Þjóðviljinn - 12.05.1978, Blaðsíða 15
Föstudagur 12. mai 1978. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Samtök herstöðvaandstæðinga
Fundur i Keflavikurgöngunefnd
Fundur verður haldinn i Keflavikurgöngunefnd föstudaginn 12. mai
kl. 5e.h. að Tryggvagötu lO.Þeir semhafa hugmyndir fram að færa
eða vilja starfa með nefndinni eru velkomnir.
X-G Kosningasjóður X-G
Tekið er á móti fé i kosningasjóð ABR á Grettisgötu 3, svo og
Grensásvegi 16. Þá er hægt að koma framlögum i kosningasjóð til
frambjóðenda og starfsmanna flokksins, hvar sem til þeirra næst.
Sjálfboðaliðar
Sjálfboðaliðar til ýmissa starfa eru beðnir að iáta skrá sig á Grettis-
götu 3 i sima 17500.
Simaviðtalstimar
borgarfulltrúa
og frambjóðenda
Sigurjón Pétursson, borgarráðsmaður, efsti
maður G—listans i borgarstjórnarkosningunum,
verður til viðals að Grettisgötu 3 i dag milli kl. 5
og 6 e.h. Siminn er 17 500
Sigurjón
Kosningahappdrætti ABR
Verið er að senda út miða i glæsilegu kosningahappdrætti Alþýðu-
bandalagsins. Stuðningsmenn G-listans eru hvattir til að gera skil á
miðum svo fljótt sem verða má á skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3
svo og á Grensásveg 16 eftir að kosningamiðstöðin þar verður opnuð,
sem verður nú einhvern daginn.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur almennan fund þriðjudaginn 16.
mai kl. 20:30 i Rein.
Geir Gunnarsson og Jónas Arnason verða á fundinum og ræða um
stjórnmálaviðhorfið. ^
Alþýðubandalagið á Akureyri — Eiðsvallagötu 18
— Opið hús annan í Hvitasunnu
Alþýðubandalagið á Akureyri hefur opið hús annan dag Hvitasunnu að
Eiðsvallagötu 18 milli 4 og 6e.h. Kaffisala. Upplestur: Einar Kristjáns-
son. Gitarleikur.
Stjórnarfundur
Alþýðubandalagið á Akureyri heldur stjórnarfund þriðjudag 16. mai kl.
20.
Bæjarmálaráðsfundur
Bæjarmálaráðsfundur Alþýðubandalagsins á Akureyriverður þriðju-
daginn 16. mai kl. 21. Umræðuefni: Menningarmál, iþróttamál,
strætisvagnarekstur og fleira.
Athugið að allir félagar Alþýðubandalagsins á Akureyri hafa rétt til
þátttöku i störfum bæjarmálaráðs.
Opið hús i Þinghóli, Hamraborg 1, Kópavogi
Laugardaginn 13. mai n.k. munu kosningastjórnir i Reykjaneskjör-
dæmi fyrir sveitarstjórnarkosningar bera saman bækur sinar. Verða
þá reifaðar helstu hugmyndir varðandi kosningaundirbúninginn, og
lagt á ráðin um skipulag siðasta áfangans. Einnig verður fjallað nokk-
uð um undirbúning alþingiskosninga og þá einkum i tengslum við
sveitarstjórnarkosningarnar. Eru allir félagar i Reykjaneskjördæmi
hvattir til þess að mæta i opna húsið, og stuðla þannig að góðum undir-
búningi fyrir kosningar.
Kaffi verður reitt fram ásamt meðlæti Kosningastjórn AB
Húsið verður opnað kl. 16.00 i Reykjaneskjördæmi
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins
eru vinsamlega minntir á giróseðlana, sem sendir voru út með siðasta
fréttabréfi. — Alþýðubandalagið.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
TÓNLEIKAR
i Háskólabiói fimmtudaginn 18. mai kl.
20.30
Stjórnandi KARSTEN ANDERSEN
Einleikari EMIL GILELS
Efnisskrá:
Sjostakovitsj — Sinfónia nr. 12
Grieg — Pianókonsert
Aðgöngumiðar i bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustig og Eymundsson,
Austurstræti.
• Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Jónas
Framhald af 20. siðu
Þess má geta, að tvö lög eru
sungin i leikritinu, Þórður sjóari
eftir Svavar heitinn Benediktsson
við texta Kristjáns frá Djúpalæk,
og byltingarsöngurinn Avanti
popolo, sem sunginn er á itölsku.
Leikstjóri Valmúans er
Þorsteinn Gunnarsson og leik-
mynd er eftir Steinþór Sigurðs-
son. Sjö leikarar fara með hlut-
verkin sem eru ellefu. Þessir leik-
arar eru Harald G. Haraldsson,
Jón Sigurbjörnsson, Sigurður
Karlsson, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Lilja Guðrún
Orkustofnun
Framhald af bls 5
Raforkudeild
Nokkrir þeirra starfsmanna
Orkustofnunar sem fjármála-
ráðuneytið vill að verði sagt upp
eru starfandi i Raforkudeild.
