Þjóðviljinn - 15.04.1978, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 15.04.1978, Blaðsíða 20
• Aöalsiroi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, Utbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skai bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans I slma-' skrá. „Algjör samstaða er grundyallarforsenda, Leitaö álits verkafólks á útskipunarbanninu Helgi Asgeirsson (Ljósm — eik) Fundur leigjenda á mánu- dagskvöld Og Nkomo vilja viðræður 14/4— Joshua Nkomo og Robert Mugabe, leiðtogar *ódesisku Kööurlandsfylk- ingarinnar, lýstu þvi yfir i dag áö þeir væru reiðubúnir aö setjast að samningaboröi meö öiluni aöiium Ródesiu- deilunnar, að þvt tilskiidu að Ian Smitii.fyrrum forsætis- ráðherra minnihlutastjórnar hvitra manna i Ródesiu, og aðrir i nytiikominni bráða- birgðastjórn þar i landi sætu ráðstefnuoa sem einstakl- ingar. Bráðabirgðastjórnin hefur til þessa þverneitað að taka þátt i slikri ráðstefnu. Við lögðum leið okkar i gær niður á Reykjavikurhöfn og I BæjarUtgerð Reykjavikur til þess að spyrja verkafólk hvað þvi fyndist um nýjustu aðgerðir I kaupgjaldsbaráttunni, Utskip- unarbannið. Það voru allir á einu máli um það að einskis mætti láta ófreistað til að launþegar næðu rétti slnum; Menn voru yfirleitt hlynntir útskipunarbanninu, og töldu það geta haft mikil áhrif. Harðnandi aðgerðir ef ekkert gengur nú Mér finnst þetta mjög sterk að- gerð og ég vona bara að fólk beri gæfu til að standa saman I þeirri baráttu, sem launþegar eiga nú i, þvi samstaða er grundvallarfor- senda fyrir þvi að einhver árangur náist, sagði Gestur Guðmundsson, hafnarverka- maður, þegar við hittum hann að máli ásamt Valdimar Erni Jóns- syni, sem einnig er verkamaður við höfnina. Valdimar var ekki alveg eins ásáttur við bannið og taldi að e.t.v hefði verið vænlegra að fara einhverja aðra leið, en hann var sammála Gesti um það að samstaöa allra iaunþega væri það eina, sem virkilega dygði, fyrst og slðast. • Það sýnir sig best þessa siðustu daga og mánuði hversu verka- lýðshreyfingin er nauðsynlegt afl i islensku þjóðfélagi, sagði Gestur. Það hlýtur öllum að vera ljóst hvað það er fárániegt að vera að skerða þessi lágu laun sem verkamenn og annað lág- launafólk á íslandi hafa. Það má Mánudaginn 17. apríl verður haldinn opinn undir- búningsfundur vegna stofn- unar leigjcndasa m taka i Keykjavik. Fundurinn verður haldinn í Alþýðuhúss- kjallaranum við Hverfisgötu og hefst kl. 20.30. A fundinum verða kynnt lög, sem vernda hagsmuni leigjenda i nágrannalöndun- um og hlutverk verkalýðs- hreyfíngarínnar i þessum efnum rætt. Þá verða almennar umræður um markmið og form slikra samtaka, sem ætlunin er að slofna siðar i þessum mán- uði. l'undarstjóri verður Guömundur 1>. Jónsson, formaður Landssambands íðnverkafolks. Stutt ávörp flytja Haukur Már llaralds- soh, blaðafulltrúi ASi, sem setur fundinn. Guðmundur J. Guðinundsson, formaður Verkamannasambands ls-|J_GesUtr Giaömundsson t.v. og Valdimar örn Jónsson (Ljósm: —eik) lands og Arnmundur BæciG~T|_ ntann lögfræðingur. Fundttrinn