Þjóðviljinn - 31.05.1978, Síða 8

Þjóðviljinn - 31.05.1978, Síða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 31. mai 1978 af eriendum vettvangi Lærisveinar Bismarcks Eftir Dev Murarka, fréttaritara danska bladsins Information í Moskvu Svo virðist sem heimsókn Bresjnefs Sovétrikjaforseta til Vestur-Þýskalands dagana 4.—7. mai hafi verið mjög þýöingar- mikii fyrir Evrópu. Fundir þeirra Bresjnefs og Schmidts, sam- bandskanslara Vestur-Þýska- lands, báru meiri árangur en rik- isstjórnir beggja höfðu gert sér vonir um, og svo virðist sem allt I einu hafi tekist mikill samhugur með þeim Bresjnef og Schmidt. Og Bresjnef kom sér ekki einung- is vel við Schmidt, heldur og bæ- verska íhaldsleiðtogann Franz- Josef Strauss, sem f umsögnum sovéskra fjölmiðla hefur hingað til verðið talinn verstur manna. Kannski er meira aö segja von á Strauss f heimsókn til Moskvu — hvaö yrði Kínverjum til stórrar gremju. Eftir það yrði hann varla slik hetja í augum Kinverja sem hann er nú. Þessi persónulegi árangur Bresjnefs er mjög þýðingarmikill fyrir Sovétrikin i utanrikismál- um, þvi að þessi árangur getur aukið að mun hin efnahagslegu sambönd milli rikjanna frá þvi sem nú er. Vestur-Þýskaland er þegar þýðingarmesti viðskipta- vinur Sovétrikjanna utan sósial- iskra rikja. í lokayfirlýsingunni eftir heimsóknina er rættt um tvöföldun verslunarviðskiptanna milli þeirra. Viðskiptin voru upp á þrjá miljarða dollara árin 1971—75, en gert er ráð fyrir að þau verði komin upp i sex mil- jarða kringum 1980. Vitnað i Bismarck Þotta þýðir stórfellda sölu á vesturþýskri tækni til Sovétrikj- anna. Þau hafa oft beðið Banda- rikin að selja sér slika tækni, en fengið afsvar. Þessi fyrirhuguðu viðskipti við Vestur-Þjóðverja má skoða sem svar ráðamanna i Moskvu við þeirri neitun Banda- rikjamanna. I raun er hægt að segja, að með þessu taki Sovétríkin og Vestur- Þýskaland skref i þá átt að draga úr áhrifum Bandarikjanna i Mið- Evrópu. Að sjálfsögöu lætur Hel- mut Schmidt þessu fylgja svar daga um trúnaö við ráðamenn i Washington, en það skiptir litlu. Það var vissulega athyglisvert, að þegar Schmidt lýsti yfir mikilli ánægju með árangur viðræðn- anna við Bresjnef, vitnaði hann i Otto von Bismarck járnkanslara, einn frægasta stjórnmálamann þýskan að fornu og nýju. Bis- marck, sagði Schmidt, „gerði sér ljóst að nauðsynlegt var að hafa friðsamleg samskipti við hið þá- verandi Rússland, sem nú er Sovétrikin”. í framhaldi af þessu er rétt að minna á orð glöggs sagnfræðings um Evrópusögu, „að valdajafnvægið skipti öllu máli fyrir Bismarck, og aö hann fórnaði jafnvel metnaðarmálum Þjóðverja fyrir það, svo að ekki sé minnst á metnaðarmál ann- arra.” Þvi að Bismarck hafði gert sér grein fyrir tveimur mik- ilvægustu máium evrópskra stjórnmála: að strið Vestur- Evrópurikja við Russland hlyti að koma haröast niður á Þýskalandi, og ekki ætti að raska jafnvæginu milli Evrópustórveldanna með ævintýramennsku i stjórnmálum. Fæti brugðið fyrir Evrópukommúnista Eftir 30 ára frið i Evrópu eru það sérstaklega sovéskir ráða- menn, sem eru arftakar Bis- marcks. I öllum þeim ræðum, sem Bresjnef flutti yfir vestur- þýskum forustumönnum, minnsti hann á að Sovétrikin hyggðust halda óbreyttu sambandi sinu við Frakkland jafnframt þvi að þau tækju upp nánari samvinnu við Vestur-Þýskaland. Þessvegna gegnir það engri furðu að Schmidt kanslari sagöi eftir heimsókn Bresjnefs: „Mér hefur verið sýndur mikill sómi. Viðræðurnar einkenndust yfirleitt af svo miklu gagnkvæmtu trausti, að hægt er að segja að þær hafi verið náið samband.” Ekki er það heldur þýðingar- laust að Bresjnef gerði mikið úr þvi að fjalla táknrænt um sam- band sovéska kommúnista- flokksins og Vesturþýska sósildemókrataflokksins en Bresjnef ræddi við Willy Brandt, fyrrum sambands- kanslara, sem formann vestur- þýsku sósialdemókratanna. Ekki verður annaö séð en að þetta sé liður í baráttu ráðamanna i Moskvu við Evrópukommúnista. Með þvi að taka upp nánari sam- skipti við sósíaldemókratlska Hefðbundnar refsingar í Pakistan 29/5 — Herforingjastjórnin i Pakistan tilkynnti i dag að þrlr bankaræningjar yrðu hand- höggnir fyrir illgerðir sinar, en heföbundin múhameðsk lög mæla svo fyrir að þannig skuli þjófum refsað. Herforingjastjórnin undir forustu Mohammad Zia-ul Haq innleiddi slikar refsingar skömmu eftir að hún rændi völdum af stjórn Zulfikars AIi Bhutto i júli s.l. ár. Afbrotamennirnir njóta þó þeirrar náðar að læknar munu taka af þeim höndina að viðhafðri deyfingu. Ennfremur skulu menn láta vinstri hönd sina, sem minni missir mundi talinn að, nema hvað örvhentir menn láta þá hægri. Stjórn Zia-ul Haq hefur einnig innleitt opinberar hýðingar fyrir nauðganir. Dropinn dýrari fyrir Pólverja 29/5 — Pólsk stjórnarvöld hafa hækkað verölag á vodka, uppáhaldsáfengi Póiverja, um 23 til 30%. A s.l. laugardag tilkynntu stjórnarvöld að verð á áfengi yrði hækkað I þeim tilgangi að draga úr áfengisneyslu, sem aukist' hefur mjög þar i landi siðustu þrjú árin. 1 Reuter-frétt um þetta segir að Pólverjar innbyrði meira af sterku áfengi en nokkur önnur þjóð i heimi. flokka, til dæmis á Spáni og Vest- ur-Þýskalandi, leitast þeir i Moskvu við aðeinangra Evrópu- kommúnistana, sem vilja nánari samskipti við sósialdemókrata. Bandarikjunum og Japan gefið langt nef Litum nú nánar á gang þessara mála. Rétt fyrir för sina til Vest- í bráðina að minnsta kosti hætta sovéskir að stiga I vænginn við valdhafa i Tókió. Nú verður það miklu fremur hlutskipti Japana að stiga i vænginn við þá i Moskvu. Fail dollarans Viðleitni Bresjnefs til þess að teygja Vestur-Þýskaland úr faðmlögum Bandarikjanna liggur nokkuð svo i augum uppi, en við- leitni Schmidts i sama tilgangi er betur falin. Fall dollarans hefur spillt fyrir Bandarikjunum I Vest- ur-Þýskalandi, vegna þess að vandræði bandariska gjaldmið- ilsins eru útflutningi Vestur-Þjóð- verja til tjóns. En það væri póli- tiskt sjálfsmorð fyrir leiðtoga vestur-þýskra sósíaldemókrata og frjálsdemókrata, sem fara með völd þar i landi, ef þeir svo mikiðsem hefðu i hvíslingum um að þeir væru með það á prjónun- um að draga úr áhrifum Banda- rlkjanna i Evrópu. Astæðurnar til þess eru tilfinningaleg tengsl Vest ur-Evrópu við Bandarikin og mikill ótti við Sovétrikin. En þvi sterkari sem tengsl Vestur- Evrópu við Sovétrikin verða, þeim mun meir dregur úr áhrif- um Bandarikjanna i vesturhluta álfunnar. Rénun bandarisku á- hrifanna mun undir öllum kring- umstæðum styrkja samningsað- stöðu þeirra i Moskvu gagnvart þeim I Washington. Bretar i klipu Voldug Vestur-Evrópuriki, önnur en Vestur-Þýskaland, kom- ast ekki heldur hjá þvi að taka nánari sambönd við Sovétrikin til athugunar og hagræða tengslum sinum við sovéska ráðamenn i samræmi við það. Frakkland og Vestur-Þýskaland hafa nánar gætur hvort á öðru til þess að láta