Þjóðviljinn - 05.04.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 05.04.1978, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 5. apríl 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 BERIT JOHNSÉN, Hallormsstað: Dreifbýlisbörnin njóta ekki jafnréttis til náms Berit Johnsen er norsk og allt í senn uppeldis- fræöingur frá Osló, hús- móðir á Hallormsstað og nemandi í íslensku i Há- skóla islands. — Mér finnst þetta fundar- form miklu betra en hiö hefð- bundna sagöi Berit. — Hér fer fram hópvinna i staö þess aö haldnar séu framsöguræður eingöngu. Ég hefði ekki viljaö missa af einni einustu fram- söguræöu á þessari ráöstefnu, en mér finnst lika mikilvægt aö þessi mál verði rædd i minni hópum. Forystumenn i flokkn- um og embættismenn i skóla- kerfinu hafa talaö mest hér, og það er eölilegt vegna þess aö þetta er fyrsta skólamála- ráöstefnan sem Alþýöubanda- lagiö heldur. En það er æskilegt aö þetta breytist og nemendu? foreldrar og kennarar verði virkari þátttakendur. Það veröur aö reyna aö leita enn betri fundarforma i frámtiðinni til að hvetja fólk til aö koma og til þess aö fólk þori að standa upp og tala. Það hefur lika komið hér fram aö flokksmenn verði aö athuga hvernig flokkurinn er byggður upp og hvort menn eru ánægöir með þá uppbyggingu. Við verðum að horfa til okkar sjálfra fyrst ef viö ætlum aö breyta skólakerfinu og þjóð- félaginu i heild. — Hvað hvatti þig til þátttöku i ráðstefnunni? — Ég sæki þessa ráöstefnu bæði vegna minna áhugamála þ.e. upp'eldismálanna og lika vegna þess, að við höfum talað talsvert um skólamál á Hallormsstaö. I haust báðum við nokkrir foreldrar um fund með skólastjóra barnaskólans á Hallormsstað vegna þess að okkur þótti krakkarnir fá of litla kennslu miðað við börn i þétt- býlinu. Við teljum að krakkar i dreifbýli eigi að hafa jafnrétti til náms miðað viö þéttbýlisbúa. Það kom fram á námskeiði fyrir kennara árið 1975 aö tiltölulega stærsti hluti ólæsra nemenda á landinu er á Norð-austurlandi. Það er sennilegt að þetta stafi af þvi að börnin koma svo seint i skólann. Það er meiri hætta á að börn sem búa einangruð úti i sveit læri seinna að lesa. Eldri systkinin eru oftast i heima- vistarskóla og þau yngri hafa oft litið samband við önnur börn. Þessi börn hafa þvi jafn- vel enn meiri þörf fyrir að koma saman i skóla og hitta jafnaldra sina. Skóiastjórinn vill gera eins mikið og hann getur, en okkur skilst að það standi á fjárveit- ingu til úrbóta. Þetta mál sýnir lika að það er ekki alltaf sem skólanefndin sinnir hagsmunum foreldra og nemenda nógu vel. Ég held aö það væri miklu betra að foreldrar og áhugamenn um skólamál kjósi skólanefndina beint. — Hvernig er kennslu sveita- barnanna háttað á Hallorms- stað? — 6, 7 og 8 ára börnum úr þremur hreppum er aðeins kennt einn dag i viku, fjóra tima i senn. 9 og 10 ára börn koma i skólann aðra hverja viku, en 11 ára byrja börnin loks i skóla á fullu og eiga þá að vita jafn mik- ið og börn hér i Reykjavik t.d. Grunnskólalögin segja að öll börn eigi að hafa jafnrétti til náms,en svo eru úrbætur i þess- um málum stöðvaðar af Berit Johnsen uppeldisfræðingur peningaástæðum. Svo eru auðvitað margir aðrir erfiðleik- ar i dreifbýiinu, ófærð á vetrum o.fl. — Ég er spennt að sjá hvaða framhald verður á þessum mál- um, sem rædd hafa verið hér, sagði Berit. — Við veröum að reyna að vinna okkur niður á eitthvað sem hægt er að ná tök- um á og nota, — það dugar ekki að tala bara endalaust. —eös HALLGRÍMUR G. MAGNÚSSON, formaður INSÍ: Þessi efni 1 — Mér finnst ráðstefn- an hafa tekist vonum framar, sagði Hallgrím- ur G. Magnússon formað- ur Iðnnemasambandsins. — Þau sjónarmið sem hér hafa komið fram eru ný fyrir marga. Ég segi fyr- ir mig, að ég hafði ekki hugsað um skólamál út frá mörgum þeim sjónar- hornum sem hér hafa verið sett fram. Þetta leiðir hugann að öðrum viðhorfum en maður hafði skapað sér áður. eina ráðstefna margar 1 viðbót — Sækja margir iðnnemar ráöstefnuna? — Við erum hér nokkrir iðn- nemar, og Jónas Sigurðsson starfsmaður INSI var með framlag um iðnmenntun. Þau mál hafa verið rædd i umræðu- hópum, og hafa þær umræður leitt til sömu niöurstöðu. Það þarf að gera róttæka hluti i verkmenntunarmálum. — Hvert finnst þér vera gildi skólamálaráðstefnu sem