Þjóðviljinn - 09.06.1978, Side 5
ÆSKULÝÐSBLAÐ
ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA S
Rætt viö
Magnús
Kjartansson
um
innlimunar-
stefnu
Bandaríkjanna
Magnus Kjartansson Hingaó hafa hermangsflokkarnir sott ráö og gefió upplysingar. Mynd tekin a
Keflavikurvelli í mai 1978.
Gera átti Island að einni
samfelldri herstöð
Magnús Kjartansson verður aðalræðumaðurinn á
útifundi i lok Keflavikurgöngu á laugardaginn.
Magnús hóf störf við Þjóðviljann um það leyti sem
bandarisk ásælni tók að magnast i lok siðari heims-
styrjaldar. í þessu viðtali drepur Magnús á mörg
atvik tengd bandariskri ásælni á Islandi, en fyrst
var hann spurður um upphaf afskipta hans að
stjórnmálum.
Herfflegasta niðuriægingarskeiðið var 1951-56
— Þaö var krafan um 99 ára
hersetu sem olli þvi aö ég hóf af-
skipti af pólitik. Ég er alinn upp á
pólitisku heimili og segja má aö
éghafidrukkiö f mig almennsósi-
alfsk viöhorf meö móöurmjólk-
inni, en ég haföi aldrei hugsaö
mér aö skipta mér á virkan hátt
af stjórnmálum. Þegar þessi ó-
sköp dundu yfir 1945, aö Banda-
rikjastjórn bar fram kröfur um
þrjár herstöövar til 99 ára, orkaöi
þaö á mig eins og reiöarslag og ég
fór aö skipta mér af stjórnmálum
á virkan hátt.
Þessi barátta sem ég hef tekiö
þátt í hefur staöiö aldarþriöjung
og þar hafa oröiö ákaflega mikil
og afdrifarik átök. Alvarlegasta
timabiliö I sambandi viö þessa
sögu er timinn eftir aö Bandarik-
in sendu hingaö herliö ööru sinni
1951 og fram til ársins 1956. Þá
virtust allir hernámsflokkarnir
leggjast á eitt um þaö aö innlima
ísland hreinlega i bandariska
stórveldiö. Arið 1951 voru hafnar
hér á Islandi áka|flega miklar
framkvæmdir á vegum hernáms-
liösins. Þúsunduni manna var
smalað á Keflavikurflugvöll til
starfa og hernám^flokkarnir þrir,
Sjálfstæöisflokkurinn, Alþýöu-
flokkurinn og Framsóknarflokk-
urinn, létu starfsmenn sina gegna
njósnaverkefnum I þágu he;
námslibsins. Þessir flokkar könn-
uöu skoöanir allra þeirra er sóttu
um vinnu hjá hernum, — þá var
erfitt atvinnuástand, — og ekki
aöeins stjórnmálaskoöanir þeirra
sem sóttu heldur og aöstandendur
þeirra i ýmsa libi. Ég er ekki i
nokkrum vafa um að Bandarikin
komu sér þá upp spjaldskrá um
stjórnmálaskoöanir allra Islend-
inga. Ég rakst á staðreyndir sem
staöfestu þetta margsinnis. Það
kom oft til min fólk sem átti er-
indi til Bandarikjanna og sótti um
leyfi til að fara þangaö. Þaö fékk
þau svör i bandariska sendiráö-
inu aö þaö gæti ekki fengið leyfi
vegna þess aö bróöir eöa systir,
faðir eöa móöir hefðu hættulegar
skoðanir.
— Voru ekki uppi áform um að
auka umsvif bandarlska hersins á
tslandi á þessu tímabili, 1951—56?
— A þessum árum voru uppi á-
form um aö gera Island aö einni
samfelldri herstöð fyrir Banda-
rikin. Aformað var að koma upp
miklum flugvelli á Rangárvöll-
um, höfn á suöurströndinni, aöal-
lega talaö um Þykkvabæ. Gerö
var áætlun um aö sprengja kjarn-
orkukafbátalægi inn i Þyril i
Hvalfiröi og þaö vár meira' aö
segja búiðaðgera samning um aö
Njarðvik yrði bandarisk her-
skipahöfn.
Hernámsflokkarnir þrir stofn-
uöu allir sérstök fyrirtæki til þess
aö hagnast fjárhagslega á her-
náminu. Það voru Sameinaðir
verktakar sem Sjálfstæöisflokk-
urinn stofnaöi, Framsóknarflokk-
urinn stofnaöi fyrirtækiö Regin
h.f. og þar var lagt fram fé frá
samvinnuhreyfingunni. Ollufé-
lagiö var stofnaö i þvi skyni aö
græöa á hernáminu, og gróöa-
fýsnin var svo mikil aö fariö var
út i þjófnaöarstarfsemi og for-
ystumenn þess voru dæmdir I
hæstarétti fyrir stuld og gjaldeyr-
issvik. Alþýðuflokkurinn stofnaöi
sin hermangarasamtök lika. A
þessum árum kom yfir fjóröi hluti
gjaldeyristekna Islendinga frá
hernámsliöinu. Þaö var stefnt
að þvi aö afkoma Islendinga
yröi algerlega háö þessari banda-
risku hersetu, hér kæmi upp hlið-
stætt ástand og á Möltu, þar sem
eru breskar herstöövar sem þjóö-
in vill losna viö en hefur ekki
efnahagslega möguleika á þvi
vegna þess að tekjurnar af her-
stööinni eru afar stór hluti af
þjóðartekjunum. Þaö var greini-
lega stefnt aö þvi að tsland kæm-
ist i sömu aðstöðu.
