Þjóðviljinn - 12.05.1978, Side 1
DJOÐVIUINN
Föstudagur 12. mai 1978—43. árg. 97. tbl.
Alþýðubandalagið
hef ur ákveðið að gefa út
sérstakt aukablað af
Þjóðviljanum um efna-
hags- og atvinnumál-
og kemur það út í lok
þessarar viku. Efni
aukablaðsins eru þær
tillögur flokksins í efna-
hags- og atvinnumál-
um sem kynntar voru
fréttamönnum í gær.
Blaðið kemur út í það
mörgum eintökum að
nægir til dreif ingar á öll
heimili i landinu.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
ÞINGLISTINN AKVEÐINN
Samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundí í gær
A fjölmennum félags-
fundi í Alþýðubandalaginu
í Reykjavik/ sem haldinn
var í gærkvöldi að Hótel
Sögu/ var hvert sæti á
framboðslista flokksins til
alþingiskosninga í Reykja-
vík samþykkt einróma.
t upphafi fundarins aö Hótel
Sögu i gær skýrði Ingi R. Helga-
son frá störfum uppstillinga-
nefndar sem skilaði af sér tillög-
um sinum á fulltrúaráðsfundi
Alþýðubandalagsins i Reykjavik
á Hótel Esju i fyrrakvöld. Þar
urðu miklar umræður um listann.
Tillögurnar voru siðan bornar
upp i gær á félagsfundinum, skip-
an i hvert sæti samþykkt með
lófataki og framboðslistinn að
endingu borinn upp i heild og
samþykktur einróma með handa-
uppréttingu.
Svavar Gestsson flutti hvatn-
ingarræðu til fundarmanna að
lokinni afgreiðslu fram-
boðslistans. I ræðu sinni flutti
hann sérstakar þakkir til
Magnúsar Kjartanssonar fyrir
frábær störf á þeim vettvangi
sem hann hefur nú kosið að yfir-
gefa. Fundarmenn tóku undir
þakkir og baráttukveðjur til
Magnúsar með langvinnu lófa-
taki.
Uppstillinganefnd bauð
Magnúsi Kjartanssyni að skipa
efsta sæti framboðslistans i
Reykjavik en hann baðst undan
þvi á þeirri forsendu að sökum
heilsubrests treysti hann sér ekki
til þess að gegna þvi starfi. Þá
hefur uppstillinganefndin einnig
gert grein fyrir þvi að Vilborg
Harðardóttir, sem gegnt hefur
þingmennsku af mikilli atorku i
veikindaforföllum Magnúsar,
hafi tilkynnt nefndinni að hún
óskaði ekki eftir að taka sæti á
listanum. Voru henni þökkuð góð
störf.
Stefnuskrá Alþýðubandalags-
ins i Reykjavik i borgarmálefn-
um var einnig afgreidd á félags-
fundinum i gær.
Misrétti
og falin
fátækt í
Reykjavík
~ segir Guðrún
Helgadóttir
SJA OPNU
Listinn er þannig skipaður:
1. Svavar Gestsson ritstjóri
2. Eðvarð Sigurðsson formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar
3. Svava Jakobsdóttir rithöfundur.
4. Ólafur Ragnar Grimsson prófessor.
5. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambands
Islands.
6. Sigurður Magnússon formaður Framleiöslusamvinnufélags iðnað-
armanna.
7. Stella Stefánsdóttir verkakona, trúnaðarmaður Verkakvenna-
félagsins Framsóknar i B.ú.R.
8. Ingólfur Ingólfsson forseti Farmanna- og fiskimannasambands
Islands.
9. Ólöf Rikharðsdóttir stjórnarmaður i Oryrkjabandalagi Islands.
10. Tryggvi Þór Aðalsteinsson formaður Sveinafélags húsgagnasmiða.
11. Þröstur ólafsson hagfræðingur, framkvæmdastjóri Máls og menn-
ingar.
12. Þuriður Backmann hjúkrunarfræðingur, stjórnarmaður i Hjúkr-
unarfélagi íslands.
13. Guðjón Jónsson formaður Sambands Málm- og skipasmiða.
14. Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur.
15. Valgerður Eiriksdóttir kennari
16. Kjartan Thors jarðfræðingur
17. Reynir Ingibjartsson starfsmaður Landssambands isl. samvinnu-
starfsmanna.
