Þjóðviljinn - 03.06.1978, Blaðsíða 7
Laugardagur 3. júnl 1978 fWÓÐVILJINN — StDA 7
Ef viö skiljum megindrætti í því sem liggur aö baki
kosningasigrinum og kunnum aö draga rétta
lærdóma — og fylgja þeim eftir ■ þá eygjum viö
von um breytt þjóðfélag og bætt mannlíf i landi
Björn
Arnórsson.
Barátta og samstaða
leiðir til sigurs
Óþarfi er að fjölyrBa um þá
sigurgleði, sem gagntekið hefur
sósialista — hvar I flokki sem
þeir standa, aö undanförnu. >að
ómögulega skeöi, við sigruðum
náttúrulögmálið, áratuga löng-
um yfirráðum sjálfstæðis-
manna i Reykjavik er lokið. I
sigurvimunni er þó nauðsynlegt
að gera sér ljóst I hverju sigur-
inn er fólginn, af hverju vannst
hann og hvert verður framhald-
ið að vera?
Það er ljóst að Urslit kosning-
anna fela T sér mótmæli gegn
kjararánslögum rikisstjórnar-
innar og fólk leitaði til Alþýðu-
flokksins og þó umfram allt Al-
þýðubandalagsins i trausti þess
að þessum flokkum væri skyld-
ara en öðrum að hafa forystu i
að hnekkja þessum lögum. Al-
þýðubandalagsmenn verða þvi
að skoða þessi úrslit sem áskor-
un launafólks.
Af hverju nú?
Það er afar mikilvægt að
greina þessa spurningu og
draga af henni réttar ályktanir.
Margir höfðu veitt þvi athygli
að kosningabaráttan var óvenju
daufleg, umræður blaðanna
bragðlitlar og veggspjöld vart
sýnileg, litið er fram hjá tveim
boröum Sjálfstæðismanna, sem
tjáðu borgarbúum að 28. mai
væri D-dagur („D-day” — og
reyndust sannspáir!). Astæður
„byltingarinnar” er þvi ekki að
finna i sjálfum kosningaslagn-
um, ef undan er skilinn þáttur
Guðrúnar Helgadóttir. En þó
þáttur hennar sé stór, má öllum
vera ljóst að enginn einn maður
fellir jafn sterkan meirihluta og
verið hefur við völd i Reykjavik
undanfarna áratugi. Sama gild-
ir um ósérhlifiö starf þeirra
hundruða sjálfboðaliöa, sem
lögðu nótt viö dag i kosninga-
slagnum. Slikt starfhefur verið
unnið áður.
Svarið er umfram allt að
finna I verkalýðshreyfingunni i
viöustu merkingu þessa orðs.
Og þá á ég ekki fyrst og fremst
við mótmæli manna gegn kjara-
skerðingarlögunum heldur við
breytt vinnubrögð verkalýðs-
hreyfingarinnar (og þá fyrst og
fremstBSRB),sem hefur opnað
samningaviöræður,leitað i vax-
andi mæli til félaga sinna og
veitt þeim aukna þekkingu, vit-
und og umfram allt einurð og
sjáKstæði.
Hér er ekki svigrúm til að
fjalla um kjarabaráttu liðins
árs i smáatriðum, nokkrar vis-
bendingar um kjarabaráttu
BSRB verða að nægja. Kröfu-
gerðin, sem sett var fram s.l.
vor, haföi verið kynnt og rædd i
öllum félögum BSRB um land
allt. Samningaviðræðurnar
voru háöar fyrir opnum tjöld-
um, þannig að hinn almenni fél-
agi haföi alltaf vitneskju um
stöðuna. Þegar sáttatillagan
margfræga var lögð fram, var
hún enn á ný kynnt og rædd á
félagsfundum um land allt og
þátttakan i þessum fundum var
40% og upp i 80% félagsmanna.
Hreinlega svimandi töíur. Enda
vaið árangurinn eftir þvi, lið-
lega 80% félagsmanna tóku þátt
i atkvæðagreiðslunni og liðlega
80% voru einhuga um að fella
sáttatillöguna. í verkfallinu
voru hundruð og aftur hundruö
félagsmanna virk i verkfalls-
vörslu og skynjuðu i fýrsta
skipti mátt samstöðunnar.
Stærstu félögin höfðu daglega
„opið hús” þar sem fulltrúar
samninganefndar, stjórnar eða
verkfallsnefndar voru mættir,
ræddu um siöustu atburði og
tóku ámótiharðri gagnrýnieða
áköfum fagnaðarlátum. Niður-
staða verkfallsins var meiri
kauphækkunen nokkru sinni áð-
ur I einum áfanga. Fólk hafði
þar með numið sina fyrstu lexiu
i námsgreininni: barátta og
samstaða leiðir til sigurs. Eftir
verkfalliö var haldin ráðstefna
þar sem verkfallið var rætt og
mistökin (þvi vissulega voru
gerð mistök) krufin til mergjar
og lærdómar dregnir.
