Þjóðviljinn - 09.06.1978, Síða 15

Þjóðviljinn - 09.06.1978, Síða 15
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ÆSKULÝÐSBLAÐ RÆTT VIÐ ÓLAF R. EINARSSON UM RANNSÓKNIR Á VERKALÝÐSSÖGU Ólafur R. Einarsson í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn er mið- stöð félagslifs l'slendinga þar í borg en jafnframt fræðimannsíbúð. Þar hafa undanfarin ár dvalið margir íslenskir fræði- menn við rannsóknastörf. Ibúðinni er að jafnaði út- hlutaðtil þriggja mánaða í senn, og hefur umsóknum um afnot af fræðimanns- íbúðinni stöðugt fjölgað. Þeir hafa þó einkum feng- ið inni sem þurft hafa að- gang aðgögnum í dönskum söfnum og stofnunum. Síðustu þrjá mánuði, mars til maí, dvaldi í fræðimannsíbúðinni Olaf- ur R. Einarsson sagnfræð- ingur, en hann vann að rannsókn á dönskum áhrif- um á þróun íslenskrar verkalýðshreyf ingar fram til 1930. Blaðamaður Þjóð- viljans ræddi við Ólaf skömmu eftir heimkom- una. Það lá beint við að spyrja Ölaf fyrst, hvernig honum líkaði dvölin í Jóns- húsi? —MW— Merkar heimildir á verkalýðssögusafni í Kaupmannahöfn Ég kunni ákaflega vel viB mig i þessu húsi sem er frá fyrri hluta 19. aldar og liggur i hjarta borgarinnar. Þarna var ma&ur á söguslóðum og þvi gott andrúms- loft til aö vinna að sagnfræðirann- sóknum. Þá var það nýlunda fyrir mig að geta i þrjá mánuði sam- fleytt helgað mig rannsóknar- störfum. Hérheima er aldrei frið- ur til sliks, margt sem slitur i sundur vinnu að sagnfræöirann- sóknum, bæði kennslan og félags- starf. Fram til þessa hefur rann- sókn min á verkalýðssögu verið nætur- og helgidagavinna, en nú gafst manni kostur á að helga sig verkefninu algerlega. Ég tel til- vist fræðimannsibúðarinnar vera ákaflega mikilvæga fyrir is- lenska fræöimenn og þaö hefur sýnt sig að vistin þar hefur komið mörgum fræðimanninum að miklu gagni og ýmis rannsókna- verk sem út hafa komið á seinni árum tengjast dvöl höfunda i Jónshúsi. Fræðimannsibúðin hef- ur þvi mikið gildi fyrir islenska visindastarfsemi. Hvers vegna varstu að fara til Kaupmannahafnar til aö afla heimilda um sögu Islenskrar verkalýöshreyfingar? Var ekki af nógu aö taka hér heima? Jú, vissulega er af nógu aö taka hér heima, en mér hefur lengi sviðiö sárt, hve litill áhugi er hjá verkalýðshreyfingunni hér á þvi aö sinna eigin sögu og varðveislu sögulegra gagna. Ég vissi að danska verkalýðshreyfingin hefði unnið gott verk, hvað snertir sina sögu og ég vildi kynna mér það. Þvi var aöalvettvangur minn i Höfn Arbejderbevægelsens Bibliotek og Arkiv. Þetta verka- lýðssögusafn var stofnað árið 1909 og þar er að finna gagnmerk . skjalasöfn bæði verkalýössam- bandsins, verkalýðsfélaga og Socialdemokrataflokksins. Einn- ig er þar að finna einkabréfasöfn helstu leiðtoga flokksins. Þetta safn er einstaklega vel skipulagt og öll þessi gögn eru opin fyrir Frá útlánadeild safnsins. fræöimenn. Forstöðumenn safns- ins sögðu mér a& áhugi á verka- lýðssögu hefði aukist mjög sið- ustu 10 árin, þ.e. einkum eftir 1968. Þeir tóku það fram að svona „arkiv” skirskotuðu ekki lengur bara til sagnfræðinga heldur væri áberandi hve blaðamenn, rit- höfundar, dagskrárgerðarmenn, kvikmyndagerðarmenn o.fl. leit- uðu mikið til safnsins til aö afla sér heimila um lif og baráttu verkafólks. Þá væri einnig i stöð- ugt vaxandi mæli námsmenn sem veldu sér verkefni er tengdust verkalýðsbaráttu og veitti safnið mikla fyrírgreiðslu I þvi sam- bandi. Ég vil sérstaklega geta þess, að