Þjóðviljinn - 23.04.1978, Page 24

Þjóðviljinn - 23.04.1978, Page 24
Sunnudagur 23. april 1978 Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tlma er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. Starfsvika Mennta- skólans á Akureyri wmr Menntaskólinn á Akureyri Vikuna 14.-21. apríl stóð yfir starfsvika nemenda í 6. bekk Menntaskólans á Akureyrí. Þetta er í fyrsta skipti sem náms- og starfs- kynning er haldin á vegum skólans og taka allir nem- endur bekkjarins þátt í henni, alls um 100 manns. Fyrirhugað er að starfs- vikan verði fastur liður í námi nemenda ef fjár- hagslegur grundvöllur er fyrir hendi. Tryggvi Gislason skólameistari átti hugmyndina aö þessari starfskynningu eftir fyrirmynd frá öðrum framhaldsskólum landsins. Undirbúningurinn hófst fljótlega I haust og var hann aðal- lega i höndum skólameistara og hagsmunaráös nemenda. Nem- endum var gefinn kostur á aö velja sér starf og sáu siöan fyrr- greindir aöilar um aö koma þeim fyrir. Fjölbreytní i vali var mikil eins og nærri má geta og má sem dæmi nefna sjómennsku, fanga- gæslu, ljósmóðurstarf, svinahirö- ingu, kennslu og blaðamennsku. Þess skal getiö að undirtektir hjá þeim stofnunum og fyrirtækjum sem leitaö var til voru frábærlega ! Lítum | jarðeðlis- j fræði hýru auga ■ ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I Guðrún Rögnvaldsdóttir og Aöalbjörg Erlendsdóttir eru i kynningu hjá Orkustofnun. Viö spurðum þær fyrst hver væri ástæðan fyrir vali þeirra. — Við völdum þetta starf sér- staklega vegna áhuga á jarö- fræði og jarðeölisfræði og til að kynnast þeim störfum með tilliti til fyrirhugaðs framhaldsnáms. — Hverju hafið þið svo kynnst og hvað hafiö þið fengið að gera? — Viö höfum veriö i fyrirlestr- um um ýmsar framkvæmdir og mælingar sem jarðfræöingar þurfa að gera og okkur sýnd öll starfsemi Orkustofnunarinnar. Einnig fórum við að taka sýni úr borholum við Svartsengi, i fylgd „Starfsmenn Orkustofnunar” Aöalbjörg Erlendsdóttir. jarðfræöinga auðvitað og okkur sýnt um leið stöðvarhúsið. — Gætuð þið hugsað ykkur að gera jarðfræði eða jarðeðlis- fræði að ykkar framtiðarstarfi? — Okkur list vel á það i sjálfu sér en fyrir jarðfræðinga eru at- vinnumöguleikar litlir eins og stendur þvi markaðurinn er fullmettur. Jarðeðlisfræði gefur . meiri atvinnumöguleika og viö neitum þvi ekki aö við litum þá grein hýru auga. Af) lokum spurðum við stúlk- urnar álits á náms- og starfsvik- Guörún Rögnvaldsdóttir (t.v.) og I unni sem nú er að ljúka. Þær sögðu að starfsvikan " reyndist vel og væri lærdóms- ■ rik. Húm mætti i framtíðinni ] vera fastur liður i námi við Z Menntaskólann á Akureyri. 1 lokin vildu þær láta koma * fram þakkir til starfsmanna | Orkustofnunar. ■ — Þetta er afburöa almenni- I legt f«>lk og þaö vilja allir allt J fyrir okkur gera. Við vonum aö ■ við höfum ekki flækst mikið fyr- I ir og þökkum kynninguna og j samstarfið. góðar og áttu þær mikinn þátt i að þessi náms- og starfskynning varð að veruleika. Nær allir nem- endur komust i þau störf sem ósk- aö var eftir. Segja má aö val nem- enda hafi einkum mótast af tvennu. Sumir hafa valið starf til að öðlast meiri innsýn I fyrirhug- að framtiðarnám og framtiðar- starf. Aðrir