Þjóðviljinn - 07.07.1978, Síða 5
Föstudagur 7. jiili 1978 .ÞJOÐVILJINN — StÐA 5
MELCHIOR
Fj órar
frábærar!
UNDRAHATTURINN
Ási í Bæ syngur eigin Ijóð og lög í útsetningum
Karls Sighvatssonar. Frábær sveifluplata.
Þessi hressi hópur f jórtán og fimmtán ára stráka er frá Vinnuskóla Kópavogs;
þeir litu viöá Þjóöviljanum i fyrradag og vildu vita hvernig dagblað verður til.
Með þeim er kennari þeirra, Guðrún Jónasdóttir (Ijósm. eik).
ÖSKUBUSKA
Bræöraborgarstíg 16 Pósthólf294 Sími 12923-19156
Bráðskemmtileg hljómplata með lögum úr
leiksýningu Þjóðleikhússins. Smellnir textar
Þórarins Eldjárns við tónlist Sigurðar Rúnars.
SILFURGRÆNT
ILMVATN
Lifandi og frumleg plata með Melchior.
Óvenjuleg tónlist nýrrar kynslóðar.
Þing norrænna barna- og unglingabókahöfunda:
Börnín ofurseld
voldugum idnaði
Dagana 17.-22. júni var haldið 8.
þing norrænna barna- og ung-
lingabdkahöfunda i Uddevalla I
Sviþjóð. Þingið sóttu rúmlega 100
rithöfundar, bókaverðir, gagn-
rýnendur, útgefendur og dag-
skrárstjórar barnaefnis hjá
norrænu útvarpsstöðvunum. Frá
islandi vor fjórir þáttakendur:
Jenna Jensdóttir og Vilborg Dag-
bjartsdóttir frá Rithöfundasam-
bandi íslands, Gunnvör Braga
Sigurðardóttir frá Rlkisútvarpinu
og Silja Aðalsteinsdóttir cand.
mag., sem flutti fyrirlestur um
þýddar bækur og hlutfallið milli
þeirra og innlendra barnabóka á
islandi.
Aðalmál þingsins var erfið
samkeppni norrænna barna- og
unglingabókmennta við afþrey-
ingariðnaðinn. Það var fullyrt aö
fjöldi barna og unglinga á Norö-
urlöndum ætti litinn eða alls eng-
an aðgang að góöum bókmennt-
um. Margir þeirra læsu einungis
afþreyingarbækur, hasarblöð og
sem eingöngu
stjómast af
gróöasjónarmiðum
sorprit. Börnin eru ofurseld vold
ugum iönaði sem aftur lætur
stjórnast af gróðasjónarmiðum
eingöngu.
Þingið krafðist, að stofnaö yrði
tíl vísindalegra rannsókna á á-
hrifum skemmtiiðnaðar og fjöl-
miðla á börn með hliðsjón af
Mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna og öðrum alþjóö-
legum yfirlýsingum um rétt
barna.
Þá voru samþykkt hörð mót-
mæli gegn áformum um norræn-
an sjónvarpsgervihnött. Danir og
Norömenn hafa mjög slæma
reynslu af sjónvarpi yfir landa
mærin, og þingiö krafðist þess að
stjórnvöld létu nú þegar rannsaka
hver áhrif þaö hefur á norræn
börn að horfa á sjónvarpsefni
sem va rpað e r yfir land þeirra frá
erlendum stöðvum. Einnig var
farið fram á að menningarleg á-
hrif gervihnattarins yröu tekin til
umræðu áður en farið væri að
ræða lögfæðilega og efnahagslega
hlið málsins.
Þingið ályktaði að norræni
sjónvarpsgervihnötturinn kæmi
frekar til með að þjóna fjölþjóöa-
auðhringum en norrænni menn-
ingu. Tilkoma hans myndi draga
úr frumkvæöialmennings og hafa
óæskileg félagsleg áhrif. Einkum
var lögð áhersla.á þau ógnvæn-
legu áhrif sem hánn hefði á þann
stórahluta IbUa Norðurlanda sem
eru börn. Ennfremur var ítrekað
hve skaðlegur hann yrði fyrir
menningu frumþjóða á Noröur-
löndum, Sama og Grænlendinga,
og smáþjóða eins og Færeyinga
og Islendinga.
Börn eiga rétt á menningu.
Börn eiga rétt á bókmenntum.
Samfélagiö ber ábyrgð á börnun-
Þing Norræna
Rétta þarf hlut leik-
ritahöfunda
og auka stuðning við frjálsa leikhópa
Síðustu vikuna I maí var hald-
ið I VASA I Finnlandi 14. þing
Norræna leiklistarsambandsins,
en þing þessi eru haldin annað
hvert ár. Hátt á annað hundrað
manns söttu þingið, leikhús-
stjórar, leikritahöfundar, leik-
arar, leikstjórar o.fl. þar á með-
al 6 fulltrúar frá tslandi. Að
þessu sinni var einkum fjallað
um stöðu leikritahöfunda og
tengsl þeirra við leikhúsin. Var
rætt um þetta efni I umræðu-
hópum og á stórfundum, þar
sem leikritahöfundar frá öllum
Norðurlöndum kynntu sjónar-
mið sin I framsöguerindum.
Meðal framsögumanna á
þinginu var formaður Félags is-
lenskra leikritahöfunda, örnólf-
ur Arnason.
í lok þingsins voru sam-
þykktar ýmsar ályktanir, þar
sem lýst var yfir stuöningi við
leikritahöfunda og Itrekuö sú
skoöun þingfulltrúa að leikrita-
höfundum yrðu veittir mögu-
leikar á auknum tengslum viö
leikhúsin, ýmist með fastráðn-
ingu eða á annan hátt. I álykt-
unum þingsins er m.a. mælst til
þess að leikritahöfundar eigi
kost á leiklistarmenntun til jafns
við annað leikhúsfólk. Þá var
lýst yfir samstöðu með finnsk-
um leikritahöfundum, sem virð-
ast fjárhagslega verst settir af
norrænum höfundum og bent á
leiðir til úrbóta. Þingið lýsti yfir
eindregnum stuðningi slnum við
starfsemi frjálsra leikhópa og
skoraði á yfirvöld að auka fjár-
hagsstuöning til slikra hópa og
var f þvi sambandi bent á þá
möguleika, sem þessi starfsemi
veitti leikritahöfundum. Sam-
þykkt var að skora á Norrænu
leiklistarnefndina, sem veitir
styrki til gestaleikja, að láta
norræn nútimaleikrit jafnan
njóta forgangs við styrkveit-
ingar og þá ekki siöur barna-
leikrit en önnur verk. Þingið
lýsti yfir stuðningi slnum við þá
ósk leikritahöfunda að fá sjálfir
að ráðstafa ákveðnum hluta
þess fjár sem ætlað er til
norrænnar framhaldsmennt-
unar á sviöi leiklistar. Segja
má, aö allur vilji þingsins hafi
beinst að þvi að bæta aðstööu
leikritahöfunda og veita þeim
starfsaðstööu og kjör til jafns
við aðra fasta leikhússtarfs-
menn.
Stjórn Norræna lciklistar-
sambandsins var endurkjörin á
þinginu. Formaður sambands
ins er Björn Lense Möller frá
Danmörku. en varaformaður,
Sveinn Einarsson, þjóðleikhús-
stjóri.
I tengslum við þingið var
haldinn fundur Norræna leik-
stjórasambandsinsog var Ritva
Siikala frá Finnlandi endurkjör-
in formaður.
Akveðið var að næsta þing
Norræna leiklistarsambandsins
veröi haldið i Gautaborg vorið
1980.