Þjóðviljinn - 10.06.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 10. júni 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
N or ður landamótið
3L i
BRIDGE
Umsjón:
ólafur Lárusson
hefst í
Minning
t vikunni lést ein af okkar
bestu bridgekonum sem um
langt árabil hefur staöið i
fremstu röð. A ég þar við Sig-
rúnu ísa'ksdóttur.
Banamein hennar mun hafa
veriö hægt andlát i svefni. Sig-
rún var nýbúin að sigra sterkt
mót hjá Breiðfirðingum i sl.
viku. Þar sannast aö stórt högg
hefur skamman aðdraganda.
Sigrún var ekkja með hóp
barna sem nú horfa á bak
móður. Við vottum þeim svo og
öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
I hópi barna Sigrúnar eru
kunn bridgenöfn, Ragna ólafs-
dóttir i nv. kvennalandsliði og
tsak ólafsson fv. ungl.lands-
liðsmaður.
Megi minning hennar lifa.
Af blaðamanna-
fundi bridgesam-
bandsins
Sl. miðvikudag var haldinn á
Loftleiöum blaöamannafundur
sambandsins i tilefni Norður-
dag
landamótsins i bridge sSn hefst
á Loftleiðum i dag. A fundinum
kom fram aö setning mótsins
verður kl. 13.00 og mun hr. Ein-
ar Ágústsson utanrikisráðherra
setja mótið.
Fyrsta umferð mun svo hefj-
ast ogeigast við tsland og Finn-
land i karlaflokki og Danmörk
og Noregur.
Sviþjóð situr yfir. I kvenna-
flokkieigast við tsland og Finn-
land og Danmörk og Sviþjóð og i
flokki yngri manna eigast við
tsland og Noregur.
Um kvöldið kl. 20.00 eigast svo
við tsiand og Sviþjóö i karla-
flokki og Finnland — Danmörk.
í kvennaflokki er fri en tsland
situr yfir i yngri ftokknum.
A morgun sunnudag eiga ís-
lendingar fri i karlaflokki um
daginn en leika við Dani um
kvöldið. 1 kvennaflokki eru Is-
land — Danmörk um daginn en
tsland — Sviþjóð um kvöldið. t
flokki yngri manna eiga ts-
lendingar viðSvia um daginnen
Noreg um kvöldið.
Að öðru leyti visast til dag-
skrár sem liggur frammi á Loft-
leiðum. Yfirkeppnisstjóri á
mótinu er fenginn sérstaklega
frá Danmörku og er það hinn
góökunni Svend Novrup. Hann
hefur verið með islensku
keppnisstjórana á námskeiði
undanfarna viku og er óhætt að
segja að hann kann sitt fag.
Honum til aðstoðar á mótinu
verða Agnar Jörgenson, Alfreð
Alfreðsson, Guðmundur Kr.
Sigurðsson og Skafti Jónsson.
Ritstjórifréttablaöser Jakob R.
Möller og ritstjóri mótsskrárer
Páll Bergsson.
Að framkvæmd þessa móts
starfar fjöldi manna og allt að
sjálfsögðu i sjálfboðavinnu.
Kostnaður er gifurlegur við mót
þetta og er ekki útséð hvernig
mæta á þeim útgjöldum sem
blasa við.
Lið tslands eru þannig
skipuð: Karlalið, Jón Hjaltason
fyrirl., Guðl. R. Jóhannsson,
Orn Arnþórsson, Guðm. Péturs-
son, Karl Sigurhj.son, Jón As-
björnsson og Simon Simonar-
son.
Kvennalið: Vilhjálmur
Sigurðsson fyrirl. Halla Berg-
þórsdóttir, Kristjana Stein-
grimsdóttir, Esther Jakobsdótt-
ir, Ragna ólafsdóttir, Guðriöur
Guðmundsdóttir og Kristin
Þórðardóttir.
Lið yngri manna: Sverrir Ar-
mannsson fyrirl., Guðm. Páll
Arnarson, Egill Guðjohnsen,
Haukur Ingason, Þorlákur
Jónsson, Sigurður Sverrissonog
Skúli Einarsson.
Mjög góð aðstaða verður fyrir
áhorfendur á mótinu og verður
sýnt á „rama” sem er mjög að-
gengilegt, jafnvel fyrir byrj-
endur. Allt áhugafólk um bridge
er hvatt til aö mæta og fylgjast
með toppnum i skandinaviskum
bridge. Aðgangseyrir er kr. 500
á umferð, án „rama-sýningar,
en kr. 700þegarsýnter á rama.
Auk landsliða mun af tslands
hálfu spila i flokki yngri manna
gestalið sem skipað er „kandi-
dötum” til landsliðs. Þeir sem
það skipa eru: Guðmundur S.
Hermannsson, . Sævar Þor-
björnsson, Jón Baldursson,
Ólafur Lárusson, Páll
Valdimarsson og Skafti Jóns-
son.
Þetta lið mun leika 2 leiki við
Sviþjóð og Noreg i flokki yngri
manna.
Um mótið sjálft má segja að á
þappirnum eru Danir mjög
sterkir i karlaflokki og liklegir
sigurvegarar, þó lið Noregs sé
einnig sterkt. I kvennaftokki eru
Sviar með geysisterkt lið svo og
Danir og Finnar. t flokki yngri
manna eru Sviar og Noregur
með 2 af 5 bestu liðum i heimi
svo ekki veröur árennilegt aö
etja kapp við þá.