svona söfn eru lika starfandi I Osló og Stokkhólmi. Þá eru i lönd- unum þrem einnig starfandi á- hugafélög um verkalýðssögu er gefa út árbækur, fréttabréf, heimildasöfn og ritgerðir. Þátt- takan i þessum félögum og „seminörum” þeirra sýnir að á- huginn á verkalýössögu fer stöð- ugt vaxandi. Var öllum heimil afnot af þess- um skjölum? Já svo sannarlega. Það er eitt- hvað annað en hér á landi þar sem erfitt er að fá aðgang að ýmsum mikilvægum gögnum, þar aö þau ýmist eru glötuð eða geymd i óaögengilegum kjallara- kompum ellegar lokuð inni hjá viökomandi flokkum. Þarna fær hver sem er aðgang að öllum gögnum safnsins. Fáeinir aðilar setja þaö skilyrði aö sótt sé um afnotarétt, en þeir sögðu mér að slikri umsókn hafi aldrei verið hafnaö. Þarna fær hver sem er aðgang að skjölum Socialdemo- krataflokksins og Alþýöusam- bandsins fram til 1958 og menn gætu fengiö nýrri gögn en notkun þeirra er þeim erfiðleika háö að eftir er að flokka þau skjöl. Þá eru þarna öll skjöl danska SF flokksins fram til 1975, öll gögn flokks Vinstri-sósialista til 1976 svo eitthvað sé nefnt. Það er aö- eins danski Kommúnistaflokkur- inn sem ekki hefur afhent sin gögn. Þó eru á safninu einhver gögn frá DKP, m.a. einkasafn Axel Larsens sem m.a. snerta veru hans i kommúnistaflokkn- um. Það er þvi óhætt að segja að danska verkalý&shreyfingin ótt- ast ekki sina eigin sögu og vill allt fyrir þá aðila gera sem sinna vilja sögu danskrar verkalýðsbaráttu. Var mikið efni i þessum skjala- söfnum er snerti islenska verka- lýðshreyfingu? Já, það var öllu meira en ég átti von á. Það var mitt fyrsta verk að gera yfirlit yfir þau skjöl er snertu ísland og athuga megin- innihald þeirra. Er ég hafði kann- að þetta magn heimilda hófst ég handa við úrvinnslu. Ég hafði áð- ur en ég fór út sett mér að kanna sérstaklega sendiför ólafs Frið- rikssonar ritstjóra Alþýöublaðs- ins til Hafnar vorið 1918 vegna sambandsmálsins. Þessi sendiför var jafnframt upphaf beins sam- bands milli Alþýðuflokksins og Socialdemokrataflokksins danska. Þetta var forvitnilegt efni þvi sambandsmálið ógnaði að vissu leyti einingu Alþýðu- flokksins sem byggði á stétta- stjórnmálum, en sambandsmálið var arfur frá sjálfstæðismálun- um. Ég kannaði sérstaklega hlut ritstjóra Socialdemokrtaen, F.J. Borgbjergs, i viðræðunum i Reykjavik um sumarið og áhrif hans á þá afstöðu Alþýðuflokksins að lýsa fylgi við sameiginlegan þegnrétt. Um þetta tókst mér að afla mikilla gagna og skrifaði ég alllanga ritgerð um þetta efni. Þá vann ég einnig að þvi að kanna hugmyndafræðileg áhrif danskra jafnaöarmanna á stefnu- mótun íslenskra_jafjnaðarmanna 1915-1922. Þar er um að ræða fyrstu stefnuskrár Islenskra jafn- aðarmanna og báru þær mörg einkenni frá danska socialdemo- krataflokknum, einkum þær sem Ólafur Friðriksson var aðalhöf- undur að. Áður en ég fór út hafði ég gert mér vonir um aö finna bréf og skýrslur er vörpuöu ljósi á ein- staka stjórnmálaatburði heima og ágreining Alþýðusambands- forystunnar við kommúnista eftir 1921. Eiginlega varö ég fyrir nokkrum vonbirgðum hvað það snerti. Aö visu fann ég gagnmerk bréf frá Jóni Baldvinssyni forseta ASÍ til Th. Staunings leiðtoga danskra Socialdemokrata og for- sætisráðherra. Þar gerði Jón á athyglisverðan hátt skil atburð- um eins og Islandsbankamálinu, Stóru bombunni, Garnaslagnum, þingrofinu, stofnun kommúnista- flokksins o.fl. Jón virðist hafa verið I góðu vinfengi við Stauning persónulega