— Hvaö viltu segja um barátt-
una gegn her i landi á þessu tima-
bili?
— Baráttan gegn þessari herfi-
legu niðurlægingu bar I fyrsta
skipti verulegan árangur i kosn-
ingunum 1956. Þá voru tveir af
hernámsflokkunum orðnir
hræddir, Framsóknarflokkurinn
og Alþýöuflokkurinn, og þeir
lýstu yfir þvi að þeir væru reiöu-
búnir til þess aö gera ráöstafanir
til aö takmarka umsvif hersins og
láta herstöðina vikja. Kosning-
arnar 1956snerust fyrst og fremst
um þetta, og meirihluti þjóðar-
innar studdi þá flokka sem lýstu
þvi yfir, mismunandi greinilega
þó, aö þeir vildu losa Island und-
an þessari herstöð. Þetta fyrir-
heit var svikiö af Framsóknar-
flokknum og Alþýöuflokknum.
Súezdeilan og innrásin i Ung-
verjaland voru notuö sem tilefni
til þess, en engu aö siður uröu
þessar kosningar til þess aö
„Ég er ekki i nokkr-
um vafa um að Banda-
ríkin komu sér þá upp
spjaldskrá um stjórn-
málaskoðanir allra
Islendinga."
// Hernámsf lokkarnir
þrír stofnuðu allir sér-
stök fyrirtæki til þess
að hagnast fjárhags-
lega á hernáminu."
//Einn daginn fyltist
st jórnarráðið við
Lækartorg, skrifstofa
forsætisráðherrans/
Ólafs Jóhannessonar,
af karlmönnum í væn-
um holdum og fötum
úr góðum efnum, sem
hótuðu forsætisráð-
herra öllu illu."
Bandarikjamenn óttuðust um
stöðu sina og breyttu áformum
sinum.komu upp þessu mikla vig-
búnaöarkerfi, sem ætlunin var að
hafa á Islandi, á Grænlandi i staö-
inn. Sú veigamikla breyting varð,
að þar sem áöur haföi meira en
fjóröi hluti af gjaldeyristekjum
þjóöarinnar komiö frá hernáms-
liðinu, sökk þaö hlutfall niöur fyr-
ir 5% og hefur haldist svo siðan.
Þetta var þvi ákaflega veigamik-
ill árangur.
Ég tók þá ákvörðun aö taka þátt
i stjórnmálum, eins og ég sagöi
áöan, einvöröúngu vegna þessar-
ar bandarisku ásæini, og hún het-
ur alltaf veriö efst I huga minum.
Þaö sem ég hef reynt aö vinna aö,
hefur haft þann tilgang aö sanna^
aö tslendingar gætu starfrækt
þjóöfélag sitt án þess að vera háö-
ir erlendu stórveldi. Viö værum
menn til þess aö hafa islenskt
þjóðfélag, sem héldi til jafns viö
önnur á sviöi efnahagsmála,
menningarmála og öllum öörum
sviöum, án þess aö þurfa aö sækja
tekjur sinar til herstöðvar. A
þessu sviöi hefur okkur oröiö á-
kaflega mikiö ágegnt. Ég hygg aö
nú sé varla nokkur maöur sem
gerir sér þaö ekki ljóst aö viö
megnum þetta, tslendingar. Við
getum tryggt hér ámóta góö lifs-
kjör og ámóta mikla möguleika
og i öörum og miklu stærri þjóöfé-
lögum. Þar ab auki getum viö
haft miklu mannlegra þjóðfélag
heldur en þar sem fjölmenniö er
meira.
— Nú hafa sósialistar tvívegis
setiö I vinstri stjórnum sem svikib
hafa fyrirheit um brottför hers-
ins. i-
— Já, þaö er rétt. Það var ein
af forsendum vinstri stjórnarinn-
ar 1956—58aö herinn ætti aö fara.