hafa valið starf sem veitir meiri viðsýni og þekkingu þó svo að ekki sé um fyrirhugað framtiðarstarf að ræða. Fáir nemendur fá greidd laun enda er það i flestum tilfellum svo að þeir eru aðeins aukamenn, sem stofnanir og fyrirtæki hafa tekið I leiðsögn, en ekki að þeir séu beinir starfsmenn enda væri slfkt óframkvæmanlegt. Laun nemenda renna i sameiginlegan sjóð sem ætlað er að standi undir kostnaðistarfsvikunnar. t þennan sjóð hefur og hver nemandi greitt 3000 krónur. Einnig styrkir Skóla- sjóður MA starfsvikuna. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að þvi aö gera skólavistina fjölbreyttari og meira aðlaöandi fyrir nemendur og til þess að skólinn fái sem best rækt menningarlegt hlutverk sitt. Auk þessa styrks hefur verið sótt um styrk til Menntamálaráðu- neytisins en svar hefur enn ekki borist. Hér I Reykjavik eru um 40 af hundraö nemendum i náms- og starfskynningu. Blaðamenn Þjóðviljans fóru á stúfana með blað og penna og tóku nokkra af þessum nemendum tali. Texti og myndir: Einar Hjörleifsson og Hálfdán örnólfsson, MA Er gott innlegg í félagsfræðinámið „Fangaveröirnir” fr.v. ólafur Ólafsson, Skúli forstööumaöur og Jón Höskuldsson fyrir framan Hegningarhúsiö viö Skólavörðustig. Starfsfólki Hegningarhússins við Skólavörðustig bættist óvænt- ur liðsauki, en þangaö fóru þeir Ólafur óiafsson og Jón Höskulds- son félagsfræðinemar. Þeir, ásamt Skúla Steinssyni forstööu- manni, tóku blaðamönnum opn- um örmum og brugöust vinsam- lega við ágengum spurningum. — Hvers vegna völduö þið þetta starf? — Fyrst og fremst af áhuga á þessum málum. Þau tengjast okkar námi, sem einn þátt- ur mannlegra samskipta og hafa einnig verið mjög til umræðu i fjölmiðlum. Við vildum kynnast aðbúnaði fanganna og starfsað- stöðu fangavarða. — Er þetta eins og þið bjuggust við? — Nei, okkur finnst starfsliöið, þótt gott sé, vera of fámennt. Okkur þykir skorta ýmsa þjón- ustu við fangana t.d. félagslega og sálfræðilega aðstoð, leiðbein- ingar til náms og aðra uppbygg- ingarstarfsemi. Hér dvelja fang- ar sem hlotið hafa lengri eða skemmri fangelsisdóma, eru flestir á aldrinum 20-30 ára og þvi teljum við þetta mikilvægt. — 1 hverju eru störf ykkar fólg- in? — Við fylgjum fangavörðunum eftir við störf þeirra og aðstoðum þá eftir föngum. — Gætuð þið hugsaö ykkur fangavörslu sem framtiðarstarf? — Jafnvel. Dvöl okkar hér hefur gefið góöa innsýn yfir þessi mál og er gott innlegg I félags- fræðinámið. Við teljum starfsvik- una ákaflega þarft fyrirbæri. Skólar þurfa að tengjast at- vinnulifinu miklu betur. Þetta er gott hlé frá þurru bóknámi. Að lokum sögöust þeir félagar hafa fengið frábærar móttökur i Hegningarhúsinu. Skúli forstöðu- maður hefði sýnt þeim mikinn velvilja og greitt götu þeirra á alla lund. Skúli og aðrir starfs- menn lýstu sig einnig mjög ánægöa með samstarfið. „Blaða- menn” þáðu kaffisopa i eldhúsi fangelsisins, en kvöddu siðan þá Jón og Óla, sem áttu i þetta sinn aö standa næturvaktina. Kynningin mikilvæg „Þroskaþjálfarnir” Guörún Frimannsdóttir (t.v.) og Heiga Ragnheið- ur Gunnlaugsdóttir. Ilelga Ragnheiður Gunnlaugs- dóttir, Guðrún Frimannsdóttir, Bryndis Vaigarösdóttir og Torf- hildur Stefánsdóttir kynntu