Þjóðviljinn - 09.06.1978, Blaðsíða 11
ÆSKULVÐSBLAÐ
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA II
„Það
sem
ég er
mest á
móti”
— Ætli maður fari ekki i
kennslu. Þar er vist ekki um
margt annað að ræða. Það er að
visu smá möguleiki að komast i
þýðingar, en það er bara svo illa
borgað, og það er kennslan
reyndar lika, sagði Magnús
Guðnason, háskólanemi, þegar ég
lagði fyrir hann spurninguna:
Hvað ætlarðu að gera að loknu
námi?
Magnús er i heimspekideild
Háskólans og leggur stund á
ensku og dönsku til B.A. prófs.
— Hvers vegna fórstu i þetta nám,
Magnús?
— Það gerði ég einfaldlega af
tungumálaáhuga. Og þó ég búist
við að eiga eftir að hafa atvinnu
af kennslu þá verð ég að segja að
ég er ekkert ofsalega spenntur
fyrir henni. Þó ætla ég að fara til
Danmerkur næsta vetur, til þess
að afla mér réttinda til kennslu á
menntaskólastigi.
Það sakar vist ekki að hafa
réttindin auk þess sem mér gefst
um leið kosturá aðlæra dönskuna
enn betur, en ég get miklu frekar
hugsað mér að kenna hana en
ensku.
-Hvað gerir þú helst i fristund-
um þinum?
— Ég er ekkert í vandræðum,
Ég er útvarpsáhugamaður, ekki
þó það sem venjulega er kallað
„radióamatör”, heldur svokall-
aður DX áhugamaður.
— Hvað er nú það?
— Það felsti þvi að hlusta á er-
lendar útvarpsstöðvar og senda
þeim skýrslur um hlustunina og
fá til baka staðfestingu á að við-
komandi stöð hafi borist skýrslan
og að hún sé rétt.
— Heidurðu að það séu margir
sem fást við þetta?
— Já alveg fullt af fólki. Þetta
er t.d. mjög vinsælt „hobbý” á
Norðurlöndunum og hefur m.a.s.
verið tekið inn i sænska skóla-
kerfið sem valgrein.
— Heldurðu að ungt fólk eigi sér
yfirleitt einhver svona áhugamál
til að fást við i fristundum?
— Ég veitþaðekki.Éghugsa að
langflestir notifristundir sinar til
þess að fara á skemmtanir, böll
eða bió. Og ég verð að segja að ég
er ekki ýkja hrifinn af skemmt-
anamenningunni hér eftir að hafa
kynnstöðru. Viðgætum t.d. mikið
lært af Dönum i þessum efnum,
þó vil ég alls ekki fá bjórinn hing-
að eftir að hafa kynnst bjór-
drykkju skólabarna i Danmörku.'
— Ertu ánægður með tilveruna i
þessu þjóðfélagi okkar?
— Sjálfur tel ég mig ekki þurfa
að kvarta. En þó er ýmislegt sem
mér finnstaðmættibetur fara og
ég er engan veginn ánægður með
ástandið eins og það hefur verið
undanfarin ár.
Það sem ég er einna mest á
móti er uppgangur einkabilism-
ans hér. Það virðist vera
kappsmál allra íslendinga að
eignast eigin bil og það liggur við
aö það séu yfirleitt margir bilar i
hverri fjölskyldu. Mér finnst fólki
engin vorkunn að feröast með
strætó, ogégersannfærðurum að
aukin notkun almennings á
strætó myndi leiða til betri þjón-
ustu. Allur þessi bilainnflutningur
er ekkert nema óhóf og óþarfi.
Mér finnst það lika vera fyrir
neðan allar hellur að námsmönn-
um skuli boðið upp á lán með.
allra verstu kjörum sem fyrir-
finnast álánamarkaðnum. Ég hef
verið svo heppinn að hafa það
góða vinnu á sumrin að ég hef
ekki þurft að taka námslán til
þessa. En næsta betur kemst ég
ekki hjá þvi, og ég hlakka ekki til
Magnús Guðnason
þess, þó ég sé mun betur settur en
þeir námsmenn, sem allan sinn
námstima neyðast til að taka
þessi mjög svo óhagstæðu lán. Og
fleira mætti telja, svo sem hús-
næðismálin o.fl. o.fl.