18. Asta R. Jóhannesdóttir kennari.
19. Vésteinn Ólason lektor.
20. Jónas Sigurösson starfsmaður Iðnnemasambands Islands.
21. Guðrún Svava Svavarsdóttir myndlistarmaður
22. Snorri Jónsson varaforseti Alþýðusambands Islands.
23. Brynjólfur Bjarnason fyrrv. ráðherra.
24. Einar Olgeirsson fyrrv. alþingismaður.
NYLUNDA I ÍSLENSKUM STJÓRNMÁLUM
ítarleg stefnumótun
í efnahags-
málunum
Alþýðubandalagið leggur fram
viðamestu tOlögur um stjórn
efnahagslifsins og stefnu i atvinnu-
málum sem stjórnmálaflokkur
hefur sett fram
Forystumenn Aiþýðubandalagsins kynna tillögurnar: Ragnar Arnalds
formaður þingflokksins, Lúðvlk Jósepsson formaöur Alþýðubanda-
lagsins og ólafur Ragnar Grlmsson formaður framkvæmdastjórnar
fl.okksins.
Kynntar hafa verið opin-
berlega tillögur Alþýðu-
bandalagsins um ger-
breytta stefnu í efnahags-
málum sem f léttast saman
við markvisst átak að upp-
byggingu islenskra at-
vinnuvega. Tillögurnar eru
miðaðar við það að sem
víðtækast samstarf geti
náðst um þær og fram-
kvæmd þeirra. Helstu
þættir tillagnanna fjalla
um:
£ Markvissa framleiðslu-
stefnu i stað stöðnunar.
£ Áætlunargerð og
hei Idarst jórn fjár-
festingarmála.
Ig) Niðurskurö á yfirbygg-
wingu einkaaðila og ríkis-
ins.
£Breytta stefnu í orku-
málum sem hafni
erlendri stóriðju.
|| Endurskoðun skatta-
mála/ gjaldeyris- og
bankamála.
I Skipulega uppbyggingu
sjávarútvegs/ iðnaðar
og landbúnaðar.
► Skynsamlega nýtingu
innlendra auðlinda i
höndum landsmanna
sjálfra.
A blaðamannafundi I gær
kynntu þrir af forvigismönnum
Alþýðubandalagsins, Lúðvik
Jósepsson, ólafur Ragnar Grims-
son og Ragnar Arnalds, tillögur
flokksins i efnahags- og atvinnu-
málum. Að tillögunum hefur
verið unnið innan flokksins siðan
á árinu 1977, en upphaf þeirra
tengist fundaherferð Alþýðu-
bandalagsins til kynningar
islenskri atvinnustefnu. Drög að
tillögunum voru til meðferðar á
landsfundi flokksins siðastliðið
haust, og voru þær siðan unnar
frekar í vetur I 11 manna nefnd
sem skipuð var á landsfundi. Mið-
stjórn flokksins gekk frá tillögun-
um og samþykkti þær i april s.l.
Fram kom á blaðamannafund-
inum að gerð svo viðamikilla til-
lagna sem þessar eru, veröur að
telja til nýlundu i islenskri
stjórnrriálasögu. Stjórnmála-
flokkur hefur aldrei fyrr unnið og
lagt fram svo itarlegar og
sundurliðaðar tillögur um efna-
hagsmól og atvinnulifið i heild.
— Atvinnurekendur samþykkja
Kauphækkanir útilokaðar
„Það þjónar hvorki hags-
munum launþega né atvinnu-
rekstursins I landinu að reyna
að knýja fram frekari kaup-
hækkanir” segja atvinnurck-
endur i aðalfundarsamþykkt
sinni. I álytkun fundarins um
efnahagsmál er hvergi vikiö að
þvi að svigrúm sé til launabóta,
ekki einu sinni fyrir þá lægst-
launuðu.
Ber væntanlega að skoða
þetta sem svar til forsætisráð
herra, sem látið hefur i það
skina að rikisstjórnin muni ekki
standa gegn þvi ef atvinnurek-
endur og verkalýðshreyfingin
geti fundið leið til þess að hækka
laun lægstlaunaða fólksins án
þess að það leiði til almennra
launahækkana.
I
■
1
m
I
■
1
&
i
A aðalfundinum var Páll
Sigui jónsson, verkfræðingur,
framkvæmdastjóri Istaks —
tslensks verktsks hf., kjörinn
oddviti atvinr.urekenda, og
Hjalti Eínarsson, formaður
Sambands fiskvinnslustöðva, “
varaformaður Vinnuveitenda R
sambandsins.
a
—-ekh |
■ noi b 6si8 ii aani ss /w ■ s ms ■ *k?