Þjóðviljinn - 10.06.1978, Síða 3
Laugardagur 10. júnl 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
fólks, sem her,lögregla og hægri-
öfgamenn i þjónustu Videla-
stjórnarinnar hafa myrt, fangels-
aö, pyndaö og látiö „hverfa” á
þeim rúmlega tveimur árum,
sem liðin eru siöan valdarániö
var framiö. Tala hinna myrtu er
um 4000, pólitiskir fangar um
10.000, og hversu margir hafa
horfið sporlaust veit enginn; á-
giskanir um þaö leika á tölum allt
frá 2500 upp i 30.000.
Munur á grannrikjum
Enda þótt varla verði gert upp
á milli Videlastjórnarinnar og
Pinochet-hyskisins i Chile hvaö
illmennsku viökemur, er Argen-
tina um margt ólik grannlandinu
Chile og sama er að segja um
stjórnarfariö i löndum þessum
eftir valdaránin 1973 og 1976. 1
Chile hefur dýrslegur hrottaskap-
ur einræöisins veriö eins opinskár
og framast er hægt aö imynda
sér; stjórnmálaflokkar eru þar
haröbannaöir svo og verkalýðs-
samtök, og öllum þeim, sem
hugsa ööruvisi en valdhafar, er
leitast viö aö litrýma. 1 Argentinu
eru stjórnmálaflokkarnir ekki
beint bannaöir — bara starfsemi
þeirra. Verkalýössamtökin fá
einnig aö vera til áfram, enda
þótt þaö segi sig sjálft aö herfor-
verkföllum, ab miklu leyti gegn
vilja hinnar gömlu peronisku
verkalýðsforustu. Hershöfðingj-
arnir óttuöust, að sósialiskir
flokkar og hreyfingar næöu tök-
um á verkalýðshreyfingunni i
staðhægriarms peronista ogmun
sú hafa verið aöalástæöan til
valdaránsins.
Linkind við stjórnmála-
flokka
Skæruliöar á vegum róttækra
vinstrihreyfinga höföu þá um
skeið látiö nokkuð á sér kræla, en
þeir höföu þegar aö miklu leyti
veriö brotnir á bak aftur er valda-
ránið var framið. Videlastjórnin
hélt herferöinni gegn þeim áfram
og til frekari öryggis lét hún
myröa og fangelsa fjölda fólks,
sem hugsast gæti aö heföi ein-
hverja samúö með byltingarsinn-
um, svo og þá óþægari meðal for-
ustumanna i verkalýösfélögum.
Hinsvegar lét Videla stjórnmála-
flokka þá, sem ekki höföu hallast
aö vopnaöri baráttu, aö miklu
leyti I friði. Ekki einungis hægri-
flokkana.heldurog radikala, sem
eru einskonar miðjuflokkur,
sósialdemókrata og argentinska
kommúnistaflokkinn sem mun
vera nokkuð svo sovétsinnaöur.
Tilraun ógnarstjórnar til
andlitslyftíngar
Þessa dagana stendur yfir i Argentinu heims-
meistarakeppni i knattspyrnu, þeirri iþrótt sem lik-
lega nýtur meiri vinsælda i heiminum en nokkui
önnur. Enda er heimsmeistarakeppnin aðalfrétta-
efni blaða, sjónvarps og útvarps víðast i heiminum
um þessar mundir. Á iþróttafréttasíðum islensku
dagblaðanna sést nú dag eftir dag fátt annan en frá-
sagnir af afrekum knattspyrnukappa i téðu landi á
hinum enda heimsbyggðarinnar. Jafnvel hinar
venjulegu „heimsfréttir” frá Reuter og öðrum
fréttastofum detta alveg i skuggann af knattleikun-
um i Argentinu.
\W„
******
Ekki er ætlun þess, sem þetta
ritar, aö vera meö eitthvert skens
út iíþróttir og þá, sem hafa áhuga
fyrir þeim. Þvert á móti. En meö
iþróttir er það eins og annað gott
að ill öfl geta átt það til aö mis-
nota þær til að breiða yfir glæpi
sina og svinari. Þetta reyndi nas-
istastjórnin þýska eftir bestu getu
meö Ölympiuleikunum i Berlin
1936. Og glæpahundar þeir, sem
stjórna Argentinu, reyna af öllum
mætti hiö sama meö heims-
meistarakeppninni i knattspyrnu.