— IGG
„Skólagjöldin baggi
,,Skóla gjöldin við skólann eru
50 þúsund krónur á ári. Sé maður
i fleiri deildum en einni bætast
aukagreiðslur við. Þetta gerir
það að verkum aö það verða viss
fjárhagsleg forréttíndi að fá að
stunda nám við þennan skóla.”
Það er Steinunn Birna
Ragnarsdóttir, nemandi við Tón-
listarskólann sem lætur þessi orð
falla.
— Hvaða hljóðfæri leikur þú á?
— Ég leik á pianó. Ég byrjaði á
þessu að eigin frumkvæði. Ég
kynntist tónlist i barnaskólanum
og ég verð að segja að mér finnst
tónlistarkennsla i grunnskólanum
alveg til fyrirmyndar. Eflaust
kviknar áhugi margra upprenn-
andi tónlistarmanna einmitt þar.
Ég held, að tónlistarframtið allra
sé i raun og veru ákveðin, þegar
maður er krakki.
— Hvað finnst þér um Tón-
listarskólann?
— Það er margt, sem má finna
að skólanum og tæknileg aðstaða
Steinunn B. Ragnarsdóttír.
er hrapaleg. En þetta er nú einu
sinni helsta tónlistarstofnunin i
borginni og það eina að ráði sem
okkur er boðið upp á. Þetta er
mikil vinna alveg ferlegt púl, en
ofsalega gaman. Ég gæti ekki
hugsað mér nokkuð annað.
— Eru ekki margir pianóleikar-
ar i skólanum?
— Jú, pianóið er vinsælt hljóð-
færi en eiginlega eru flestir sem
útskrifast tónlistakennarar. I ár
útskrifast t.d. óvenju stór hópur
kennara. Það er lika brýn þörf á
aukinnikennslu i tónlist i landinu.
Svo er þetta náttúrulega það starf
tónlistamanna sem arðvænlegast
er. Það græðir enginn á þvi að
vera einleikari.
— Hvaðan kemur fólk sem
stundar nám við skólann?
— Það kemur mikið úr Reykja-
vik, en annars kemur fólk ur öll-
um byggðarlögum. Það sýnir
bara hvað tónlistaráhugi er út-
breiddur á tslandi. Það er varla
tilþað krummaskuðá landinu þar
sem ekki er tónlistarkennsla,
einkatímar, kirkjukórar og svo
framvegis. Ahuginn er alveg
ótrúlegur. —IM
er fjárfesting í hljómgæðum
BALDWIN 132
2ja borða orgel með innibyggðum
skemmtara, „Fantonfinger ll“ sjálfvirkum
undirleikurum (píanó, gítar, hörpu, banjó,
og harpcichord) og trommuheila með
gítar og popgítar sem undirleikara.
j ALGERT UNDRATÆKI.
Á sviði eða í stofu — Baldwin píanó og orgel
svara ströngustu kröfum um hljómgæði.
Hvert Baldwin píanó er listagripur og völundarsmíð
sem hinirfærustu iðnaðarmenn, listamenn í sinni
iðn, hafa farið höndum um og gert að kjörgrip
með heimsþekktum hljómgæðum.
5 ÁRA ÁBYRGÐ
Stuttur afgreiðslufrestur.
íALDWIN 1
Tveggja borða skemmtari. ..
Heil hljómsveit í einu hljómborði
Tveggja borða orgel með
innibyggðum skemmtara.
Hljóðfæraversun Pálmars Árna er eina sérverslun sinnar
tegundar hér á landi. Höfum umboö fyrir heimsþekkt
gæðamerki í hljóðfærum. Útvegum píanó og flygla með
stuttum fyrirvara. Notuð pianó tekin upp í ný.
Veitum alla viðgerðarþjónustu á píanóum og orgelum.
Baldwin píanó
er fiárfestine í
hliómeæðum.
Hljóðfæraverslun
P^ILMf\RS ARNh
INTERLUI
BALDWIN 121F
Tveggja borða orgel
með trommuheila og pedal.
Borgartúni 29 Sími 32845
Skemmtarinn, hljóðfærið
sem allir geta spilað á
585.000
BALDWIN 806
BALDWIN 953
j
Píanó með bekk í hnotu,
mattpóleruð áferð hæð90cm.
Píanó með bekk í hnotu,
mattoóleruð áferð hæð 106 cm.
Tveggja borða orgel með
„Fantonfinger I" sjálfvirkum undirleikurum.