Þjóðviljinn - 26.04.1978, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 26.04.1978, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 26. april 1978 Um nokkurra ára skeiö hafa staðið umræður um, að gera þurfi sérstakt átak til að efla Hóla i Hjaltadal. Ástæða er til að Ifta til baka og rifja upp það, sem efst hefur borið i þeim umræðum. Annars vegar er hér um að ræða áhuga á eflingu Hóla af hálfu þeirra, sem tala i nafni kirkju og kristni. Þar hefur einkum verið haidið á lofti tveimur hugmynd- um. Þær eru endurreisn biskups- seturs og stofnun iýðháskóla. Til er sjóður, sem stofnaður var til að hrinda hugmyndinni um lýðhá- skóla i framkvæmd, en þó verður ckki séð, að baráttumál kirkjunn- ar manna fyrir uppbyggingu Hóla séu að komast á ákvörðunarstig, Hvanneyri. Yfirlýst er, að allt skólahúsnæði og öll útihús á staðnum þurfi að endurreisa, þótt núverandi skólahúsnæði muni i framtiðinni verða notað áfram til ýmissa þarfa. Það liggur hins vegar undir skemmdum, er óein- angrað að hluta og illa farið af sliti. Byrjad á öfugum enda A Hólum er starfandi Hrossa- kynbótabú i eigu rikisins. Búið lýtur sérstakri stjórn og nýtúr Endurbæta þarf núverandi skólahúsnæði, byggja kennarabústaö, endurnýja útihús, byggja nýbyggingu fyrir kcnnslu I véla- og verkfærafræöi og reisa nýtt fjós. — Þetta eru nokkur þeirra verkefna sem kenn- arar við Bændaskólann á Hólum telja nauðsynlegt að ráðast I til eflingar skólanum. Haldið upp á aldarafmælið í hesthúsi? Verður Bændaskólinn alvöruskóli eða heilsubótarmiðstöð? hvað þá framkvæmdastig. Hér er ekki ástæða til að fara fleiri orð- um uin þennan þátt i uppbygg- ingu Hóla, nema að þakka þann áhuga og velvilja, sem málefnum Hóla er þarna sýndur. Aldarafmæli og skólastöðnun Hin hliðin i umræðum um upp- byggingu Hóla hefur snúið að Bændaskólanum á staðnum. Tvennum meginröksemdum hef- ur þar verið beitt málefnum Hóla til framdráttar. önnur eru þau, að senn dragi að aidarafmæli Bændaskólans, en það verður að fjórum árum liðnum, árið 1982. Astæða hefur þótt til að minnast þeirra timamóta á einhvern þann hátt. sem eftir verði tekið og var- anlegur væri. Hin rökin eru þau, að stöðnun hefur átt sér stað i uppbyggingu skólans undanfarin ár, en á sama tima hefur veruleg uppbygging orðið við hinn bænda- skólann i landinu, á Hvanneyri. Bent hefur verið á, að brýnt sé, að draga sem mest úr þessum að- stöðumun. Að öðrum kosti standi þessar bræðrastofnanir óeðlilega ójafnt að vigi, er bændaefni velji sér skólavist, þar sem Hvanneyri býður upp á verulega betri að- búnað fyrir nemendur. Eftir að málefni Hóla höfðu verið tekin fyrir á Búnaðarþingi, Alþingi og viðar, og komið hafði i ljós, að umræður féllu allar á einn veg, skipaði Halldór E. Sigurðs- son, landbúnaðarráðherra, nefnd til að gera tillögur um uppbygg- ingu staðarins. 