eftir 1926 og varpa bréfaskipti þeirra skýru ljósi á hinn merka stjórnmálaferil Jóns Baldvinssonar sem þvi miður hafa alls ekki verið gerð þau skil I islenskri sögu sem sllkum stjórn- málaleiðtoga sæmir. Það væri svo sannarlega verðugt verkefni fyrir Alþýðusamband og Alþýöu- flokkinn að sjá til þess að saga hans verði skráö meðan þeir eru enn á llfi sem muna baráttu hans og þekktu hann persónulega. En ég fann tiltölulega litiö af skýrslum er skilgreindu stjórn- málaástandið á tslandi og stöðu verkalýðshreyfingarinnar. Einn- ig fór lítið fyrir lýsing- um á kjarabaráttu og stéttaá- tökum. Eflaust hefði ég fundiö slikt efni ef ég heföi blaöað I mál- gögnum verkalýðshreyfingarinn- ar en til þess vannst ekki tlmi. En allmikiö efni var um stjórnmála- ágreininginn innan verkalýðs- hreyfingarinnar á þriðja ára- tugnum. Ég hafði fyrir tveim ár- um samið yfirlit um þennan á- greining milli socialdemokrata og kommúnista I jafnaðarfélög- unum I Reykjavlk 1921—30 og fékk nú ýmsar heimildir er gáfu mér skýrari mynd af þesssum innanflokksdeilum. Hef ég sett mér að gera þvl efni rækileg skil I fræðilegri ritgerö við fyrstu hent- ugleika. Um hvaö fjölluðu þá bréfa- skiptin milli Alþýðuflokksins og danska Socialdemokrataflokks- ins? Það er von aö þú spyrjir, þvi mig hafði ekki órað fyrir að þegar á árunum 1919—28 hefði fjár- stuöningur við íslenska Alþýðu- flokkinn verið kominn til sögunn- ar Að vísu vissi ég að danski flokkurinn hefði styrkt Alþýðu- flokkinn til að hefja útgáfu Al- þýðublaðsins áriö 1919. Þá sendi Stauning 15.000 kr. ávlsun til ts- lands. Ég vil taka það fram að ég tel það ofur eðlilegt og i samræmi við alþjóðahyggju verkalýðsins aö bræöraflokkar styðji hvor ann- an og þá einkum að þeir sterku styðji veikari flokka eða flokka er sæta ofsóknum i heimalandi slnu. Þetta geröu bæði Socialdemo- krataflokkar og Kommúnista- flokkar á þessum árum. Þannig var I þessu tilviki að danski Soci- aldemokrataflokkurinn var að stuðla að landnámi sósialiskra hugmynda á tslandi. En I mínum augum verður þessi fjárhagsfyr- irgreiðsla fyrst alvarleg þegar hún fer að ráða stefnu móttak- enda. Ég varð mjög undrandi aö sjá, að stór hluti bréfanna milli þessara flokka voru bréf er snertu fjárstuðning. Þannig fékk Alþýðuflokkurinn 5.000 kr. styrk I kosningasjóð 1923, en þá var timakaup islenskra verkamanna ÆSKULÝÐSBLAÐ ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 ----------------m— i húsi Jóns Sigurössonar hafa margir fræöimenn fengiö aö dvelja i fræðimannsibúð og afla heimilda um íslenska sögu. Mikfl bréfaskipti milli danskra og íslenskra sósíaldemókrata varðveitt í Kaupmannahöfn um 1.20 kr. En þessi styrkur var bundinn þvi skilyrði að danski Socialdemokrataflokkurinn væri ekki að styrkja áróður þeirra er ynnu að sundrungu verkalýös- hreyfingarinnar þ.e. kommúnista sem danskir socialistar áttu einn- ig I höggi við. Varð Jón Baldvins- son að lýsa þvl yfir að kosninga- baráttan yrði háð á sosialdemo- kratlskum grundvelli bæði I ræðu og riti. Danir höföu spurnir af tlð- um Moskvuferðum ólafs Frið- rikssonar og voru þvi hræddir um of mikil Itök þeirra I islenska Al- þýðuflokknum. Þurfti forysta Al- þýðuflokksins oft að gera grein fyrir sambúð socialdemokrata og kommúnista I Alþýðuflokknum áður en von væri til að fjárstuðn- ingur fengist. T.d. fékk Alþýöu- flokkurinn engan styrk 1924 til 1926 vegna frétta erlendis um vaxandi áhrif kommúnista I Al- þýðuflokknum. Það