er opinn öllu áhugafólki, og gefst þar væntanlega tækifæri til þess að mynda .sérstaka starfs- hópa i einstaka málaflokka, sem lengjast stofnun og markmiði samtakanna, auk þess sem skipuð verður 5—7 manna undirbúningsnefnd sem boðar til stofnfundar ieigjendasamtaka siðar i þessum mánuði. enginn viö þvi i allri þessari dýrtiö og veröbólgu. Aöspurðir sögöu þeir Gestur og Valdimar aö ómögulegt væri aö segja til um hvaö Utskipunar- bannið myndi standa lengi, viö verðum bara aö vona að þaö beri árangur,og þaö má enginn hlaup- ast undan merkjum. Nú,ef rikis- stjórnin eða aörir sem hlut eiga að máli vilja ekki gera neitt I málinu, þá má búast viö aö aö- gerðir fari harönandi. Viö spurðum þá hvort þetta bann kæmi ekki til meö aö muna þá miklu i launum. Auövitaö dregur það sig saman, sagöi Gestur, og manni finnst sjálfsagt aö stutt sé viö bakið á þeim, sem veröa fyrir tekjumissi vegna baráttunnar fyrir alla launþega. Skjaldhamrar slá öll met í lönó Fyrst og fremst að þakka góðum leik og góðri leikstjórn, segir höfundurinn Jónas Arnason t kvöld verður 179. sýning á Skjaldhömrum Jónasar Arna- sonar i Iönó. Hefur þá ekkert íslenskt verk verið sýnt jafnoft i Keykjavik sainfleytt. Fyrra met- ið var sett 1972 með Kristnihaldi undir jökli cftir Halldór Laxness. Það var sýnt 178 sinnum sam- fleytt i lðnó. Þjóðviljinn hafði samband við Jónas Arnason og spurði hrann hverju hann viidi þakka vinsældir leikritsins og sagöist hann fyrst og fremst þakka það góðum leik og leik- stjórn og þvi tilgerðarleysi og cinlægni scm einkenndi sýning- una undir stjórn Jóns Sigur- björnssonar. Þaö er einkennilegt, sagði Jón- as, að þvi meir sem lagt pr til menningar og lista hér á landi eykst að sama skapi tilgerð og yfirborðsmennska i tali um menningu og listir. Fólk á öllum aldri og af öllu mögulegu tagi hefur séð Skjaldhamra og þeir virðast eiga erindi við það. Kannski að þvi finnist þetta fals- laust verk. Eg er mjög þakklátur Leik- félagi Reykjavikur fyrir það sem það hefur lagt i þetta verk, sagði Jónas. Ég er svo heppinn að hafa fengið Jón Sigurbjörnsson sem. leikstjóra og Þorstein Gunnars- son i aðalhlutverkið en þessir tveir menn eru lika með i nýju verki eftir mig, Valmúinn springur út á nóttunni, sem frumsýnt verður um miöjan mai i Iðnó. Þeir skipta aðeins um hlut- verk. Þorsteinn leikstýrir, en Jón leikur aðalhlutverkið. Það er ekki bara i Iðnó sem Skjaldhamrar hafa verið sýndir. 1 vetur hefur þetta vinsæla verk verið sett upp á 6 stöðum á land- inu, i Búðardal, á Bildudal, Skagaströnd, ólafsfirði, Húsavik og Borgarfirði eystra. Þá hefur það verið fært upp viða erlendis. Fyrst var það sýnt fyrir 2 árum á leiklistarhátið i Dundark á lrlandi, en Tomas MacAnna, þjóðleikhússtjóri íra, var i dóm- nefnd á þeirrileiklistarhátið. Það varð til þess að Skjaldhamrar vorusýndir i Abbey leikhúsinu i Doblin haustið 1976 með Gunnar Eyjólfsson i aöalhlutverki. Það sá það amerisioir leikhúsmaður sem beitti sér fyrir þvi, að Skjald- hamrar vorusettirupp i leikhúsi i Midland i Texas. S.l. haust voru