1 nefndina voru skipaðir: Haraldur Árnason, skólastjóri, Hólum, formaður. Björn Jónsson, bóndi, Bæ, Hjalti Pálsson, framkvæmdastj. Reykjavik, Hjörtur E. Þórarins- son, bóndi, Tjörn, Páll Pétursson, alþm. Höllustöðum, Pálmi Jóns- son, alþm. Akri, og Sigrún Ingólfsdöttir, fyrrverandi skóla- stjórafrú á Hólum, en hún mun hafa sagt sig úr nefndinni. Nefnd- in mun ekki hafa lokið störfum, en fyrir liggur, að tillaga hennar að fyrstu framkvæmdum á staðn- um er, að byggt skuli hesthús á Hólum og hefur þegar verið veitt nokkru fjármagni til fram- kvæmdarinnar á fjárlögum yfir- standandi árs. Hér er ástæða til að staldra við og minna á þaö, að sú bylgja góð- vilja og stuðnings, sem málefni Hóla eru nú borin uppi af, á rætur að rekja til væntanlegs aldaraf- mælis Bændaskólans og saman- burði á aðstöðu Bændaskólans á Hólum við bændaskólann á sérstakrar fjárveitinga úr rikis- sjóði, en rekstur þess er að öðru leyti samtvinnaður rekstri skóla- bús Bændaskólans. Segja má, að Hrossakynbótabúið sé i nokkurs konar fóstri hjá Bændaskólanum, en á hinn bóginn fer þvi fjarri, að tilvera Hrossakynbótabúsins sé lifshagsmunamál fyrir Bænda- skólann. Reyndar má færa rök bæði með og móti þvi, hvern hag Bændaskólinn hefur af fóstrinu, frá sjónarhóli skólans sem menntastofnunar. Nú horfir hins vegar til þess, að gjöf þjóðarinnar lil Hólastaðar á aldarafmæli Bændaskólans verði hesthús. teyrum margra hljómar þetta sem argasta háð. Verður haldið upp á aldarafmælið i hest- húsi, er spurning, sem dynur i eyrum. Það, sem hér er að gerast, minnir einna helst á það, þegar Guðlaugur heitinn Rósinkranz, Þjóðleikhússtjóri, réði til leik- hússins þekkta og virta söngkonu, en þegar hann ætlaði að taka á móti henni á flugvellinum, var allt önnur söngkona komin. Leik- sýningarnar gegnu þó sinn gang, en öðru visi en til var stofnað. Staða Bændaskólans á Hólum sem kennslustofnunar er veik um þessar mundir, hvað aðsókn snertir. Við þær kringumstæður er einsýnt, að allra tiltækra ráða verður að leita til að efla skólann. Bygging hesthúss er ekki til þess fallin að efla skólastarfið sem fyrsta verkefni i uppbyggingu staðarins. Ef hér væri nóg aðsókn og aðbúnaður i lagi, væri margt, sem mælti með hesthússbygg- ingu. En við núverandi aðstæður eru miklar likur á þvi, að hest- húsbygging verði hnekkir fyrir skólastarfið. Þegar hesta- mennska verður orðið stærsta tromp staðarins, þá breytast þau alvöruvinnubrögð, sem hér hefur verið reynt að viðhafa, i leik og skemmtan. Bændaskólinn á Hólum er rekinn til að efla einn af undir- stöðuatvinnuvegum þjóðarinnar, landbúnaðinn. Hlutur hestsins er núorðið litill i þeim atvinnuvegi, en sjálfsagt er, að hann skipi þar þann sess, sem honum ber. Hestamennska nú á dögum á sér hins vegar eðlilegan sess við hlið- ina á öðrum hressingar- og heilsubótariþróttum, svo sem sportveiði, golfiþrótt o.s.frv. Þetta hafa hestamenn sjálfir fundið og þvi leitað eftir aðild að Iþróttasambandi Islands. Vatns- og vindhelt skólahús 1 frumvarpi til laga um bún- aðarfræðslu, sem nú liggur fyrir Alþingi segir, að reka skuli bændaskóla á Hólum. Þetta frumvarp er lagt fram af Land- búnaðarráðherra og það er þvi skylda þeirra, sem Landbúnaðar- ráðherra hefur tilnefnt til að vinna að uppbyggingu Hóla, að haga störfum sinum þannig, að þessu ákvæði verði