Þjóðviljinn - 05.04.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 5. aprll 1978
Skólamót í knattspyrnu:
V.I. vann
skólamótið
Lið V.í. sigraði lið MH
í úrslitum mótsins
Fyrsta innanhússknatt-
spyrnumótið á milli skól-
anna á menntaskólastigi hér
á Stór-Reykjavikursvæðinu
var haldið dagana 8. og 15.
mars. Þeir skólar er þátt
tóku i móti þessu voru eftir-
taldir: Verslunarskóli Is-
lands (VI), Menntaskólarnir
hér á Stór-Reykjavikursvæð-
inu, þ.e. MR, MH, MS og
MK, Fjölbrautaskólinn i
Breiðholti (FB) og Armúla-
skólinn.
Mót þetta fór nú, sem fyrr
sagði, fram i fyrsta skipti og
var ákveðið að veita þeim
skóla er sigraði i mótinu veg-
leg verðlaun. Albert
Guðmu jrdsson, alþing-
ismaður, var okkur svo vin-
veittur að gefa okkur glæsi-
legan bikar til mótsins og
var mótinu þvi gefið nafn
samkvæmt þvi og nefnt
Albertsmótið.
Skólunum sjö var skipt i
tvo riðla og varð útkoman sú
að MR, MH og Armúlaskól-
inn lentu saman i öðrum riðl-
inum en VI, MS, MK og FB i
hinum riðlinum. Þann 8.
mars fór riðlakeppnin fram
og var leikið samtimis á
tveimur stöðum, i íþrótta-
höllinni i Laugardal og i KR
húsinu. 1 Iþróttahöllinni i
Laugardal urðu úrslitin eft-
irfarandi:
Ármúlaskóli — MR 4:2
MH — Armúlaskóli 3:2
MH — MR 6:3
Menntaskólinn i Hamra-
hlið bar þvi sigur úr býtum
úr þessum riðli. í KR húsinu
urðu úrslitin þessi:
VI —FB 7:2
MK — MS 3:6
MK — Ví 5:3
MS — FB 6:4
VI —MS 4:0
FB — MK 4:2
Verslunarskólinn bar hér
sigur úr býtum, hlaut hag-
Umsjón: Stefán Kristjánsson
Verslunarskóli islands sem sigraði I skólamótinu: Aftari röA frá vinstri: Gunnar Kristjánsson,
Ólafur ólafs, Guðmundur Kjartansson og Þorsteinn ólafs.
Fremri röð frá vinstri: Magnús Teitsson, Snorri Gissurarson og Hannes Eyvindsson.
stæðara markahlutfall held-
ur en Menntaskólinn við
Sundin.
Þá var komið að úrslita-
leik þessa móts og áttust þar
við Verslunarskóli íslands og
Menntaskólinn við Hamra-
hlið. Leikur þessi fór fram i
KR húsinu þann 15. mars.
1 upphafi leiksins var aug-
ljóst mál að báðir skólar
voru ákveðnir að berjast til
þrautar. Strax i upphafi náðu
Vl-piltarnir forystunni með
góðu marki og var staðan þvi
orðin 1:0 VI i vil. Er fyrri
hálfleikur var rúmlega
hálfnaður fékk VI vitaspyrnu
sem skorað var af öryggi úr.
Verslunarskólinn bætti siðan
við einu marki fyrir lok fyrri
hálfleiks og staðan i hálfleik
var þvi 3:0 fyrir Verslunar-
skólann. I siðari hálfleik var
hið sama uppi á teningnum.
VI hélt áfram að bæta við
markatölu sina og er flautað
var til leiksloka hafði VI
skorað fimm mörk en MH
komst litt áleiðis gegn
sterkri vörn VI og var þvi án
marka i þessum leik. Versl-
unarskólinn sigraði þvi
örugglega i þessum leik með
5:0.
Verslunarskólinn sigraði
þvi i fyrsta Albertsmótinu i
innanhússknattspyrnu, —
Menntaskólinn við Hamra-
hlið hafnaði I öðru sæti og
Menntaskólinn við Sundin i
þriðja sæti.
N ef ndin
farin...
V erðlaun?
Það erekkiá hverjum degi sem
aðheil nefnd er svo sammála um
eitthvert mál að hún segi af sér i
heilu lagi. Þetta hefur nú samt átt
sér stað innan HSl en þar hefur
dómaranefnd sú sem skipuð er
þeim Gunnari Kjartanssyni, Ólafi
Steingrimssyni og Kjartani Stein-
bach sagt af sér. Þá standa málin
sem sagt þannig að engin dóm-
aranefnd er nú til innan HSI.
Hlýtur það að vera iþróttinni
bagalegt.
Astæðan fyrir uppsögn nefnd-
arinnar er sú að nefndin til-
nefndi dómara: Gunnlaug
Hjálmarsson, Hauk Þorvaldsson,
Kjartan Steinbach, Kristján örn
Ingibergsson, Gunnar Kjartans-
son og Ólafi Steingrimsson til
þess að fara utan og taka svokall-
að B-próf i handknattleik fyrir
dómara eða nokkurs konar
millirikjadómarapróf. Ekki féllst
HSI á þann f jölda sem nefndin til-
nefndi og sagði það ekki koma til
mála að senda alla þessa menn.
Féllst HSt á að senda þá Kjartan
Steinbach, Kristján Orn Ingi-
bergsson og Gunnlaug Hjálmars-
son utan og skyldu þeir þreyta
prófið. Siðan eftir að þetta varð
ljóst sagði nefndin af séi; en ekki
er annað vitað en að þeir
þremenningar hyggist fara utan
og er það vel.