í febrúar komu kjaraskerð-
ingarlögin og fyrstu viðbrögö
voru dagana 1. og 2. mars, þar
sem samstaða náöist meðal
stærstu verkalýðssambandanna
um aögerðir. Mikið hefur veriö
klifað á þvi að þessar aögeröir
hafi misheppnast, en ég leyfi
mér að fúllyrða að þau, sem það
segja, hafa ekki skoðað að-
gerðirnar niður i kjölinn.
Hvernig að þeim varstaðið má
vissulega deila um, en staö-
reyndin var sú að um helmingur
þeirra, sem voru hvött til að
ganga út skv. eigin ákvörðun,
gegn hótunum atvinnurekenda
og án þess að geta visað til
ákvöröunar verkalýðsfélags um
allsherjar verkfall, svöruöu
kallinu. Þessi staðreynd sýnir
meiri vitund og stéttarþroska
hjá þorra launafólks hér á landi
en viöa i Evrópu, sem þó hefur
verið visað til sem fordæmis.
Framhald aðgerðanna leiddi
siðan til þess að rikisstjórnin
hopaði með nýjum bráðabirgða-
lögum, sem áttu að friðþægja
hinu virka afli verkalýðshreyf-
ingarinnar, en hafði gagnstæð
áhrif, þ.e. sýndi að með baráttu
næst sigur. Það var siöan á
kjördegi, sem þetta fólk leitaði
til Alþýðubandalagsins meö
kröfuna: Þið hafið staðið fast á
þvi aðsamningarnir eigi að fara
i gildi, nú gefum viö ykkur tæki-
færi til að láta reyna á þaö.
Niðurstöður
Lærdómarnir af þessu eru
tviþættir: I fyrsta lagi er þetta
skýlaus krafa til verkalýösfor-
ystunnar að halda enn lengra á
þeirri braut, að svipta hulunni
af samningaviðræðum og tvi-
efla starfiö að þvi að virkja sem
flesta i kröfugerð og ákvarðana-
töku allri. I öðru lagi setur þetta
borga rs tj ór narme irihlu ta num
þær skyldur aö annars vegar
hafa strax frúmkvæöi að þvl að
samningarnir taki gildi að nýju
og hins vegar að leggja höfuð-
áherslu á aö virkja sem flesta i
stjórn borgarinnar. Þá á ég aö
sjálfsögðu við verkalýðshreyf-
inguna og starfsmenn borgar-
innar, en einnig hin mörgu og
fjölbreyttu samtök borgarbúa
um bæjarhverfi, iþróttir o.fl.,
auk þess að hafa frumkvæði að
slikum samtökum þar sem þau
eru ekki fyrir hendi. Athugum
vel að ibúar hverfanna hafa
mesta þekkingu á vandamálum
þeirra, starfsfólk SVR á leiðum
til úrbóta og svona mætti lengi
telja. Þessa þekkingu verður að
virkja og ibúar borgarinnar
eiga að stjórna henni sjálfir.
Ef við skiljum aö þetta eru
megindrættirnir I þvi sem ligg-
ur að baki kosningasigrinum og
kunnum að draga af þvi rétta
lærdóma — og fylgja þeim eftir
— þá eygjum við von um breytt
þj(S)félag og bætt mannlíf hér á
landi.
Björn Arnórsson
Landsbanki íslands
Nýr útibússtjóri
á Snæfellsnesi
V esturlandskjördæmi
A fundi bankaráðs Landsbanka
Islands 26. mai s.l. var samþykkt
að ráða Sólon Rúnar Sigurðsson
útibússtjóra Landsbanka fslands
á Snæfellsnesi frá og með l. júni
1978.
Sólon R. Sigurðsson er fæddur
1. mars 1942 og hefur starfað i
Landsbanka íslands frá 4.
Sendifulltrúi Póllands, hr. An-
toni Szymanowski, afhenti hinn
18. mai þeim ABalsteini Ingólfs-
syni, listfræðingij og Atla Heimi
Sveinssyni, tónskáldi heiðurs-
merki, sem pólski menntamála-
ráðherrann hefur veitt sem viður-
kenningu fyrir mikilsvert starf i
þágu menningartengsla Pólverja
október 1961. Hann hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum við
bankann, nú siðustu ár sem
forstöðumaður vixladeildar aðal-
banka. Sólon hefur verið formað-
ur S.Í.B., heildarsamtaka banka-
manna, undanfarin ár.
Sólon er kvæntur Jónu Arna-
dóttur og eiga þau 3 börn.
og fslendinga.
