Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. mal 1978. Aöalfundur Slysavarnafélags íslands Markviss sókn tíl bættrar umferðarmenningar Aðalfundur Slysavarnafélags Islands, sem jafnframt var hátiðarfundur i tifefni 50 ára afmælis félagsins. var haldinn um siðustu helgi, 28.-30. april. Fundinn sóttu milli 160 og 170 fulltrúar frá hinum ýmsu deildum og björgunarsveitum Slysa- varnafélagsins um allt land. Fundarstjóri á fundinum var Tómas Þorvaldsson, Grindavik en til vara Hergeir Kristgeirsson, Selfossi. Aður en gengið var til fundar i Slysavarnahúsinu á Grandagarði var hlýtt á guðs- þjónustu i Dómkirkjunni,þar sem sr. Þórir Stephensen prédikaði. Setningarræðu og skýrsiu for- eta félagsins, Gunnars Friðriks- sonar, hefur áður verið getið i fjölmiðlum. Ingólfur Þórðarson, gjaldkeri, gerði grein fyrir reikn- ingum þess fyrir árið 1977, sem lagðir voru fram endurskoðaðir á fundinum. N iðurst öðutölur rekstrarreiknings nema rúmlega 48.7 miljónum króna, en námu 37.8 miljónum króna árið áður. Bókfærðeign félagsins nam i árs- lok 1977 61,7 miljón króna en nam 45,5 miljónum króna iárslok 1976. Agóði af happdrætti félagsins 1977 nam u.þ.b. 6,5 miljónum króna. Hörður Friðbertsson, formaður happdrættisnefndar, flutti sér- staka skýrslu um happdrættið. Hannes Þ. Hafstein, fram- kvæmdastjóri SVFl, flutti erindi um starf félagsins i dag og óskar Þ. Karlsson, erindreki fjallaði um útbreiðslustarf og umdæma- skiptingu björgunarsveita. Þá kynnti Baldur Jónsson Nordisk livredningsforbund, sem SVFI hefur nýlega gerst aðili að og verður þing samtakanna háö i Reykjavik i' ágúst n.k. Umferðarmál Eitt aðal umræðuefni aðal- fundarins voru umferðarmál. Framsögu um þau mál hafði Har- aldur Henrysson, fulltrúi félags- ins i Umferðarráði. Tóku margir þátt i umræðum og voru fulltrúar einhuga um að félagið ætti aö beita sér fyrir þvi, að allir þeir aðilar, sem að umferðarmálum vinna, samstilli krafta sina og geri sameiginlegt átak tii að bæta umferðarmenningu Islendinga. Var um þessi mál gerð svofelld ályktun.: „Aðalfundur Slysavarnafélags islands, haldinn i Reykjavfk 28.-30. april 1978, telur að um feröarslys séu orðin eitt höfuð- vandamál islensks þjóðfélags. Gegn þvi verði að ráðast með sameinuðu átaki þjóðarinnar allrar og þeirra aöila, sem aö þessum málum vinna. Hér má ekkert til spara og er Ijóst, að miklu meira fé verður að verja til þessara mála en veriö hefur. Kundurinn beinir því til fulltrúa félagsins i Umferöarráði að hvetja til samstilltra ákvarðana hinna lrjálsu félagasamtaka og fulltrúa stofnana, sem Umferðar- láð skipa, um að hefja nú þegar markvissan áróður til bættrar umferöarmenningar. Verði m.a. lögð áherslá á erindrekstur út um allt land og áróður i fjölmiðlum. Knnfremur veröi gengið harðar eftir þvi að ákvæðum laga um umferðarfræðslu I skólum verði frant fylgt. Aðalf undurinn telur það skyldu SVFÍ að hafa forystu um að vekja þjóðina til meðvitundar um þann mikla vanda, sem hér þarf að leysa. Felur fundurinn stjórn félagsins að hefja þegar aðgerðir i þessu skyni og hafa frumkvæði að þvi að félagsdeildir hefji virkt starf