Þjóðviljinn - 23.04.1978, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 23.04.1978, Blaðsíða 21
Sunnudagur 23. april 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 Svo eru það þessi farartæki sem menga andrúmsloftið. Villisvinið er i hraðferð, en geitin stoppar alisstaðai-. — Taxi. — Séðu ekki að hann cr upptekinn? — Hvað segir vcörið? — Það er á leiðinni. garðinum Hverslags smámunasemi er þetta? Hafa Islendingar efni á að sóa 5,5 miljörðum króna árlega? Alþýðublaðið Kúgun kvenna magnast. F'orstjórinn (Ingólfur Guð- brandsson) sýndi baðfatatiskuna á Hótel Sögu: Fegurðardisirnar hurfu i skuggann. Forsiðufyrirsögn i Visi Sé gullkálfur með i leikn- um Hefur guð nokkuð á móti dansi? Fyrirsögn i Dagblaðinu Efnahagsleg bjartsýni? Miljón króna kaffibolli i Sögu Dagblaðið Samræmd stjórnsýsla ný Innlánasjóður lánaði fé til iðn- reksturs, aðeins nokkrum mán- uðum siðar kom leyfi borgarráðs til veitingahúsareksturs. Dagblaðið Við hverju má búast af flokknum? Strætisvagn á villigötum. Dagblaðið Félagsráögjöf á háu stigi Fólk sem þekkir lifsspeki mina og visku, hefur leitað ráða hjá mér vegna vaxandi einmana- kenndar. Stundum hefi ég svar- að: Fáðu þér kött. Samvera við ketti er skemmtilegri og ábyrgðarminni en hjónaband. Lesbók Morgunblaðsins Fjóluilmur i Mogganum Timi hryðjuverka kvenna er engan veginn hjá liðinn. Þær eru fjölmennastar og grimmastar. Morgunblaðið Spyr sá sem ekki veit. Hvað eru Vottar Jehóva að hóa i fjöllum þar sem bergmálið leik- ur á þá og segir: rúsinuslátur? Morgunblaðið Baráttan gegn atvinnu- leysinu Greining kristninnar veitir hverjum nýjum Satan sem upp- fundinn er aukin starfsskilyrði. Morgunblaðið Viöar er Geir en á Islandi Halda litið um formanninn H.september (Færeyjum) Samheldni í fjölskyIdunni Sjúklingurinn býr á bóndabæ með móður sinni, sem hann hefur tekið i arf eftir föður sinn lægesekretærbladet. Praksisinn er erfiðari Dauðinn er — að minnsta kosti á hinu fræðilega plani — orðinn vinsælt efni. Fyns Amt Avis Nóg er mjólkin i kúnum. Hann segir t.d.: Eru konubrjóst ljót og klámfengin? Þá segi ég: Kannski að kona hans hafi svo falleg brjóst að hann vilji helzt að þau komi fyrir almenningssjónir. Veit hann ekki hvaða hlutverki þau hafa að gegna hjá konum? Þau eiga ekki að vera neinir sýningargripir. Þau eru sköpuð til aö framleiða fæðu fyrir barnið sem hún elur en ekki til að hlaupa með ber um allar jarðir. Dagblaðið Adolf J. Petersen: VÍSNAMÁL Þegar sólin signir láð Vorblærinn hefur strokið hlýtt um vanga að undanförnu, vakið hjá mönnum vonir um ánægju- legt Sumar sem nú er gengið i garð, þá koma allar langanirnar hjá þeim sem unna friðsælli náttúru og vilja njóta hennar, fjarri ys og skarkala borgarlifs- ins, hverfa um stundar sakir til æskustöðvanna, og það hvað helst hafi þær verið i björtum og gróðurrikum dal. Þannig er það t.d. að ölöf Guðmundsdóttir hefur um langt skeið dvalið i Reykjavik en i visunum hennar ómar heimþráin, hugurinn ber hana vestur i dali þar sem Auður djúpúðga nam land og gaf Erni Meldúnssyni hluta úr landnámi sinu. Um óskir sinar og heimþrá kveður ölöf Guðmundsdóttir þannig: Ef ég mætti óska mér upp I sveit á vorin. A æskuslóðum okkar hér yrðu léttust sporin. Þegar sólin signir jörð og sumarblómin anga. Vestur i Dali um vik og fjörð vist mun hugann langa. Aheit skal ég efna mitt, ekki má þvi gleyma. Gleddu jafnan geðið þitt við gróðurreitinn heima. Að vera kominn heim til hljómanna og blómanna er fögnuður þess manns sem er orðinn þreyttur á malbiki og steinsteypu. Bragi Jónsson frá Hoftúnum kom heim og kvað: Fuglaraddir fagurt hljóma, fagnar hjartað söngvum þeim. Nú i sumarsólar Ijóma sælt er að vera kominn heim. A sumardaginn fyrsta 1927 kvað Gisli Ólafsson frá Eiriks- stöðum: Hærra benda skýja-skil skreytir lendur vorið. Okkur sendir sólaryl sumarið endurborið. Vorið er timi ásta og unaðar. 