Þjóðviljinn - 31.05.1978, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 31.05.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. mai 1978 Ó, ef það væri Kjaftaklöpp stjórn — eða bara til að heyra nýjustu kjaftasögurnar. Þó ekki væru nema kvennafarssögur lir Skagafirði. Hvert skal halda? Á ég að skella mér niður i Bankastræti O? Nei, þangað fara menn ekki til að tala sam- an, þeir ganga þangað allt ann- arra örindagerða. Eða inn i ein- hverja bókaverslun? Þar eiga góðir oft brýnu saman, sérstak- lega i fornbókaverslunum. Svo eru það blessuð kaffihúsin. Með vökulum augum slangra ég með hendur á bólakafi upp á Skólavörðustig, lit inn á Mokka, en þar er ekki sála. Hef- ur fólk ofgert sér um helgina? í sjoppunni á horni Skólavörðu- stigs og Bergstaðastrætis fæ ég mér kók en þar er ekkert gam- an, bara tvær flissandi smá- stelpur sem ekkert er upp úr að hafa. Þær eru að slafra i sig sæl- gæti og eru heldur ótótlegar. Nákvæmlega á þeim stað sem sjoppan er nú var einu sinni frægur samkomustaður i Reykjavik. Hann hét Kjafta- klöpp. Þar komu kallarnir sam- an og skyggndust út á haf eftir skútum, spýttu mórauðu og ræddu pólitik. Þangað kom lika Tobba i Tobbukoti og sópaði af henni og Sigurður fangavörður var þarna oft. Þar var gengið að kjaftasögunum visum. Framhald.á bls. 14, Ég ráfa stefnulaust um mið- bæinn og vil blanda geði við ein- hvern. Sumarið er komið i borg- ina okkar og hægur vindur leik- ur sér á milli húsa. Fólkið anar áfram I sinum daglegu önnum en þó er einhver annar svipur á þvi heldur en var fyrir kosning- ar. t miðju Bankastræti nem ég' staðar, tvistig og klóra mér. vandræðalega i kollinum. Hverts skal halda? Mig langar til að tala við einhvern um alla þá möguleika sem nú opnast fyrir hugmyndarika menn i borgar- Læknisráð við hugfötlun Heimdellingar höföu visu upp á vegg hjá sér á kjördag. Hún var svona: ,,Ef þú setur X við D þá ertu gæfumaður. En ef þú setur X við G þá ertu hugfatlaöur.” Samkvæmt þessu eru 13864 Reykvikingar hugfatlaðir þvi þeir settu X við G á sunnudag- inn. Þetta er ógnvekjandi staðreynd og ljóst að bregöast verður við þessari útbreiddu hugfötlun með viðeigandi hætti Feilnótanfór á stúfinn og ræddi við oddvita hugfatlaöra SigurGuðrúnu Sigfúsdóttur. — SigurGuðrún, þið áttuð ekki von á 3ð svo margir þjáðust af hugfötlun i Reykjavik? — Nei, allsekki. Og þessi skratti viröist breiðast eins og virus út um allt land. Hér i Reykjavik er hugfötluðum enn aö fjölga. Við endurtalningu i Bassi og sópran Bassinn, hin djúpa manns- rödd, dregur nafn sitt af italska heitinu „basso”, sem á rætur sinar að rekja til latneska orðs- ins„bassus” (lágur). Tenór, hin háa mannsrödd er úr itölsku, „tenore”, en orðið er dregið af latneska heitinu „tenor”, sem þýðir samfelld at- burðarás. Sagnorðið er ,,ten- ere” og merkir að halda e-u föstu. Orðið er aðallega notað um aðallaglinu i margrödduöum söng, en var siðan heimfært á hina háu mannsrödd, þar sem hún hélt aöalsönglinunni fastri i fleirraddaðri tónlist. Barýtónninn, mannsröddin, sem liggur milli tenórs og bassa, dregurnafn sittaf griska orðinu „barýtonos” (með djúp- um tðn), sem er samsett af lýs- ingarorðinu „barýs” (þungur) og „tónos” (tónn). Franska orö- in „baryton” hefur verið notað um þessa söngrödd, ekki italska orðið „baritono”. Hæsta kvenmannsröddin sem á itölsku heitir,,soprano” sem þýðir eiginlega hinn efri, eöa hinn fyrsti, var nefnt „superan- us” á miðaldalatinu. Nafnið ef myndað úr forsetn- ingunni „super” (yfir) sem er „sopra” á itölsku. Af „superan- gær komu tveir til viðbótar i ljós. Viö höfum ákveöið að krefjast þriðju talningar til þess að fá endanlega úr þvi skorið hvað hugfötlunin er útbreidd. — Hvað er að vera hugfatlaður? — Það eru til mörg stig af sjúkdómnum. Þeir sem verst eru haldnir vilja fá mannsæm- andi og lifvænleg laun fyrir átta stunda vinnudag. Svo er talsvert stór hópur sem vill fá inni fyrir börn sin á dag- vistarheimilum meðan hann er að vinna. Þriðji hópurinn vill ódýrthúsnæöi o.s.frv. Þetta eru svona nokkur helstu dillustigin. — Hvernig lýsir hugfötlun sér, hver eru helstu einkennin? — Þetta kemur i bráðum köstum. Fólk fær jafnréttiskast og réttlætiskast og allrahanda köst af svipuðu tagi. Stundum