Þjóðviljinn - 26.04.1978, Síða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 26. april 1978
Um nokkurra ára skeiö hafa
staðið umræður um, að gera þurfi
sérstakt átak til að efla Hóla i
Hjaltadal. Ástæða er til að Ifta til
baka og rifja upp það, sem efst
hefur borið i þeim umræðum.
Annars vegar er hér um að ræða
áhuga á eflingu Hóla af hálfu
þeirra, sem tala i nafni kirkju og
kristni. Þar hefur einkum verið
haidið á lofti tveimur hugmynd-
um. Þær eru endurreisn biskups-
seturs og stofnun iýðháskóla. Til
er sjóður, sem stofnaður var til að
hrinda hugmyndinni um lýðhá-
skóla i framkvæmd, en þó verður
ckki séð, að baráttumál kirkjunn-
ar manna fyrir uppbyggingu Hóla
séu að komast á ákvörðunarstig,
Hvanneyri. Yfirlýst er, að allt
skólahúsnæði og öll útihús á
staðnum þurfi að endurreisa, þótt
núverandi skólahúsnæði muni i
framtiðinni verða notað áfram til
ýmissa þarfa. Það liggur hins
vegar undir skemmdum, er óein-
angrað að hluta og illa farið af
sliti.
Byrjad á öfugum
enda
A Hólum er starfandi Hrossa-
kynbótabú i eigu rikisins. Búið
lýtur sérstakri stjórn og nýtúr
Endurbæta þarf núverandi skólahúsnæði, byggja kennarabústaö, endurnýja útihús, byggja nýbyggingu
fyrir kcnnslu I véla- og verkfærafræöi og reisa nýtt fjós. — Þetta eru nokkur þeirra verkefna sem kenn-
arar við Bændaskólann á Hólum telja nauðsynlegt að ráðast I til eflingar skólanum.
Haldið upp
á aldarafmælið í hesthúsi?
Verður Bændaskólinn alvöruskóli
eða heilsubótarmiðstöð?
hvað þá framkvæmdastig. Hér er
ekki ástæða til að fara fleiri orð-
um uin þennan þátt i uppbygg-
ingu Hóla, nema að þakka þann
áhuga og velvilja, sem málefnum
Hóla er þarna sýndur.
Aldarafmæli og
skólastöðnun
Hin hliðin i umræðum um upp-
byggingu Hóla hefur snúið að
Bændaskólanum á staðnum.
Tvennum meginröksemdum hef-
ur þar verið beitt málefnum Hóla
til framdráttar. önnur eru þau,
að senn dragi að aidarafmæli
Bændaskólans, en það verður að
fjórum árum liðnum, árið 1982.
Astæða hefur þótt til að minnast
þeirra timamóta á einhvern þann
hátt. sem eftir verði tekið og var-
anlegur væri. Hin rökin eru þau,
að stöðnun hefur átt sér stað i
uppbyggingu skólans undanfarin
ár, en á sama tima hefur veruleg
uppbygging orðið við hinn bænda-
skólann i landinu, á Hvanneyri.
Bent hefur verið á, að brýnt sé, að
draga sem mest úr þessum að-
stöðumun. Að öðrum kosti standi
þessar bræðrastofnanir óeðlilega
ójafnt að vigi, er bændaefni velji
sér skólavist, þar sem Hvanneyri
býður upp á verulega betri að-
búnað fyrir nemendur.
Eftir að málefni Hóla höfðu
verið tekin fyrir á Búnaðarþingi,
Alþingi og viðar, og komið hafði i
ljós, að umræður féllu allar á einn
veg, skipaði Halldór E. Sigurðs-
son, landbúnaðarráðherra, nefnd
til að gera tillögur um uppbygg-
ingu staðarins. 1 nefndina voru
skipaðir: Haraldur Árnason,
skólastjóri, Hólum, formaður.
Björn Jónsson, bóndi, Bæ, Hjalti
Pálsson, framkvæmdastj.
