Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. mal 1978. Listi Alþýðubandalagsins á 2. Hannes Baldvinsson framkvæmdastjóri, Siglu- firði. F. 10. april 1931. Sildar- matsmaður, formaður stjórnar lagmetisiðjunnar Siglósild 1972-1977, bæjar- fulltrúi 1962-1966, i stjórn S.R. frá 1969. Varaþing- maður frá 1971. Kvæntur Halldóru Jónsdóttur. 1. Ragnar Arnalds alþm., Varmahlið, Skaga- firði. F. 8. júli 1938. Alþingis- maður 1963-1967 og siðan 1971. Formaður Alþýðu- bandalagsins 1968-1977. Lög- fræðingur að mennt, en hef- ur mest fengist við kennslu auk stjórnmálastarfa, m.a. skólastjóri i Varmahlið 1970- 1972. Kvæntur Hallveigu Thorlacius. 3. Eríkur Pálsson bóndi, Syðri-Völlum, V.- Húnavatnssýslu. F. 19. júni 1941. Vann við ýmis störf, m.a. i fiskvinnu og hjá vega- gerðinni, en hefur verið bóndi á Syðri-Völium undan- farin tiu ár. Kvæntur Ingi- björgu Þorbergsdóttur. 6. Haukur Ingólfsson vélvirki, Hofsósi, Sagafiiði. F. 5. april 1938. Hefur verið vélvirki hjá Fjólmundi Karlssyni i Stuðlabergi und- anfarin 15 ár. Kvæntui Eygló óskarsdóttur. 7. Eövarð Hallgrímsson byggingameistari, Skaga- strönd A.- Húnavatnssýslu F. 22. janúar 1948. Eðvarð er frá Helgavatni i Vatnsdal. Hefur stundað húsabygging- ar á Skagaströnd og viða um sýsluna mörg undanfarin ár. Formaður Alþýðubanda- lagsins á Skagaströnd. Kvæntur Helgu Guðmunds- dóttur. 8. Ingibjörg Hafstað húsfreyja, Vik, Skagafirði. F. 19. april 1951. Tók kennarapróf frá K.I. og fóstrupróf. Hefur starfað sem kennari undanfarna þrjá vetur við Barnaskóla Sauðárkróks ásamt hús- freyjustörfum i Vik. Gift Sigurði Sigfússyni. Noröurlandi vestra 4. Þórarinn Magnússon bóndi, Frostastöðum, Skaga- firði. F. 7. febrúar 1949. Stú- dent frá MA, búfræðikandi- dat frá Ási i Noregi, i stjórn- um Ungmennasambands og Búnaðarsambands Skaga- fjarðar. Hefur verið bóndi á Frostastöðum siðan 1973. . Guðríður Helgadóttir húsfreyja, Austurhlið, A.- Húnavatnssýslu. F. 16. mars 1921. Hefur búið i Austurhlið i Blöndudal undanfarin 17 ár. Formaður Kvenfélags Bólstaðarhliðahrepps. Gift Friðrik Brynjólfssyni. 9. Eyjólfur Eyjólfsson verkamaður, Hvamms- tanga, V.-Húnavatnssýslu. F. 31. mars 1921. Stundaði sjómennsku i tvo áratugi og búskap á Geitafelli á Vatns- nesi i 16 ár. Hefur haft mikil afskipti af verkalýðsmálum. Kvæntur Hansinu Hjartar- dóttur. 10. Kolbeinn Friðbjarnarson formaður Verkalýðsfélags- ins Vöku, Siglufirði. F. 3.. október 1931. Hefur verið einn helsti forystumaður verkalýðshreyfingarinnar á Norðurlandi um árabil. Bæjarfulltrúi i Siglufirði sið- an 1970. Kvæntur Guðnýju Þorvaldsdóttur. Félag dráttarbrauta- og skipasmiðja Naudsyn nýsmíða Jafnri og stödugri nýsmiöi þarf aö beina til íslenskra stööva en ekki erlendra Að undanförnu hafa þær radd- ir gerst sifellt háværari, að fiski- skipafloti landsmanna sé þegar of stór, og þvi sé eðlilegt að stöðva öll skipakaup og nýsmiðar innan- lands, auk þess sem leggja beri hiuta fiotans. Þvi skal sist af öllu mótmælt, að nauðsynlegt sé að stiila saman stærð fiskiskipastólsins (sóknar- getu) og nýtingu fiskistofnanna. Það er hins vegar skoðun Félags dráttarbrauta og skipasmiðja, að verði þetta gert meö stöðvun allr- ar endurnýjunar á flotanum, geti annað og verra hlotist af. Það gefur auga leið, aö þeir sem stýra þvi takmarkaða fjár- magni, sem til ráðstöfunar er til uppbyggingar og endurbóta á að- stöðu fyrir atvinnuvegina, geta freistast til að gripa fegins hendi forsendu á borð við þá, sem að framan er rætt um og ákveða að verja ekki fé til uppbyggingar skipaiðnaðarins fyrren eftir að eðlilegt ástand hefur skapast. Yrði sú skoðun ofan á, að leggja beri niður nýsmiði innanlands, myndi vafalaust leiða þar af, að engin áhersla yrði lögð á að end- urbæta húsnæði og aðra aðstöðu þeirra fyrirtækja, sem i skipa- smiði starfa, en þetta krefst nokkurs fjármagns. Jafnvel þætti ekki ástæða til