Þjóðviljinn - 26.07.1978, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 26. júli 1978
NOTAÐ
o-HVTT
Gledilegt er aö
blada í blaði mínu
Ég hefi alltaf verift feginn þvi,
aö ungir menn halda vöku sinni,
hvaö sem öllu moldviöri liöur i
heiminum. Þvi var mér þaö sér-
stakt ánægjuefni, að sjá aö vinir
minir, ungir Sjálfstæöir menn,
hafa nú sent frá sér skorinorða
ályktun um mannréttindabrot
Rússa og er sú góöa visa sjaldan
of oft kveðin.
Óhæfur samanburður
Auðvitaö veit ég, aö meöal
kommanna og ýmiss sænskulit-
aðs frjálslyndisfólks veröa nú
sem endranær uppi raddir um aö
það sé ekki nóg aö fordæma
Rússa, þótt vondir séu (enginn
þorir að neita þvi lengur nema
MFIK), það verði lika að muna
eftir þeim fjölda manna sem er
barinn og illa haldinn i dýfliss-
um herforingjastjórna i Suöur-
Ameriku.
Nú er ég aö sönnu mannúöar-
sinnaður og vill að öllum liði vel.
En eins og islensk kona, búsett I
Brasiliu, sagði i viðtali i
Morgunblaöinu minu fyrir
nokkrum mánuöum, þá er ekki
unnt aö gera svo öllum liki, og
menn veröa aö setja sig inn I
það, að þarna suður frá eru al-
veg sérstakar aðstæður. Þeir
sem sitja i fangelsum i Brasiliu
og Argentinu og Chile, þaö eru
nefnilega ekki menn sem berj-
ast fyrir frelsinu og lýðræöinu.
Þetta eru menn sem ætla sér
leynt og ljóst aö koma á einræði
kommúnismans og þá ætla þeir
aö setja alla hina i fangelsi. Þaö
'er þvi alveg ljóst aö ekki er hægt
að veita mönnum frelsi til að
berjast fyrir svo röngum og
öfugsnúnum hugmyndum. Og
þess vegna er lika alveg ástæöu-
laust að vera að bera saman þá
sem inni sitja I Sovét og I Suður-
Ameriku. Ég hélt að hvert barn-
ið skildi þetta, og það er a.m.k.
gott að ungir Sjálfstæðir menn
eru ekki svo skyni skroppnir að
þeir fari að rugla þessu saman.
Húrra fyrir Jóni!
Þá eru lika ýmsar blikur á
lofti um það, að eldri kynsióöir
standi sig bara vel, aö minnsta
kosti sumir ti;austustu fulltrúar
hennar eins og Jón Þ. Arnason.
Jón hefur skrifaö átján alveg
ilmandi greinar um ábyrgöar
lausa heimtufrekju og kröfu-
gangsmunnræpu hins frjáls-
lynda og vinstrisinnaða pakks
sem hér riöur öllum húsum og
ber fótastokkinn svo ekki heyr-
ist hundsins mál. Sér i lagi
fannst mér það gott hjá Jóni að
gefa þeim einn gúmorinn þess-
um bölvuðu verkalýösspekú-
löntum sem halda aö þeir séu
alþýðan af þvi þeir kunna að
taka i nefið eða svoleiöis. Slik-
um mönnum likir Jón réttilega
við varúlfa eins og sést á með-
fylgjandi mynd, en myndakost-
ur meö greinum Jóns hefur ein-
mitt vakiö alveg sérstakaathygli
eins og þegar hann meö einföld-
,Ión I>. Arnason:
— Ég lofa þvf strákar, aft ég skal aldrei framar reyna aft mynda
stjórn...
um og hugkvæmum dráttum
sneri nú úreltri mynd um hina
miklu þýsku þjóð og Hitler upp á
feigðargöngu vinstraliðsins of-
an i opna grö< og hefur mér
sjaldan dreymt eins vel og
kvöldið eftir að ég sá þessa
ágætu mynd.
Hórkarlinn Marx
Enginn kann heldur jafnvel og
Jón að gefa Karli skrattanum
Marx á baukinn. Um daginn var
hann að skrifa um Karl og var
þásvokynngimagnaður og snjal)
að ég verð að játa, að ég með
alla mina þjóðkunnu ritsnilld
varð grænn af öfund. Til aö sýna
lesendum aö ég er samt upp yfir
ómerkilegan skáldarig hafinn
41ræði tómlæti
ætla ég hér að lokum að birta
kafla úr þessari ódauðlegu út-
tekt á Karli Marx, sem ber I
senn vott glöggskyggni, skap-
festu og yfirsýn eins og hún best
gerist i Morgunblaöinu okkar
allra:
„Það er þvi ekki „heimsskoð-
un” Marxans, sem ber að fást
við, heldur veröur aö leita skýr-
inga i föðurplágunni, bruðlaran-
um, afætunni, heimilisböðlin-
um, hórkarlinum, æruleysingj-
anum, uppskafningnum, höfö-
ingjasleikjunni, mannorös-
þjófnum, orðsóðanum, mann-
hataranum, hrakmenninu Karl
Marx, vegna þess að þar liggja
rætur kommúnismans sem I eöli
sinu er lundernisskorpnun (1.
stig) og verknaöir (2. stig
o.áfr.) miklu fremur en lifs-
skoöun eöa ný stefna”.