Meðal verkefna, sem þeir eru
aðfást við eru jarðfræðikortlagn-
ingarogboranir,viðhald og smiði
á rafeindatækjum, athuganir á
fjarskiptamöguleikum i raforku-
iðnaðinum (það má t.d. nota raf-
linur til fjarskipta) úrvinr.sla
vatnamælingagagna i sambandi
við rennslisraðir i hugsanlegum
virkjunarstöðum (rennslisraðir
ásamt fallhæð er það sem gefur
hugsanlega orku), og fleira mætti
telja.
Hérhefur aðeins verið minnst á
litinn hluta þeirra verkefna sem
starfsmenn Orkustofnunar úr
hópi margurrrræddra 30 menn-
inga eru að fást við, en það gefur
vonandi einhverja hugmynd um
hvað er um að ræða og mikilvægi
þessara starfa, sem fjármála-
ráðuneytið telur Orkustofnun
geta verið án.
—IGG.
Nauðsyn
Framhald af bls. 6
Ef nýsmiði yrði lögð nið-
ur.
Hvað svo sem segja má um þau
timabundnu viðhorf, sem nú eru
uppi, verður að lita fram á veginn
og ihuga hvað við mundi taka,
þegar brugðist hefur verið við
þessu vandamáli. Ef nýsmiði
væri lögð niður núna, hvað ætti þá
að gera þegar fiskstofnarnir hafa
náð sér á strik aftur og nauðsyn
verður á eðlilegri endurnýjun
flotans? Engum dettur i hug ann-
að en skynsamlegt hafi verið að
marka þá stefnu, að smiða sem
mest af skipum okkar hér innan-
lands. Samkvæmt þvi ætti að taka
aftur til við nýsmiði skipa þegar
eðlilegt ástand er komið á aftur.
Það hlýtur hins vegar að vera ó-
skynsamlegt að byggja upp að-
stöðu fyrir ákveðna framleiöslu á
einum tima og leggja starfsemina
siðan niður um tiltekið árabil og
byrja siðan framleiðslu aftur.
Slikt er óframkvæmanlegt og af
þvi leiðir beinlinis að nýsmiði
skipa verður að halda áfram.
Stöðug stórverkefni með
eðlilegri stjórnun.
Verkefni i skipaiðnaði (nýsmið-
um og viðgerðum) eru stærsti
málmiðnaðarmarkaður á tslandi
og sá sem býður upp á stöðug
stórverkefni, sé eðlileg stjórnun
viðhöfð.
An tilveru nýsmiða myndi
sennilega ekki risa upp málmiðn-
aður, sem hefur verulega getu i
framleiðslu. Mörg fyrirtækjanna
yrðúörsmá og ilia búin. Verkefna-
flótti á öllum sviðum málmiðnað-
ar myndi aukast.
Það tekur iangan tima að koma
upp góðri skipasmiðastöð , en
stuttan tima að eyðileggja hana.
Þótt samkeppnisástandið verði
fyrirsjáanlega erfitt, þá mun
skipaiðnaðurinn aðlaga sig að
markaðnum og ástandið verða
eðlilegra.
Oryggisleysi útgerðar yrði hins
vegar mjög mikið, ef þjónustu-
geta yrði alfarið hjá getulitlum
smáfyrirtækjum.
Heildarhagsmunir útgerðar og
skipaiðnaðar fara saman, þ.e.
hæfilegar fjárfestingar, jöfn og
stöðug endurnýjun og þróun. í
raun má litla á skipaiðnað sem
hluta af útgerðarkerfinu. Það
vcikir útgerðina ef skipaiðnaður
er á lágu stigi.
Þorvaldsdóttir og Hjalti
Rögnvaldsson.
Þorsteinn Gunnarsson leik-
stjóri sagði að það væri mjög
ánægjulegt að takast á við þetta
nýja verk Jónasar. Honum hefði i
þessu nýja leikriti tekist að skapa
lifandi persónur sem hefðu eitt-
hvað til málanna að leggja, og
það höfðaði til leikaranna.
Skjaldhamrar hafa nú gengið á
fjölum Iðnó látlaust i þrjú ár og
eru sýningar orðnar 187 fyrir utan
leikför til Færeyja. Hefur ekkert
leikrit verið sýnt svo oft hjá Leik-
félaginu.
„Leikritið gerist i kirkjugarði”,
sagði Steinþór Sigurðsson leik-
myndateiknari, ”og leikmyndin
er aðeins ein. En hún er alltaf að
breytast á ýmsa vegu, bæði aftur
og fram i timann. Þetta er ljóö-
rænt verk, og leikmyndin byggist
á þvi.”