Reykjavik, Hjörtur E. Þórarins-
son, bóndi, Tjörn, Páll Pétursson,
alþm. Höllustöðum, Pálmi Jóns-
son, alþm. Akri, og Sigrún
Ingólfsdöttir, fyrrverandi skóla-
stjórafrú á Hólum, en hún mun
hafa sagt sig úr nefndinni. Nefnd-
in mun ekki hafa lokið störfum,
en fyrir liggur, að tillaga hennar
að fyrstu framkvæmdum á staðn-
um er, að byggt skuli hesthús á
Hólum og hefur þegar verið veitt
nokkru fjármagni til fram-
kvæmdarinnar á fjárlögum yfir-
standandi árs.
Hér er ástæða til að staldra við
og minna á þaö, að sú bylgja góð-
vilja og stuðnings, sem málefni
Hóla eru nú borin uppi af, á rætur
að rekja til væntanlegs aldaraf-
mælis Bændaskólans og saman-
burði á aðstöðu Bændaskólans á
Hólum við bændaskólann á
sérstakrar fjárveitinga úr rikis-
sjóði, en rekstur þess er að öðru
leyti samtvinnaður rekstri skóla-
bús Bændaskólans. Segja má, að
Hrossakynbótabúið sé i nokkurs
konar fóstri hjá Bændaskólanum,
en á hinn bóginn fer þvi fjarri, að
tilvera Hrossakynbótabúsins sé
lifshagsmunamál fyrir Bænda-
skólann. Reyndar má færa rök
bæði með og móti þvi, hvern hag
Bændaskólinn hefur af fóstrinu,
frá sjónarhóli skólans sem
menntastofnunar.
Nú horfir hins vegar til þess, að
gjöf þjóðarinnar lil Hólastaðar á
aldarafmæli Bændaskólans verði
hesthús. teyrum margra hljómar
þetta sem argasta háð. Verður
haldið upp á aldarafmælið i hest-
húsi, er spurning, sem dynur i
eyrum.
Það, sem hér er að gerast,
minnir einna helst á það, þegar
Guðlaugur heitinn Rósinkranz,
Þjóðleikhússtjóri, réði til leik-
hússins þekkta og virta söngkonu,
en þegar hann ætlaði að taka á
móti henni á flugvellinum, var
allt önnur söngkona komin. Leik-
sýningarnar gegnu þó sinn gang,
en öðru visi en til var stofnað.
Staða Bændaskólans á Hólum
sem kennslustofnunar er veik um
þessar mundir, hvað aðsókn
snertir. Við þær kringumstæður
er einsýnt, að allra tiltækra ráða
verður að leita til að efla skólann.
Bygging hesthúss er ekki til þess
fallin að efla skólastarfið sem
fyrsta verkefni i uppbyggingu
staðarins. Ef hér væri nóg aðsókn
og aðbúnaður i lagi, væri margt,
sem mælti með hesthússbygg-
ingu. En við núverandi aðstæður
eru miklar likur á þvi, að hest-
húsbygging verði hnekkir fyrir
skólastarfið. Þegar hesta-
mennska verður orðið stærsta
tromp staðarins, þá breytast þau
alvöruvinnubrögð, sem hér hefur
verið reynt að viðhafa, i leik og
skemmtan.
Bændaskólinn á Hólum er
rekinn til að efla einn af undir-
stöðuatvinnuvegum þjóðarinnar,
landbúnaðinn. Hlutur hestsins er
núorðið litill i þeim atvinnuvegi,
en sjálfsagt er, að hann skipi þar
þann sess, sem honum ber.
Hestamennska nú á dögum á sér
hins vegar eðlilegan sess við hlið-
ina á öðrum hressingar- og
heilsubótariþróttum, svo sem
sportveiði, golfiþrótt o.s.frv.
Þetta hafa hestamenn sjálfir
fundið og þvi leitað eftir aðild að
Iþróttasambandi Islands.
Vatns- og
vindhelt skólahús
1 frumvarpi til laga um bún-
aðarfræðslu, sem nú liggur fyrir
Alþingi segir, að reka skuli
bændaskóla á Hólum. Þetta
frumvarp er lagt fram af Land-
búnaðarráðherra og það er þvi
skylda þeirra, sem Landbúnaðar-
ráðherra hefur tilnefnt til að
vinna að uppbyggingu Hóla, að
haga störfum sinum þannig, að
þessu ákvæði verði fullnægt.