að reyna að koma við þeim framleiðslutæknilegu nýjungum, sem ýmist er unnið að eða eru i undirbúningi i þessum fyrirtækjum, eða að verja fé til uppbyggingar fyrir tækja i i skipaviðgerðum. Þetta er ein alvarlegasta af- leiöing þess aö fiskiskipaflotinn er of stdr miðað við fiskstofnana. Þetta er ekki einungis alvarlegt fyrir skipaiðnaðinn, heldur einnig fyrir þjóðarbúskapinn allan, af eftirfarandi ástæðum: Nýjar tegundir skipa. Jafnvel þótt leggja þyrfti hluta flotans benda likur til þess, að það eigi fyrst og fremst við eina skipstegund fremur en aðra. Ekki er njinnsti vafi á, að viðbótar- þörf verður alltaf fyrir vissar teg- undir skipa. Mikill áhugi er fyrir hendi hjá útgerðarfyrirtækjum að losna við óhagkvæm skip ( t.d. togara 700 - 1000 brl.) og fá önnur i staðinn ( togara af stærðinni 499 brl.). Liklegt er þvi að minni skuttogurunum muni fjölga á næstunni og nótaskipin ( loðnu- skip ) muni stækka i ca. 1500 þungatonn. Ennfremur má gera ráð fyrir að nýting 200 milna landhelginnar hafi i för með sér, að fiskiskipum undir 99 brl. fjöigi (en þessi skip mega veiða i hólf- unum svonefndu), auk þess sem meiri eftirspurn verður eftir breytingum á fiskiskipum. Ot- gerðarmenn munu ennfremur vilja fá ný skip i stað þeirra sem nauðsynlegt kann að vera að leggja vegna ástands þorsk- stofnsins. Þeir munu fá þessu framgengt svo lengi sem endur- nýjunin beinist að þvi , að nýta aðra stofna en þorskstofninn. Þetta þýðir að fyrirsjáanlega verða fyrir hendi talsverð verk- efni fyrir nýsmiðastöðvar. Spurn- ingin er aðeins sú, hvort þau bein- ast til útlanda eða til innlendra . stöðva. Ef hætt verður við fjár- magnsfyrirgreiðslu tií uppbygg- ingar skipaiðnaðarins má búast við aðmestur hluti þessara verk- efnalendi hjáerlendum stöðvum. Það tekur langan tima að koma upp góðum skipasmiðastöðvum, en stuttan tima að eyðileggja þær. Að þvi virðast núverandi stjórnvöid stefna. Öflugur skipaiðnaður nauðsyn. Endurnýjun fiskiskipastólsins hefur átt sér stað I gifurlegum sveiflum, sem hafa i för með sér mjög óheppilegar afleiðingar, bæði fýrir útgerðina og skipa- smiðaiðnaðinn. Skipin úreldast öll á sama tima, þau þurfa flest öll ftokkunarviðgerðá sama tima o.s.frv. Reynslan sýnir, að ef eðlileg endurnýjun fiskiskipastólsins fær ekki að eiga sér stað, má bú- ast við að innan fárra ára muni skapast aðstæður til þess að ein flóðbylgjan enn skelli yfir, verði ekkert að gert. Þá er einfaldlega of seint að hefjast handa um frekari uppbyggingu skipaiðnað- arins. Skynsamlegast Skynsam- legasta aðferðin til þess að draga úr sveiflunum, fylgjast með þró- un i' tækni o.s.frv. er að hafa öflugan skipaiðnað i landinu. Það hlýtur þvi að vera sameig- inlegt markmið útgerðar og skipaiðnaðar að sem mest af þeim nýsmiðaverkefnum, sem breytt samsetning flotans hefur i för með sér, verði framkvæmd hér innanlands. Framleiðslugeta þarf að aukast Jafnvel þótt ínnlendar skipa- smiðastöðvar framleiði af fullum afköstum, geta þær aðeins fram- leitt u.þ.b. helming af eðlilegri endurnýjunarþörf, þ.e. þeirri árlegu endurnýjun flotans, sem þörf er fyrir miðað við eðlilegar aðstæður. Arið 1971 var gert ráð fyrir að árleg endurnýjun flotans þyrfti að vera um 4000 lestir til þess að hann héldist i óbreyttri stærð. Siðan hefur flotinn stækkað verulega, þannig að þessi tala hefur talsvert hækkað. Fram- leiðslugeta stöðvanna er hins vegar aðeins u.þ.b. 2000 brúttó- rúmlestir. Þannig myndi flotinn minnka jafnvel þótt afkastageta innlendra stöðva yrði fullnýtt. Nýsmiði skipa er forsenda fyrir þvi, að viðgerðir megi stunda með hagkvæmum hætti. Þessir þættir verða að bera hvorn annan uppi. Ef nýsmiðum yrði hætt, er 'hætta á mjög lélegri nýtingu sumra stöðvanna, þannig að hag- kvæmnin yrði minni og við við- gerðirnar þyrftu þvi aö verða dýrari. Framhald á bls. 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.