Þjóðviljinn - 26.04.1978, Page 11

Þjóðviljinn - 26.04.1978, Page 11
Þriðjudagur 25. april 1978 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 11 Markús B. Þorgeirsson, skipstjóri: Mánafossmálinu er ekki lokið Opið bréf til ríkissaksóknara fíg undirritaöur fer framá opin- bera sakadómsrannsókn á hend- ur Braga Sleina rssyni yararikis- saksóknara vegna ummæla hans i Þjóöviljanum 29. jan.sl. Þar sem hann segir aö Mánafossmálinu svokallaöa sé löngu lokiö og ekki sé ástæöatil málshöföunar vegna þess. fcg óska rannsóknar á þvi hvort vararikissaksóknari hafi ekki brotið ákvæöi almennra hegningalaga sbr. XlV.kafla gr. 13«. 131, 132, 133, 134, 135, 136, 137, 14«, 141. Ég byggi þessa kröfu mina á tveim höfuðatriðum. í fyrsta lagi er það skoðun min að skv. lögum ber siglingadómi að dæma i máli en ekki vararikissaksóknara og hefur vararikissaksóknari þvi ekki farið að lögum er hann tekur sér úrskurðarvald um að málið sé úr sögunni án þess að siglinga- dómstóll hafi kveðið upp nokkurn dóm i málinu. 1 öðru lagi tel ég aö málsmeðferð fyrir sjó- og versl- unardómi sé stórlega ábótavant og ekki farið að lögum. Máli minu til stuðnings bendi ég á eftirfarandi málskjöl lögð fram i sjó- og verslunardómi Reykja- vikur i sjóferðaprófi nr. 18/1975: nr.6, nr.9,nr. 11, nr. 14, nr. 15. Auk þess legg ég hér fram með þess- ari kröfu minni úrdrátt úr dagbók minni er þetta mál varðar og einnig skeyti er ég sendi sigl- ingamálastjóra, Hjálmars R. Bárðars. hinn 2. febr. ’78 og svar- skeyti frá honum daginn eftir. Til rökstuðnings þessari kröfu um sakadómsrannsókn á hendur Braga Steinarssyni, vararikis- saksóknara, vil ég benda á að hinn 5. febrúar 1976 óskaði rikis- saksóknari umsagnar siglinga- málastjóra um sjópróf i Mána- fossmálinu þar sem ásakanir komu fram varðandi lestum skipsins. t svarbréfi frá siglinga- málastofnun dags. 12. febr. 1976. sem lagt var fram sem málskjal nr. 10 segir að rannsóknar sé þörf til að fá vitneskju um skipið var lestað er það lét úr höfn i Ham- borg hinn 4. jan. 1975 og gera þurfi grein farmi (Lestarplani), kjölfestu, oh'u og vatni svo hægt sé að upplýsa hvort stöðugleika skipsins hafi verið ábótavant. Einnig segir i bréfinu að hér geti veriðum að ræða brot á 25., 35. og 36. gr. siglingalaga og eðlilegt sé að dómur fjalli um þetta mál. Einnig vitna ég til málskjala nr. 16. og 17. varðandi þetta atriði. Eins og fram kemur i hjálögðu simskeyti frá siglingamálastjóra dag. 3. febr. 1978 er umbeðinni athugun lokið og álit siglinga- málastjóra á þessu mikilvæga atriði sem rikissaksóknari fór fram á hefur þvi aldrei verið lagt fram við dómsrannsókn. Samt tekur vararikissaksóknari sér það vald að lýsa þvi yfir að dóms- rannsókn sé lokiö og málið úr sög- unni. Þessa afgreiðslu málsins tel ég vera brot á fyrrgreindum ákvæð- úm almennra hegningarlaga. Auk þess itreka ég þá skoðun mina að siglingadómi beri að fella dóm i þessu máli en ekki vararikissaksóknara. Varðandi fullyrðingu mina.um ranga máls- ferð frá upphafi i þessu máli sem vararikissaksóknari segir vera lokiö vil ég einnig benda á eftir- farandi. 1. Sjópróf bar að halda skv. al- þjóða sjólögum strax við komu skipsins til Reykjavikur en var ekki haldið fyrr en eftir blaðakrif min staðfest af stjórn Eimskipa- félags Islands h/f. i fréttatilkynn- ingu. þ.e. sjóprófið var ekki hald- ið fýrr en næstum fimm mánuð- um eftir að sjótjónið varö. 2. Vakthafandi stýrimaður er sjótjónið varð, Gisli Jóhann Yngvason, var ekki kallaður fyrir sjódóm fyrr en 24. mars 1977,'þe. meira en tveim árum siðar en sjótjónið varð. Einnig vil ég taka fram i þessus-ambandi, að þegar ég kom til dómsþings aö Túngötu 14. þennan dag var mér visað á herbergi Valgarðs Kristjánsson- ar borgardómara. Þá var þar fyr- ir umræddur stýrimaður sem átti loks að bera vitni. Ég spyr Val- garö borgardómara þá „fer sjó- réttur fram hér?” Segir borgar- Markils B. Þorgeirsson I réttar- haldi. dómari þá: „Nei, viö erum að fara yfir málskjölinn”. Þannig að vitnið var látið kanna framburð annarra i málinu áður en það kom fyrir rétt. 3. Kröfu minni um að aörir há- setar en Ingólfur Guðmundsson yrðu einnig kallaðir fyrir rétt var ekki sinnt. 