkomið tján- ingartæki, enda þótt það valdi ekki meiri misskilningi en geng- ur og gerist i samskiptum þeirra sem hafa tamið sér það allt frá blautu barnsbeini. Ljóst er að málfar einstak- lingsins segir nokkuð um þroska hans og vitsmunalif. En það er alls ekki þar með sagt að mál- far, sem flyst frá einni kynslóð til annarrar og sem er hóp manna sameiginlegt, sé nokkur visbending um hæfileika þeirra sem halda þvi á loft, eins og gef- ið er i skyn af þeim sem hafa fengið völd i hendurnar til að kveða upp dóm um hvað sé rétt mál og gott. Margir munu sjálfsagt tilbún- ir aö andmæla fullyröingum um að slikt eigi sér stað hér á landi. En þótt ekki sé unnt að visa til •ýtarlegra kannana á þessu fyrir- bæri má minna á aö kennarar kvarta oft undan þvi að móöur- málskennslan sé þrotlaust strit, og það hlýtur að benda til þess að hiö formlega mál sem skólinn boðar falli ekki i góðan jaröveg hjá stórum hluta nem- endahópsins. Og þaö er kunnara en frá þurfi að segja að hlutur verkalýðsins er fyrir borð bor- inn i islenska skólakerfinu. Við vitum það lika fullvel að alþýðu- fólk veigrar sér við að láta skoðanir sinar i ljós opinberlega vegna þess að það óttast háðs- glósur málspekinganna; bitur reynsla hefur kennt þvi að betra sé aö þegja. 011 rpálhreinsun sem miöar að þvi aö uppræta muninn á mál- félögunum i landinu felur i sér valdbeitingu, sem ýtir enn frek- ar undir vanmáttarkennd al- þýðufólks, eins og Magnús Kjartansson benti á i þeim skemmtilegu orðaskiptum sem hann átti við Þorstein frá Hamri á siöum þessa blaðs fyrir skömmu. Þeir sem hafa tileink- að sér málfar sem litillar virðingar nýtur veröa undir- málsmenn i vitund hinna sem tala „betra” mál. Með þessu er ég ekki að halda þvi fram að allt fagurfræöilegt mat sé út i hött þegar málið ei annars vegar og ekki megi gera greinarmun á skýru máli og óskýru. Ég er einungis aö benda á að allt slikt mat er afstætt og háð þjóðfélagsstööu og viðhorf- um hvers og eins. Og allar kröf- ur um að mat eins hóps skuli gilda fyrir alla bera vott um þröngsýni, egóisma og skort á umburðarlyndi. Ef það er rétt sem hér er gefið i skyn aö ástæða þess aö verka- lýöurinn á ekki upp á pallborðið i skólakerfinu sé m.a. sú að skólarnir gera upp á milli mál- samfélaga, sem eiga jafn mik- inn tilverurétt, hlýtur endur- skoðun sósialista á stöðu skól- ans að fela i sér kröfu um að skólinn virði mál og uppruna nemandans, en visi honum ekki á dyr eins og alltof oft hefur gerst á þeirri forsendu að tungutak hans sé ljótt og ómerkilegt. Bjarni M. Jónsson: Spilling „Taktu daginn snemma, þvi morgunstund gefur gull i mund. Sviktu aldrci gefiö ioforö. Hjálp- aöu þeim snauöu, þá mun þér vel farnast.” Þetta heilræði gaf tengdafaðir minn mér, sjötugur öldungur, aö skilnaði eftir eins árs dvöl mina á hans sveitasetri. Þetta var sumarið 1929. Það var ylur i lofti og birta i sál okkar beggja, þá hann hvislaði þessu út i voriö. Þeir, sem gerst þekktu Sigur- jón, vissu, að hann þurfti á þessu boðoröi að halda. Hann var umsvifamikill dugnaöar- og gáfu- maður, lögfróður og varði ekki aðeins sinn eigin málstað heldur margra annarra og farnaðist vel. Siðar sagöi hann mér: „Þaö er hægtaö vinna rangan málstaö, en ekki að sama skapi drengilegt.” Að sjálfsögðu gekk mér misjafn- lega að halda þessar reglur. Það hefur veriö mitt eðli að risa snemma úr rekkju. En að standa i skilum og svikja ekki gefið loforö var stundum erfitt fyrstu búskaparárin, þegar kreppa, atvinnuleysi og pólitiskar ofsóknir herjuðu með öllum sinum þunga, varð maður stund- um að ýta þeim mönnum frá sér, sem annars hefðu af náð sinni út- vegað snöp. Mér var ómögulegt að láta meta hugsjónaeld minn eins og markaðsvöru, og hann að sjálfsögöu ekki dýru verði keyptur. Ég held, að ég hafi sparkað vægast i þá, sem minni máttar voru. Börn og gamal- menni hafa ætið verið minir vinir. 