Þjóðviljinn - 26.04.1978, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 26. april 1978
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartau ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón með sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn ,
Páisson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Sföumúla 6, Simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Þeim er hann
eiðsvarinn—Þeim
er hann trúr
Ein er sú leyniregla, sem alþjóðlegar
fréttastofnanir telja „lokaðasta klúbb
veraldar”.
— Þetta er Bilderbergklúbburinn, en
forseti hans var til skamms tima Bern-
harð prins af Hollandi. 1 þessu 100 manna
æðsta ráði auðvaldsheimsins eru saman-
komnir nokkrir valdamestu auðjöfrar
heimsins ásamt nánustu bandamönnum
sinum á sviði stjórnmála og hermála.
Þarna eru þeir Rockefeller og Rotschild —
þarna eru forstjórar frá Unilever, General
Electric og Fiat — þarna eru griskir
skipakóngar og þarna eru lika þeir Luns
og Haig frá NATO.
Einn er sá reglubróðir, sem talið er að
sist megi vanta á hina árlegu fundi leyni-
reglunnar. Sá er Geir Hallgrimsson, for-
sætisráðherra Islands, sem sumir telja áð
þama sé nú hvað mestur ráðamaður! Þvi
miður hrökklaðist Bernharð Hollands-
prins hins vegar frá háborði reglunnar
fyrir tveimur árum, þegar upp komst að
hinn æruverðugi leiðtogi hafði þegið
ómældar risaupphæðir i mútur frá banda-
risku flugvélaverksmiðjunum Lockheed.
En maður kemur manns i stað. Siðustu
árin hefur forsætisráðherra íslands ekki
látið sig vanta á nokkurn fund leyniregl-
unnar, hvar svo sem þeir em haldnir i
veröldinni, og hvaða störf, sem að kalla
hér á heimavigstöðvum. Sankti Bern-
harðsreglan gengur fyrir. Og fréttastofu
Reuters þótti reyndar ástæða til að nefna
þá GeirHallgrimssonogKissinger sérstak-
lega ásamt aðeins fimm öðrum úr hópi
þeirra 100 útvaldra, sem sátu Bilderberg-
fundinn i Bandarikjunum nú á dögunum.
Geir Hallgrimsson var um það spurður
á Alþingi íslendinga i fyrra um hvaða
málefni hafi verið fjallað á ársfundi
Bilderbergmanna þá, en ráðherrann sat
einnig þann fund.
Geir Hallgrimsson neitaði að gefa
nokkrar upplýsingar, en tók hins vegar
fram að áhrif ferðalagsins myndu koma
fram i verkum sinum!
Hvers vegna neitar Geir Hallgrimsson,
að gefa Alþingi upplýsingar um þessa
fundi?
Ástæðan er sú að maðurinn er bundinn
þagnareiði. Samkvæmt upplýsingum
þeirra fréttastofnana, sem Morgunblaðið
telur trúverðugar eru Bilderbergmenn
allir eiðsvarnir. Inn i musterið fær enginn
óþveginn að lita.
Geir Hallgrimsson má segja þeim
Rockefeller og Rotschild allt, en hann má
ekki segja þjóð sinni neitt úr innsta hring
alþjóðaauðvaldsins.
Hver hefur valið lýðræðishetjuna Geir
Hallgrimsson til setu á þessum Sankti
Bernharðsfundum?
Var hann máske kosinn með þjóðarat-
kvæðagreiðslu til að prýða þetta sam-
kvæmi? Eða var hann kosinn af Alþingi
íslendinga? Var hann máske sendur af
landsfundi Sjálfstæðisflokksins eða sem
fulltrúi islensku rikisstjórnarinnar?
Nei, — ekkert af þessu. Bilderberg-
klúbburinn hefur nefnilega ekkert með
lýðræðislega valda fulltrúa að gera. Bern-
harð prins og félagar velja sér sina lags-
bræður sjálfir út frá stjórnmálalegum,
efnahagslegum og hernaðarlegum hags-
munum. Þeirra æðsta mark og mið er að
tryggja grundvallarhagsmuni hinna risa-
vöxnu auðhringa, að viðhalda allsnægtum
fárra en örbirgð meirihluta mannkyns.