Eins og flestir nú vita er körfu-
knattleiksvertiðinni svo gott sem
lokið. Það vita það lika flestir að
eftir að móti lokið er venja að af-
henda sigurvegurum i viðkom-
andi móti sin verðlaun. En það
eru misjafnar aðferðir sem menn
vilja nlta við þá viðhöfn, þvi
viðhöfn skal það jú vera.
Það stakk þvi svolitið i stúf þeg-
ar undirritaður var' staddur i
lokahófi KKI að þar voru verð-
laun afhent þó að þeir sem við
þeim átti að taka og eins hinir
sem afhenda áttLi«u virtust ekki
veraiástanditilpfes. Hér erekki
veriðað áfellast menn fyrir að fá
sér i glas. Það er verið að mót-
mæla þvi, að verðlaunum sé
úthlutað á þennan hátt. Það vita
allir sem staddir voru við afhend-
inguumræddra verðlauna að hún
var körfuknattleiknum hér til
skammar. Þvi miður. Það er
skoðun min að með þeim fifla-
gangi sem hafður var i frammi
umrætt kvöld hafi forusta KKI og
körfuboltablaðsins Körfunnar
verið sér til ævarandi skammar.
Það er einnig skoðun min að
leikmenn þeir sem til verðlauna
unnu á þessu móti hefðu skemmt
sér mun betur ef þeir hefðu fengið
að taka við sinum verðlaunum
strax að úrslitaleik loknum en
það fengu ÍS-menn að gera. Það
er og verður miklu meiri
stemmning yfir lokum hvers
móts ef þeir sem sigrað hafa fá
sina viðurkenningu strax á eftir
leik i stað þess að þurfa að verða
aðnjótandi slikrar samkundu sem
stödd var i Hreyfilshúsinu þann
30. mars sl.
—SK
PUNKTAR
...Sviar sigruðu Austur-Þjóðverja
i vináttulandsleik i knattspyrnu i
gærkvöldi 1:0. Markið skoraði
Samy Aslund.
Ahorfendur voru um 20 þúsund.
Leikurinn fór fram i Leipzig i
Þýskalandi.
...Heyrst hefur að Danir séu jafn-
vel væntanlegir hingað og munu
leika tvo landsleiki gegn Islandi i
handknattleik. tJr þessu fæst
skorið fljótlega.
...Landslið Túnis i knattspyrnu
dvelst nú i æfingabúðum i
Júgóslaviu næstu viku. Er liðið að
undirbúa sig fyrir HM-keppnina
sem byrjar i júni. Liðið mun leika
tvo æfingaleiki gegn þarlendum
liðum.
...iþróttasiðan vill benda les-
endum á að i frásögn af lands-
flokkaglimunni i gær var farið
skakkt með nafn eins glimu-
mannsins. Hann heitir Ingi Þ.
Ingason en ekki Ingvi eins og sagt
var. SK
Hörkuleikir
í Höllinni
Tveir leikir verða
leiknir í islandsmótinu í
handknattleik í kvöld.
Verða þeir báðir leiknir i
Laugardalshöll og hefst
fyrri leikurinn sem verð-
ur á milli Ármanns og
Fram kl. 20.05.
Þar verður Armann aö sigra
ætla ekki að falla i 2.
démFLiðið er nú með 5 stig og á
eftir aðleika gegn Fram i kvöld,
KR og Val.
Framarar eru með 9 stig og
með sigri i kvöld myndu þeir
tryggja sér tilverurétt I 1. deild
á næsta keppnistimabili. Þeir
hafa leikið 11 leiki og auk leiks-
ins gegn Armanni eiga þeir eftir
að spila við Viking og Val.
Siðari leikurinn verður á milli
KR og FH og eitt er víst að þar
verður einn leikmaður og þjálf-
ari i erfiðri aðstöðu. Það er Geir
Hallsteinsson sem er þjálfari
KR og aðalleikmaðurinn hjá
FH. KR-ingar eru nú búnir að
leika 10 leiki og auk FH eiga
þeir eftir leiki gegn 1R,
Armanni og Haukum. Þessi
leikur skiptir FH engu máli.
Leikirnir hefjast kl. 20.05 i
Laugardalshöll.
SK.
Álafosshlaup
á laugardag
Búist við tvísýnni keppni
Álafosshlaupið sem er
árlegur viðburður i
Mosfellssveit verður háð
á næsta laugardag. Lík-
legt er talið að allir bestu
hlauparar okkar verði
meðal þátttakanda og
ætti keppni því að geta
orðið spennandi og
tvísýn.
Keppt verður bæði i kvenna-
flokki og karlaflokki. Kvenna-
flokknum er skipt i tvennt.
Keppa þar annars vegar stúlkur
sem fæddar eru 1965 og siðar.
Hins vegar konur sem komu i
heiminn eftir 1964.
I karlaflokknum veröur keppt
I unglingaflokki, þ.e.a.s. ungl-
ingar sem fæddir eru á árunum
1961-1964. Þá keppa einnig
drengir sem fæddir eru eftir
1965.
Þá verður hlaupinn fullorðins
flokkuí' og hafa allir rétt til þátt-
töku þar hvort sem þeir eru góð-
ir hlauparar eður ei. Eina skil-
yrðiö er að vera fæddur 1960 eða
siöar. Vill iþróttasiðan hvetja
alla sem fótum geta valdið að
mæta kl. 14 að Úlfarsfellsvegi
en þar hefst hlaupiö og verða
keppendur skráðir á staðnum.
sk