Þjóðviljinn - 24.06.1978, Side 12

Þjóðviljinn - 24.06.1978, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 24. júnl 1978 Það er ekki þrautalaust — að fá það sem maður á rétt á Aö undanförnu hafa æ oftar borist til blaösins kvartanir frá fólki sem telur sig órétti beitt vegna rangs örorkumats. 75% örorka (hæsta örorka) er nú metin á 44.400 kr, en tekjutrygg- ing (fari tekjurnar ekki fram úr ákv. upphæö) eru 39,706 kr. fyrir einstakling. Dæmist örorka undir 50% eru ekki greiddar örorkubætur, en sé örorkan 50—74% er heimilt aö greiöa örorkustyrk meö tilliti til efnahags ofl. Auk þess sem fariö er aö endurmeta örorku i rikara mæli, hafa borist margar kvart- anir þar sem fólk telur aö iækk- un á örorkumati sé alltof oft til- viljanakennd. Þarf fólk siöan aö ganga I gegnum flókiö og seinvirkt kerfi til aö fá leiörétt- ingu mála sinna, en ekki eru all- ir sjúklingar vel I stakk búnir undir þá baráttu. Reynir þá ekki sist á dugnaö og áhuga þeirra lækna sem sjúklingurinn hefur. Örorkubætur húsmæöra hafa einnig veriö gagnrýndar eins og fram kemur hér á siöunni, svo og hiö flókna reglugerðarkerfi, sem greiöslur almannatrygg- inga á lyfjakostnaði falla undir. Viö leituöum til nokkurra aðila sem þessi mál snerta og eru viötöl viö þá hér á siðunni. Tekiö skal fram aö tryggingar- yfirlæknir, Björn önundarson, gat ekki gefið sér tlma til viötals. „V erður ekki leyst nema með samstarfí þeirra stétta sem um þetta fjalla” Hvað er örorkumat og hver framkvæmir þaö? Viö veröum fyrst aö lita á, hvaö almannatryggingar eru. Lög um almannatryggingar voru sett til þess aö tryggja öll- um þegnum þjóöfélagsins fram- færslueyri, þó aö vinnugeta skerðist vegna elli, sjúkleika, slysa o.s.frv. örorkubætur skulu tryggja þeim, sem misst hafa vinnugetu vegna sjúk- dóma, viðunandi lifsviöurværi fvrir sig og slna. örorkumat er mat á þvi, hversu mikið vinnugeta sjúkl- ings hefur skerst af völdum sjúkdóms eða slyss. Það fram- kvæmir tryggingayfirlæknirinn i Tryggingastofnun rikisins með segir Guðrún Helgadðttir, deildarstjóri í Tryggingastofnun aðstoð tveggja iækna. Trygg- ingayfirlæknir er nú Björn önundarson. Auk hans er Jón Guðgeirsson, en staða hins er laus og hefur verið auglýst. Er örorkumat einungis læknisfræðilegt eða er það lika félagslegt? Eins og 12. greinin i almanna- tryggingalögunum ber með sér, er sterkur félagslegur þáttur i örorkumati. Það skal sem sagt meta, að hve miklu leyti sjúkl- ingur hefur misst möguleika á tekjum vegna sjúkdómsins, sem hann annars hefði getað haft ,,i þvi sama héraði við störf, sem hæfa likamskröftum þeirra og verkkunnáttu og sanngjarnt er að ætlast til af þeim, með hlið- sjón af uppeldi og undanfarandi starfa,” eins og segir i lögunum. Skýrara getur það ekki verið. En lagagreinar eru eitt, fram- kvæmdin annað. Endurhæfing- armál, atvinnumál og önnur mál öryrkja eru ákaflega frumstæð hjá okkur, svo að erf- itt er að tala um þessa hluti af nokkru viti. Samvinna Endur- Guörún Helgadóttir, deildarstjóri. hæfingarráðs og Trygginga- stofnunar er t.d. allt of litil. Það er t.d. til litils að segja viö roskna konu sem unnið hefur i frystihúsi alla ævi og verður að Framhald á bls. 22 „Hafði fengið endan- legt mat um 75% örorku” — segir örorkuþegi, sem skyndilega var lækkaöur i 65%, svo unnt væri aö tengja bæturnar tekjum Einn af þeim örorkubótaþeg- um, sem viö ræddum viö um þetta mál, og vill ekki láta nafns sins getiö, sagöist hafa veriö búinn aö fá endanlega metna 75% örorku. Þessi maður vinnur andleg störf og hafði nokkrar tekjur á siðasta ári. Er þá gripið til þess að lækka örorku hans i 65% án þess að um nokkurn bata sé að ræða, til þess að unnt sé að tengja bæturnar tekjunum. Maður þessi sagði að fyrir- sjáanlegt væri að hann myndi hafa mjög litlar tekjur á þessu ári, og þvi væri broslegt að álita að starfsgeta hans hafi aukist, þótt tekjurnar væru eitthvað hærri eitt ár en annað. „Æ harðar gengið eftir að sjúklingar greiði sjáifir lyf sín” „Jú, þvi er ekki aö neita aö viö höfum oröiö vör viö tilhneigingu I þá átt aö lækka örorkubætur hjá siúklingum, án þess aö úm bata sé aö ræöa. Þetta væri I sjálfu