Vigdis Finnbogadóttir leikhús-
stjóri sagði að þeim i Iðnó þætti
sérstakur sómi að þvi að Jónas
skrifaði fyrir Leikfélagið. Hún
sagði að þau leikrit Jónasar sem
færð hefur verið upp i Iðnó hefðu
öll verið sérlega farsæl og vel
sótt.
„Valmúinn springur út á nótt-
unni” er fimmta leikrit Jónasar
Arnasonar, sem frumsýnt er i
Iðnó. Delerium búbónis, sem Jón-
as samdi ásamt bróður sinum
Jóni Múla, var frumsýnt 1959.
Tveir einþáttungar, Koppalogn.
voru frumsýndir 1967, Þið munið
hann Jörund 1969 og Skjald-
hamrar 1975.
Kosningaskrifstofur
G-lista
og annarra lista sem
Alþýöubandalagid
styöur eöa á aðild að
Óháðir og Alþýðubandalag á Húsavik
Kosningaskrifstofa á Húsavik
Óháðir og Alþýðubandalag á Húsavik hafa opnað kosningaskrif-
stofu i Snælandi. Opið frá kl. 20 virka daga, og 14 til 17 laugar-
daga og sunnudaga.
Kosningaskrifstofa i Keflavik
Alþýðubandalag Suðurnesja hefur kosningaskrifstofu að
Hafnargötu 49 í Keflavik. Siminn er 3040. Skrifstofan er opin frá
kl. 14.30 til 19 og 20.30 til 22 virka daga. Laugardaga og sunnu-
daga frá 14.30 til 19.
Stuðningsfólk! Hafið samband við skrifstofuna!
Kosningaskrifstofa i Mosfellssveit
Kosningaskrifstofa H—listans er að Birkiteig 2. Simi 66470. Opin
frá 5 til 9 e.h. Fólk er hvatt til þess að lita við á skrifstofunni og
ræða málin.
Kosningaskrifstofan á Akranesi
Kosningaskrifstofan er opin mánud,—föstud. frá kl. 16.00—22.00
og laugard. og sunnud. frá 14.00—18.00. Kaffiveitingar. Siminn er
1630.
Alþýðubandalagið i Norðurlandskjördæmi —
eystra
Kosningaskrifstofan á Akureyri
Kosningaskrifstofan er aö Eiðsvallagötu 18 á Akureyri. Siminn
er 2 17 04. Skrifstofan er opin þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga kl. 1 til 7 e.h. og frá kl. 2 til 5 e.h. á laugardögum.
Kosningastjóri er Óttar Einarsson.
Kjördæmisráð og Alþýðubandalagið á Akureyri.
Alþýðubandalagið á Siglufirði. osninga-
skrifstofa
Alþýðubandalagið á Siglufirði hefur opnað kosningaskrifstofu f
Suðurgötu 10: Skrifstofan er opin alla daga frá ki. 3 til kl. 7
siðdegis. Simi skrifstofunnar er 7 12 94.
Stuðningsfólk Alþýðubandalagsins! Hafið samband við skrif-
stofuna.
Kosningaskrifstofa i Garðabæ
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins i Garðabæ er i Goðatúni
14, simi 4 22 02. Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 17—19.
Félagar og stuðningsfólk Alþýðubandalagsins litið við á
skrifstofunni.
Alþýðubandalagið I Garðabæ.
Kosningaskrifstofan Hafnarfirði
Alþýðubandalagið i Hafnarfirði hefur opnað kosningaskrifstofu
aðStrandgötu 41, 3. hæð (gengið inn bakdyramegin). Skrifstofan
veröur fyrst um sinn opin frá kl. 17 til kl. 19. Simi 5 45 10. Litið við
og athugiö kjörskrána.
Kosningaskrifstofa á Sauðárkróki
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Sauöárkróki er i Villa
Nova. Skrifstofan er opin fyrst um sinn á kvöldin kl. 20.30 til kl.
22.30. Slminn er 95-5590.
Kosningaskrifstofa á Seltjarnarnesi
Kosningaskrifstofa H-listans, vinstrimanna og óháðra á
Seltjarnarnesi, er i Bollagöröum. Simi 2 71 74. Skrifstofan er
opin frákl. 20 til 22. Laugardaga frá kl. 14 til 18.
Stuðningsfólk H-listans hafi samband við skrifstofuna.
Kosningaskrifstofan i Kópavogi
kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins i Kópavogi er opin frá
13—19 alia virka daga. Skrifstofan er i Þinghól. Athugið um
sjálfaykkur,viniogfélaga,hvorteruákjörskrá. Simi 41746
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Kosningaskrifstofa i Neskaupstað
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Austurlandi er aö
Egilsbraut 11, Neskaupstað. Simi 7571. Opið er frá kl. 3 til 6 og 8
til 10 eftir hádegi. Kosningastjóri er Guðmundur Þóroddsson.
Heimasimi: 7642.