Þjóðviljinn - 31.05.1978, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 31. mai 1978 .ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Jón G. Tómasson, sem nú gegnir embætti borgarstjóra kom á staðinn
að beiðni öddu Báru Sigfúsdóttur og skýrði réttarstöðu borgarinnar. A
myndinni sjást þau Jón, Adda Bára og Magnús Skúlason, arkitekt.
Ljósm. Christian.
Þarna sést hvernig fólkið settist fyrir vélskóflukjaftana en með þvl móti tókst að stöðva framkvæmdirn-
ar. Ljósm. Leifur.
Niöurrif stödvad
1 Grjótaþorpinu
• Eini almenningsgarðurinn lagður í rúst
*
• Ibúar þorpsins vöktuðu lóðina í nótt
Um tvö-leytiö i gærdag kom
vélskófla á vettvang i Bröttugötu
4 i Grjótaþorpinu og hafist var
handa um að rifa geymsluhús úr
hlöðnum steini og eini almenn-
ingsgarðurinn i þorpinu var tætt-
ur upp og eyðilagður.
ibúar þorpsins komu strax á
vettvang og tókst þeim með hörku
að stöðva þessar framkvæmdir,
en lengi dags stóð i stappi með
hvað gera skyldi, enda voru á-
form eigandans sem sendi vél-
skófluna á vettvang að sturta
tveimur hlössum af möl á garð-
inn og gera aðkeyrslu og bilastæði
á lóðinnni.
Það var þó ekki fyrr en maður
með barn i fangi settist i veg fyrir
vélarnar að vélskóflustjórinn
hætti við frekari framkvæmdir.
Þá var húsið eyðilagt og garður-
inn allur i sárum.
Ibúar Grjótaþorpsins fengu i
fyrrasumar leyfi frá þáverandi
eiganda lóðarinnar, Valdimar
Þórðarsyni, til þess að gera litinn
garð fyrir börnin i þorpinu á þess-
um stað, en þá var þar eitt drullu-
svað og aigengt að bilum væri
lagt þar. Reykjavikurborg lagöi
til torf og hleðslusteina en ibúarn-
ir gengu sjálfir frá lóðinni og mál-
uðu húsin og veggina i kring.
Siðan þetta gerðist hafa orðið
eigendaskipti á lóðinni og sonur
Valdimars á hana nú. Að sögn
verktakans sem hóf eyðilegging-
una i gær tók Þorkell Valdimars-
son ákvörðun um það i siðustu
viku að leggja garöinn i rúst og lét
hann siðan til skarar skriða i
gærdag.
Frestuöu ákvörðun fram
yfir kosningar
Fráfarandi meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins i Reykjavik hefur
dregið úr hömlu að taka endan-
lega ákvöröun um framtiðar-
skipulag þorpsins. 23. janúar sl.
voru á dagskrá skipulagsnefndar
tvær tillögur um framtiðarskipu-
lag Grjótaþorpsins, ein frá Sig-
urði Harðarsyni og hin frá meiri-
hlutanum sjálfum. Þær voru
aldrei teknar fyrir, og ákvörðun
var frestað fram yfir kosningar.
I báðum þessum tillögum er
gert ráð fyrir þvi að engu verði
haggaö á þessari lóð. Þorkell
Valdimarsson lýsti þvi yfir þegar
niðurrifið á Hallærisplaninu og
stórfelld uppbygging þar var
samþykkt, að hann myndi leggja
þessa fyrirhuguðu friðlýsingu á
eigum sinum i dóm, enda væri
hann ekki réttur aðili til þess að
koma upp byggðasögusafni fyrir
Reykjavikurborg.
Þá bauð hann einnig fráfarandi
borgarstjóra og borgarráði eigur
sinar i þorpinu til kaups, en þvi
var aldrei neinu svarað.
Hver er réttarstaðan?
Meðan ekkert framtiðarskipu-
lag hefur verið samþykkt hefur
Þorkell Valdimarsson lagalegan
rétt tii þess að rifa sin hús, eins og
margsinnis hefur verið bent á i
Þjóðviljanum. Hann má lika
breyta grasinu á lóðum sinum i
svað eða þekja það með möl, þó
margir kunni að efast um sið-
ferðilegan rétt til slíks.
Hann hefur hins vegar ekki
leyfi til þess að byggja á lóðunum
og ekki leyfi til þess að gera þar
bilastæði eða aðkeyrslur nema að
fengnu samþykki bygginganefnd-
ar og skipulagsnefndar borgar-
innar.
Ibúar Grjótaþorpsins vöktuðu i
gærkvöidi lóðina og fylgdust náið
með mannaferðum þar.
—AI
Skákmótið á Kanaríeyjum:
Friðrík
efstur
Þegar 7 umferðum var lokiö á
alþjóðlega skákmótinu Kanari-
eyjum haföi Friðrik Ólafsson
tekið forystuna, hlotiö 6
vinninga. t 7. umferð vann Frið-
rik Spánverjann Cabera i 35
leikjum. Staöan að loknum 7
umferðum er þessi:
1. Friörik ólafsson 6 v.
2. Csom 5 1/2 v.
3. Padron 5 v.
4. Itodriquez 4 1/2 v.
5. Westerinen 4 v.
6. -7. Medina 3 v.
6.-7. Tatai 3 v.
8. Mestres 2 1/2 v.
9. -10. Perez 2 1/2 v.
9.-10. Lezcaon 2 1/2 v.
11.-12. Cabera 1 1/2 v.
11.-12. Rubio 1 1/2 v.
Mótinu lýkur 3. júni og kemur
Friðrik heim þann fjórða.
Nokkur mannfjöldi safnaöist þegar saman f Bröttugötunni f gærdag, en
lögreglan sem þarna sést á myndinni skipti sér ekkert af þvf sem var
að gerast. Ljósm. Leifur.
Bresjnef til Tékkóslóvakiu:
Reynt að styöja
við bakið á
Husak
30/5 — Leóníd Bresjnef/
forseti Sovétrik janna,
kemur i opinbera heim-
sókn til Tékkóslóvakíu í
dag, tiu árum eftir að herir
Varsjárbandalagsins
réðust inn í landið og sviptu
völdum stjórn Alexanders
Dubcek, þáverandi aðal-
ritara Kommúnistaflokks-
ins í Tékkóslóvakíu, sem
stóð fyrir víðtækri
umbótahreyfingu. Aðaltil-
gangurinn með heimsókn
Bresjnefs er talinn vera að
styðja við bakið á Gustav
Husak, núverandi forseta
Tékkóslóvakiu.
Husak var settur til valda
skömmu eftir innrás Varsjár-
bandaiagsins, og er talið að hann
hafi verið valinn sökum þess, aö
hann var talinn standa á milli
sovétsinnaðra harðlinumanna i
Kommúnistaflokknum og frjáls-
lyndra og umbótasinna hins-
vegar. Likur benda til þess að So-
vétmenn liti enn svo á að Husak
sé sá eini, sem stjórnað geti
Tékkóslóvakiu til þess að gera
vandræðalitið, með tilliti til
strekrar andófsöldu frjálslyndra
kommúnista. Um hálf miljón
fylgismanna Dubceks hefur sætt
meiri eða minni ofsóknum siðan
innrásin var gerð 1968.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Fundur í Þinghóli
Fundur verður haldinn í Þinghóli fimmtudaginn 1.
júní kl. 20.30.
Rædd verða kosningaúrslitin og hin nýju viðhorf í
bæjarmálunum.
Allir félagar eru eindregið hvattir til að koma.
Bæjarmálaráð