geta köstin oröið býsna langvar- andi. — Er til nokkurt læknisráð við hugfötlun? — Mér er tjáð aö helsta ráðið sé að útrýma félagslegu óréttlæti. Skapa jafnréttisþjóö- félag. — Og þegar það er búiö? — Þá er ekki lengur þörf fyrir G-listann. Þá þurfa menn ekki lengur að setja X við G. Þá þurfa menn ekki aö þjást lengur af hugfötlun. — Þið stefnið semsagt að þvi aðútrýma hugfötlun og sjálfum ykkur um leið? — Heilbrigöar sálir i heil- brigöu samfélagi stjórna sér sjálfar. Þær þurfa hvorki flokk né rikisvald. — Þakka þér fyrir samtalið, SigurGuðrún. Með kveðju, Feilan. us” er einnig dregiö franska orðið „souverain”, sem þýðir einstakur, einráður, yfirburða-. Alt, hin djúpa kvenm.nns- rödd, gæti að áliti manna talist hafa misvisandi merkingu, þar sem altus á latinu merkir „hár”. Skýringin er þó sú, að þessi hluti kórsins var áður fyrr sung- in af karlmönnum, og i þeirra kverkum var rödd þessi há. Hugrakki Ijónatemjar- inn. Einu sinni var mjög hraustur ljónatemjari sem var ekki vit- und hræddur við grimmustu ljónin f cirkusnum. En hann átti sér konu sem var illa viö það ef hann kom seint heim.Og nótt eina var hann of lengi úti. Þegar honum varö ljóst aö komið var fram yfir miðnætti kom i hann mikill óhugur. Hann þorði ekki að fara heinxog færi hann á hót- el gæti eiginkonan fundið hann. Svo hann tók það til bragðs að fara i cirkustjaldiö og leggjast til svefns i ljónabúrinu með höf- uðið á makka stærsta ljónsins. Daginn eftir fór eiginkonan að leita manns sins. Hún leitaði um alla borgina. Loksins fór hún i cirkusinn og sá manninn sinn i ljónabúrinu. Fyrirlitningar- svipur kom á andlit hennar og hún hreytti út úr sér: „Heigull- inn þinn!” þJÓÐVILJINN fyrir 40 árum 1 „Framsóknarmenn tala mik- ið um að opna þurfi iðn- greinarnar fyrir nýju fólki og segja að það sé ógurlegt til þess aðvita.aömenngeti ekki fengið að læra hvað, sem þeir vilja (— sem og lika er vissulega satt). — En á sama tima leggur Jónas frá Hriflu til að loka bæjunum og sérstaklega að loka Reykja- vik, banna fátækum bændum að flytja til Reykjavikur! Sér er nú hvert samræmið!” (Hugleiðingar örvarodds, Þjóðviljanum 18. mai 1938) Á þessum miklu kosninga- timum veitir okkur ekkert af pÓlitiskum heilræöum. Eftirfarandi umsókn felur i sér sterka hvatningu um eindregna skoðanamyndun og er hárbeitt greining á hinu pólitiska flokkskerfi. Hér kemur umsóknin: „Súptu varlega á meðalinu” „Minnihlutinn er iðinn viö að vera vitur eftir á, hlustar mjög eftir óánægjuröddum og hermir eftir þeim þegar kosningar náigast. Meiri- hiutinn lætur á sér heyra, þegar hann þylur upp af hin- um óvenjulanga afrekalista sinum, að ekkert hefði verið gert viðlika þvi, sem hann kom í framkvæmd, ef stjórn- in heföi veriö i höndum ann- arra. Eg segi það fyrir mitt leyti án þess að blikna, að ég gæti treyst a.m.k. þrem efstu mönnum allra flokkanna hér i Keflavik fyrir stjórn bæjar- félagsins. ...Góöi bæjarbúi, heilabrot þin þessa dagana eru vafa- laust ærin og sennilega er þér enginn greiöi gerður meö grein sem þessari. thugaðu hlutina vel og súptu varlega á meðaiinu, þvi oft á tiöum helgar það blekkjandi áróður og persónulegt nið. Tilgang- urinn er oft aumur en hann er lika oft sannur og heiðar- legur. Reyndu þvi hvað þú getur að greina hismiö frá þeim kjarna er þú leitar að og leggur persónulega mest upp úr. ...Ég lét öll tannburstabros og þægilegheit manna i viðmóti norður og niður, þvi að það er ekki það sem skipt- ir máli, þegar á hólminn er komið. Ég tók mið af eftir- töldum þáttum, sem ég leit- aði eftir i fari frambjóöenda: Abyrgð, festa, framtaks- semi, hugkvæmni og stjórn- unarhæfni. Ég ætla ekki að klykkja þessari grein út með áróðri fyrir þeim mönnum er ég kýs, þvi þá verður hún i sjálfu sér marklaus með öllu. Sigurður J. Sigurðsson (Suöurnesjatiðindi 26/5) Inngönguheimild veitt!!! Meö aðdáun, Hannibal ö. Fannberg, formaður. Notuðu og nýju hefur borist eftirfarandi þakkarkveðja: „Innilegar þakkir sendum vér Morgunblaðinu fyrir ómetan- lega aðstoö á örlagastund við kistulagningu meirihlutans. Við munum eiliflega vera minnugir þess drengskaparbragðs. Meö bróðurkveðju Kosningastjórn fráfarandi meirihluta.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.