Þjóðviljinn - 10.06.1978, Síða 14

Þjóðviljinn - 10.06.1978, Síða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. júnt 1978 Listahátfð I Reykjavík rhár\ r%£\ rkár\ ^jt\ rAár\ rhár\ rh£\ r%£\ r%£\ rhárx r%£\ cQ Ö> <CÞ O Ö) O Q) <Q) <0 <Q) <Cp ^Pfy <Jf> <K> vjrty '— Barney McKella; llkur blóðlötum bangsa Luke Kelly; ef forsetinn grefur nógu John gheahan; djlípt... flanto c o m fSAI' flauta sem fiðla léku honum i höndum (Ijósm. Leifur) DUBLINERS I LAUGARDALSHÓLL: Jim McCann syngur um ástæður fyrir þvi að Paddy kemst ekki i byggingarvinnuna I dag Þjóðleg hátíð írsk (rski flokkurinn the Dubliners fór langt með að fylla Laugardalshöll- ina á fimmtudagskvöld og allt frá því að þeir komu inn og hituðu sig upp með keltneskum danslögum skapaðist milli þeirra og áheyrenda hið rammasta samband, sem á stundum ætlaði að verða of innilegt: á mað- ur að klappa og stappa eða heyra og hlusta? Þaö hefur réttilega verið tekið fram, að tónlist af því tagi sem Dýflinarmenn flytja nýtur sin betur I smærri húsakynnum og má gjarna vera ölkrús á borði og önnur skemmtileg þægileg- heit. Það gat hugsanlega oröiö nokkuð erfitt að fylla þennan sportgeim sem Laugardalshöll- in er — til dæmis með litilli flautu og gltar. En þetta gekk ljómandi vel og hrifningin var mikil. Dýflinarmenn fara ákveðinn hring i lagavali sinu. Þeir koma allir saman og beita Luke Kelly fyrir sig i forsöng þegar farið er meö gamla uppreisnarsöngva (t.d. Rising of the Moon) eöa drykkjusöngva (TheWild Rover sem Jónas Arnason hefur gert við islenskan texta). Þá er spurt eftir hressileika fyrst og fremst, krafturinn situr i fyrirrúmi, þaö á að rffa mannskapinn upp úr sætunum. I annan stað kemur Jim McCann i hlutverk forsöng- vara — bæði i lögum skyldum þeim sem nú voru nefnd og svo i angurværari söngvum eins og Four Fields, sem eru hinir fjórir hlutar Irlands sem aðkomu- menn vilja sundur slita. Eöa þá i gamansöngvum eins og i af- sökunarbeiðni Paddys — af hverju hann kemst ekki til vinnu i dag. 1 þriðja lagi fara þeir meö dansstef frá Hjaltlandi, Skot- landi og írlandi, reels og jigs — þar er John Sheahan kominn meö flautu eða fiðlu eða þá Barney McKenna sem litur út eins og vinsamlegur en blóðlatur skógarbjörn, en er engu að sið- ur svo lipur og fljótur og örugg- ur á banjó og mandólin að undr- un sætir. Og það er lika fariö með fangelsissöng eftir Brendan Behan, afmorsvisur, verkamannavisur og ýmislegt fleira. 1 allri framgöngu tranna á sviðinu var vel vakandi sjálf- sögö kæti yfir þvi að vera til, verkleg viðurkenning á þvi, að illt er að kunna ekki aö bregða á leik. Aður en þessu lýkur er rétt að hæla sérstaklega Jim McCann, hann bæði söng ljómandi smekklega og lét allan undirleik mæða á sér i danslögum og fann á þeim vanda góðar lausnir. AB. úr markteignum Það hefur orðið að samkomulagi milli mín og ritstjóra íþróttasíðu Þjóðviljans að ég ritaði vikulega greinar tengdar knattspyrnulífinu í land- inu. Þar sem mikill tími fer í æfingar og keppni hjá okkur sem stöndum í víglínunni og margir leik- ir eru leiknir á sama tíma munu greinar þessar ekki fjalla mikið um einstaka leiki mótsins.heldur meir um mál sem upp koma í sambandi við það. Þó ætla ég að reyna að fylgj- ast með sem flestum leikjum til að geta f jallað um lið og leikmenn á sem sanngjarnastan hátt. Hins vegar mun ég ekki skrifa um leiki og frammistööu leik- manna i þeim leikjum sem ég ekki sé, þó svo margir iþrótta- fréttaritarar hafi gert sig seka um þannig blaðamennsku. tþróttafréttaritararnir, þeir eru nú kapituli út af fyrir sig. Það eru ekki ýkja