sér kennslu i öskjuhliöarskólanum. Blaöamenn náöu tali af þeim Helgu og Guðrúnu, en þvi miður náðist ekki til hinna. — i hverju er starf ykkar fólg- iö? — Þarna er um að ræöa sér- kennslu þroskaheftra barna og viö þaö starfa einungis kennarar meö margra ára sérnám að baki. Viö gátum þvi ekki starfaö bein- linis heldur fylgdumst við með þvi sem þarna fór fram; — Hvernig hefur ykkur svo iik- að kynningin? — Þetta er allt miklu betra en við bjuggumst viö. Skólinn er eins og venjulegir grunnskólar nema aö hér er sérkennsla og allt geng- ur miklu hægar fyrir sig. Nem- endur eru allir af ýmsum ástæö- um aö einhverju leiti á eftir i and- legum þroska og námi. Markmið skólans er aö bæta það upp og gera þeim kleift að veröa virkir i samfélaginu þannig aö þeir geti unnið hin ýmsu störf. Aöspurðar sögöu Helga og Guö- rún aö þeim heföi veriö tekið sér- staklega vel af kennurum og starfsmönnum skólans og aö dvöl þeirra þennan vikutima væri ánægjuleg og mjög lærdómsrik. Báöar töldu þær starfsvikuna hafa heppnast mjög vel og aö hún væri tvimælalaust mikilvæg fyrir marga i sambandi viö framtiöar- val. Þaö væri allt annað aö dvelja i vikutima og taka þátt I starfinu heldur en ab ráfa um staöinn i klukkutima heimsókn. Að lokum spurðum við þær Helgu og Guðrúnu hvort þær gætu hugsað sér kennslu fyrir þorska- heft börn sem framtiðarstarf. — Ég hef stefnt að þessu starfi sagöi Helga, og þessi kynning hefur styrkt þá ákvöröun. Einnig skal bent á heima- slma starfsmanna undir nafni Þjóðviljans f sima- skrá. „Þin g maöurinn” Arni Finnsson ásamt systur sinni Glóeyju á tröppum Alþingis- hússins. Ekki að kynna mér iramtíðar- drauminn Árni Finnsson félagsfræði- ncmi valdi sér þann starfa að fylgjast með störfum Alþingis. Eflaust þykir ýms- um slikt eftirlit vera timabærtog þvi fórum við á fund Árna og inntum hann eftir hversu hann varð vis- ari. „Mér fannst þetta ekki mjög tilkomumikið, enda fara meginstörf þingmanna fram utan þingsalar. A þing- fundi mæta kannski þetta 20—40 manns, sem eru svo á röltinu út og inn. Nema þegar um afgreiðslu meiriháttar mála er að ræða, þá er að sjálfsögðu full mæt- ing.” „Fannst þér þú sjá þarna liina sönnu fulltrúa þjóðarinnar?" „Ja..., þingmenn eru náttúruiega þarna sem fulltrúar ákveðinna hags- munahópa, stétta, lands- hluta o.sv.frv., en ég get ekkert fullyrt um hversu mikiðeða litið lýðræði liggur þar að baki, það má alltaf deila um hversu mikið áhrifavald kjósandans er”. „Núhafa illgjarnar tungur stundum likt Alþingi við leikhús. Hver er þin skoöun?” "Eins og ég sagði áður þá eru Alþingisfundirnir að mestu leyti „formalitet”. Mest af umræðu og ákvarðanatöku fer fram annars staðar. Á flokksfund- um, nefndarfundum og viðar. Það er þvi eðlilegt að fólk tali um leikhús þvi hér er lýðræðið sett á fjalirnar, einskonar lýðræðisleikur”. ,,Að lokum, hvað finnst þér um starfsvikuna?” „Þetta er mjög vel heppn- að fyrirbæri, að visu er ég ekki hér að kynna mér framtiðardrauminn, en ég heldað fólk almennt viti ekki nóg um störf alþingis þannig að kynning þessi er mjög gagnleg. Mér finnst Alþingi þarfnast gagnrýni utan frá, þá ætti stofnunin siður að staðna.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.