Þeir þola ekki lýðræði i raun. Þeirra
umboð byggir á valdi auðs og vopna. Þeir
hafa útvalið Geir. Þeim er hann eiðsvar-
inn. Frá þeim er hann fjarstýrður, — for-
sætisráðherra Islands.
Liðsmenn Sjálfstæðisflokksinns segjast
flestir hverjir vilja aukið lýðræði. Þeir
segjast vilja meiri valddreifingu. Þeir
segjastvilja opnari stjómmálaumræðu og
enga hulu yfir aðgerðum stjórnvalda.
Sumir þeirra meina þetta i einlægni.
Þeir ættu að biðja flokksformann sinn
að minnast á opnar umræður við félagana
i Sankti-Bernharðsreglunni! Þeir ættu áð
biðja Geir að stinga upp á lýðræðislegu
kjöri til Bilderbergfundanna! Þeir ættu að
biðja forsætisráðherra íslands að predika
valddreifingu yfir reglubræðrunum!
Eða máske ættu þeir heldur að ihuga,
hvort það samræmdist þeirra eigin lifs-
skoðun að styðja pólitiskt útibú Bilder-
bergklúbbsins á Islandi k.
Varnarræöa
dr. Gunnars og
Kröflunefndar
Loks hefur Kröfluskýrslan lit-
ið dagsins ljós á Alþingi. I raun
er hér um að ræða 220 siðna
varnarskjal fyrst og fremst
fyrir afhafnir iðnaðarráðherra
og ráðuneytis en einnig fyrir
Kröflunefnd.
Augljóslega hefði það verið
kostur ef skýrslan hefði verið
gerð af óhlutdrægum aðila.
Ekki er að efa að Vilmundi
Gylfasyni verði það drjúgt í
skrifum sinum um Kröflu-
skýrsluna að hún er tekin sam-
an af syni Jóns Sólnes,
prófessornum Júliusi Sólnes.
Það er viðar en i Miðfelli h.f.,
aðalverktaka byggingar-
framkvæmda i Kröfluvirkjun,
semSólnestengslin iiggja. t ann-
an stað er það deginum ljósara
af lestriskýrslunnar að á ýmsan
hátt er reynt að velta ábyrgð-
inni af ,,mistökunumi Kröflu
yfir á Orkustofnun og starfs-
menn hennar: Þeir vöruðu of
seint við áhættunni i sambandi
við gufuöflunina.stóðuá ýmsan
hátt rangt að borunum, höfðu
ekki nægilega tækniþekkingu og
ekki nógugóðan útbúnað til þess
að skila sinu hlutverki. Úr þvi
að Kröfluskýrslan er ,,hvit bók”
fyrir Gunnar Thoroddsen og
Kröflunefnd er ekki úr vegi að
óska eftir þvi að Orkustofnun
sendi frá sér „hvita bók” um
sina hlið mála til þess að sæmi-
lega hlutlæg mynd fáist af við-
burðarás Kröfluframkvæmda
og ferli ákvarðana á siðustu sjö
til átta árum.
Merkt
heimildarrit
með slagsíöu
Ekki þar fyrir að Kröflu-
skýrslan er ákaflega þarft
plagg. Fyrir löngu eru flestir al-
mennir borgarar búnir að tapa
áttunum i öllu Kröflumoldviðr-
inu — það hefur staðið lengi,
flokkspólitik er i málum, mis-
munandi sjónarmið og forsend-
ur fyrir greinum og fréttaskrif-
um 1 fjölmiðlum. Fyrir þá sem
vilja ná áttum i Kröfluumræð-
unnier skýrslan hrein skemmti-
lesning og fróðleiksnáma. Hér
er skipulega greint frá atburða-
rás og ákvarðanatöku og allt
Kröflunefnd á
fullu gasi
Eins og fyrr er það mikilvægt
atriði i Kröfluumræðunni hvort
of geyst hafi verið farið- i
byggingarframkvæmdir og
vélakaup. I skýrslunni er lögð
þung áhersla á að Orkustofnun
hafi ekki bent á áhættu af nei-
kvæðum borunarárangri fyrr en
3. mars 1975, en allar megin-
árs 1975, voru menn tilbúnir a
taka mikilli áhættu og bjartsýni
réði rikjum hjá öllum aðilum,
jafnvel hjá Orkustof nunar-
mönnum sjálfum sem drógu
broddinn úr aðvörunum sinum.