1 elli minni og heilsuleysi er ég i hjarta minum glaður að vera þess meðvitandi, að barnið er aö hreiöra um sig i sál minni og likama. Ég held, að ég þyrði ekki að taka sénsinn á þvi að fá vinnu- þrek mitt aftur, þó ég ætti þess kost, þegar allir eru að tapa og enginn atvinnurekandi treystir sér til að kaupa vinnuaflið. Og þessi rikisstjórn ætlar aö skammta kaupið. Allir þekkja þennan tón og ekki sizt gamla fólkið. í skjóli hans á að svikja loforð, undirritaöa samninga, ræna vinnandihendur, vega aftan að barnafjölskyldum, gömlum, sjúkum og særðum. Eigum við að trúa þvi, að þeir, sem greiddu þessari svivirðu atkvæði 1 þing- sölum hafi sjálfir á niunda hundraö þúsund krónur á mánuöi og aðrir meira? Ef svo er, þá er það glæpur. Við fyrirgefum þeim aldrei, þvi þeir vita hvað þeir gera. Þaö er vandalaust aö heyra falsið i þessum tón. Tökum eitt dæmi af mörgum. Ariö 1932 seint i júni ákváðu þeir bræöur Sigurður Sumar- liöason skipstjóri og Ólafur stýri- maður og nótabassi aö taka á leigu 100 tonna ryðkláf, sem Guðmundur Pétursson útgerðar- Bjarni M. Jánsson maöur átti og hét Bláhvalur. Guðmundur var hættur aö nota bátinn, og hafði hann ekki veriö i förum sumarið áður og lá fyrir festum út á Krossanesbót. Þeir bræöur höfðu áhuga á, að allir skipsmenn mynduðu félag og gerðu út sameiginlega, nema 1. meistari, sem við þá greiddum kaup. Sigurður hafði allar út- réttingar og reikningshald, sem við siöar greiddum. Eftir mikið málþóf var samningur gerður og ákveðið að greiða tiu þúsund krónur fyrir skipið, nót og báta Skipiö var eins og áður segir gamalt og úr sér gengið og kostaði okkur ærið fé að fá það i lag, sem þarfnaðist viðgerðar. Lengi var ég á báðum áttum með aö slá i púkkið og hafði orö á þvi við þá bræður, hvort þetta væri nokkurt vit, þar sem öllum væri kunnugt, að Guðmundur hefði að eigin sögn tapað á allri sinni útgerð undanfarin sumur. Þeir bara hlógu að þessu og sögðu: „Við þekkjum þessa karla.” Þaö þýddi ekki að ljúga aö þeim, þeir höfðu reynsluna bæði að fiska sildina og gera hana markaðshæfa. Þetta sumar var yfirleitt hagstætt, hvaö veður og sildarmagn snerti. Við fiskuðum eitthvað á ellefta þúsund tunnur og mál. En Kristján, stærsta og bezta skip Guðmundar hafði sjötiu málum meira en við. Söltunartala var mjög svipuð hjá báðum. Eftir 33% reglunni gerði hluturinn hjá okkur tæpar fimm- hundruð krónur, en hlutur Kristjáns manna fáeinar krónur þar yfir. Þegar búið var að greia allt, sem góðum útgerðarmanni ber, svo sem tryggingu, kol, oliu, vatnsskatt, hafnargjöld og Guðmundi sinar tiu þúsund krónur, þá áttum við i hreinan gróða niu þúsund og sextiu krónur. Ekki man ég hvernig skiptin voru eftir stöðu mann- anna. En hlutur háseta var réttar þrjú hundruð og áttatiu krónur og var það sú bezta hlutabót, sem ég hef fengiö um mina daga. Sigurði skipstjóra sagðist svo frá: „Þegar ég afhenti Guðmundi peningana, tók hann viö þeim með ólund, alveg eins og hundur, sem rétt er heil kaka.” Þetta sumar tapaði Guðmundur á öllum sinum skipum og ekki sizt á Kristjáni. Ekki vissum við hvaöa reikningsaðferð notuö var norður þar við útveg. Nema hún væri likust útkomunni hjá Sölva H. Gúðmundsen, þegar hann reiknaði svart og hvitt i eina franska. Þá leið yfir mótherjann. Við Akureyringar vorum þessu svo vanir, að við sluppum við óverulegan svima. Annars var Guðmundur Pétursson mesta ljúfmennLEn hann varð að ganga i grátkórinn og syngja i sömu tón- tegund og hinir. Mér var ekki hlátur i huga um daginn, þegar blessuð.ásjóna for- sætisráðherrans birtist á sjánum og sagði þjóöinni þau tiðindi, sem raunar allir vissu, að landiö væri svo fátækt, og eina ráöið væri að taka fulla tiund af láglauna- stéttunum og hinum, sem ekkert hafa, og þar meö lama dyggar vinnuhendur til sjós og lands. Ja, hvað þetta er likt bölvaðri vit- leysunni i honum Guöbjarti Jóns- syni frá Sumarhúsum, mesta ihaldsfábjána, sem sögur fara af, -þegar engin matbjörg fannst I hans húsi nema dropinn úr kvigu- stiklunni. Drap hann hana til þess að börnin og kerlingarálkan skrimtu. Ég held, að þeir hljóti að hafa verið skildir Bjartur og Geir. Það eru ekki allar syndir guði að kenna og svo má segja um verð- bólguna. Það var spurninga- þáttur á skjánum siðari ár við- reisnarstjórnarinnar sáiugu. Þá var það Magnús Kjartansson alþingismaöur, sem spurði Bjarna heitinn Benediktsson, sem þá var forsætisráðherra. Eins og vænta mátti varð Magnúsi okkar tiðrætt um fátækramálin, og Bjarni varöist. Að siðustu spurði Magnús: „Af hverju kemur þessi svokallaða verðbólga?” Bjarnisvaraöi þessu bæði fljótt og afbragösvel, svo að ég skrifaði hjá mér svariö. Hann sagði: „Ég held, að veröbólgan stafi aöallega af þvi, að viö höfum of marga menn, sem taka meira til sin en þeir láta i staðinn.” Hvaða menn voru þetta, sem for- sætisráðherra átti við? Eigum við að gizka? Voru það bændur, sem Framhald á 14. siöu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.