Myndin er tekin við afhending-
una. Lengst til vinstri er Stefan
Zietowski, formaður Pólsk-is-
lenska menningarfélagsins i Var-
sjá, þá Atli Heimir, Antoni Szy-
manowski, Áðalsteinn Ingólfsson
og Haukur Helgason, formaður
islensh-pólska félagsins.
Sameiginlegir framboðsfundir
frambjóðenda I Vesturlandskjör-
dæmi, vegna Alþingiskosninga,
sem fram raunu fara sunnudag-
inn 25. júni n.k., verða haldnir
sem hér segir:
Búðardalur, miðvikudaginn 12.
júni kl. 9.00 e.h., i félagsheimilinu
Dalabúð.
Stykkishólmur, fimmtudaginn 8.
júni kl. 9.00 e.h., i félagsheimilinu
við Víkurgötu.
OECD-ríki:
17.5 miljónir
atvinnu-
leysingja
i árslok
1Þ26 — Búist er við að tala at-
vinnuleysingja i aðildarrikjum
Efnahags- og framfarastofhunar-
■tnar (OECD).semiðnvædd riki I
Vestur-Evrópu, Norður-Ameriku
og viðar eiga aðild að, verði um
17.5 miljónir I árslok, að sögn sér-
fræðinga, sem nú eru að undirbúa
fúnd sjö hinna öflugustu þessara
rikja. Sá fundur á að verða I Bonn
I næsta mánuði og sitja hann leið-
togar Bandarikjanna, Vest-
ur-Þýskalands, Japans, Bret-
lands, Frakklands, ítaliu og Kan-
ada.
Sérfræðingarnir telja óliklegt,
að leiðtogarnir geri á ráðstefn-
unni neinar þær ráðstafanir, sem
dragi teljandi úr atvinnuleysinu.
Til þess að draga úr þvi þyrfti aö
auka hagvöxt OECD-rikja sem
heildar verulega, og helstu byrð-
arnar af þeirri aukningu væru lík-
legar til að lenda á Japan og Vest-
ur-Þýskalandi, sem eru við bestu
heilsuna efnahagslega af stóru
OECD-rikjunum. óliklegt er talið
að samkomulag náist um það.
Grundarfjörður, föstudaginn 9.
júni kl. 9.00 e.h., I samkomuhús-
inu.
Hellissandur, laugardaginn 10.
■ júni kl. 2.00 e.h., i félagsheimilinu
Röst.
Breiðablik, Miklaholtshreppi,
Menntaskólanum I Kópavogi
var slitið við hátiðlega athöfn I
Kópavogskirkju föstudaginn 28.
mai. Athöfnin hófst kl. 14. 63
stúdentar brautskráðust frá skól-
anum 33 stúlkur og 30 piltar.
Fjölmenni var við athöfnina.
Skólameistari, Ingólfur A.
Þorkelsson, flutti skólaslitaræð-
una, afhenti stúdentum sklrteini
og verðiaun fyrir ágætan árangur
i einstökum greinum. Skólakór-
inn söng undir stjórn John
Speight, tónlistarkennara. Einn
stúdenta, Þórdis Kristleifsdóttir
flutti ávarp og árnaði skólanum
allra heilla.
Hæstu einkunnir, sem gefnar
voru i skólanum hlutu:
Þórunn Guðmundsd. 2.bekk M. 9,2
Eydisólafsd. 2.bekkX.9,l
Kristin Þórisd. 2.bekkY.9,0
fimmtudaginn 15. júni kl. 9.00 e.h.
Logaiand, mánudaginn 19. júni
kl. 9.00 e.h.
Borgarnes, þriðjudaginn 20. júni
kl. 9.00 e.h., i samkomuhúsinu.
Akranes, fimmtudaginn 22. júni
kl. 9.00 e.h., i Bióhöllinni.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlutu þessir stúdentar:
Helga Þorvaldsdóttir 4.bekk E.
(eðlisfræðideild) 9,1 og Siguröur
Hjaltason 4.bekk E. (eðlisfræöi-
deild) 9,1.
I ræöu sinni skýrði skólameist-
ari m.a. frá þvi, að byggingar-
nefnd heföi samið tillögur um
framtiðarskipulag skólans, ýtar-
legt álit, i 44 blaðsiðna bók, sem
afhent var menntamálaráöherra
5. des. 1977. Samkvæmt tillögun-
um verður M.K. fjölbrautaskóli,
sem á að veita upprennandi kyn-
slóð i Kópavogi fjölbreytta fram-
haldsmenntun á samstilltum en
mismunandi námsbrautum.
Félagslif nemenda var öflugt
og stóöu nemendur að vanda fyrir
skammdegishátið 1. desember,
sem var vel sótt af Kópavogsbú-
um.
Fengu pólsk
heiðursmerki
Einn stúdenta, Þórdls Kristleifsdóttir, árnar skólanam hellta.
Menntaskólinn i Kópavogi
Útskrifar nú þriðja
stúdentaárganginn