Á þvi skólaári, sem nú er að
Ijúka eru 19 nemendur i Bænda-
skólanum á Hólum, en I hinum
geta um 40 nemendur stundað
nám. Á sama tima er Bændaskól-
inn á Hvanneyri fullsetinn. Fátt
bendir til að á næsta skólaári
verði aðsókn meiri á Hólum, en i
ár, nema siður sé. Við teljum þvi
að brýnasta hagsmunamál skól-
ans nú, sé að láta þær fram-
kvæmdir ganga fyrir i uppbygg-
ingu staðarins, sem laði nemend-
ur með áhuga á búfræði að skól-
anum.
Margt mælir með þvi, að á Hól-
um verði i framtiðinni rekinn
búnaðarskóli fyrir 70-80 nemend-
ur. Með þvi fengist t.d. æskileg
verkaskipting milli kennara.
Miðað við tveggja ára búfræði-
nám eins og gert er ráð fyrir i
fyrrnefndu frumvarpi til bún-
aðarfræðslulaga, og núverandi
húsaskipan skólans, yrði unnt að
útskrifa 20 búfræðinga á ári.
Augsýnilega á það alllangt i
land, að á Hólum risi nýtt skóla-
hús, en viðráðanlegt takmark
væri að stefna að þvi að taka það i
notkun eftir einn áratug. Meðan
unnið er að þvi, ber að nýta sem (
best það skólahús, sem fyrir er. '
Unnt er með nokkrum breyting-
um á þvi að vista, kenna og hafa
mötuneyti þar fyrir 60 nemendur.
Til þess að það sé kleift, þarf að
reisa einn kennarabústað, til að
rúma kennaraibúð, sem er i
skólahúsinu.
Viö blasir, að brýnasta verk-
efniö til eflingar Bændaskólans á
Hólum er aö endurbæta skólahús-
ið, gera þaö vatns- og vindhelt og
breyta þvi i fyrrgreint horf. Meö
nýju skólahúsi yrði siöan framtiö-
arstærð skólans ákveðin.
Fleiri
forgangsverkefni
á Hólastað
Efling verknáms er krafa nú-
timans innan búfræðináms, sem
og i öðru námi. Aðstaða til verk-
náms i hirðingu og meðferð bú-
fjár mun batna um leið og útihús
eru endurnýjuð. Hins vegar er
þörf á verknámi i búfræði hvað
mest innan bútækni. Nýtt húsnæði
fyrir kennslu i verklegri véla- og
verkfærafræði er þvi sú nýbygg-
ing, sem mest drægi bændaefni að
skólanum, jafnframt þvi, sem
viðráðanlegt væri að hafa það til-
búið á aldarafmæli skólans.
A Hólum er reitur, sem nefndur
er „Gróðrarstöðin” i daglegu tali.
Þar hóf Sigurður Sigurðsson,
skólastjóri á Hólum og siðar bún-
að ar m á 1 a s t jór i, trjárækt
skömmu eftir aldamótin. Þessi
reitur er nú i niðurniðslu, en með
tiltölulega litlu átaki mætti
breyta honum i notalegt útivist-
arsvæði. Þvi marki ætti einnig að
ná fyrir afmælið.
Margt bendir til þess, að nýju
skólahúsi verði best komið fyrir á
grunni núverandi fjóss, sem er
um fimmtiu ára gamalt. Af þvi
leiðir, að útihúsum staðarins er
brýnast að byggja fjós, þannig að
rýma megi grunninn um leið og
léleg bygging er endurnýjuð.
Hér skal látið staðar numið að
sinni, en að lokum viljum við óska
þess, að mál þessi megi snúast
Hólastað til meiri gæfu en nú
horfir, og að orðtakið forna
„Heim að Hólum” hljóti á ný
þann sess i vitund fólks, sem það
hafði.
Matthias Eggertsson,
Sigtryggur Björnsson,
Stefán K. Snæbjörnsson,
Jón Friðbjörnsson,
kennarar við Bændaskólann á
Hólum.
Ekkert bendir til þess að stofnun lýðháskóla á Hólum sé komin á ákvörðunarstig, hvað þá fram-
kvæmdastig.