En bridgeiþróttin er gædd
þeim undraveröum töfrum að
bókstaflega allt getur gerst i
bridge. Svo þessvegna vonumst
við til að tsland standi sig og nái
árangri.
Til fróöleiks
Fyrir þá sem koma og horfa á
mótið er þetta vert að hafa i
huga:
1. Spiluð eru sömu spil á öllum
borðum, svo áhorfendur verða
að vera varkárir, er þeir ganga
um opna salinn og horfa á.
2. Að góö aöstaöa er fyrir
hendi til að horfa á sýningar-
töflu (rama). Þarerumenn sem
útskýra gang mála.
3. Að gefið er út sérstakt
fréttablað á mótinu, meðan á
þvi stendur. Einnig eru gefin út
mótsskrá þar sem itarlegar
upplýsingar eru um ýmislegt er
varðar sjálft mótið.
4. Vert er, að áhorfendur veiti
athygli þeim merkjum sem all-
ur mannskapurinn á mótinu er
skrýddur með.
Hver litur táknar ákveðið
verksvið t.d. keppandi, keppnis-
stjóri, fyrirliði eöa mótsstjórn
eða blaðamaður.
Framkvæmdanefnd Krabbameinsfélags tslands: Hjörtur Hjartarson forstjóri, gjaldkeri, ólafur
Bjarnason prófessor, formaður, Jónas Hallgrimsson yfirlæknir, ritari.
Krabbameinsfélag Islands
Árangursríkt starf
Aðalfundur Krabbameinsfélags
islands var haldinn 5. mai s.L, i
Reykjavik, Auk stjórnar mættu á
fundinn 15 fuiltrúar frá 10
krabbameinsfélögum.
t skýrslu formanns stjórnarinn-
ar, ólafs prófessors Bjarnasonar,
kom fram, að starfsemi félagsins
undanfarin ár hefur einkum
beinst að þremur verkefnum:
krabbameinsleit, frumu-
rannsóknum og krabbameins-
skrá n ing u a uk f ræðslust ar fs em i.
Við hópskoðanir áriö 1977 voru
greindar 22 konur meö krabba-
mein i brjósti, tvær með legháls-
krabba og 2 meö krabbamein i
eggjakerfi. Þrettán konur voru
greindar meö staöbundið krabba-
mein i leghálsi en aöeins 3 með
ifarandi krabbamein. Legháls-
kraggameinið er greinilega á
undanhaldi hérlendis. Til sam-
anburðar má benda á
að 1975 og 1976 voru greind-
ar 12 konur annað árið og
13 hitt árið með þennan sjúk-
dóm. Þegar tiðni þessa sjúkdóms
var hæst hér á landi, 1968, voru
greindar 34 konur meö legháls-
krabbamein. Dánartalan hefur
einnig lækkað i 5 á ári 1975—1976
úr 13 á ári 1965—1969. Engin
þeirra þriggja kvenna, sem
greindar voru á árinu 1977, höfðu
mætti tilhópskoöana áður. Það er
þvi mjög mikilvægt aö ná til
þeirra kvenna, sem aldrei hafa
mætt.
Þar sem tiðni br jóstkrabba fer
ört vaxandi er til athugunar aö
auka mjög leit að þvi svo greina
megi þaö sem oftast á byrjunar-
stigi.
Milli 12 og 13 þús. frumusýni
voru rannsökuö á árinu, flest frá
leghálsi kvenna en sýnum frá
öðrum liffærakerfum, sem
rannsökuö eru, fer ört fjölgandi.
A árinu var i fyrsta skipti þjálfaö
hér á landi fólk, til aö starfa að
frumurannsóknum, tvær stúlkur,
sem Gunnlaugur Geirsson, yfir-
læknir þjálfaöi. Kennslusmásjá,
sem Kiwanisklúbburinn Hekla
gaf, gerði þessa þjálfun mögu-
lega. Fleiri gööar gjafir hafa bor-
ist félaginu.
Magakrabbameinið er nú ekki
oröiö algengasta krabbamein á
tslandi heldur brjóstkrabbinn,
samkv. þvi, sem krabbameins-
skráningin sýnir. Magakrabbi hjá
körlum og konum er samanlagt
fátiðari en krabbi i brjóstum
kvenna.
Krabbameinsskráin hefur haft
nána samvinnu við ýmsa aöila,
innlenda og erlenda og notiö
veruiegs visindastyrks frá hinum
erlendu stofnunum.
Krabbameinsfélagið hefur nú i
aldrarfjórung gefið út Fréttabréf
um heilbrigöismál. Kemur það nú
út i nýjum búningi og hefur
áskrifendum fjölgað mjög.
Hinn árlegi fundur krabba-
meinsfélaga á Noröurlöndum
veröur haldinn i Reykavik 20. júní
n.k. Hinn 21. júni veröur haldið i
fyrsta skipti hér á landi visinda-
mannaráðstefna i tengslum viö
slikan fund og verður þar einkum
fjallað um erfðir og krabbamein.
Á ráðstefnunni veröa 20 fyrir-
lestrar, islenskir og erlendir,
Framhald á bls. 18.
Tökum að okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
Trésmíðaverkstæðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613
• Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
phyris
snyrtivörurnar
verða , sifellt vinsælli.
phyris er húðsnyrting
og hörundsfegrun með hjálp
blóma og jurtaseyða
phyris fyrir viðkvæma
húð
phyris
fyrir allar
húðgerðir
Fæst í helstu snyrtivöruversl-
unum og apótekum.