Þjóðviljinn - 31.05.1978, Side 9

Þjóðviljinn - 31.05.1978, Side 9
Þriðjudagur 30. mai 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Povel Ramel er litt þekktur á tslandi. Engu að siður er hann einn þekktasti skemmtikraftur Svia og hefur verið I nær fjóra áratugi. Það er i rauninni ekki hlaupið að þvi að lýsa Povel fyrir þeim, sem aldrei hafa séð hann eða heyrt i honum. Og enn erfiðar að útskýra stil hans og sviðsfram- komu. Það væri kannski hægt að kalla hann ,,kreisi”-grinista, sem hefur reynt öll form skemmtana- iðnaðarins, allt frá litlum senum þar sem hann situr einn við pianó, og til stórfenglegra kvikmynda sem settar hafa verið á svið með pompi og prakt. Hann útskýrir þetta nánar fyrir blaðamanni i anddyri Hótels Sögu, en þar býr hann þessa dag- ana, meöan hann gistir tsland og skemmtir landanum I Norræna húsinu, i boði þess og Sænsk- Islenska félagsins. — Maður verður að endurnýja sjálfan sig, segir hann og brosir þessu sætljóta brosi sinu. Það verður að setja nýjar umbúðir utan um pakkann, þótt innihaldið kunni að vera meira og minna það sama. Þess vegna hef ég reynt sem flest form. Áður fyrr gerði ég töluvert af kvikmyndum, leikhúsformið hef ég ávallt notað, og einnig hefur sjónvarpsformið heillað mig og ég hef reynt mig á þvi sviði. byrjuöum að leika þar og syngja fyrir matargesti, og auglýstum ekkert i blöðunum, nema eina litla setningu, þar sem stóö: Viö pianóið P. Ramel. Fyrsta kvöldið ætluðu gestirnir aö detta úr stólunum, þegar þeir fengu alveg óvænta skemmtun heilt kvöld. En blöðin komust i málið, og næsta kvöld var allt troðfullt og stemmningin þar með horfin. — Hvernig finnst þér að leika fyrir islendinga? — Fyrsta kvöldiö hefur tekist mun betur en ég þorði að vona. Þaö var búið að setja mér, að þetta væri litill salur, sem tæki um 120 manns, svo ég var ekki svo ýkja skelkaður. Svo reiknaöi ég með þvi, að þeir sem kæmu, hefðu einhverja kunnáttu i sænsku eða þekkingu á sænsku þjóðfélagi. Þetta er reyndar i fyrsta skipti, sem ég kem fram opinberlega utan Skandinaviu, og mér finnst þetta afar skemmti- legt og spennandi. Nú eru leigubilarnir komnir, Povel ris á fætur, setur köflóttan hattinn á skallann og brosir breiða brosinu, svo bilið milli framtannanna kemur i ljós. Svo kveður hann og er horfinn. Þá er bara að vita, hvenær og hvort söngvisur og dellutextar um „Skemmtilegt og spennandi að koma fram á íslandi” Hann er hæverskan uppmáluð. Sannleikurinn er hins vegar sá, að allt, sem Povel hefur gert, hefur slegiö i gegn i Sviþjóð. Ekki sist sjóvarpsþættirnir, sem hann gerði fyrir nokkrum árum og nefndi „Semlons gröna dalar” (sem mættikannski þýða „Grænu dalirnir hans Bolla”). Þeir þættir settu algjört met i sjrtvarpsglápi i Skandinaviu. En hvernig skyldi honum finnast að vera kominn til íslands? — Jú takk, þetta er i fyrsta skipti, sem ég kem hingað. Ég hef reyndar ekki séð neitt ennþá, nema leiðina milli Hótels Sögu og Norræna hússins, og það gegnum bilrúðu. En nú stendur til að fljúga til Vestmannaeyja og Surtseyjar i dag. Það eina, sem kemur mér verulega á óvart, er veðurfarið. Þaö hefur rignt og stytt upp til skiptis, sólin hefur brotist fram úr skýjunum og horfiö aftur, þaö eru vindhryðjur búnar aö ganga yfir hótelið og skyndilega er skollið á dúnalogn. Þetta er eins og veðurfar heils árs i Sviþjóö. Er þetta alltaf svona á Islandi? Blaðamaður útskýrir, að veðrið sé eins og islenski efnahagurinn: gjörsamlega óútreiknanlegur. En hvað fannst pianistanum, söngv- aranum og háöfuglinum Povel Ramel um viötökurnar i Norræna húsinu á mánudagskvöldið? — Alveg frábærar. Ég reyndi að syngja dálitið hægar, svo tslendingar ættu léttar með að skilja textana og tók þá allra hröðustu úr. Annars hef ég notið mikillar aðstoðar islensks lektors I Gautaborg, Kristins