fullnægt. Á þvi skólaári, sem nú er að Ijúka eru 19 nemendur i Bænda- skólanum á Hólum, en I hinum geta um 40 nemendur stundað nám. Á sama tima er Bændaskól- inn á Hvanneyri fullsetinn. Fátt bendir til að á næsta skólaári verði aðsókn meiri á Hólum, en i ár, nema siður sé. Við teljum þvi að brýnasta hagsmunamál skól- ans nú, sé að láta þær fram- kvæmdir ganga fyrir i uppbygg- ingu staðarins, sem laði nemend- ur með áhuga á búfræði að skól- anum. Margt mælir með þvi, að á Hól- um verði i framtiðinni rekinn búnaðarskóli fyrir 70-80 nemend- ur. Með þvi fengist t.d. æskileg verkaskipting milli kennara. Miðað við tveggja ára búfræði- nám eins og gert er ráð fyrir i fyrrnefndu frumvarpi til bún- aðarfræðslulaga, og núverandi húsaskipan skólans, yrði unnt að útskrifa 20 búfræðinga á ári. Augsýnilega á það alllangt i land, að á Hólum risi nýtt skóla- hús, en viðráðanlegt takmark væri að stefna að þvi að taka það i notkun eftir einn áratug. Meðan unnið er að þvi, ber að nýta sem ( best það skólahús, sem fyrir er. ' Unnt er með nokkrum breyting- um á þvi að vista, kenna og hafa mötuneyti þar fyrir 60 nemendur. Til þess að það sé kleift, þarf að reisa einn kennarabústað, til að rúma kennaraibúð, sem er i skólahúsinu. Viö blasir, að brýnasta verk- efniö til eflingar Bændaskólans á Hólum er aö endurbæta skólahús- ið, gera þaö vatns- og vindhelt og breyta þvi i fyrrgreint horf. Meö nýju skólahúsi yrði siöan framtiö- arstærð skólans ákveðin. Fleiri forgangsverkefni á Hólastað Efling verknáms er krafa nú- timans innan búfræðináms, sem og i öðru námi. Aðstaða til verk- náms i hirðingu og meðferð bú- fjár mun batna um leið og útihús eru endurnýjuð. Hins vegar er þörf á verknámi i búfræði hvað mest innan bútækni. Nýtt húsnæði fyrir kennslu i verklegri véla- og verkfærafræði er þvi sú nýbygg- ing, sem mest drægi bændaefni að skólanum, jafnframt þvi, sem viðráðanlegt væri að hafa það til- búið á aldarafmæli skólans. A Hólum er reitur, sem nefndur er „Gróðrarstöðin” i daglegu tali. Þar hóf Sigurður Sigurðsson, skólastjóri á Hólum og siðar bún- að ar m á 1 a s t jór i, trjárækt skömmu eftir aldamótin. Þessi reitur er nú i niðurniðslu, en með tiltölulega litlu átaki mætti breyta honum i notalegt útivist- arsvæði. Þvi marki ætti einnig að ná fyrir afmælið. Margt bendir til þess, að nýju skólahúsi verði best komið fyrir á grunni núverandi fjóss, sem er um fimmtiu ára gamalt. Af þvi leiðir, að útihúsum staðarins er brýnast að byggja fjós, þannig að rýma megi grunninn um leið og léleg bygging er endurnýjuð. Hér skal látið staðar numið að sinni, en að lokum viljum við óska þess, að mál þessi megi snúast Hólastað til meiri gæfu en nú horfir, og að orðtakið forna „Heim að Hólum” hljóti á ný þann sess i vitund fólks, sem það hafði. Matthias Eggertsson, Sigtryggur Björnsson, Stefán K. Snæbjörnsson, Jón Friðbjörnsson, kennarar við Bændaskólann á Hólum. Ekkert bendir til þess að stofnun lýðháskóla á Hólum sé komin á ákvörðunarstig, hvað þá fram- kvæmdastig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.