var ekki fyrr en forysta Alþýðuflokksins lét til skarar skrlða gegn komm- únistum á Alþýðusambands- þingi 1926 og útilokaði fé- lag þeirra, Jafnaöarmannafélag- ið Spörtu, og ASt gekk I Al- þjóðasamband sósialista aö for- ystunni tókst að afmá allar grun- semdir erlendis um áhrif komm- únista. Þá lét llka danski Social- demokrataflokkurinn til skarar skrlða, skipulagöi fjársöfnun I Socialdemokrataflokknum ellefu landa og I verkalýösfélögunum I Danmörku til stuðnings islenska Alþýðuflokknum. Út úr þeirri söfnun fékkst dágóð upphæð er bjargaöi fyrirtækjum flokksins út úr skuldasúpunni. En aðgerðin 1926 varð til þess að magna á- greininginn innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Eftir heimildum að dæma mun Alþýðuflokkurinn hafa fengið rúmlega 60.000 kr á tlmabilinu 1919—1928, sem er ekki svo litil upphæð, þegar á þaö er litið að tlmakaupið var á þeim tíma, 1.00 til 1.20 kr. Þegar ég varð þess visari aö fjármálin skipuðu öndvegið i þessum bréfa- skiptum og að fjárhagsfyrir- greiðslan hafði áhrif á sambúð hægri og vinstri armsins, þá samdi ég yfirlit yfir fýrirgreiðsl- una og áhrif hennar á stjórnmála- ágreininginn. Telur þú dönsku áhrifin á is- lensku verkalýðshrey finguna hafa veriö mjög mikil fram til 1930? Þar sem ég hef ekki lokið rann- sókn minni, né gert samanburö við önnur lönd, þá vil ég ekki full- yrða of mikið. En rétt er að hafa i huga að á þessum árum voru tengsl tslendinga viö Kaup- mannahöfn mikil og löndin i kon- ungssambandi. Þvi verða tengsl Islenskrar verkalýöshreyfingar likiega mest við þá dönsku og þangað er sótt margvlsleg reynsla. Þar fá islenskir jafnað- armenn m.a. fyrirmyndina að tryggingalöggjöf, ýmsum nýjung- um I félagsstarfi og danskir soci- aldemokratar miðla miklum upp- lýsingum um verkalýösmál til flokksbræðra sinna hér. Þvl fannst mér eðlilegt að byrja á þvi að kanna þessi tengsl er ég reyndi að athuga erlend áhrif á þróun Is- lensrkar verkalýðshreyfingar fram til 1930. Þú sag&ir á&an aö verkalýös- safniö hef&i aö geyma heimildir allt fram tii 1958. Lést þú staöar- numiö viö áriö 1930? Þegar maður hefur aðeins þriggja mánaða rannsóknatima I Höfn, þá er nauösynlegt að af- marka rannsóknaverkefnið og þrengja það sem mest. Þvl lagði ég aðaláherslu á að kanna heim- ildir fram til 1930. En þar sem ég hef verið aö kenna sögu verka- lýðshreyfingarinnar bæði við Fé- lagsmálaskóla alþýðu og við Há- skóla Islands og þar fjailað um söguna fram á okkar dag, þá reyndi ég að afia einnig heimilda um tlmabilið eftir 1930.. Ég geri ráð fyrir að skrifa um þróun verkaiýðshreyfingarinnar I heild fyrst fram til 1930, en vonandi gefst manni slðar tækifæri til aö rannsaka vel tlmabilin eftir 1930. En ég taldi rétt að gera mér mynd af því hvaða heimildir væru til I Höfn um það tlmabil. Þvi fór ég i gegnum skjölin allt fram til 1958 skráði yfirlit um innihald og ljós- ritaði mikið af þeim. Hvaö fannst þú markveröast i þessum seinni tima heimildum? Þar kennir margvislegra grasa. Margt er þar ritað um átökin I Alþýöuflokknum 1938 og stofnun Sósialistaflokksins. Einnig eru bréf varðandi lýðveldisstofnunina og siðan handritamálið. Eftir 1938 er það fyrst og fremst Stefán Jóh. Stefánsson sem annast bréfa- skiptin við danska socialdemó- krata ogerubréf hans varðveitt i þessu safni. Eru þau einkum frá 1938 til 1952 er hann var formaöur Alþýðuflokksins. En þaö kom mér á óvart að rekast á mörg bréf frá honum á árunum 