i þessum rnálum. Heiinilar fundurinn stjórninni að ráða liæfan starfsmann ef þurfa þykir i lengri eða skemntri tima til að hrmda þessu máli fram. Til að standa undir kostnaði við þetta a ukna starf á vegum félags- ins heitir aðalfundurinn á félags- deildir að gera sérstakt átak i fjáröflun. Jafnlramt felur fundurinn stjórn félagsins að leita til opinberra aðila um aukinn styrk til félagsins i þessu skyni". Þá var samþykkt ályktun þar sem skorað var á viðeigandi yfir- völd að samræma ákvæði um hámarkshraða í þéttbýli. Fjarskiptamál Mikið var rætt um fjarskipta- mál á fundinum og snerust umræður einkum um vandamál er lúta að f jarskiptabúnaði björgunarsveitanna, sem ermjög þýðingarmikill við hin margvis- legu störf þeirra. Haraldur Sigurösson, yf irverkfræðingur hjá Landssima Islands flutti fróð- legt og yfirgripsmikið erindi á fundinum um þessi mál og svargði fyrirspurnum. Samþykkt var svofelld ályktun um fjar- skiptamál: „Aðalfundur SVFl 1978 skorar á Póst- og simamálastjórn að rýmka verulega þær kvaðir, sem eru á styrkleika og rásafjölda á C.B. talstöðvum, sem ætlaðar eru til notkunar innan björgunar- sveita, þannig að björgunarsveit- irnar hafi ávallt möguleika á að kaupa þær C.B. talstöðvar, sem fullkomnastar eru á heimsmark- aðnum hverju sinni. Fundurinn felur stjórn SVFI að fylgja þessu máli eftir.’' Unglingastarf Mikið var rætt á fundinum um mikilvægi þess að æskufólk komi til starfa á slysavörnum. Kom m.a. fram, að á vegum slysa- varnadeildarinnar „Bjarni Pálsson” á Seltjarnarnesi hefur starfað unglingadeild undanfarin ár með góðum árangri. Um þessi mál var samþykkt svofelld til- laga: „Aðalfundur SVFI haldinn i Reykjavfk 28.-30. april 1978, skorar á deildir félagsins að gera átak til að virkja starfskrafta ungs fólks i þágu slysavarna- starfsins. Verði m.a. þar sem þvi verður við komið, stofnaðar ungliðasveitir, sem starfi undir umsjón og leiðsögn deilda og björgunarsveita”. Ályktun um ör- yggi smábáta Á fundinum var samþykkt ein- róma eftirfarandi ályktun, sem allir fulltrúar undirrituðu og siðan var afhent formanni alls- herjarnefndar Sameinaðs Alþing- is: „Aðalfundur SVFl, haldinn i Reykjavik 28.-30. april 1978, skorar eindregið á samgöngu- málaráðherra að setja nú þegar reglugerð um öryggi smábáta eins og fram kemur i þings- ályktunartillögu, er nú Iiggur fyrir 99. löggjafarþingi — 68. mál — á meðan undirbúin er löggjöf skv. breytingartillögu allsherjar- nefndar." Aðrar ályktanir Samþykkt var á fundinum til- laga frá kvennadeild félagsins á Akureyri um að athugaðir verði möguleikar á að koma upp heiða- skýli meö talstöð við Sprengi- sandsleið, sem æskilegast væri að staðsett yröi norðan Fjórðungs- vatns, t.d. i Kiðagilsdrögum. Einnig var samþykkt að fela stjórn félagsins að reisa skip- brotsmannaskýli á norðanverðu Langanesi nú á þessu ári og verði það staðsett eftir nánari athugun. Kostnaður við byggingu þess verði greiddur, svo sem til hrekk- ur, með dánargjöf Aðalheiðar Albertsdóttur, sem félaginu barst á árinu 1972 og yrði þá tilætlan gefandans uppfyllt. Þá var samþykkt áskorun til menntamálaráðherra