þess- arar? — Ráðstefnan hefur mjög mikið gildi og ég fagna þvi að flokkurinn hefur tekið þessa stefnu. Það mætti gera meira af þessu,og reyndar þyrfti aö vera framhald á þessari ráðstefnu. Þá ætti að taka fyrir eitthvert ákveðið, afmarkað efni. Þessi eina ráðstefna er efni i margar ráðstefnur i viðbót. Það hefur verið mjög góö reynsla fyrir okkur iðnnema að kynnast sjón- armiðum annarra i skólamál- um. Það leiðir til þess, að málin eru endurskoðuð i viðara sam- hengi. — Geturðu nefnt eitthvert dæmi um þær breytingar sem að ykkar mati þarf að gera á iðnfræðslunni? — Við viljum að verknáms- skólarnir verði efldir og meist- arakerfiö lagt niður i núverandi mynd. Til þess að svo geti orðið, þarf að búa betur að verknámi en bóknámi og meiri miðstýring þarf að vera á verknámsfræðsl- unni. Hér miða ég við heildar- ástand i skólamálunum. Það er t.d. óhæfa, að Iðnskólinn i Reykjavik og Fjölbrautaskólinn séu að kenna sama fagiö og veita sömu réttindi, þegar námið tekur tvö ár i fjölbrauta- skólunum, en fjögur ár i iön- skóla. Dæmi um þetta er raf- virkjun. Það virðist sem fjöl- brautaskólarnir fari eftir ann- arri námsskrá en Iðnskólinn. Nemendurnir fara yfir allt ann- að efni og siðan er þeim skellt út i bóknámsgreinar eftir tvö ár. Iðnskólinn hefur veigrað sér við Hailgrimur G. Magnússon, for- maður Iðnnem asa m bands íslands.' að taka við þessum nemendum, þar sem þeir hafa ekki nógu staögóða þekkingu. — Hvernig fannst þér þetta nýja umræðuform heppnast? — Það virkaði mjög vel. Ég held að þetta umræðuform eigi eftir að ryðja sér meira til rúms. Ráðstefnan hefur lika verið mjög vel sótt og menn hafa verið mjög virkir i um- ræðuhópum. — eös GUÐNÝ GUÐBJÖRNSDÓTTIR, lektor: Skólinn er skilgetið afkvæmi þjóðfélagsins — Mér finnst ráð- stefnuformið vera með því skárra sem ég hef kynnst á svona ráðstefn- um, sagði Guðný Guðbjörnsdóttir lektor í uppeldisf ræði við Háskóla íslands. — Hér voru f rjáls, stutt f ramlög og umræður. Þetta hvetur fleiri til að tala og láta álit SÍtt í IjÓS. Annað var lika áberandi i sambandi við ráðstefnuna, og e.t.v. orsakast þaö af fundar- forminu. Þaö var tæpt á mjög mörgum atriöum og margar góðar hugmyndir hafa komið fram. ókosturinn við þetta er sá, að ekki gefst tækifæri til að kafa mjög djúpt i ýmis mikil- væg málefni. Mér finnst þvi ljóst, að ef þessi ráðstefna á að nýtast i sambandi við stefnu- mótun flokksins, veröi töluverö eftirvinna aö eiga sér stað. — Hvað hvatti þig sérstak- lega til að taka þátt i ráöstefn- unni? — Þar sem ég starfa sjálf sem kennari I uppeldisfræöi og mennta m.a. verðandi kennara, þá eru skólamál þau málefni sem ég fæst mest viö I minu starfi. Þaö var einkum þrennt, sem hvatti mig til að koma hingað. 1 fyrsta lagi kom ég til að heyra álit fólks úr hinum ýmsu starfsstéttum i þjóðfélag- inu á þvi sem er að gerast i okk- ar skólakerfi. Mér finnst ég eins og margir aðrir kennarar vera töluvert einangruð frá viðhorf- um annarra starfshópa. önnur ástæða er sú sannfæring min, aö þar sem skólinn sé skilgetið afkvæmi þess þjóðfélagskerfis sem hann er i, þá liðist mér ekki sem kennara aö koma fram með ýmsar þær skoðanir i starfi, sem hlutdrægar þykja. Það er sannfæring min, aö skólamál og uppeldismál séu i eðli sinu póli- tisk. Ef verulegar breytingar eiga að verða I skólamálum, verða lika að eiga sér stáð breytingar á þjóðfélaginu. Til þess aö berjast á þeim vett- vangi, er nauðsynlegt að taka þátt i pólitisku starfi. Þriðja ástæðan er sú, aö ég hef reynt að fylgjast með að hve miklu leyti nýjungar i uppeldismálum hafa I reynd komist til almennings, og þá þeirra sem þessa ráð- stefnu sækja. — Telur þú ekki nauðsynlegt að sósialiskur flokkur sinni skólamálum vel? — Ég tel það ákaflega mikil- vægt, að Alþýðubandalagið kynnist af raun viðhorfum þeirra sem starfa i skólakerfinu og ekki siður neytendum þessa kerfis, þ.e. foreldrum og nemendum, — og geti komið þessum viðhorfum á framfæri á Gubný Guðbjörnsdóttir lektor. Alþingi og hafi þau til viðmiðun- ar um ákvarðanatöku þar. Það gæti kannski hamlað gegn þvi, að frumvörp um skólamál verði afgreidd án heildarskilnings þingmanna og að flokksvélarn- ar ákveði afgreiðslu mála án þess að skilningur eða yfirsýn sé fyrir hendi. —eös

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.