Þjóðviljinn - 12.05.1978, Page 5

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Page 5
Föstudagur 12. mal 1978. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Litiö inn hjá nokkrum starfsmönnum Orkustofnunar; sem jjármálaráðuneytið telur ónauðsynlega Starfsmenn Jarökönnunardeildar, frá vinstri, Kristján Agústsson, Þórólfur Hafstaö, Siguröur Tómas- son, Snorri Björn Snorrason, Freysteinn Sigurösson og Arni Hjartarson. ( Ljósm: -eik ) Hvað eru þeir að fást við? Eins og greint hefur veriö frá i fjölmiðium aö undanförnu hefur f jármálaráöuneytiö fyrirskipaö launadeild Orkustofnunar aö hætta aö greiöa tilteknum fjölda starfsmanna stofnunarinnar laun á þeirri forsendu aö ráöningar- samningar þeirra hafl ekki veriö samþykktir af ráöuneytinu. Hér er annars vegar um að ræða 18 starfsmenn, sem störfuðu hjá stofnuninni samkvæmt samn- ingi sem rann Ut i lok janúar s.l. Orkustofnun hefur fyrir sitt leyti undirritað áframhaldandi samn- ing til eins árs, en f jármálaráöu- neytið hefur neitaö að undirrita hann. Hins vegar er um að ræða 12 starfsmenn, sem starfað hafa á timakaupi, sem greitt hefur verið af rekstrarfé Orkustofnunar, og ráðuneytið vill að sagt verði upp störfum. Undanfarna mánuði hafa þess- um starfsmönnum öllum, 30 að tölu, verið greidd laun af rekstrfé Orkustofnunar og er reyndar allt i óvissu um framtið þessara starfsmanna, þ.e. hvort þeim verður öllum sagt upp eður ei og munu ýmsir þeirra vera nú þegar farnir að huga að störfum erlendis. Aður hefur verið greint frá hér i blaðinu hvað það þýðir fyrir starfsemi Orkustofnunar ef hún nýtur ekki umræddra starfs- krafta, en þeir munu vera um helmingur allra sérfræðinga stofnunarinnar. Okkur langaði að forvitnast ör- litið um hvaða verkefni þessir starfsmenn væru að fást við og heimsóttum i þvi skyni nokkra þeirra, þar sem þeir voru við störf si'n. „Það sem Orkustofnun hefur verið gagnrýnd fyrir að gera ekki” Fyrsta hittum við fyrir verk- fræðingana Jón Ingimarsson og Snorra Kjaran, en þeir vinna i Straumstöð Orkustofnunar. Meginviðfangsefni okkar hér í Straumstöðinni eru vatnafræði- legar rannsóknir fyrir hitaveitu- framkvæmdir sögðu þeir Jón og Snorri. Vatnafræöi og straum- fræði eru ákaflega mikilvægur þáttur i rannsóknum á vinnslu- eiginleikum jarðhitasvæöa, en er þó sá þáttur á vinnslueiginleikum jarðhitasvæða, sem einna minnst hefur verið sinnt, og stofnunin hefur verið gagnrýnd hvað mest fyrir t.d. i sambandi við Kröflu. Astæðurnar fyrir þvi, að þessar rannsóknir hafa orðið Utundan, eru aftur á móti aðallega þær aö löngum hefur skort sérmenntaða starfsmenn til aö sinna þeim.Eni 30manna hópnum margumrædda eru einmitt verkfræðingar sem hafa þessa sérmenntun og stofnunin hefur alls ekki efni á að vera án. Undanfarna mánuði höfum við aðallega verið að vinna fyrir Hitaveitu Suöurnesja og er enn töluverð vinna eftir við það verk- efni. Þar er um að ræða rann- sóknir á ferskvatnsöflun fyrir hitaveituna og vinnslueiginleika jarðhitasvæðisins i Svartsengi. Neysluvatnsöflun og vatnabúskapur Aust- firðinga Næst litum við inn i Jarðkönn- unardeild og áttum þar tal við nokkra jarðvisindamenn. í Jarðkönnunardeild er unnið að fjölmörgum verkefnum ogeru það einkum athuganir á neyslu- vatnsöflun fyrir hin ýmsu sveit- arfélög svo og jarðefnaleit. Eitt af þeim verkefnum sem þar er nú verið að vinna er úttekt á vatnsbúskap