þeir svo settir upp i VasaleikhUs- inu i Finnlandi undir leikstjórn Jónas Arnason Eyvindar Erlendssonar, og nú verður verkið sýnt bráölega á 3 öðrum stöðum: i Póllandi, i Luleá i Sviþjóð og Kemi i Finn- landi. Eins og áöur sagði hafa Skjald- hamrar núslegiðKristnihaldiö Ut með samfelldan sýningarf jölda i Reykjavik. Það verk, sem næst kom að sýningarfjölda á fjölum Iðnós er Hart i bak eftir Jökul Jakobsson, sýnt 160 sinnum þar, en auk þess 45 sinnum i leikferð- um um land. Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson hefur verið sýnd 135 sinnum i Iðnó og auk þess 57 sinnum utan Reykjavikur. Sýningum á þessum vinsælu verkum, Saumastofu og Skjald- hömrum, er nú að ljúka. —GFr Býst við að það beri árangur Þetta eru kannski helst til rót- tækar aðgeröir, sem geta haft slæmar afleiðingar fyrir landið allt. En það virðist bara ekkert duga nema róttækni til þess að ná fram sjálfsögðum hlutum, sagði Ragnheiður Jóhannsdóttir, trún- aðarmaður hjá BÚR. Ég hugsa, að þetta bann komi til með aö bera einhvern árangur og mér finnst ekki nema sjálfsagt að styðja við þá sem standa i framkvæmd baráttunnar, i þessu tilviki hafnarverkamenn. En það er varla hægt aö búast viö verulegum árangri nema við stöndum saman sem einn maður og það vill allt of oft brenna við að svo sé ekki. Ég get t.d. ekki annað en kallað þessa menn, sem standa fyrir þvi á Vestfjöröum og Suöurnesjum að rjúfa sam- stöðuna, annað en drullusokka. Það eru menn, sem ekkert er á að treysta, sagði Ragnheiður (sem alls ekki vildi láta taka mynd af sér). Það sem gildir Það sem gildir er að sjálfsögðu að gera eitthvað til þess aö fá bætta samningana, sagði Helgi Ásgeirssön, verkamaður hjá BÚR. Það er bara alltaf sama vanda- málið við að etja, ekki nógu góð samstaða. Ég tel t.d. að ef allir launþegar hefðu staðið einhuga saman um að taka þátt i vinnu- stöövunihni i. og 2,mars,þá heföi mátt vænta mikils árangurs af þeim aðgerðum. Ég held að það komi margar leiöir til greina i þessari baráttu en þaö verður ekkert gert án algerrar samstöðu, sagði Helgi, og við verðum bara aö stefna að þvi að ná rétti okkar fyrr en siðar. —IGG. BHM fordæmir refsi- aögeröir Launamálaráð Bandalags há- skólamanna hefur sent frá sér samþykkt þar sem fórdæmdar eru þær refsiaðgerðir sem rikis- valdið beitti starfsmenn sina um siðustu tnánaðaimót. Launamálaráö telur að eðlilegt hefði verið að draga einfalt dag- vinnukaup frá launum þess starfsfólks, sem ekki mætti til vinnu 1. og 2. mars, eins og tiðk- ast hjá öðrum vinnuveitendum i slikum tilvikum. Að öðrum kosti telur ráðið að fara hefði eftir ákvæðum umburðarbréfs fjár- málaráðuneytisins nr. 7 frá 1968 og gefa starfsmönnum kost á að velja um að vinna af sér fjarvist- irnar með aukavinnu eða sæta til- svarandi fækkun sumarleyfis- daga. Með refsiaðgerðum sinum hefur rikisvaldið sýnt fram á hve mikilvægt er fyrir launþega að hafa yfir að ráöa öflugum verk- fallssjóði, þannig að slikar refsi- aðgerðir missi marks — segirog i samþykktinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.