4. Þeir aðilar sem fengu i hend- ur skýrslu skipstjórans um sjó- tjónið og áfall skipsins, þ.e. for- ráðamenn Eimskipafélags Is-' landsh/f, voru ekki kallaðir fyrir dóm þrátt fyrir kröfu mina. 5. Litið sem ekkert var sann- prófað um þau atriði varðandi þetta mál sem fram komu i einkadagbók minni oglesin voru upp i réttinum 3. sept. 1975. með leyfi Emils Agústssonar borgar- dómara og meðdómenda. Að visu las borgardómari Valgarður Kristjánsson upp eitt dæmi úr frásögn minni úr einkadagbók- inni, þar sem hannsleppir úr um- mælum Ingólfs Guðmundssonar, þar sem hann segir mér og eftir honum er skráð i dagbók mina, að hann var staddur i bakborðs- glugga við útkikk, en ekki við stýrið er sjótjónið og óhappið bar að höndum. Hins vegar fór skip- stjórifram á þaðvið hann siðar er hann ræddi við hann, að sjórétt- urinn ætti að fara fram morgun- inn 28. mai 1975 að hann bæri það fyrir rétti, að hann heföi verið við stýrið. Og fór svo að hann gerði honum þanngreiða, en lofaði hon- um fullu kaupi allan daginn, en þá var Ingólfur, að vinna um borð i Mánafossi er lá þá i höfn i Reykjavik. *Þetta skráði ég i einkadagbók mina er Ingólfur kom á heimili mitt um kvöldið, og greindi mér frá sjóréttinum. Þaðkom líka siðar i ljós þegar Emil Agústsson borgardómari fór með málið i dóm í 29. april 1976. Þá hefur skipstjórinn misst minnið, og týnt sjóninni, þvi nú veit hann ekki hvort handstýring er á eða sjálfstýring. Hann telur sig sjá mann hjá stýrinu, en greinir ekki hvað hann aðhefst. 6. Ekki var kannað misræmi það sem kom fram skv. vottorði um veður frá veðurstofu Islands og þvi sem fram kom i dagbók skipsins um veður á viðkomandi stað þegar skipið varð fyrir áfaU- inu og ber þar mikið á milli er varðar vindátt og veðurhæð, og veðurspá. Sjá málskjal nr. 11. 7. Ekki var sannprófuð umsögn Jóns Kjartanssonar, forstjóra A.T.V.R. sem fram kom i Al- þýðublaöinu 29. mai 1975 um tjón á farmi Á.T.V.R. úti um borð i skipinu. 8. Enginn sönnunargögn um tjón á farmi i skipinu kom frá vá- tryggingaraðilum um tjón á farmi í skipinu sem lögum sam- kvæmt bar að taka út við komu skipsins til Reykjavikur hinn 9. jan. 1975. 9. Engin skýring hefur komiö fram á þvi hverjar ástæður voru fyrir þvi að málið var tekið úr höndum Emils Agústssonar borgardómara, sem hafði sýnt þaðaðhann fór með málið aðlög- um fyrir dómi. 10. Eins og fram kemur i yfir- heyrslu yfir skipstjóra 29. april 1976 er Em il Agústsson f jallar um málið er framburður skipstjóra mjög ósamhljóða fyrri framburði hans sjálfs i dómi, sem og fram- burður annarra yfirmanna skips- ins er fram koma i fyrri sjóréttar- gögnum i málinu. Eins og hér hefur komið fram er málsmeðferð i þessu máli slik að það vekur furðu mina sem skipstjóralærðs” manns hvað vararikissaksóknari, Bragi Steinarsson, er ókunnugur þvi hvernig ber að standa að rann- sókn slikra mála fyrir dómi. Og að mi'nu áliti virðist lesa framlögð réttarskjöl i Mánafossmálmu með lokuð augu frá minum bæjardyrum séð, sem hef laga- nám mittsemihugamál i fristund- um. A hvaða lagalegum forsend- um byggir vararikissaksóknari niðurstöður sinar i þessu máli eins og fram kemur i Þjóðviljan- um 29. jan. 1978 um að málinu sé lokið? Þar með itreka ég kröfur mina um opinbera sakadóms- rannsókn á hendur Braga Steinarssyni, vararikissaksókn- ara, þarsem ummæli eftir honum höfð i Þjóðviljanum 29. jan. verði dæmd dauð og ómerk. Einnig krefet ég þess að haldiö verði áfram rannsókn þessa máls fyrir dómi og Siglingardómur felli sinn dóm i málinu. Þar sem mannorð mitt ogheiður er i veði, þar með skipstjóraréttindi min fótum troðin á opinberum vettvangi að vararikissaksóknara mun ég hér eftir verja mig sjálfur, þar sem fjallað verður um það eða þau mál i dómi, er við kemur mér. Þrátt fyrir að ég er i dag bæði hjarta- og asmasjúkdómsmaður. Virðingarfyllst Hafnarf 8. 