um að hann hlutist til um að kennsla i skyndihjálp verði lögboðin i grunnskólum og henni komið i beina þeirri áskorun til stjórn- valda að fella niður skatta og tolla af tækjum, sem björgunarsveitir kaupa til björgunarstarfa. Var stjórn félagsins falið að vinna að framgangi þessa máls. Að lokum var samþykkt ályktun þar sem stjórn félagsins var falið að kanna möguleika á þvi að útbúa til dreifingar á vegum deilda sjúkratöskur, sér- staklega ætlaðar til að hafa i bif- reiðum. Fundur björgunar- sveitarmanna Einn liður fundahalds á aðal- fundinum var fundur umdæmis- stjóra og björgunarsveitamanna. Var þar rætt um samæfingar björgunarsveita, fræðslustarf innan þeirra, búnað sveitanna og öflun hans auk ýmissa annarra mála. Heiðranir A lokafundi hátiðafundarins skýrði Hulda Sigurjónsdóttir, varaforseti félagsins, frá þvi, að Slysavarnafélag tslands hefur nýverið fengiö að gjöf 6 manna gúm- björgunarbát sem nota á til kennslu á námskeiðum fyrir sjómenn. Ric- hard Hannesson forstjóri Ólafs Gislasonar og Co afhenti forráðamönn- um félagsins bátinn aðgjöf fyrir hönd RFD I Englandi. framkvæmd hið fyrsta. Einnig var samþykkt ályktun, þar sem lýst er ánægju með stuðning við herferð barna og unglinga i skólum gegn reykingum. Var þvi jafnframt bent til æskunnar, að hún hefji slíka herfrerð gegn áfengisbölinu og neyslu annarra fikniefna. A það er bent, að ölvun sé ein algengasta orsök slysa, bæði á láði og legi. Þvi sé barátta gegn ofnotkun áfengis mikilvæg viðleitni til að koma i veg fyrir slysin og auka menninguna i landinu, i þess orðs bestu merkingu. Loks beindi fundurinn þeirri áskorun til æskunnar að hún gangi til liðs við félagið og hvetji til aukinnar varúðar i umferðinni og til bættar umferðarmenningar. Þá samþykkti aðalfundurinn, að beina þeirri áskorun til Siglingamálastjóra „að land- gangar verði lögboðnir um borð i skipum 200 rml. og stærri og skoðist sem öryggisbúnaður skip- anna. Þá beinir fundurinn þeirri ein- dregnu áskorun til hafnaryfir- valda, að láta koma fyrir flot- bryggjum við lægi hinna minni fiskibáta og jafnframt að ávallt sé samviskusamlega fylgst með þvi að bryggjustigar séu i fullkomnu lagi og staðsetning þeirra auðkennd með áberandi málningu og endurskins- merkjum ”, Aðalfundurinn samþykkti að stjórn félagsins hefði komið saman án vitundar forseta þess og samþykkt einum rómi að sæma Gunnar Friðriksson, sem verið hefur forseti félagsins i 18 ár, æðsta heiðursmerki félagsins, gullkrossi fyrir ómetanleg og frá- bær störf hans i þágu þess. Þetta heiðursmerki hefur einungis verið veitt einu sinni áður, frú Gróu Pétursdóttur. Þá lýsti forseti kjöri nokkurra heiðursfélaga á þessum tima- mótum i sögu félagsins og afhenti skjöl þvi til staðfestu. Þessir heiðursfélaagar eru: Guðmundur Guðmundsson, skipstjóri á tsafirði, sem um ára- bil var formaður slysavarna- deildar karla á Isafirði og forystumaður slysavarna þar. Sr. Stefán Eggertsson á Þing- eyri, sem hefur lengi staðið i fararbroddi i svd. Vörn á Þing- eyri og auk þess unnið mikið og merkt varðgæslustarf sem óþreytandi áhugamaður um fjar- skipti. Hjalti