Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 20
WÐVHJ/NN Föstudagur 12. mai 1978. • Munid kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins. • Glæsilegir ferða- og bókavinningar • 1000 kr. miðinn. • Eflum kosningasjóðinn! • Styrkjum kosningasókn Alþýðubandalagsins! • Verum fljót að gera skil! Sigurjón Pétursson, borgarrádsmaöur: Óháð framboð í Suður- landskjör- dæmi í gær bobaði Gunnar Guömundsson, skólastjóri aö Laugalandi i Holtum, Rangár- vallasýslu til blaðamannafundar, þar sem hann kynnti óháöan framboðslista i Suðurlandskjör- dæmi við alþingiskosningarnar 25. júni nk. Listinn litur þannig út: 1. Gunnar Guðmundsson, skóla- stjóri Laugalandi, Rang. 2. Skúli B. Agústsson, rafverk- taki, Selfossi 3. Georg Agnarsson, bifreiða- stjóri, Þorlákshöfn 4. Þórólfur Vilhjálmsson, skipa- smiður, Vestmannaeyjum 5. Björn Bergmann Jóhannsson, verkam. Holtum Rang. 6.Sigurður Jónsson kennara- nemi Björk, Sandvikurhreppi 7. Kristin Sigurþórsdóttir, hús- móðir Hellu 8. Þorgils Gunnarsson, verkam. Vik Mýrdal 9. Birgir Sveinbjörnsson, fanga- vörður, Eyrarbakka 10. Ester Halldórsdóttir, banka- maður, Selfossi 11. Arndis Eiriksdóttir, fyrrver- andi ljósmóðir, Lýtingsstöð- um Holtum 12. Konráð Sigurðsson, héraðs- iæknir, Laugarási, Biskupst. —S.dór Trilla með einum manni fórst í gær- morgun Það hörmulega slys varö snemma i gærmorgun, aö trilla frá Höfntun fórst og með henni einn maður. Hann hét Siguröur Jón Ingi- mundarson, Garðbæ, Höfnum. Sigurður var 34 ára og einhlcyp- ur. Þegar bátar reru um hálf sjö—leytið i gærmorgun frá Höfn- um fundu þeir belg og brak úr bátnum og voru björgunarsveitir frá Höfnum og Keflavik þegar kallaðar út. Var gerð árangurs- laus leit i allan gærdag. Þó enginn sé til frásagnar um slysið er ætlun manna aðyéiarbilun hafi orðið og báturinn lent i brotsjó, en brim var mikið á flóðinu i gærmorgun. Guðmundur Jónsson, form. Landssamb iðnverkafólks: Skilyrði að verðbætur miðist við dagv.taxta Þær hugmyndir, sem rikis- stjórnin hcíur sett fram, um breytingar á kaupránslögunum, þess eðlis aö hækka viðmiðun- artölu vcrðbótaaukans en miða bæturnar viö heildartekjur en ekki dagvinnutaxta, hafa mætt harðvitugri andstöðu verka- lýðsforystunnar. Viö ieituðum i iniii miiiihiiiiihihu i i wi ni—iwrn tm rmiriOTTmTn—i gær álits Guðmundar Þ. Jóns- sonar formanns Landssam- bands iðnverkafólks á þessum hugmyndum, en félagar sam- bandsins ásamt félögum i VMSÍ, er sá iaunamannahópur, sem allir virðast sammáia uin að þurfi bætt kjör, öðrum frem- ur. Guðmundur sagði að sér þætti hugmyndin, eins og forsætisráð- herra hefði sett hana fram, frá- leit. Hann sagði að verðbóta- aukinn yrði að koma á dag- vinnu, en ekki míðast viö heild- arlaun. ,,Að minum dómi er það algert skilyrði”, sagði Guð- mundur. 1 dag veröur haldinn sátta- fundur með deiiuaöilum hjá sáttasemjara, og sagðist Guö- mundur búastvið aö þetta atriði yrði rætt þar. Guðmundur kvaö engar á- kvarðanir hafa verið teknar hjá Iðjufólki um frekari verkfalls- aðgerðir. ,,En það er alveg ljóst, að svona getur þetta ekki gengið lengur. Við getum ekki beðið endalaust eftir nýjum samning- um og ég fæ ekki annað séð en að gripa verði til harðra að- gerða á næstunni, til að knýja fram samninga. Þvi miður er það oftast þannig, að atvinnu- j rekendur hreyfa sig ekkert i 1 samningum, fyrr en þeir fá j verulegan þrýsting á sig, frá | verkalýðssamtökunum”, sagði I Guðmundur Þ. Jónsson.