Þjóðviljinn - 23.04.1978, Page 9

Þjóðviljinn - 23.04.1978, Page 9
Sunnudagur 23. april 1978 ÞJÓDVILJINN — SIDA 9 Þýskar sveitir hafa slegið ghettóið eldi. UPPREISNJ Þann 19. april 1943 eða f yrir réttum 35 árum, hóf st í Gyðingahverf inu í Varsjá bardagi sem ekki átti sinn líka í heimsstyrjöldinni siðari.Andspyrnuhreyf ingu Gyðinga hafði með ótrú- legri fyrirhöfn tekist að ná saman nokkru safni af léttum byssum og búa til handsprengjur: þetta unga fólk, flestir ungir só- sialistar og vinstrisinnaðir sionistar, hafði ákveðið að falla meðsæmd, sanna það fyrir heiminum að gyð- ingar létu ekki leiða sig sem lömb til slátrunar. Fyrsti dagurinn Um nóttina hafði orðið vart við SS-sveitir þýskar, sem og lettn- eskar og úkrainskar hjálparsveit- ir fyrir utan hinna lokuðu múra ghettósíns. Andspyrnuhreyfingin (Zydowska Organizacja Bojowa, Baráttusamtök Gyðinga eða ZOB) bauð liði sínu út, 22 sveitum ungra karla og kvenna, sem flest voru á aldrinum 18-25 ára. Alls voru um 1000 manns i þessum sveitum, en fjöldi vopnlausra studdi þær með ráðum og dáð. Nokkrar sveitir aðrar voru fyrir utan skipulag ZOB (ZZW Irgun o.fl.) og tóku fullan þátt i bardög- um. Snemma morguns komu um 6000 alvopnaðir SS-menn inn i Ghetto. Þar voru þá eftir aðeins um 50 þúsundir manna og nú átti að flytja einnig þetta fólk i út- rýmingarbúðir. SS-sveitirnar höfðu vélbyssur og skriðdreka og gnægð skotfæra. Sveitir ZOB* voru þá við öllu búnar, og höfðu skipað vopnlausu fólki i kjallara og felustaði sem grafnir höfðu verið og útbúnir mánuðum sam- an. ZOB sveitirnar réðust af dirfsku og heift á SS-sveitirnar bæði með skothrið og þá sérstak- lega með ikveikjusprengjum sem framleiddar höfðu verið með mestu leynd i neðanjarðarverk- stæði. Aðrar sveitir komu i veg fyrir að innrásarliðinu bærist liðsauki. Skriðdrekar stóðu innan stundar i ljósum logum og eftir tiu stunda bardaga urðu SS-sveit- irnar að hörfa. iÞær höfðu misst 200 manns. Undrun og fögnuður Undrun Þjóðverja var mikil en þeim mun meiri fögnuður Gyð- inga. Ein þeirra fáu sem af komst, Zivia Zuckerman, segir svo frá: Við hlógum af hamingju. Allir vissu að Þjóðverjar mundu koma aftur og ekkert beið okkar nema ósigur og dauði, en eftir að hafa barist þennan dag i ghetto föðmuðu menn hver annan og kysstu. Næsta dag héldu bardagar áfram af drjúgri hörku. Best heppnaða aðgerð ZOB var sú, að það tókst að fella hundrað SS- menn i einu með þvi að sprengja undir þeim jarðsprengjur. Göt urnar voru likum stráðar og ZOB tókst að ná nokkru af vopnum og skotfærum af föllnum andstæð- ingum. Þá um kvöldið sendu Þjóðverjar fleiri skriðdreka á vettvang, einnig stórskotalið, og þeir komu sér upp vélbyssu- hreiðrum á þökum nokkurra húsa. Baráttugleðin var mikil meðal Gyðinga, sem drógu á loft yfir ghetto hinn bláhvita fána með Daviðstjörnunni og svo fána Pól- lands. Til síöasta manns Næstu daga var barist af mikilli hörku. Þjóðverjar höfðu tekið vatn og rafmagn af hverfinu, en brunnar höfðu verið grafnir innan þess áður en uppreisnin hófst. Þjóðverjar gripu nú i æ rikara mæli til þess vopns sem engin ráð voru til við: eldsins. Þeir kveiktu i hverju húsinu af öðru með eld- vörpum — og tókst þannig að neyða óvopnað fólk sem faldi sig i þeim til að gefast upp. Fjöldi fólks brann lifandi. En sveitir andspyrnuhreyfingarinnar