Segja má aö þetta séu nokkuö
eölileg viöbrögö af hálfu Videla,
forsprakka argentinsku herfor-
ingjaklíkunnar, og kumpána
hans, þvi aö hvergi eöa óviöa i
heiminum er knattspyrnuáhugi
eins gifurlegur og i
Rómönsku-Ameriku. 1969, þegar
landsliö Mið-Amerikurikisins E1
Salvador sigraöist á grannrikinu
Hondúras i heimsmeistarakepnni
i knattspyrnu urðu Salvadorar
svo hressir af sigrinum aö þeir
fóru i striö við Hondúra, sem þeir
áttu ýmsa óuppgerða reikninga
við, að eigin dómi að minnsta
kosti.
Ekkert tii sparað
Argentinska herforingjastjórn-
in hefur gert allt, sem i hennar
valdi hefur staöiö — og raunar
rúmlega þaö — til þess aö heims-
meistarakeppnin yrði henni and-
litslyfting bæöi i augum heimsins
og eigin þegna. Stjórnin hefur
variösem svarar 1.300 miljöröum
islenskra króna til þess aö aug-
lýsa þessa iþróttaviöburöi sem
best og á sem jákvæöastan hátt
fyrir Videlastjórnina. Ekkert hef-
ur verið til þess sparað. Þrir i-
þróttaleikvangar hafa veriö gerö-
ir upp og þrir aörir byggðir upp
frá grunni. 50 miljónum dollara
var varið til byggingar litsjón-
varpsstöövar. Flugvellir voru
stækkaöir, vegir lagöir og end-
urlagðir, nýjum og dýrum hótel-
um hrófaö upp i skyndi og gifur-
lega fjölmennt öryggisíið skipu-
lagt til þess að gæta erlendra
knattspyrnumanna, fréttamanna
og túrista fyrir skæruliöum — og
einnig til þess aö tryggja aö gest-
irnir sjái ekki annaö en það, sem
þeim er ætlaö aö sjá.
Fátækrahverfi
jöfnuð við jörðu
Umhverfis Buenos Aires (sem
Laxness kallar Góöviðru i þýð-
ingu sinni á Birtingi Voltaires) er
giröing af eymdarhverfum, eins
og i kringum svo aö segja allar
stærri borgir I Róm-
önsku-Ameriku. Þau þessara
hverfa, sem næst eru iþróttaleik-
vöngunum, voru rifin til grunna,
til þess aö fréttamenn og tUristar
sæju ekki ósómann. Hvaö gert
var viö ibúa eymdarhverfanna
veit enginn.
Allar likur eru til þess aö þessi
andlitslyftingartilraun Argen-
tinustjórnar beri einhvern árang-
ur. Reiknaö er Ut aö miljaröur
manna um allan heim fylgist meö
knattspyrnuleikjunum i sjón-
varpi, sem gervihnettir miöla, og
er haft fyrir satt aö aldrei fyrr
hafi nokkrir atburðir dregið aö
sér svo marga sjónvarpsáhorf-
endur. Og þessi miljaröur manna
sér varla mikiö annaö en Vid-
ela-stjórnin vill aö hann sjái. Ef
eitthvað sést á skerminum af
Buenos Aires og öðrum argen-
tinskum borgum, veröur þaö eitt-
hvað Ur miöhlutum þorganna,
sem eru til þess ab gera i góbu á-
sigkomulagi. Fólkiö sem sést
verður aöallega millistéttarfólk,
sem er fjölmennt i Argentinu á
rómansk-ameriskan mælikvaröa.
Þetta fólk nær aö visu endunum
varla saman, flest af þvi, en lifir
þó ekki verra lifi en svo aö þaö lit-
ur þokkalega út.
Tugþúsundir myrtra
og horfinna
Annað mál er þaö svo, hvort
Argenti'na hefur efni á þessari
auglýsingamennsku. Veröbólg-
unni þar i landi halda engin bönd
og jafnvel ísland telst land stööug
leikans á þeim vettvangi miöaö
við Argentinu. Frá þvi aö herfor-
ingjarnir rændu völdum i mars
1976 hafa rauntekjur verkamanna
minnkaö um helming hjá sumum,
hjá öörum um tvo þriöju. 4.5%
vinnufærramanna eru skráöir at-
vinnulausir, en talið er aö litiö sé
aömarka þá tölu og að raunveru-
legt atvinnuleysi sé mikiu meira.