það ekki fram hjá sér fara, ef Sovétmenn hölluðust meira að samvinnu við annað rlkið en hitt. Bretland er hér i vandræðum. Bretum blæðir i augum að útlit er fyrir að þeir komist ekki inn á sovéska markaðinnen þora samt sem áður ekki að hætta á reiði Bandarikjanna með þvi að ving- ast við Sovétrikin. Vitaskuld er ekki lengur I tisku að hafa þesskonar valdatafl I Evrópu i hámælum. En verkin vega þyngra en orðin. Vestrænir fréttaskýrendur eru á yfirborðinu- tómlátir um heimsókn Bresjnefs til Bonn og sovésk blöð fjölluðui um heimsóknina með yfirborðs-- kenndum frösum eins og: „Mikið starf I þágu friðarins” og „Friður; á jörðu”. Svoleiðis nokkuð segir: litla sögu. Fáir viðurkenna að- breyting á valdajafnvæginu sé i- gangi. Þvi að Bresjnef og' Schmidt hafa lært það mikið af' Bismarck gamla, að þeir gætai þess að jafnvægið breytist ekkii svo að það liggi I augum uppi.. Nokkurármunuef til vill liða, áð-- ur en afleiðingarnar af samspil-i inu þeirra koma i ljós, en þærl koma i ljós um siðir. (Millifyrirsagnir eru Þjóðvilj- ans) Leiðtogaráðstefna Nató: Carter boöar auk- in afskipti Nató af Afríkumálum ur-Þýskalands gagnrýnir Bresj- nef Bandarikjamenn i viðtáli við vesturþýska sosialdemókrata- blaðið Vorwarts. Bresjnef býður Schmidt upp á vigbúnaðarjafn- vægi i Evrópu i staðinn fyrir að snúa sér þvi viðvikjandi beint til húsbænda i Washington. Meö þvi gefur leiðtogi rikis og flokks I Sovétrikjunum I skyn, að i við- ræðunum um afvopnun á mið- evrópska svæðinu skuli hagsmun- ir Evrópurikja skipta mestu — en ekki hlutverk Bandarikjanna sem stórveldis. Og ekki var Bresjnef fyrr kom- inn heim úr Þýskalandsförinni en sovéskir fjölmiðlar hófu mikil skrif, þar sem áherslan var hvar- vetna lögð á nauðsyn góðra og vinsamlegra samskipta við Vest- ur-Þýskaland, jafnframt þvi sem Carter Bandarikjaforseti fékk margt, miður hlýlegt orð I eyra. Þýðing þessa sovéska boðskapar er sú, að neiti ráðamenn i Was- hington Sovétmönnum um þá samvinnu, sem þeir sovésku óska eftir, sé Sovétmönnum innan handar að verða sér úti um aðra viðskiptaaðila. Nánari samskipti Sovétrikj- anna og Vestur-Þýskalands verða einnig til þess, aö Sovétmenn verða tómlátari um efnahagsleg og tæknileg samskipti við Japani. 30/5 — í ræðu, sem Carter Bandarikjaforseti flutti við setningu leiðtogaráðstefnu Nató-rikja i Washington, gaf hann i skyn að hann teldi að Nató ætti að auka afskipti sin af gangi mála i Afriku vegna auk- inna umsvifa Kúbana og Sovét- manna þar. Sagðist Carter telja þetta óhjákvæmilegt, enda þótt stofnsáttmáli Nató geri ráð fyrir þvi að það eigi ekki að skipta sér af gangi mála utan Evrópu. Talsmaður bandariska utan- rikisráðuneytisins sagði i dag að i næstu viku yrði haldin i Paris ráðstefna með þátttöku margra rikja til að fjalla um þessi mál. Samkvæmt frönskum heimild- um munu Bretland, Vestur- Þýskaland og Kanada senda fulltrúa á ráðstefnu þessa auk Bandarikjanna og væntanlega Frakklands. ttalia kynni einnig að taka þátt i ráðstefnunni og ætlast mun til að einhver Afrikuriki sæki hana. Að likindum mun ráðstefn- unni ætlað að leggja drög að hliðstæðum aðgerðum og Frakkland og Belgia gripu ný- lega til I þeim tilgangi að hrinda innrás uppreisnarmanna I Shaba, með það fyrir augum aí Nató-riki verði reiðubúin til þessaðveita Afrikurikjum, sem hlynnt eru Vesturlöndum, hern- aðarlegan stuðning.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.