vörð- ust af mikilli hörku gegn marg- földu ofurefli. Eftir fimmta dag uppreisnarinnar áttu þær þess ekki lengur kost að gera áhlaup að degi til, en þær stunduðu skæruáhlaup i skjóli,myrkurs til að fella þýskar varðsveitir og hirða vopn þeirra. Herstjóri ZOB„ Mordechai Ani- elewicz kom frá sér á fimmta degi bréfi til samherja sinna sem földust meðal pólskra ,aria” utan ghettósins. Hann segir þar — við munum öll deyja fyrr eða siðar — en okkar siðasta ósk er orðin að veruleika — sjálfsvörn og hefnd Gyðinga er staðreynd. Hinar fámennu og illa vopnuðu sveitir Gyðinga sýndu meira út- hald en nokkurn hafði grunað gegn ofurefli, eldi og eimyrju. Það var ekki fyrr en áttunda mai, að Þjóðverjum tókst að um- kringja aðalbækistöðvar ZOB. Þeir köstuðu eiturgasi inn i „virki” þetta, en þar voru um 100 manns fyrir. Enginn þeirra féll lifandi i hendur SS, ýmist féllu þeir i þessum siðasta bardaga eða þeir sviptu sig lifi. Meðal þeirra var Mordecai Anielewich. Gyðingar börðust hér og þar i borginni allt til fimmtánda mai. Tiunda mai tókst um það bil 75 andspyrnuhermönnum að komast undan um sorpleiðslur Varsjár og gengu þeir siðan i lið með pólsk- um skæruliðasveitum. Ghettóið var orðið að risavöxn- um kirkjugarði. Af hverju ekki fyrr? Margir hafa spurt sig að þvi, hvers vegna uppreisn af þessu tagi var ekki gerð fyrr (nokkrar aðrar voru gerðar, m.a. ein mjög fræg i útrýmingarbúðunum i Treblinka). Eða vissu Gyðingar ekki hverju fram fór? Svörin við þessu eru fleiri en rakin verða i stuttu máli. Gyð- ingar voru vanir sviptingu rétt- inda og ofsóknum af ýmsu tagi. Og þegar nasistar hertóku stærsta Gyðingaland i heimi (3,5 miljónir Gyðinga bjuggu i Pól- landi fyrir strið, þeir voru um 10% landsmanna) og hófust handa um að svipta þá rétti, reka þá i lokuð borgarhverfi, halda þeim til nauðungarvinnu á smánarkaupi, þá héldu menn ein- faldlega að miðaldir væru komn- ar aftur. Og það er i mannlegu eðli — og trú Gyðinga, að ætla að öll él birti upp um siðir. Gyðingar settu upp sinar stofn- anir undir eftirliti Þjóðverja, (Judenrat), sem mjög hafa verið illræmd fyrir „samvinnu” við nasista. Sannleikurinn er sá, að Gyðingaráðin áttu i fæstum til- vikum neinna kosta völ. A þeirra vegum var reynt að hjálpa sjúk- um og hungruðum, smygla mat- vælum inn i ghettóin. Það var reynt að semja við þýsk yfirvöld, múta þeim, reyna að bjarga þvi sem bjargað varð. Beinn mótþrói af hálfu starfsmanna Gyð- ingaráðanna þýddi ekki annað en að stórir hópar gisla voru skotnir. Of ótrúlegt Auk þess trúðu hvorki Gyðingar né aðrir þvi fyrr en um seinan að nasistar mundu i raun og veru útrýma Gyðingum. Sjálfir héldu Þjóðverjar upp mjög útsmognu blekkingakerfi sem kom i veg fyrir að Gyðingar, sem smalað var i flutningalestir, kæmust að þvi fyrr en á endastöð að leiðin lá i útrýmingarbúðir. Gyðingar sjálfir áttu bágt með að trúa lausafregnum um þessi efni sem fóru að breiðast út 1941. t fyrsta lagi trúir enginn á eigin dauða. 