Og þaö fer hraövaxandi. Ekki er
enn hægt aö segja aö sultur sé al-
mennur i landinu, en hann fer
vaxandi. HUsaleiga er ennþá háö
veröbindingu, en til stendur aö
gefa hana frjálsa — þó ekki fyrr
en heimsmeistarakeppnin er
gengin um garð. Flestir verka-
menn eruleigjendur, svo aö stór-
hækkuö húsaleiga hlýtur að koma
yfir þá sem reiðarslag.
Tilgangur Argentinustjórnar
meö heimsmeistarakeppninni er
sá, aö fólk um allan heim fái já-
kvæöa mynd af ástandinu i land-
inu, að það gleymi haröstjórninni
þar og vaxandi neyö og viöur-
styggilegri sögu Videla-stjórnar-
innar. Einkanlega er ætlast til að
menn gleymi þeim tugþúsundum
ingjarnir hafa I þeim tögl og
hagldir.
Hrörnun peronismans
Valdarániö I Chile var framið
til aö tortima öflugum og vinstri-
sinnuðum verkalýösflokkum,
sem reyndu aö gera landiö aö vel-
feröarríkiog skeröa yfirráö auö-
stéttarinnar og erlendra — fyrst
og fremst bandariskra — auð-
hringa. I Argentinu var ástandið
fyrir valdarániö þar á margan
hátt öðruvisi. Enda þótt Argen-
tina sé iðnvæddasta land Suö-
ur-Ameriku og stétt iðnverka-
manna þar af leiðandi fjölmenn-
ari að tiltölu viö fólksfjölda en i
nokkru ööru suöuramerisku riki,
voru þar engir sterkir eöa vinstri-
sinnaöir verkalýösf lokkar.
Verkamenn voru lengi flestir per-
onistar, fylgismenn hreyfingar
þeirrar, erPeron forseti og valds-
maöur um langt skeiö kringum
miöja öldina kom á fót. Peron
tryggöi verkamönnum aö visu
bætt kjör, en pólitiskt prógramm
hans var losaralegt mjög og ein-
kenndist fyrst og fremst af lýös-
krumi miklu og hóflausri per-
sónudýrkun á Peron og Evitu
fyrri konu hans. Peron komst i
annað sinn til valda 1973 eftir
langa útlegö, en var þá gamall
orðinn og farinn aö heilsu. Þegar
hann lést árið eftir tók við ónýt
stjórn undir forustu Isabel siðari
konu hans. Efnahagsástandiö fór
þá hriðversnandi. Isabel og gæð-
ingar hennar réðu ekkert viö þaö,
peronistarklofnuðu og misstu óð-
um gamalgróin tök sin á voldugri
verkalýöshreyfingu landsins.
Verkalýöshreyfingin snerist
gegn gifurlegum kjaraskeröing-
um af völdum veröbólgu með
Þessir flokkar viröast hafa grátiö
örlög byltingarhreyfinganna
þurrum tárum. Þeir lifa i voninni
um að herforingjarnir muni um
siðir telja sér hagstætt aö endur-
reisa þingræöiö I einhverri mynd,
og þá vonast þeir vinstrisinnaöri
af stjórnmálaflokkunum liklega
til þess aö geta tekið viö verka-
lýðssamtökunum af þrotabúi per-
onista. Þaðgæti oröið auöveldara
þegar þessir flokkar þurfa ekki
lengur aö óttast samkeppni bylt-
ingarbreyfinganna.
Viðskiptavinir
Þessi linkind við stjórnmála-
flokka á efalaust nokkurn þátt i
þvi aö Videla-stjórninni hefur
tekist að komast hjá þvi aö veröa
alveg eins illræmd og herfor-
ingjaklikan i Chile. Meðal mestu
viöskiptavina Argentinu á versl-
unarsviöinu eru Bandarikin
Brasilia, Vestur-Þýskaland, Jap-
an og Italia. En þaö telst vart til
tiðinda. En Sovétrikin sem harö-
ast allra fordæma ógnarstjórnina
i Chile, hafa nú meiri verslunar-
viöskipti viö Argentinu en nokkru
sinni fyrr. Og sænsk stórfyrirtæki
hafa þar mikil umsvif og raka
saman gróöa.
Sænska Chile-nefndin og fleiri
aöilar beittu sér fyrir þvi, aö
heimsmeistarakepnnin i Argén-
tinu yröi sniðgengin sem mest.
Vonandi ná þær raddir eyrum
einhverra af þeim miljaröi
manna, sem sitja fyrir framan
sjónvarpstækin og fylgjast i
spenningi meö úrslitaleikjum
heimsmeistarakeppninnar.
dþ.