sér ekki óeölilegt, ef um væri aö ræöa fólk sem væri aö fá aukiö starfs- þrek og á leiö út á vinnumarkaö- inn. Oft hefur okkur fundist aö þetta væri óréttlátt og hefur þá stundum tekist aöfá þetta leiörétt hjá Tryggingastofnuninni.” sagöi Guösteinn Þengilsson, læknir, þegar viö ræddum viö hann um örorkumatiö. Sagöi hann enn- fremur aö hann geröi ráö fyrir aö þetta stafaöi af minnkandi fjár- veitingu til öryrkja. Vegna vax- — segir Guð- steinn Þengilsson, læknir__________________ andi veröbólgu hefur kaupmáttur bótanna einnig lækkaö verulega. Hvað snertir endurhæfingu ör- orkuþega sagöi Guösteinn að end- urhæfing væri mjög háð því hvers eölis örorkan væri. Engin endur- hæfingarstofnun er áf vegum Tryggingastofnunarinnar, og i Kópavogi hefur ekki tekist að koma upp endurhæfingarstöö vegna fjárskorts. Við höfum misst tvo sjúrkraþjálfa, vegna þess aö stööin er ekki komin upp. Hér eru þvi litlir möguleikar á endurhæfingu sjúklinga og er þaö ákaflega slæmt.” sagöi Guö- steinn. Varöandi lyfjakaup sjúklinga staöfesti Guösteinn ennfremur aö nú væri æ gengið haröar eftir þvi að sjúklingar greiddu lyf sin sjálfir, en áður var þetta metiö aö nokkru eftir tekjum manna. „Þar að auki er ýmislegu ábóta- vant i lögunum um lyf jagreiöslur fyrir sjúklinga; þvi t.d. falla sum blóöþrýstingslyf undir sjúkra- samlag og önnur ekki”, sagöi Guösteinn ennfremur. þs. Guösteinn Þengilsson, læknir. „Undir hælinn lagt hvort fólk treystir sér í gegnum kerfið” segir Jón Björnsson, félagsmálastjóri á Akureyri Jón Björnsson, félagsmála- stjóri á Akureyri, sagöi, er viö spuröum hann hvort hann hefði oröið var viö aö örorkumat væri lækkað hjá örorkubótaþegum á Akureyri, að nú væri fariö aö herða á örorkumati og endurmeta I æ ríkara mæli svokallaö endan- legtörorkumat. Sagði Jón að fólk heföi snúið sér til félagsmálastofnunar Akureyr- ar með slik dæmi, og hefur stofn- unin kostað fólk i sumum tilfell- um til Reykjavikur til að reyna að fá þetta leiðrétt. Jón sagði að mikið skorti á endurhæfingu, en þótt veruleg bót sé að likamlegri endurhæfingastöð Sjálfsbjargar á Akureyri, vantar það eins og við- ar verndaða vinnustaði og fjöl- þættari endurhæfingu. „Það sem skiptir þó kannski einna mestu máli, er að ákvæði tryggingarlög- gjafarinnar um bætur og annað séu skýr og einföld, svo að fólk Jón Björnsson, félagsmálastjóri. geti áttað sig á þvi á hverju þaö á rétt, og þurfi ekki að fara i gegn- um flókið kerfi til að ná fram rétti sinum. Stundum er llka eins og örorkumat sé lækkað hjá örorku- þegum af handahófi, og þá treyst á að þeir sem eru i raunveruleg- um erfiðleikum muni leita réttar sins og fá matið leiðrétt aftur.” Það er svo undir hælinn lagt hvort fólk gerir það. Oft þarf fólk að ganga hart eftir þvi.og riður þá á aö læknir viðkomandi sé nógu á- kveðinn i málinu. Það er þvi eng- an veginn tryggt aö þeir sem í mestum vanda eru, treysti sér til að standa i þessu,” sagöi Jón enn- fremur. þs. „Giftar konur metnar lægra” en aörir” segir Petra Ingólfsdóttir „Ég Ht fyrst og fremst á þetta sem mannréttindamál, upphæöin sem sllk skiptir ekki máli. Ég hef unniö úti frá þvi ég var 14 ára gömul og borgaö mina skatta og ég er ekki sátt viö þá afgreiöslu sem ég hef fengiö” sagöi Petra Ingólfsdóttir, en hún er 52ja ára gömul, hefur fengið kransæöa- stiflu og getur nú ekki unniö. Hennar örorka var metin 65% og fær hún engar bætur, þar sem maður hennar haföi rúmar tvær miljónir I tekjur. „Ég hef reynt að fá þetta leið- rétt og mér var sagt að af þvi aö ég væri gift þá fengi ég örorkuna aðeins metna á 65%. Mér var sagt að starfskraftur konu nýttist á heimilinu, þótt hún væri örorku- þegi og aö það væri prinsip að meta giftar konur aðeins 65% ör- yrkja, þótt þær gætu ekki unnið neitt. Mér finnst ég vera svipt einstaklingsrétti með þessu og ég get ekki séð að ég sé minna veik þótt ég sé gift. Mér var sagt að það væri litið öðru visi á þetta ef um karlmenn eða ógiftar konur væri að ræða, og það sætti ég mig ekki við. Ég hef sent inn annað ör- orkuvottorð og hef ekkert svar fengið við þvi” sagði Petra enn- fremur.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.