1 kvæðinu Vor kveður Hjörtur Gislason meðal annars þessar tvær visur: Meðan léttstig æskan á ástafund i leyni, gægist fögur fjólan blá feiinin undan steini. Svona lifsins angan er áfeng jarðarbarni, þegar islenskt vor um ver vefur töfragarni. Vestur-Islendingurinn Friörik Pétur Sigurðsson kvað sin sólarljóð um sumarmál: Sólarljóð um sumarmál syngja fljóð og drengir. Hreyfist blóð, en hitnar sál hrifast góðir drengir Burt er runnið flóð af fold fram i unnar ginið. Færa kunni frjóvgun mold fagurt sunnu skinnið Þegar gróa á grundu blóni, gerist nóg af.yndi. Syngur lóa léttum róm, lagið hóf i skyndi. Skagfirðingurinn Jóhann P. Magnússon frá Mælifellsá, hreyfst i hjarta sinu af dis vors- ins og kvað: Vekur blómin vorsins dis vinarrómi hlýjum, upp i Ijóma röðull ris, raddir óma i skýjum. Jóhann var um skeið gæslu- maður á Kili og átti þar margar unaðsstundir, en samt sagði heimþráin til sin, svo hann kvað: Sólin blandar skini skúr, skýrðist blómum jöröin, hugurinn leitar útlegð úr inn i Skagafjörðinn. Annar Skagfirðingur, Magnús Gislason frá Vöglum vissi hvar frelsið var að finna i heimahög- um: Gróa á hjalla grösin smá grænka vallarbörðin. nú er falleg sjón að sjá sól unt allan fjörðinn. Geislar flæða fjalls um skaut, fegra hæð og buga. Hér i næði lyngs við laut leitar kvæði i huga. Margan seiðir mann að sér mörkin breiðog hálsar. Uppi á heiðum eru mér allar leiðir frjálsar. Skagfirðingurinn Þorsteinn Magnússon frá.Gilhaga, flutti burt úr Skagafirðinum. en hugsaði oft heim og sá umhverf- ið fyrir innri sjónum, hann kvað: Signi haga sunnuhvel, svo hvern dag ég virði. Nú er fagurt, veit ég vel vor i Skagafirði. Fögur er brekkan og hliðin þar sem Jón Þorsteinsson frá Arnarvatni undi á æskudögum, til hliðarinnar kvað hann: Enn er brekkan blið og fríð blónt i runnum innar, þar sem valt i Viðihlið vagga æsku minnar. Þessum brekku brjóstum hjá bestu gekk ég sporin, þegar brá mér eintal á albjört nótt á vorin. Á fyrsta sumardag, kvað Kristinn Bjarnason frá Asi i Vatnsdal Vetrar liður stundin strið stormur hriða þagnar, sunnan þiða sólskinsblið sumartiðin fagnar. Foldarsvæði sent er autt, svella bræðast lögin. Vonir fæða og vekja dautt vorsins æðaslögin. Arsólm hefur margri manns- sálinni yljað. Árni Jóhannesson i Kópavogi hefur orðið fyrir sterkum áhrifum þegar morgundisin kyssti hann á vangann: Oft ég kenni unaðar innst til sálargrunna er fögur yfir fold og mar flæðir morgunsunna. Arni hefur bæði séð og hevrt Pál Bergþórsson lýsa veðrinu og spá fyrir nóttina og morgun- daginn, og sendir honum þessa kveðju: Vorið nálgast vetur flýr veðra lýkur báli. Sunnan blærinn sumarhlýr sifellt yljar Páli. Árni þurfti eitt sinn að hafa tal af bæjarstjóranum i Kópavogi. sem þá var Hulda Jakobsdóttir. I þann tið voru göturnar mis- sléttir malarstigar. A heimleiðinni kvað Arni: Treð ég leiðir torsóttar, tregt er fót að bera, heldur finnst mér holóttar llulduslóðir vera.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.