ábyrg skrif SIGURÐUR HARALDSSON SKRIFAR sem hafa komið fram á iþrótta- siðum dagblaðanna um leiki i 1. deildar keppninni. Fyrirsagnir hafa verið eintómar upphrópan- ir um léiega, ömurlega og hlægilega leiki. I greinunum um þessa leiki er siðan ekkert nema skætingur og sleggjudómar út i liðin og spurningar um hvað menn séu að gera 5 sinnum i viku á æfingum, fyrst betri ár- angur skili sér ekki. Ekki hef ég enn séð neinar ábendingar hjá i- þróttafréttariturum um hvaö megi betur fara. Jú, eina hef ég séð, það var herra SOS sem benti forráða mönnum FRAM og IBV á að ef ekki ætti illa að fara yrði aö yngja þessi lið upp. Greinin var öll full af skæting og dylgjum og bar það með sér að SOS hafði ekki kynnt sér málið til hlýtar, þvi meöal annars benti hann á aö IBV-liöiö væri hægt að yngja upp meö ákveðnum leikmanni, en þegar fæðingarár leikmanna voru rannsökuð kom i ljós að þessi ákveðni maður var næst- elstur i hópnum! Hins vegar gleymdi SOS þvi að fyrir nokkrum árum sendi IBV ekki yngriflokka i Islands- mótiö vegna óviðráðanlegra at- burða, og gæti það kannski haft áhrif á yngingu á annars tiltölu- lega vel blönduöu liöi. Við Valsmenn áttum aö fara til Vestmannaeyja um siðustu helgi, en þar sem ekki gafst flug kl. 2 á laugardag var einhverra hluta vegna leiknum frestað um óákveðinn tfma. En oft er það þannig I Eyjum að veörið er fljótt að breytast og kl. 4 hefðum við komist til Eyja, en þá var engin mótanefndarmaður til staöar sem hægt var aö ná i. Aö vonum eru Eyjamenn óhressir meö framvindu þessa mála þvi þetta er i annað sinn nú i sumar sem þetta kemur fyrir. Hitt skiptið var þegar .FH átti að fara til Eyja miövikudaginn 31/5. Þá var leiknum sem leika átti ki. 20.00 frestað kl. 18.30 þó svo aö bliöskapar veöur væri i Eyjum um kvöldmatarleytið. Augljóst er, að mótanefnd verð- ur að nafa mann á vakt þegar leika á i Eyjum og vera i stöö- ugu sambandi við aðila leiksins en ekki haga vinnubrögðum sin- um þannig að leita þurfi út um allar trissur að einhverjum úr nefndinni, til að vita hvernig málin standa. Þegar ákveðiö var að ekkert yrði af leiknum 'fór ég ásamt Mr. Nemet þjálfara okkar Vals- manna og Einari Friöþjófssyni vini minum úr IBV suður á Kaplakrika til að sjá leik FH og IA. Veðrið sem veðurguðirnir buðu upp á var aldeilis ófor- svaranlegt og ekki nokkur leið aö sýna góða knattspyrnu við slikar aðstæður. Leikurinn einkenndist lika af villum sem leikmenn hefðu ekki látið henda sig við betri aöstæður. Sérstak- lega var FH-vörnin veik, enda einkennileg ráðstöfun hjá þjálf- ara liðsins að setja tvo sterkustu varnarmenn liðsins fram á völl- inn gegn Akranesi. Þó að FH hafi leikið á heima- veili hlýtur öllum að vera ljóst að FH ætti að leika varnarleik gegn IA, einfaldlega vegna þess að liö IA er mun sterkara en FH. Ég er alveg ósammála þeim mönnum sem segja að knatt- spyrna sé ekki skemmtileg fyrir áhorfendur ef leikinn er varnar- leikur; skynsamlega leikinn varnarleikur á móti sterkara libi getur boöið upp á skemmti- legan leik. Það verður FH-liðið sem veröur næsti mótherji okkar Valsmanna,og þó þeir hafi tapað tveim siöustu leikjum sinum stórt, verða þeir okkur örugg- lega ekki auðveld bráð. 1 FH-liöinu eru 3—4 mjög sterkir einstaklingar, og haldi þjálfari liösins rétt á spilunum getur FH unnið hvaða lið sem er á Islandi. Nú, það eru ýmsir sem hafa verið að leika sér að spá fyrir um úrslit leikja á mótinu.og hér kemur min spá fyrir fimmtu umferð: ÍA-Fram 2-1 Breiöabl.-Keflav. 0-0 Þróttur-ÍBV 1-4 KA-Víkingur l-l

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.