1 öðru lagi var slikt þjóðarmorð á ánauðugu vinnuafli óskiljanlegt frá sjónarmiði hagsmuna hinnar þýsku hernaðarvélar sjálfrar, sem þurfti sannarlega á öllu þjálfuðu vinnuafli i verksmiðjum að halda. Enda höfðu háttsettir menn þýskir reynt að skjóta „endanlegri lausn Gyðinga- vandamálsins” á frest einmitt með skirskotun til þýskra hags- muna. Ágreiningur Þegar leiðtogum Gyðinga i Varsjá var það ljóst i júli 1942. að stefntvarað brottflutningi þeirra allra og likast til tortimingu, héldu fulltrúar ýmislegra sam- taka þeirra (flestra bannaðra) með sér fund. Þar voru skiptar skoðanir. Fulltrúar hægriflokka og strangtrúarmanna töldu að andspyrna væri vonlaus og mundi aðeins flýta fyrir dauða fólksins. Þeir vildu reyna allar leiðir til að draga brottflutninga á langinn i þeirri von að einhverjir mundu lifa ósigur Þýskalands. Það voru fulltrúar vinstrisinna og æsku- lýðssamtaka — sósialista, kommúnista, vinstrisionista, sem vildu samstarf um undirbúning uppreisnar. Þeir höfðu aldrei fall- ist á að starfa með Gyðigaráðún- um, þeir höfðu þjálfun i verkföll- um og annarri baráttu gegn fjandsamlegum yfirvöldum. Og þeir stofnuðu ZOB. Vopnleysið En erfiðleikar þeir sem ZOB mætti sýna best hve fáir kostir Gyðinga voru. Þeir voru vopn- lausir. Bretar aðstoðuðu borgara- lega andspyrnuhreyfingu pólska, Heimaherinn, og Sovétmenn að- stoðuðu rauða andspyrnuhreyf- ingu — en enginn hafði neitt af- lögu handa Gyðingum. Að visu lögðu pólskir einstaklingar og samtök sig i verulega hættu við að hjálpa einstaklingum til að kom- ast i felur eða lifa i vernd falskra skilrikja. En vopn voru gulli dýr- ari. Til dæmis má taka, að það var ekki fyrr en i desember 1942 að Heimaherinn pólski afhenti ZOB tiu byssur! I janúar var bætt við 50 skammbyssum, jafnmörg- um handsprengjum og dálitlu af sprengiefni. Það var allt og sumt. Allt annað urðu Gyðingar að kaupa á svörtum markað'i fyrir geypifé og smygla með miklum lifsháska inn i ghetto eftir skólp- leiðslum Varsjár. Þetta tók tima — og á meðan var tugum þús- unda smalað til brottflutnings. Frá þvi i júli 1942 og fram i april 1943 fækkaði ibúum Varsjárghett- os úr 380 þúsundum i 50 þúsund. En það gerði þá Andspyrnuhreyf- ingunni hægar um vik að þeir, sem eftir voru, voru flestir ungir og á bandi ZOB. Aðrir kostir Einstaklingar og jafnvel heilir hópar reyndu að koma sér á brott frá borgunum og stunda skæru- hernað i skógunum. En skærulið- ar geta þvi aðeins lifað og barist, að bændur séu þeim vinsamlegir — og þvi fór fjarri i landi þar sem kirkjulegur antisemitismi hafði mengað hugarfar bændafólks um aldir. Og enda þótt það kæmi fyrir, að aðrir skæruliðar tækju við þessum langsoltnu en bar- áttufúsu ungu Gyðingum. þá var það eins oft eða oftar. að þeir hröktu þá frá sér i bjargarleysi hins grimma vetrar. Þvi miður verður að segja þá sögu eins og hún er. Mir senen do Uppreisnin i Varsjá olli ekki stórtiðindum i styrjöldinní. En hún skipti mjög miklu um mótun hugarfars þeirra Gyðinga sem af lifðu helviti striðsins. Eða eins og jiddiska skáldið Hirsj Glik kemst að orði i skæruliðasöng sem hann samdi. þegar hann frétti af upp- reisninni: Minnisvarði um Mordechai Anielewicz, stjórnanda uppreisnarinnar, stendur á samyrkjubúinu Yad Mordechai I tsrael. Sog nit keinmol as du geist den letstn veg khotsj himlen blajene farsjeteln bloje teg kuinen vet nokh undzer ojsgebenkte sjo svet a pojk ton undzcr trot — niir senen do. Segðu aldrei að þú gangir þinn hinsta veg þótt blágrár himinn myrkvi dagsins bláma. Sú stund kemur sem okkur hefur dreymt um: undir tekur við fótatak okkar — hér erum við! AB. tók saman

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.