Vel mælt og drengilega! En
eins og Jón segir: skrilinn
þyrstir I hratið. Enn er þó von-
argleði mér i sinni meðan ungir
sem gamlir halda höfði og reisn.
Skafti.
Glæsilegt tilboð um
kunningsskap
Eins og annað illkvittiö fólk
flýtum við okkar jafnan aö leita
uppi auglýsingar i blöðum sem
falla undir samheitið einkamál.
Þar fær gægjuástriðan, sem við,
viljum illa viö kannast, merka út-
rás, og mætti skrifa um þetta eitt
bindi eða tvö fróðleg.
Ein glæsilegasta auglýsing eftir
kunningsskap sem sé öllum aðil-
um til sem mestra hagsbóta höf-
um viö úr blaði þýsku sem heitir
„Marktblatt”. Auglýsingin er á
þessa leiö:
Tuttugu og sjö ára gamall
heimspekingur, sem er á háu
plani og gerir strangar fagur-
fræöilegar ogsiöferöilegar kröfur
er tungumálagarpur og heims-
borgari frá Sviss og kann tök á
þeim umgengnisvenjum sem siö-
aðir menn viðhöföu fyrir strið,
leitar kunningsskapar viö rika
konu, sem hann vildi gjarna meö
aöstoö útsmoginnar eyöslusemi
hjálpa til við að forða eignum
hennar undan krumlu hins sósia-
liska rlkis.
ÞiómnuiNN
fyrir 40 órum
Dagsbrúnarstjórnin átti við-
ræður viö rikisstjórnina I gær-
morgun og bar fram við h'ana
kröfur verkamanna um at-
vinnu. En stjórn Dagsbrúnar
hefur undanfarið margsinnis átt
tal viö rikisstjórnina og þá sér-
staklega atvinnumálaráöherra
um hið gifurlega atvinnuleysi
sem nú rikir hér i bænum og
jafnframt krafist þess, aö rikið
gangist fyrir þvi aö einhver at-
vinna yröi hafin.
I gær fylgdu um 70 atvinnu-
lausir verkamenn stjórn Dags-
brúnar á fund rikisstjórnarinn-
ar, i dag biöa hundruð atvinnu-
leysingja svars hennar.
Verði svar rikisstjórnarinnar
neikvætt þýöir þaö, aö verka-
mennirnir verða að fylkja sér
ennþá fastar saman og beita
krafti samtaka sinna til þess aö
knýja fram atvinnu.
Atvinnuleysiö er nú meira en
helmingi meira en I fyrra, eöa
um 400 manns á móti tæpum 200
I fyrra. Þörfin fyrir skjóta og
verulega úrlausn er þvi mjög
aðkallandi.
<Þjóöviljinn,júli 1938)
Umsækjandi dagsins heitir
Kristin Magnúsdóttir. Umsókn
hennar fjallar um frjálsa fjöl-
miðla og hljóðar þannig:
„Fariö aftan
ad fólki”
„Það má öllum Ijóst vera, aft
með þvi að loka Keflavlkursjón-
varpinu, sem var öllum aft
kostnaðarlausu og til hinnar
mestu ánægju, var farift aftan
að fólki og það á mjög lúalegan
hátt. Ekki er vitað til þess, að
varnarlið á Keflavikurflugvelli
hafi óskað eftir þvi, að Islensk
stjórnvöld sæju svo um, að is-
lenskur almenningur fengi ekki
notið sjónvarps þeirra, frekar
en nú er um útvarpssendingar
varnarliðsins.
Ef stjórnmálamenn yfirieitt
hafa talið sig vera að auka hróð-
ur sinn meftal almennings i
landinu er slikt mikill misskiln-
ingur, og raunar hlýtur hræðsla
ein að hafa ráðið gerðum þeirra,
er ákváðu að lokunin skyldi
koma til framkvæmda.
....Það er áreiðanlegt að hefði
Keflavikursjónvarpið á sinum
tima náð til allra landsmanna,
hefði þvi aldrei verið lokað og
stjórnmálamenn aldrei þorað
að brydda á sliku tiltæki, slik er
hræðslan við Ibúa landsbyggð-
arinnar, enda þingmannafjöldi
landsbyggðarinnar yfirgnæf-
andi. — Þetta var þvi pólitiskt
mál, en ekki sprottið af neinni
þjóðernistilfinningu, eins og
sumir þingmenn vildu vera
láta”.
(Morgunblaöiö 22/7)
Ályktun: Þetta er rétt og satt
Kristin! Látum ekki hræsnar-
ana og menningarpakkið villa
frjálsum langlegusjúklingum
sýn. Lifi valfrelsiö! (Og vel-
komin i klúbbinn).
Fyrir hönd Álkuklúbbsins,
Hannibal ö. Fannberg
• formaður.