1952—54 er Hannibal Valdimarsson var formaður þar sem Stefán reynir að hindra að Alþýöublaðið undir ritstjórn Hannibals fái fjárstuðn- ing eða pappirsfyrirgreiðslu. Gerir Stefán rækilega grein fyrir átökunum I Alþýðuflokknum og er þungorður i garð þeirra Hannibals og Gylfa Þ. eftir að þeir felldu hann úr formannssæti Alþýðuflokksins 1952. Setur Stefán norrænu leiðtogana i mik- inn vanda, en þeir draga þó frem- ur taum Stefáns og hans manna og skjóta fyrirgreiðslum á frest. Var ég mjöghissa að sjá hvernig fjárhagsfyrirgreiðslan blandaðist inn í innanflokksátökin. Einnig var athyglisvert aö lesa, hve mik- il afskipti norrænir forystumenn Socialdemokrataflokka höfðu af deilunum. Verkalýðsleiðtogar er sóttu faglegar ráðstefnur á tslandi sömdu skýrslur um ágreininginn, sögðu frá viðtölum við strlðandi aðila og reyndu að meta pólitiskt gildi atburðanna. Einn þessara leiðtoga, Kai Nissen, sem sat Alþýðusam- bandsþingið 1954 og þing Alþýðu- flokksins fyrr á sáma ári, lýsir leiðtogum hægri armsins innan Alþýðuflokksins m.a. þannig að „begge brænder af hævntörst”. Og fram kemur i skýrslunni að Nissen hefur orðið þess var að hætt væri við að Gylfi yfirgæfi flokkinn ef Hannibal yrði þegar i stað rekinn. Hans Rasmussen „den stærke smed” formaður sambands danskra málmiðnaðarmanna var sumarið 1954 á þingi norrænna málmiðnaðarmanna i Reykjavik og raeridi við þá marga forystu- menn Alþýðuflokksins. Við heimkomuna samdi hann skýrslu og taldi nauðsynlegt að fé yrði veitt til að gera Alþýðuflokknum kreift að hafa erindrekstur og öflugan áróður I kosningum til Alþýðusambandsþings um haust- ið. Fyrrnefndur Kai Nissen sat þing Alþýðuflokksins i september 1954 og komst ásamt norömann- inum Rolf Gerhardsen að sömu niðurstöðu og fékk Alþýðuflokk- urinn fjárstuðning frá danska og norska flokknum til að vinna gegn brölti kommúnista og Hannibals (sem þá haföilátið af formennsku i Alþýðuflokknum en stefndi að forsetastóli hjá ASt með stuðningi „kommúnista”). Varþað fésiðan notað I kosningabaráttunni til ASl-þings haustið 1954, en dugði ekki til að hindra „valdatöku Hannibals”. En afskipti norrænna sociademokrata af flokksdeilunum innan Alþýöu- flokksins 1952—55 sýna vel hið nána samband sem er milli norrænu socialdemokrataflokk- anna. Samstarf við svonefnda kommúnista viröist eftir bréfun- um að dæma vera eitur i beinum norrænu leiötoganna, enda þessi bréf skrifuð i miðju kalda striðinu og Hannibal átti þvi ekki upp á pallborðið hjá þeim. And- kommúnismi viröist einnig allan timann vera forsenda styrkveit- inga. En er mikið skrifað um fjár- hagsstuöning i þessum seinni tima heimildum? Ekki eins mikið og á árunum 1919—1928, enda eru beiðnir um fjárstyrk að likindum teknar upp og ræddar á norrænum sam- starfsfundum, sem urðu regluleg- ir með þátttöku Islendinga eftir að flugsamgöngur bötnuðu. Þau gögn sá ég ekki, þó minnst sé á fjárbeiðniAlþýöuflokksinsá þeim fundum i öðrum bréfum. En án tegund fjárstuðningsins kom mér svo sannarlega á óvart. Fyrrgreindur fulltrúi á ASI-þingi 1954 Kai Nissen samdi „Referat af samtalemed den amerikanske arbejderattache Godtfredsen” i júni' 1954. Þessi „verkalýðsmála- sendifuiltrúi” Bandarikjanna var þá nýkominn úr tveggja mánaðar dvöl á Islandi. Hann hafði áður, árið 1952, dvaiiö á Islandi og er samkvæmt þessari skýrslu vel að sér um átökin innan Alþýðusam- bandsins milli „iýðræðisflokk- anna” og „kommúnista”. I skýrslunni um viðtal