En þaö fyrirheit var svikiö m.a.
vegna óvæntra alþjóðlegra at-
burða. Siöari vinstri stjórnin
haföi þaö enn ofar á blaði aö her-
inn skyldi vikja og þaö var aö lok-
um gert samkomulag um það viö
hina stjórnarflokkana, hvernig
þessum brottflutningi skyldi hag-
aö I öllum atriöum. Siöan geröust
þau tiðindi, sem eru mér ákaflega
minnisstæö. Einn daginn fyltist
stjórnarráöiö við Lækjartorg,
skrifstofa forsætisráöherrans,
Ólafs Jóhannessonar, af karl-
mönnum I vænum holdum og i
fötum úr góöum efnum, sem hot-
uðu forsætisráðherra öllu illu, ef
staöiö yröi við þaö samkomulag
sem gert haföi verib innan rikis-
stjórnarinnar. Þetta voru her-
mangararnir i Framsóknar-
flokknum, þeir sem eiga hluta-
bréf i Regin h.f. og Oliufélaginu
h.f. Þeir hótuöu ólafi Jóhannes-
syni öllu illu. Og þeir geröu
meira. Þeir gerðu bandalag viö
félaga sina, hermangarana i
Sjálfstæðisflokknum og Alþýöu-
flokknum um aö hefja undir-
skriftasöfnun þess efnis að þjóöin
skyldi lúta erlendri hersetu um
alla framtiö. Þetta sýndi aö hags-
munaaöilar i þessum flokkum lita
á einkagróða sinn sem miklu
stærra atriði en sjálfstæöi Islend-
inga.
Þær raddir hafa heyrst aö þetta
séu viöskipti sem tslendingar
hagnist á; aö vinna i þágu Banda-
rikjanna hér. Þaö er vissulega
rétt að á þessu hagnast vissir
einkaaöilar, m .a. eru öll fyrirtæki
núverandi forsætisráðherra,
Geirs Hallgrimssonar, i Samein-
uðum verktökum. Það er enginn
aðili sem hefur jafn öruggan
gróða og hermaixgararnir á
Keflavikurflugvelli, enda hafa
þeir veriö i vandræöum með aö
koma fjármunum sinum i lóg.
Þaö eru þessir hagsmunaaöilar
sem aö vilja hafa hersetu hér, en I
eðli sinu er þessi vinna i þágu her-
námsliösins lélegustu viðskipti
sem Islendingar geta átt, þvi ver-
iö er að selja vinnuafl sem hrá-
efni. Þab eru lélegustu viöskipti
sem til eru.
Siögæðið hjá þessum mönnum
má marka af þvi, aö Einar
Agústsson var utanrikisráöherra
i þeirri rikisstjórn sem ákvaö aö
herinn skyldi fara. Hann heldur
áfram sem utanrikisráöherra i
þessari rikisstjórn, sem vinnur aö
þvi aö magna hermangið, og hef-
ur nýlega veriö að hæla sér af þvi
aö hafa gert samning um stór-
auknar framkvæmdir á Keflavik-
urflugvelli til þess að gróðasam-
tök hernámsflokkanna geti fengiö
meiri peninga.
— Hvaö meö baráttuna gegn
hersetunni i dag?
— Baráttan gegn innlimunar-
stefnu Bandarikjann hefur alltaf
veriö efst i huga minum. Barátt-
an gegn þessum hugmyndum
Bandarikjanna hefur veriö háö á
margbreytilegan hátt. Réttilega
hefur verið lagt kapp á þaö aö fá
sem almennasta þátttöku fólksins
i landinu i þessari baráttu. Ein
leiðin til þess hefur verið mót-
mælagöngur sem hafa farið fram
um 20 ára skeiö. Þær hafa haft
mjög mikil áhrif. Mér er þaö mik-
ið fagnaöarefni aö þaö hefur allt-
af farið fram endurnýjun i þess-
ari baráttu og það er ungt fólk
sem ber hana uppi núna. Við
þurfum aö setja okkur þaö mark
og hvika aldrei frá þvi, að Island
á að vera algerlega óháð öörum
rikjum, þaö er sterkasta framlag
okkar til allra þeirra þjóöa i
heiminum, sem veröa enn aö una
erlendri hersetu, ýmist Banda-
rikjanna eöa Rússa. Viö leggjum
fram skerf okkar i þeirri baráttu
meö þvi að gera Island alfrjálst
land, án erlendra herstööva. Þaö
getur orðiö öörum þjóöum mikið
fordæmi, ef fslenska smáþjóöin
hefur dug og samstööu til þess aö
hreinsa landiö af erlendum her-
stöðvum. Það gæti vakiö mikla
hreyfingu annarsstaöar, þar sem
hliðstæöir atburðir þurfa að ger-
ast. Ég held aö þetta sé öflugasta
framlag okkar Islendinga til
þeirrar alþjóöahyggju sem hefur
alltaf veriö rauöi þráöurinn i bar-
áttu sósialista um heim allan.
ELDHUS OG KLÆÐASKAPAR
Auðbrekku 53, Kópavogi. Sími 43820.
Filu skáparnir eru vandaöir. fallegir. odyrir og henta hvar sem er.
Fifuskáparnireru islensk framleiösla.
Þeir fást i þrem viöartegundum, hnotu. alm og antikeik.
Haröplast a boröplötur i mörgum fallegum litum allt eftir yöar
eigin vali. Komiö og skoöiö. kynniö ykkur
okkar hagstæöa verö. Latiö okkur teikna og faiö tilboö.
Fifa er fundin lausn.