Þjóðviljinn - 15.04.1978, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 15.04.1978, Blaðsíða 17
Laugardagur 15. april 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 „Afmælisveislan”, eftir leikriti Pinters Eins og segulbands- upptaka úr lífínu — er sagt um samrædurnar i leikritum Harolds Pinters Sjónvarpið býður upp á bandaríska bíómynd í kvöld kl. 21.40. Myndin er gerð árið 1969 og nefnist Afmælisveislan (The Birthday Party), byggð á samnefndu leikriti eftir Harold Pinter. Leikstjóri er William Friedkin. Aðal- hlutverk leika Robert Shaw, Dandy Nichols, Patrick Magee og Sydney Tafler. Harold Pinter er fæddur 1930 i Hackney i Austur-London, sonur klæbskera af Gyðingaættum. A unglingsaldri byrjaði Pinter að skrifa ljóð fyrir timarit. Hann hóf leiklistarnám við R.A.D.A. og Central School of Speech and Drama og siðan tók við stuttur leikaraferill, m.a. i leikflokki sem ferðaðist um trland og kynnti verk Shakespeares. Ferill Pinters sem leikritahöfundar hófst 1957. Hann hafði áður skrifað skáld- sögu, Dvergana, sem hann lauk þó ekki við en breytti seinna i leikrit. Um þessar mundir var allt i einu hlaupin gróska i leikritun i Englandi, hin svonefnda „Nýja bylgja” — sem hrundið var af stað með leikriti John Osbornes, Horfðu reiður um öxl. Hver ungi höfundurinn eftir annan kom fram á sjónarsviðið. Arnold Wesker, Harold Pinter og John Osborne eru frægastir þessara nýju höfunda, og eru þeir stund- um kallaðir „þristirnið.” t fyrstu leikritum Pinters, The Room og The Dumb Waiter, má þegar greina þau stileinkenni sem léð hafa verkum hans svo sérstætt svipmót: einföld um- gerð, einfaldar samræður — sem lúta ■ allt öðrum lögmálum en samræðulist hins hefðbundna leikforms og eiga stundum meira skylt við tónlist en rökræðu; hið hversdagslega ástand sem smám saman birtist i óvæntum viddum, óvæntu samhengi, þar sem hvers- konar skýringum og ytri „mótif- um” er hafnað. Martin Esslin, leiklistarstjóri B.B.C., benti á það fyrir mörgum árum i bók sinni „The Theatre of the Absurd” (Leikhús fáránleik- ans) að fáránleiki Pinters sé i rauninni öfugmæli, þar sem hann stundi raunsæilegri aðferð en flestir aðrir höfundar. Pinter skrifar samræður sem eru á köfl- um einsog segulbandsupptaka úr lifinu, en einmitt slikur texti ork- ar fáránlega á leikhúsgesti sem eiga að venjast vandlega til- snyrtum og gáfulegum setningum og hnyttnum tilsvörum. Sama má segja um atburði og persónur i verkum Pinters — þótt mörgum þyki þetta allt i nokkurri þoku, þá gegnir einatt svipuðu máli um það sem fyrir augu og eyru ber i lifinu sjálfu, að þeir leikendur sem þar fara með hlutverk gera ekki alltaf nána grein fyrir fortið sinni eða innræti og við getum ekki ætið meö vissu vitað hvort upplifun okkar er i draumi eða vöku eða hvort mynd minningar- innar geymist óbrengluð i huga okkar. En eins og Pinter segir sjálfur: „Þörfin fyrir staðfestingu er skiljanleg, en henni verður ekki alltaf fullnægt. Enginn áþreifan- legur munur er milli hins raun- verulega og óraunverulega, eða hins sanna og ósanna. Enga nauð- syn ber til að hlutur sé annað hvort sannur eöa loginn: hann getur verið hvort tveggja.” PETUR OG VÉLMENNIÐ 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl ). 9. 00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Tilkvnningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða. óskalög sjúklinga kl. 9.15: Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. Barnatimikl. 