Þjóðviljinn - 23.04.1978, Page 3
Sunnudagur 23. april 1978 ' ÞJóÐVILJINN — StÐA 3
Sjötti áratugurinn í tísku:
Rokk, þröngu
skálmarnar
og neyslu-
bjartsýnin...
Lifsflótti i margvislegasta formi sýnist vera mik-
ið tiskufyrirbæri nú um stundir. Atburðir nýrra
kvikmynda eru i stórum stil fluttir út i geiminn
fram i óákveðna framtið. A hinn bóginn komast
fyrri áratugir aldarinnar með fatnaði sinum,
hárgreiðslu, dægurlögum, húsgögnum og endur-
minningum i tisku. Fyrir skömmu var það þriðji
áratugurinn (Gatsbyæðið). Siðan kom sá fjórði og
þvi fylgdi m.a. furðulega sterkur og að margra
dómi óhugnanlegur áhugi á Hitler.
Nú er röðin komin að timabilinu milli 1950 og 1%0.
Ævintýri i
uppsiglingu
Tiltölulega auðvelt er að láta
sér -detta i hug ástæðu fyrir
vinsældum einmitt sjötta
áratugsins núna, þegar efnahags-
kreppa tröllriður rikjum og
mikils hluta ungs fólks biður
ekkert annað en atvinnuleysi.
Sár striðsins voru farin að gróa
i Evrópu, að visu mátti enn finna
til þess, að striðið hafði veriö
mikið áfall sem lamaði menn til
langs tima. Ekki bætti það úr
skák að kalda striðið milli austur
og vesturblakkar virtist frysta
allt pólitiskt ástand um ófyrir-
sjáanlegan tíma. En ævintýri
hagvaxtar og þar með neyslu
voru af stað farin og urðu mörg-
um nokkur huggun og léttir. Hjól-
in voru farin að snúast. Einkabill-
inn var að visu ekki kominn i
tisku i þeim mæli sem siðar varð,
en vespan og önnur litil mótorhjól
urðu að stöðutákni og
karlmennskutákni æskunnar.
Fatnaður og húsgögn voru ekki
lengur eitthvað það sem erfitt var
að nálgast, jafnvel þótt peningar
væru i boði — framboð var orðið
talsvert og það fékk marga til að
trúa þvi, að frelsið væri á næstu
grösum. Frelsi i neyslu, frelsi i
lifnaðarháttum — og þar á eftir
mundi koma annað og meira.
Amriskur timi
Þetta var timi James Dean og
Elvis Presley. Rokkið fór um allt
eins og eldur i sinu. Þetta var timi
þröngra buxna og támjós skó-
fatnaðar. Þetta var að verulegu
leyti bandariskur timi: þaðan
komu enn þær kvikmyndahetjur
sem urðu að fyrirmyndum nýrrar
kynslóðar, þaðan kom dægur-
músik timans, þaðan kom allt
frumkvæði i neysluiðnaði. Kóreu-
striðið geisaði að visu á þessum
tima, en það hafði hvergi nærri
eins afdrifarikar afleiðingar fyrir
sjálfsmat Bandarikjamanna né
heldur fyrir afstöðu annarra til
þeirra og Vietnamsstriðið á
sjöunda áratugnum.
Og nú er þessi timi, sem er
aðeins 20—30 ár i burtu, orðinn
nógu „annarlegur” til að breytast
i goðsögn, i tisku, i eitthvað sem
menn sakna.
Og rokkið gengur aftur i út-
varpsstöðvunum eins og
gómsætar „gamlar lummur”.
Þröngu skórnir og buxurnar eru á
leiðinni. Bækur eru skrifaðar.
Dagbók tánings
1 Vestur-Þýskalandi, nánar til
tekið i Hamborg, var haldin sér-
stæð sýning um sjötta áratuginn.
Þar eru mublur og plötur og
timarit og bækur og fatnaður og
alltsemheiti hefur. Sá hlutur sem
mesta athygli vekur er dagbók
táningsfrá árunum 1954—58. Hún
er full með frimerki, leikara-
myndir, slagaratexta og vanga-
veltur um það hvaða starfsgrein-
ar séu eftirsóknarverðastar:
flugfreyja, tiskublaðakona, neyt-
ejidaráðgjafi....
Plötusmiðir, rafsuöumenn
og nemar
i plötusmiði og
rafsuöu óskast
Frá sýningu á munum frá sjötta áratugnum — það virðist taka æ skemmri tima að breyta liðnum árum i
þjóðsögu.. .
Táningar frá sjötta áratugnum: þröngar skálmar.
támjóir skór
Elvis Presley var hetja þessa tima.
Hækkun
á dráttarvöxtum
VeÖdeildarlána
(Húsnæöismálastjórnarlána)
Fra og með 1. maí hækka dráttarvextir á
öllum veðdeildarlánum, sem tekin hafa verið eftir
1. júlí 1974 og bera bókstafinn F.
D,E og F lán falla í gjalddaga 1. maí
og verða áfram 1% dráttarvextir á D og E lánum.
Dráttarvextir F lána hækka hinsvegar úr 1% í 3%
fyrir hvern mánuð og byrjaðan mánuð.
Athugið að þessi breyting tekur gildi 1. maí n.k.
Veðdeild Landsbanka (slands