Austfirðinga og vildu þeir félagar meina að Aust- firðingar hefðu i þessum efnum sýnt öörum landsmönnum fram- sýni og fyrirhyggju. Þarna er um að ræða undirbúning og vinnslu fyrir rannsókn sem á að fara fram i sumar þ.e.a.s. ef starfs- mennirnir halda vinnunni. Einnig er verð að vinna að stóru verkefni fýrir Hitaveitu Suður- nesja. Þar er um aö ræöa athug- anir á þvi vatnsvinnslusvæði sem tilheyrir Svartsengi og snúast þær einkum um, hvort unnt sé að afla nægjanlega mikils vatns, hvernig þess skuli aflað, hvernig sé unnt aö halda þvi óspilltu af sjávar uppdrætti i borholunum, og hvernig megi halda efnainni- haldi þess innan nýtanlegra marka. Að þessu verkefni hefur verið unnið hjá JKD siöan 1976 og eru horfur á þvi, að öllu óbreyttu, að eftir árið i ár verði komnar nokk- uð góöar hugmyndir og niðurstöð- ur'um þessi atriði öll. En það stendur og fellur að sjálfsögöu með þvi' hvernig þessum ráðning- armálum okkar lyktar, sögðu þeir félagar. Aðspurðir um atvinnuhorfur jarðfræðinga utan Orkustofnun- ar, sögðu þeir þær vera næstum engar, en meiri likur væru á að verkfræðingarnir gætu horfið inn i önnur störf. Ef svo færi að þess- um starfsmönnum yrði sagt upp væru miklar líkur á að margir verkfræðinganna yrðu að taka störfin með sér og þá þyrfti rikið að kaupa vinnu þeirra á töxtum verkfræðiskrifstofa. Þar eru tækin smiðuð I Jarðeðlisfræðistofu sem er til húsa i gráa steinhúsinu á horni Laugavegs og Snorrabrautar, fer fram öll almenn tækjasmiði fyrir Orkustofnunog viðhald á tækjum. Það er Jarðhitadeild sem rekur þessa stofu og fá starfsmenn hinna ýmsu deilda stofnunarinnr aöstöðu þar til að sinna verkefn- um sinna deilda. Þar hittum við Heimi Sigurðs- son, rafmagnstæknifræðing, einn 30 menninganna. Heimir vinnur hjá Jarðkönnunardeild og sagði að á hennar vegum væri aðallega um aö ræða smiði á tækjum til borholurannsókna. Ég er núna að vinna við smiði á seltumæli sem notaá við vatnsborunarmælingar fyrir Hitaveitu Suðurnesja. sagði Heimir. Mælirinn kemur reyndar til með að mæla meira en seltu þvi hann mælir jafnframt dýptina i holunni hverju sinni. Þessi tækjasmiði er tiltölulega ný af nálinni hjá Orkustofnun. en áður þurfti að sækja alla sika vinnu út i bæ, eða jafnvel lengra, og gat þaö oft komið sér bagalega og valdið meiri og minni stöðvun á vinnslu tiltekinna verkefna. Auk þesshefur tækjasmiðin aukið til muna nytsemi jarðfræði mælinga þar sem nú er jafnvel unnt að smiða tæki til að leysa eitt ákveðið verkefni, ef þess þarf með. Framhald á bls. U Dagur: 31. júll 1978. Guttormur Sigurbjarnarson, deildarstjóri, gefur starfsmönnum OS- JKD dagskipun sina og þeir horfa á meistara sinn I lotningarfullri að- dáun. Þessi teikning hékk uppi hjá starfsmönnum Jarðkönnunardeildar og reyndar sáum við af henni Ijósrit I Raforkudeild, en hún gefur til kynna ástandið I JKD eins og það myndi vera 31. júll n.k. samkvæmt fyrir- skipunum fjármálaráöuneytisins. Enginn starfsmaður nema deildar- stjórinn. ( Ljósm: -eik) Snorri Kjaran, t.v. og Jón Ingimarsson, verkfræðingar. Heimir Sigurðsson, rafmagnstæknifræðingur t.v. og Björgvin Guð- mundsson, rafmagnsverkfræðingur, starfsmaður Jarðeðlisfræðistofu. Tækiö.sem er til hægri á mvndinni er sjálfvirkt hitakvörðunartæki til að kvaröa hinar ýmsu geröir hitamæla og er i einu og öllu smiöaö þarna I stofunui.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.