Kai Nissen við Godtfredsen segir m.a.: „Godfredsen hefur við fyrri heimsókn til islands fyrir tveim árum útvegað Marshall-peninga, þannig að hægt væri að senda út minniháttar fréttablað frá Alþýðusambandinu og þessihjálp virkarenn (1954).Godtfredsen sá einnig svo um, að „Þrælabúðir Stalins” voru prentaðar og sendar út rétt fyrir Alþýðusam- bandsþing fyrir tveim árum. Hann kannar nú möguleikana á að veita stuðning i gegnum „produktivitetsudvaig” (hvað sem það hefur verið) sem nýlega hefur verið stofnað, þannig að á þann hátt verði mögulegt að veita upplýsingar, sem mikil þörf er á til að koma kommúnistunum á undahald.” Ég get ekki skiliö þessa skýrslu á annan veg en þann að fréttabréf Álþýðusambandsins, er það laut stjórn „lýðræðisflokkanna”, hafi verið kostað af Marshallfé, þaö er úr Mótvirðisjóði. Sama gildir um bæklinginn „Þrælabúðir Stalins” sem sýna átti fulltrúum á ASI- þingi 1952 „hiö rétta andlit kommúnista”. I sömu skýrslu er rætt um möguleikana á því að Alþjóða- samband frjálsra verkalýðs- félaga veitti einhvers konar stuðning til að hindra „valdatöku kommúnista” i ASI 1954, en siðar i annarri skýrslu er sagt að likur bendi til að ASt verði rekið úr alþjóðasambandinu ef það „lúti kommúniskri forystu” eftir ASt-þing 1956. Annars er mikinn fróðleik að finna um stöðuverka- lýðshreyfingarinnar i skýrslum norrænna áheyrnarfulltrúa á ASt- og Alþýðuflokksþingum og virðast þessir fuiltrúar temja sér mjög samviskusamlega skýrslu- gerð um þing sem þeir sitja. Aö iokum ólafur. Finnst þér ekki óeðlilegt að sagnfræðingar séu aö hnýsast I trúnaðarskjöl stjórnmálaflokka frá árunum eft- ir strið? Svona spyr aðeins islenskur blaðamaður! Erlendis gildir viöa súregla að söguleg gögn sem náð hafa 20 ára aldri séu öllum heimil. Þannig ert.d. um opinber skjöl Bandarikjastjórnar. Þess vegna birtust bandarisku leyni- skýrslurnar i fyrra um inngöng- una i Nato og komu hersins. Þetta tel ég vera hina eðlilegu reglu um aðgang aðsögulegumheimildum. Við tslendingar þurfum aö fara aðátta okkur á þvi að við erum nú komin inn á siðasta aldarf jórðung tuttugustu aldar og atburðir kaldastrlðsáranna eru vinsælt rannsóknarefni fyrir fræðimenn. Þvf miður eru rannsóknir á islenskri verkalýðssögu svo skammt á veg komnar, að enn verður þess liklega nokkuð langt að blða að farið verði að gera heildarúttekt á sögu Islenskrar verkalýðshreyfingar eftir seinni heimsstyrjöldina. En fyrst ég minnist á rannsóknir á islenskri verkalýðssögu þá vil ég i lokin leggja áherslu á að ein höfuð forsenda sagnfrææðilegrar rannsóknar er að sögulegum heimildum sé forðað frá glötun. I þeim efnum eigum við mikið ólært. Það er brýnt verkefni að gera þann visi að verkalýðssögu- safni sem MFA hefur komið á fót aö raunverulegusafni. Til þess aö svo megi verða þarf bæði hið opinbera að ljá sliku fyrirtæki lið og verkalýðshreyfingin bæði hin faglega hreyfing og verkalýðs- flokkarnir, að sýna sögu islenskr ar verkalýðsbaráttu meiri ræktarsemi en til þessa. t þvi efni mætti verkalýðshreyfingin taka Samvinnuhreyfinguna sér til fyrirmyndar, sem nú hefur komið á fót sögulegu skjalasafni og lætur semja sögu Sambandsins Ef Verkalýöshreyfingin vanrækir þessaskyldu við þá sem gert hafa hana aö þjó&félagslegu afli, þá er hætt við aö hlutur verkalýös stéttarinnar I islenskri þjóöar sögu 20. aldar veröi ekki metinn aö veröleikum. — ekh I I I I I I |

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.