Jóhannes- sonar, sem hefur æft með mér nokkur islensk lög og kennt mér framburðinn á textunum. Sérstaklega hefur hann verið mér ■ innan handar við „Fluguna” (Litla flugan hans Sigfúsar Halldórssonar). Það er nauðsynlegt að syngja eitthvaö á Rætt við sænska grínistann Povel Ramel, sem skemmtir í Norræna húsinu máli þeirra, sem heimsóttir eru, segir Povel og setur upp samherjasvip. — Allt sem þú gerir á sér djúp- ar rætur i leikhúsi, ekki slst reviunni. Nú er revian næstum þvi útdauð, en virðist dafna vel I Sviþjóð? — Nei, það er varla hægt að segja það. Hún er á undanhaldi þar einnig. Alla vega reviuleik- húsin. Ég man, þegar ég var strákur i byrjun fjóröa ára- tugarins, fór pabbi oft meö mig i reviuleikhús. Þá voru um 12 slik leikhús i Stokkhólmi. Nú eru þau 2, i mesta lagi 3. En heföin hefur lifað áfram. Revian svifur i bak- grunninum i sænsku skemmtana- lifi. — Hvenær byrjaðir þú I brans- anum? — Ég byrjaði sem leikmaður (amatör) 1939, og þá mest sem hljómlistamaður. Það var nokkr- um árum siðar, sem ég byrjaöi sem atvinnumaður i skemmtana- lifinu. Það var nú reyndar fyrst i byrjun sjötta áratugsins, sem við tökum að gera hluti, sem aörir höfðu ekki gert áður. Við sóttum ýmislegt i ameriskan „kreisi”- stil og djassinn var lika sterkur þáttur i þessum uppsetningum okkar. Við vorum þá búnir aö stofna Ideon-leikhúsið: það hét áöur Odeon. Þar slepptum við taumnum lausum, og slóum i gegn með þessum nýja stil. Við rákum leikhúsið i 15 ár. Þá mátti maður ekki vera jafn opinskár og klæminn eins og tiðkast nú i Sviþjóð. Nektardans eða dónaorð voru alveg bönnuð, og kven- mannslæri vöktu mikla siðferðis- lega reiöi. Við gerðum dálitið grin að þessu skirlifi leikhúsanna, og auglýstum að við værum með nakinn kvenhvislara. Ideon-leik- húsið lifði sem sagt i hálfan annan áratug. Þá var það rifið af borgaryfirvöldum og nú stendur þar hið nýja þinghús sænsku þjóðarinnar. Svo ekki hefur ástandið batnaö. — Hefur skemmtanabransinn breyst mikið I Sviþjóð sfðan þá? — Varla að innihaldi, nema hann er orðinn opinskárri. Maður getur sagt hvað sem er nú. I þvi sambandi man ég, að þegar ég gerði þætti fyrir sænska útvarpið fyrir mörgum árum, þá varð maður aö gæta tungu sinnar, og ritskoða sjálfan sig. T.d. var alveg harðbannað að minnast á áfengi. Ég hafði skrifað söngvisu um sjóræningja, sem er að drekka romm og kyrjar paródiu á hina sigildu sjóræningjasöngva. Forráðamenn útvarpsins harð- bönnuðu mér aö nota oröið „romm”. Ég hugsaöi mig um, og breytti svo orðinu i „bláberja- saft”. Það gerði mikla lukku. — Hvaða formi ertu hrifnastur af? — Ég veit ekki. Mér finnst gaman af öllu þvi, sem ég geri hverju sinni. Hins vegar eru stórar uppsetningar orðnar svo dýrar og viðamiklar, að þær bera sig ekki lengur fjárhagslega. Þess vegna hef ég sótt i minni form. Eins og núna, þegar ég er með trió sem leikur undir. Ég hef lika unnið mikið með norsku söngkonunni Wenche Myhre: eins konar tveggja manna sviösform. Það er mjög skemmtilegt. Ég forðast bara eitt: að staðna i einu „Þá mátti ekki nefna áfengi á nafn i sænska útvarpinu”. formi. Fyrir nokkrum árum vorum við, þeas„ trió Sven Ols- sons sem er hér núna, orðnir svo leiðir og þreyttir á allri viðamik- illi sviðsframkomu og sjónvarps- upptökum, aö við ákváðum að breyta alveg til. Það er litill mat- sölustaöur á smáeyjunni Djur- gárden i hjarta Stokkhólnrs, sem heitir Djurgárdsbrunn. Við Vestmannaeyjar og Surtsey eigi eftir að sjá dagsins ljds og slá i gegn i Sviþjóð. Kannski hann láti sér nægja að semja hugljúfa gos- melódiu, sem hann getur leikiö á pianó. Og slái hann feilnótu hér og þar, þá gerir það ekkert til. Hann er vanur að segja, að nótnaborðið sé hált! —IM Myndir og texti: Ingólfur Margeirsson

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.