Gunnarsson, Reyðar- firði, sem var formaður svd. Arsól a Reyðarfirði frá 1946 til 1977 og hefur unnið ötullega að öryggismálum sjómanna. Frú Sigrún Sigurðardóttir, lengi formaður svd. Hafdísar á Fáskrúðsfirði og þátttakandi i landsþingum SVFI um f jölda ára. Frú Guðrún Þorsteinsdóttir, ekkja Henrys A. Hálfdánssonar, sem var framkvæmdast jóri félagsins i 28 ár. Kristinn Lárusson, sem lengi hefur verið forystumaður i svd. „Sigurvon” i Sandgerði. Frú Gróa Jakobsdóttir, Eyrar- bakka, sem um árabil var for- maður svd. „Björg” og átti sæti i varastjórn SVFI. Tómas Þorvaldsson og Arni Magnússon i Grindavik, en báðir þessir menn hafa lengi staðið i fremstu fylkingu i slysavarna- starfi og þá sérstaklega við björgun manna úr sjávarháska. Tómas var formaður björgunar- sveitar „Þorbjörns”, en Arni var skytta sveitarinnar. Frá þvi að þeir komu til starfa i sveitinni hefur hún bjargað 118 mönnum úr strönduðum skipum. Sigurbeir Jóhannsson, Bakka- koti, formaður svd. „Happasæll” i Meðallandi og björgunar- sveitarinnar þar, sem hefur siðan 1956 bjargað 80 mönnum úr sírönduðum skipum undir hans stjórn. Haraldur G. Júliusson, Stokks- eyri, sem var i 25 ár i stjórn svd. „Dröfn” og starfar enn að mál- efnum félagsins. Frú Dóra Erlendsdóttir, Akranesi, sem var i stjórn svd. kvenna á Akranesi i 15 ár, þar af 13 ár sem formaður. Frú Sigriður L. Arnadóttir, Akureyri, sem var i stjórn svd. kvenna á Akureyri frá 1937 til 1970, lengst af sem gjaldkeri, en á árinu . 1970 tók hún við formennsku í deildinniog gegndi henúi til 1973. Ragnar Þorsteinsson, bundi og rithöfundur frá Höfðabrekku I Mýrdal, sem i mörg ár var ^or- maður svd. „Vonin” i Vik og for- maður björgunarsveitarinnar þar, en hún bjargaði fjölda sjómanna úr strönduðum skipum undir hans stjórn. Frú Guðrún Olafsdóttir, sem var ein af stofnendum svd. kvenna i Reykjavik 1930 og hefur veriðvirkur félagi þar allar götur siðan. Sveinn Sölvason, Sauðárkróki, sem var lengi i stjórn og for- maður svd. „Skagf irðinga- sveitar”, en hann var einn af stofnendum deildarinnar 1932. Jón I. Sigurðsson, sem. var um langa hrið formaður og forystu- maður i Björgunarfélagi Vest- mannaeyja. Fulltrúar á aðalfundi SVFl sóttu forsetahjónin heim á Bessa- stöðum s.l. laugardag og þáðu þar kaffiveitingar. Á sunnudaginn var fulltrúum boðið að skoða tvær nýjar björgunarstöðvar. Var fyrst skoðuð ný björgunarstöð og félagsheimili slysavarnadeild- anna „Fiskakletts” og „Hraun- prýði” í Hafnarfirði en siðan var haldið til Sandgerðis, þar sem veriðer að leggja siðustu hönd á björgunarstöð og félagsheimili svd. „Sigurvonar” þar. Báðar þessar stöðvar eru reistar ein- göngu með sjálfboðaliðsvinnu félaga i deildunum og björgunar- sveitunum ogbera vott um mikla fórnfýsi og dugnað. Drukkið var kaffi i glæsilegum fundarsal hinnar nýju stöðvar i Sandgerði í boði sveitarstjórnarinnar þar. Þessi björgunarstöð verður vigð hinn 18. júni n.k.,Svd. „Sigurvon” var fyrsta deildSVFI, stofnuð 23. júní 1928. Gjafir Slysavarnafélaginu bárust margar gjafir á aðalfundinum og skal þeirra getið hér:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.