Þaö veröur lika að hafa 1 huga
að fyrirsjáanlegur orkuskortur
á Norðurlandi og kollveltur
Gunnars Thoroddsen I stefnunni
I orkuframkvæmdum ýttu mjög
á eftir. Þrátt fyrir Kröflu-
Verði gufa, sagði dr. Gunnar.
sett i sina tlmaröð. Jafnframt er
tiundaöur ótölulegur fjöldi
fylgiskjala sem frammi liggja i
Iðnaðarráðuneytinu og þvi er
skýrslan ágætur vegvísir fyrir
þá sem vilja kryfja „Kröflu-
ævintýrið” til mergjar af eigin
rammleik i nafni visinda eða
rannsóknarblaðamennsku. Og
sé slagsföan i garð Orkustofnun-
ar höfð i huga við lesturinn er
hér á ferðinni merkt heimildar-
rit.
ákvarðanir i sambandi við
framkvæmdir höfðu þá þegar
verið teknar, m.a. samið við
Mitshubishi um vélar i febrUar.
En hvernig sem öllu er velt
fram og aftur virðist niðurstað-
an vera einföld: A þessum tlma,
það er i lok árs 1974 og byrjun
skýrslu upp á 220 siður kemst
dr. Gunnar ekki frá þvi að fyrir
hans tilstilli var byggðalinunni
skotið á frest en öll áhersla lögö
á Kröflu, og rekiö fast á eftir
virkjunarlögunum og kröflu-
nefndarmönnum. Þar réði kapp
en ekki forsjá.
Fjársvelti og
valdaspil
Kröflunefnd getur margt fært
fram sér til réttlætingar varð-
andi framkvæmdaflýtinn: af-
greiðslufrestur á vélum var
skammur verkefnaskortur hjá
verksmiðjum i Japan og hægt
að fá mjög hagstæð tilboð i
vélar. Svo fremi að Orkustofn-
un skaffaði gufu var orkusvelti
Norðlendinga úr sögunni
miklu fyrr en nokkurn óraði. Og
ekki er loku fyrir það skotið að
hún fái rós i hnappagatið á end-
anum fyrir ráðdeild ef ein-
hverntima tekst að afla nægi-
legrar gufu til virkjunarinnar.
Hinsvegar er það afskaplega
athyglisvert við lestur skýrsl-
unnar að öll árin frá 1974 til 1978
á Orkustofnun I stöðugu striði
við að útvega fjármagn til
þeirra borana og rannsókna
sem hún telur á hverjum tima
nauðsynlegar á Kröflusvæðinu. .
A meðaner Kröflunefnd á fullu
gasi og skortir aldrei fram-
kvæmdafé né lánstraust, og
hefur enga bakþanka i srnu
starfi framanaf. Þarna er mis-
ræmi á ferðinni sem er illskýr-
anlegt.
Kröfluskýrslan gefur þó vis-
bendingu um flókið valdaspil
kringum framkvæmdirnar og
ákvarðanatöku i sambandi við
þær. Einkum er athyglisvert að
lesa skýrsluna um hin siðari ár
þegar allskonar sérfræðingum
samræmingaraðilum og póli-
tiskum aðstoðarmönnum dr.
Gunnars Thoroddsens tekur að
skjóta upp til hliðar við Orku-
stofnun, ráðuneyti og Kröflu-
nefnd. Þá erlika fariðaðsyrta i
álinn og gufuöflun og eldsum-
brot oröin að máli málanna.
Og svo er enn.
—e.k.h.