~-ij Auðvitað er betra fyrir borgar- stjóra að kosningaioforðin fái að standa óbreytt i þaö minnsta meöan hverfafundirnir hans eru i gangi og helst auðvitað fram yfir kosningar, sagði Sigurjón Péturs- son, borgarráðsmaður, i tilefni af frétt Þjóðviljans um 25% niöur- skurð á gatnagerðarframkvæmd- um eftir kosningar. Við gerð fjárhagsáætlunar borgarinnar i vetur bentum við Alþýðubandalagsmenn strax á að áætlunin var hátt spennt og bar þess greinileg merki aö kosningar væru á næsta leiti. Mér kemur þvi ekkert á óvart að skera þurfi niður gatnageröar- framkvæmdir um fjórðung ef ekki á að taka kosningavixil eins og venjan hefur veriö. Árið 1974 tók meirihlutinn 600 miljón króna gjaldeyrisvixil og rembdist við að framkvæma kosningaloforðin fyrir kosningar þá. Þennan vixil er enn ekki búið að greiða að fullu, og nú er greinilegt að þeir ætla ekki að taka annan á þessu vori, heldur einfaldlega svikja loforðin eftir kosningarnar. Þaö er hreinn fyrirsláttur að nauösynlegt sé að biða eftir álagningu gjalda til þess að unnt sé að ákveða hverju eigi aöiSleppa Sannleikurinn er aö meðan beðið er eftir úrslitum kosninganna heldur veröbólgan áfram og peningarnir rýrna að sama skapi. —AX. A fundi SAL i gær Ráöstefna SAL hófst í gær: Tölvukerfi og innheimtu- málin m.a. á dagskránni I gærmorgun hófst ráðstefna forstjóra og stjórnarmanna Sam- bands almennra lifeyrissjóða (SAL) að Hótel Sögu og lýkur henni I dag. Eðvarð Sigurðsson sagði i sam- tali við Þjóðviljann i gærkvöldi að svona ráðstefna hefði siöast verið haldin fyrir tveimur árum en til- gangur þeirra er fyrst og fremst að skiptast á upplýsingum en ekki taka ákvarðanir. 1 gær fyrir há- degi var fjallað um samskipti lif- eyrissjóða SAL og umsjónar- nefndar eftirlauna og eftir hádegi var tekið til meöferðar tölvukerfi bæði fyrir einstaka lifeyrissjóöi og sameiginlegt. t dag verða inn- heimtumálin hins vegar á dag- skrá. _r.Fr Leikurinn gerist á einangruð- um, afskekktum stað, Þvernesi, það gæti til dæmis verið norður á Ströndum,” sagði höfundurinn. Þessi staður hefur verið i eyöi i aldarfjórðung að minnsta kosti. Gamall Þvernesingur snýr þang- að aftur til að reisa mannvirki i kirkjugarðinum og veldur þetta tiltæki hans miklum pólitískum titringi i landinu, bæði til hægri og vinstri, sem i leiknum er einkum lýst i örstuttum sjónvarpsatrið- um. Jónas sagði, að leikritið fjallaði fyrst og fremst um einstaklinga og það hnjask sem þeir verða'fyr- ir af völdum auðvalds i nútið og fortið og það tómlæti og yfir- borðsgaspur, sem af þesssu leiðir i vissum hópum vinstra megin i pólitikinni. ,,Jú, þetta er pólitiskt verk,” sagði Jónas, „hvernig er hægt að vera ópólitiskur?” Hann sagðist hafa komist virki- lega i gang með leikritið i sumar sem leið og þegar hann fór út af þingi i byrjun desember hafi hann lokið þvi með þvi að vinna sleitulaust yfir hátiðirnar og fram i janúar. ’ „Tilefnið? Þau eru mörg tilefni þessa leikrits, — húmbúkkið, til- gerðin og yfirdrepsskapurinn sem veður uppi i þessu þjóðfélagi, bæði i pólitikinni og þá ekki siður á menningarsviðinu svonefnda. Mér list ekki þar vel á þær blikur sem eru á lofti.” Við spurðum um húmorinn i verkinu. ,,Ég geri sannarlega að gamni minu,” sagðiJónas.en þvi fer svo fjarri, sérstaklega þegar liða tek- ur á leikinn, að hægt sé að segja að höfundurinn sé i elskulegu skapi.” Framhald á bls. 15 Frá vinstri: Þorsteinn Gunnarsson ieikstjóri, Steinþór Sigurðsson leik- myndateiknari og Jónas Arnason rithöfundur. Pólitískur titringur til hægri og vinstri „Valmúinn springur út á nóttunni”, nýtt leikrit eftir Jónas Árnason frumsýnt i Iönó I lok næstu viku verður frum- sýnt nýtt islenskt leikrit i Iðnó. Þaö er eftir Jónas Arnason og heitir „Valmúinn springur út á nóttunni.” Að sögn Jónasar er titillinn fenginn úr kinversku Ijóði eftir Ting Sjú Ló, þar sem segir: Valmúinn erblómblóma og hann springur út á nóttunni. Mannvirki i kirkjugarði F ramk væmdalofor ðin standast ekki Meirihlutinn ætlar aö svíkja þau strax eftir kosningarnar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.