Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 13
Föstudagur 12. mai 1978. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Samvinnu- frædi í Há- skólanum? Verður efnt til kennslu i sam- vinnufræðum við Háskóla islands? Þeirri hugmynd var hreyft á aðalfundi Kaupfélags Þingeyinga á Húsavik nú i vor, ogþar var samþykktum málið svohljtíðandi ályktun: ,,Aðalfundur Kaupfélags, Þingeyinga 1978 skorar á is- lensk samvinnufélög og sam- band þeirra til málafylgju, ef til þess dugi að upp verði komið öflugum kennslustóli i sam- vinnufræðum við Háskóla Is- lands.” Þess ska'l getið, að viða ' um heim eru samvinnufélög og málefni þeirra viðfangsefni sérstakia háskólastofnana. Til 'dæmis var árið 1957 sett á lagg- irnar sérstök samvinnumála- stofnun við háskólann i Hel- sinki, fyrir forgöngu samvinnu- sambandanna i landinu. Starf- aði hún i fyrstu innan hagfræði- deildar skólans, en siðan innan félags- og efnahagsmáladeildar hans. Háskóla- í dag kl. 17:15 mun kunnur bresk- ur skólamaður, prófessor Walter James frá Opna háskólanum I London, halda opinberan fyrir- lestur á vegum Háskóla tslands I kennslustofu 101 i Lögbergi. Fyrirlesturinn mun fjalla um Opna háskólann i London, en sá skóli var stofnaður fyrir tæpum áratug og þykir ein merkasta nýj- ung i háskólarekstri á siðari tim- um. Háskóli þessi hefur varla nokkuð eigið húsnæði, kennsla fer nær öll fram bréflega eða i gegn- um útvarp og sjónvarp. Alþýðubandalagið lOpinn stí íórnmá la- fundur á Húsavík Rætt um íslenska atvinnustefnu, landbúnadarmálin og kosningarnar Alþýðubandalagið boðar til opins fundar á Húsavík á annan dag Hvítasunnu. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu og hefst kl. 2 e.h. Á f undinum verður rætt um íslenska atvinnustef nu, landbúnaðarmálin og kosningarnar. Stuttar framsöguræður flytja: Ölafur Ragnar Grímsson Soffía Guðmundsdóttir Stefán Jónsson Kristján Ásgeirsson Fundurinn er öllum opinn. Að loknum framsöguræð- um verða frjálsar umræður og fyrirspurnum svarað. ólafur Soffia Kristján t tilefni 50 ára afmælisins i janúar sl. hefur Siysavarnarfélagið látiö gera fagran veggskjöld hjá Bing og Gröndal i Höfn. Eggert Guðmunds- son teiknaði skjöldinn sem sýnir björgun manna úr sjávarháska. Vegg- skjöldurinn kostar kr. 5000. Konur i félaginu gáfu þvi ræðu- stól með útskornu merki félags- ins .4 Sigmar Benediktsson færði félaginu að gjöf frá svd. „Svölu” á Svalbarðseyri fagra fánastöng á stallí, sem hann hefur sjálfur 'smíðað. Einnig afhenti hann gjöf frásér ogkonusinni.kr. 50.000,00. Frá körlum i blandaðri slysa- varnadeild Hriseyjar barst peningagjöf að fjárhæð kr. 150.000,- en konur i deildinni stóðu að þvi að gefa ræðustól þann, sem fyrr er getið. Slysavarnadeild kvenna á Húsavik og svd. „Hringurinn” i Mývatnssveit afhentu félaginu gjafabréf fyrir skýli á Hólasandi i Suður-Þingeyjarsýslu, sem deild- irnar hafa látið reisa. Snæbjörn Asgeirsson Seltjarnarnesifærðisvd. „Vonin” i Vik i Mýrdal, að gjöf tvö „labb-rabb” tæki og jafnframt gaf hann hinum nýju björgunar- stöðvum i Hafnarfirði og Sand- gerði vind-áttavita. Leópold Jóhannesson á Hreða- vatni tilkynnti að hann gæfi sem happdrættisvinning i næsta happ- drætti félagsins veturgamalt tryppi af úrvals kyni. Að lokum var á fundinum lesið bréf Ólafs Albertssonar sem um árabil hefur verið forystumaður og driffjöður i einu ('eild Svfí á er- lendri grund, svd. „Gefion” i i Kaupmannahöfn. Meö brdfinu fylgdi gjöf Ólafs til félagsins i til- efni 50 ára afmælis þess, d.kr. 1000,00.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.