Þjóðviljinn - 16.04.1978, Side 7
ÞJÓÐVILJINN — 7
Páll Helgason
Framhald afbls. 6
þaö myndi koma hótelinu til góöa.
baö gerir hótelrekstrinum erfitt
fyrir, aötimabiliö frá hausti fram
á vor er afskaplega dautt. A
hótelinu er matsala, en auk þess
hefur nýlega opnaö stór og glæsi-
legur veitingastaður, „Gest-
gjafinn”. Einnig er hér litill og
snyrtilegur veitingastaður,
„Skútinn”.
— Er kannski þörf á betri kynn-
ingu á Vestmannaeyjum sem
ferðamannastað?
— Það er tvimælalaust hægt að
auka feröamannastrauminn
hingað með betri kynningu.
Annars hafa ferðaskrifstofurnar i
vaxandi mæli auglýst Eyjarnar
upp, ognú erum við ekki eins háð-
ir fluginu og áður, vegna dag-
legra ferða Herjólfs.
— Hvenær er aðalferðamanna-
timinn?
— Þetta fer rólega af stað
seinnipartinn i april, en byrjar i
mai af einhverjum krafti. Bestu
mánuðirnir erujúni, júliog ágúst,
og september oft lika. A öðrum
timum kemur einn og einn ferða-
langur, og maður reynir að taka
ekki siður á móti þeim sem koma
einir heldur en stórum hópum.
Þegar mest er að gera, hef ég
þurft að fara 4-5 skoðunarferðir á
dag. Og þaö kemur fyrir, að sama
fólkið fer i 2-3 skoðunarferðir. Þá
verður maður að hafa fjölbreytni
i frásögninni. -eös
40 manns á námskeiði
fyrir leiðsögumenn
Með ferðamálalögunum frá
1976 voru Ferðamálaráði
Islands falin nokkur verkefni,
sem áður höfðu verið i höndum
Ferðaskrifstofu rikisins, þ.á.m.
menntun og þjálfun leiðsögu-
manna. Ferðaskrifstofa rikisins
stóð fyrir nokkrum námskeið-
um fyrir verðandi leiðsögumenn
á árunum 1969—1974 og stjórn-
uðu þeim Björn Þorsteinsson,
sagnfræðingur, og siðar Vigdis
Finnbogadóttir, leikhússtjóri.
Fyrsta leiðsögunámskeið
Ferðamálaráðs tslands var
haldið veturinn 1976—1977 og
hófst það i desember 1976 og
lauk i maí 1977. Þar sem i ljós
kom sl. sumar að skortur var á
þýsku- og frönskumælandi leið-
sögumönnum, ákvað Ferða-
málaráð að halda leiðsögunám-
skeið aftur nú i vetur og leita
sérstaklega eftir þátttakendum,
sem tala þau tungumál. Þátt-
taka er mjög góð, þvi 40 manns
sitja námskeiðið.
Námskeiðið hófst 8. október
sl. og mun ljúka i lok aprilmán-
aðar. A fyrri hluta námskeiðs-
ins voru haldnir fyrirlestrar um
ýmsa málaflokka s.s. sögu
Gott gott”!
11
Ef þú viltkaupaþér ,,gott gott” i ferðalag-
ið skaltu byrja ferðina i Barón, þvi þar er
sælgæti i öllum hillum!
Barón
Laugavegi 86
landsins, gróður, dýralif, jarð-
fræði, Alþingi, atvinnuvegi og
félags- og menningarmál.
Þegar þessum fyrirlestrum
lauk, fóru fram munnleg próf i
tungumálum og skrifleg próf i
áðurnefndum málaflokkum.
A siðari hluta námskeiðsins,
sem hófst eftir áramótin, fer
fram kennsla i skyndihjálp og
kynntir verða hinir ýmsu lands-
hlutar. 1 lok námskeisins verða
skrifleg próf og farnar kynnis-
og prófferðir. Þeir sem standast
próf námskeiðsins, fá inngöngu
i Félag leiðsögumanna og þar
með rétt til leiðsögustarfa.
Bilaleigan
EYJABÍLL
leigir Volkswagen
1200 og 1300
Ford Transit sendi-
bil. Innanbæjar — tJt
á land
Simi 1515
Páll Helgason.
Bifreiðaeigendur
ferðafólk!
Gleymið ekki að láta okkur stilla vélina i
bilnum, áður en þér leggið upp i ferðalag-
ið.
Vel heppnuð ferð á vel stilltum bil.
Fljót og góð þjónusta
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Brautarholti 4
MILLILANDS OG EYJA
á ódýran, öruggan og þægilegan hútt
Það er fátt einfaldara heldur en að
taka bifreiðina með á milli lands og
eyja, eftir að Herjólfur kom til sög-
unnar. Við bjóðum farþegum upp á
þægindi og þjónustu, ódýrt fargjald
og litinn aukakostnað, ef billinn á að
fljóta með.
*
Helgarferð milli lands
og Eyja er bæði sjálfsögð
og skemmtileg.
Sumaráætlunin hefst 1. maí.
Áœtlunin verður gefin út
um þessa helgi
Kynnið ykkur ferðir
Herjólfs i sumar
Flytjum auk farþega og bifreiða alls
kyns varning ef þess er óskað.
HERIÓLFUR HF
Vestmannaeyjum, sími 98-1838, 98-1792
Matkaupshúsinu, Vatnagörðum, Reykjavik, sími 86464