11.10: Stjórnandi Jónina Hafsteinsdóttir. Fjallað um starfsemi dyraverndunar- félaga o.fl. Rætt við Jórunni Sörensen formann Sam- bands dýraverndunarfélaga fslands og Sigfriði Þóris- dóttur dýrahjúkrunarkonu. Einnig lesið úr Dýravernd- aranum. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Vikan framundan. Ólaf- ur Gaukur kynnir dagskrá útvarps og sjónvarps. 15.00 Miödegistónleikar. Edith Mathis syngur ljóð- söngva eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Bernhard Klee leikur með á pianó. Julian Bream og strengja- kvartettinn Cremona leika Gitarkvartett i E-dúr op. 2 nr. 2 eftir Joseph Haydn. 15.40 tslenskt mál. Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag. talar. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson kynnir. 17.00 Enskukennsla (On We go). Leiðbeinandi: Bjarni Gunnarsson. 17.30 Leikrit fyrir börn: „Pési pappirsstrákur” eftir Herdisi Egilsdóttur. Leikstjóri: Kjuregej Alexandra. Persónur og leikendur: Pappirs-Pési/Ester Elias- dóttir, Maggi/Eyþór Arnalds, Óli/Kolbrún Kristjánsdóttir, Gundi/Guðmundur Franklin Jónsson. Mummi/Guðmundur Klemenzson, ókunnugur strákur/Jón Magnússon, 1 ögr eglu þ j ón n /G uðr ið u r Guðbjörnsdóttir, skósmið- ur/Róbert Arnfinnsson, sögumaður/Sigriður Ey þórsdóttir. 18.15 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Læknir i þrcm löndum. Guðrún Guðlaugsdóttir ræð- ir við Friðrik Einarsson dr. með., lokaþáttur. 20.00 Hljómskálamúsik, Guðmundur Gilsson kynnir. 20.40 Ljóðaþáttur. Umsjónar- maður: Jóhann Hjálmars- son. 21.00 Píanókonsert nr. 1 i e-moll eftir Frédéric Chopin. Emil Giles og Fila- delfiuhljómsveitin leika, Eugene Ormandy stjórnar. 21.40 Teboð Visnagerð, — þjóðariþrótt Islendinga. Sigmar B. Hauksson stjórn- ar þættinum. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Danslög 23.50 Fréttir. Dagskrártok. 16.30 iþróttir. Umsjónar- maður Bjarni Felixson. 17.45 Skiðaæfingar (L). Þýskur myndaflokkur Tólfti þáttur. Þýðandi Eirikur Haraldsson. 18.15 On We Go Enskukennsla 22. þáttur endursýndur. 18.30 Skýjum ofar (L). Sænsk- ur sjónvarpsmyndaflokkur i sex þáttum um þrjú börn, sem komast yfir sérkenni- lega flugvél. Með hjálp imyndunaraflsins geta þau flogiðhvert sem þau vilja. 2. þáttur Flóttamaðurinn Þýð- andi Jóhanna Jóhannsdóttir (Nordvision—Sænska sjón- varpiö). 19.00 Enska knattspvrnan (L). Hlé 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Á vorkvöldi (L). Um- sjónarmenn ólafur Ragn- arsson og Tage Ammen- drup. 21.20 Fjórir dansar. Félagar úr islenska dansflokknum sýna dansa við tónlist eftir Asafiev, Tsjaikovský, Katsjatúrian og Spilverk þjóðanna. Ballettmeistari Natalie Konjus. Frá sýn- ingu i Þjóðleikhúsinu i febrúar 1977 stjórn upp- töku Andrés Indriðasón. 21.40 Afmælisveislan (L). (The Birthday Party) Bandarisk biómynd frá ár- inu 1969, byggðá samnefndu leikriti eftir Harold Pinter. Leikstjóri: William Fried- kin. Aðalhlutverk Robert Shaw. Dandy Nichols, Patrick Magee og Syndney Tafler. Leikurinn gerist á sóðalegu gistiheimili i Eng- landi. Miðaldra kona rekur heimilið og hefur einn leigj- anda, Stanley að nafni. Tveir menn, sem virðast þekkja Stanley, falast eftir herbergi. Þýðandi: Heba Júliusdóttir. 23.40 Dagskrárlok. Eftir Kjartan Arnórsson Já-aphverju Keporðo (oessap "au^na tarönjr"? Ekh )?acp vélnoenní á þeirvi bá jna I da? /-- ■ Þ\/r eft-\r aí nokkur sleak/ct stillc vélnnenni gsráu uPre‘Sn & ^eSSi 'mdtiin'V€n c> sett-ur s ö( i/élnnenni..

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.