2.1978 Markús B. Þorgeirsson, skipstjóri Hvaleyrarbraut 7. Fyrirspurn til rikissaksóknara Hverfisgötu 6, Reykjavik. Frá Markúsi B. Þorgeirssyni skipstjóra Hvaleyrarbraut 7. Þar sem mér hefur ekki ennþá borist svar af yðar hálfu við beiðni minni frá 8. febrúar 1978 s.l. þar sem ég bið um opinbera sakadómsrannsókn á hendur vararíkissaksóknara Braga 3teinarssyni,hef ég óskað eftir þvi við ritstjóra Þjóðviljans, að þeir taki til birtingar i heild erindis bréf mitt er sent var yður á sin- um tima og mér hefur ekki ennþá borist svar við. Égáyðureina ósk setta fram i' anda mannúðar og réttlætis, að hér sé ekki að risa á ný annað Mánafossréttarfars- hneyksli, hvað viðkemur meðferð um gang opinberra mála fyrir dómsstolum. Virðing yðar og heiður er i veði, hvað viðkemur afgreiðslu hraða hjá embætti rikissaksóknara. Svo er hér ein litil fyrirspurn til viðbótar. Hvaða stefnu hefur Mánafoss- málið tekiö siöan 6. mars s.l. aö Siglingamálastofnunin sendi yður bréf það er birtist i heild i Þjóð- viljanum undirskrifað af Páli Ragnarssyni f.h. siglingamála- stjóra. 31. marss.l. samkv. beiðni minni. Með vinsemd og virðingu Hafnarfiröi 7. april 1978 Markús B. Þorgeirsson, skipstjóri. Akranes — framboðslistar Framboðslistum til bæjarstjómarkosninga á Akranesi,sem fram eiga að fara sunnu- daginn 28.mai n.k. ber að skila til for- manns yfirkjörstjórnar Njarðar Tryggva- sonar, Furugrund 20, fyrir miðnætti miðvikudaginn 26.april n.k. Akranesi 24.april 1978 í yfirkjörstjórn Akraness, Njörður Tryggvason Sverrir Sverrisson Björgvin Bjarnason. Styrkir til háskólanáms i Alþýðulýðveldinn Kina Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Klna bjóða fram tvo styrki handa tslendingum til háskólanáms I Kína háskólaárið 1978—79. Styrkirnir eru ætlaðir stúdentum til háskóla- náms i allt að fjögur til fimm ár i kínverskri tungu, bók- menntum, sögu, heimspeki, vlsindum, verkfræöi, læknis- fræði, eða kandidötum til eins árs framhaldsnáms I kin- verskri tungu, bókmenntum, sögu og heimspeki. Umsóknum um styrkina skal komiö til menntamálaráðu- neytisins, Hverfisgötu 6. Heykjavlk, fyrir 15. mal n.k. — Umsóknareyðublöö fást I ráöuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 21. apríl 1978 IIAGVISTUN BARNA. FORNHAGA 8 SIMI 27277 Igl Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar \y --------------------- ——-------> Laus staða forstöðumanns Laus er staða forstöðumanns leikskólans Seljaborgar við Tungusel, fóstrumenntun áskilin. Laun samkv. kjarasamningi borgarstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til 9. mai. Umsóknir skilist til skrifstofu Dagvistun- ar Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari upplýsingar. AÐALFUNDUR Laugarnessafnaðar verður haldinn i Laugarneskirkju sunnudaginn 30. april kl. 15, að lokinni guðþjónustu Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Safn- aðarheimilismálið. önnur mál. Sóknarnefnd Laugarnessóknar. LAUSSTAÐA Kennarastaða við Tónlistarskóla Njarð- vikur er laus til umsóknar. Góð vinnuað- staða. Æskilegt er að umsækjandi geti tekið að sér starf kirkjuorganista á staðnum. Umsóknarfrestur er til 13. mai og sendist umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf til Arnar Óskarssonar, Hjallavegi 2 Njarðvik. Nánari upplýsingar um starfið gefur örn óskarsson i sima 2363 og Páll Þórðarsson i sima 3480. Skólastjóri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.