Þjóðviljinn - 01.08.1978, Side 1

Þjóðviljinn - 01.08.1978, Side 1
UOÐVIUINN Þriðiudagur 1. ágúst 1978 -162. tbl. 43. árg. Sunnlendingar sáu um músikina. Hér er hllfiskildi haidið yfir óla Th. ólafssyni frá Selfossi og Gfsla Brynjólfssyni frá Hverageröi en þeir þöndu nikkurnar í Þjófadölum sl. laugardagsnótt. Ljósm. ekh. Góðra vina fundur á Kili Alþýöubandalagsmenn Ur þremur kjördæmum voru á feröalagi um Kjöl i jafnmörgum hópum um sl. helgi. Alþýöu- bandalagið i Kópavogi var meö 120 manns á sinum snærum, Ragnar Arnalds alþingismaður haföi forystu fyrir 80 manna hóp úr Norðurlandskjördæmi vestra og úr Suðurlandskjördæmi voru á feröinni 35 manns, aðallega frá Hveragerði og Selfossi. Hóparnir skoðuðu ýmsa merkisstaði á Kili hver i sinu lagi, en náttuðu sig allir I Þjófa- dölum á laugardagskvöldið. Þar var góðra vina fundur og margt skrafað um stjórnarmyndun og fleira. Þrátt fyrir svolitla vætu> er llða tók á kvöld var sungið og dansað fram á nótt. Lætur nærri að 250 manns hafi verið á þessu hálendismóti Alþýðubandalags- manna þvi ýmsir komu á eigin vegum, svo sem Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórn- ar, sem skipaði sér I forystu- sveit söngmanna. Svo vel tókst til þessa sumarnótt á f jöllum að er menn bjuggust til heimferðar um hádegisbil á sunnudag var rætt um hálendismót næsta sumar. —ekh. Geir falin stjórnar- myndun Svarar í dag Sjálfstæðismenn funda i dag Forseti íslands ákvað i gær að fela Geir Hall- grímssyni núverandi for- sætisráðherra að hafa .,forystuum viðræður milli stjórn nálaflokka til myndunar nýrrar ríkis- stjórnar sem njóti meiri- hlutafylgis á Alþingi". Orðalagið á málaleitan forseta er mjög almennt orðað, en ljóst er að á bak við það er sú ætlan for- seta að Geir Hallgrimsson myndi nýja meirihlutastjórn. Er Þjóðviljinn hafði samband við Geir i gær hafði hann enn ekki tekið um það ákvörðum hvort hann myndi verða viö tilmælum forseta. Sagðist hann hafa beðið um frest þar til seinnipartinn i dag eða i fyrramálið til að taka á- kvörðun i málinu. Sagði hann að fundur i þing- flokki og framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins yrði haldinn i dag og þar yrðu málin rædd. Geir Hallgrimsson tók sér frest til þess að svara málaleitan forseta. Einnig sagðist Geir Hallgrims- son myndu hafa samband við formenn hinna stjórnmálaflokk- anna. Hann vildi ekkert út á það gefa hvers konar stjórn hann myndi reyna að mynda ef hann tæki að sér að mynda stjórn, vildi ekki einu sinni útiloka stjórn með þátt- töku Alþýðubandalagsins. eng. KAUPRAJNSFLOKKARNIR ERU NÚ ORÐNIR ÞRÍR Samanburöur á áhrifum tíllagna Alþýöubandalagsins og Alþýöuflokksins á verölag og kaupgjald tíl áramóta Tillögur Alþýðu- bandalagsins i efna- hagsmálum höfðu þann þriþætta tilgang að draga úr verðbólgu, tryggja gang atvinnu- veganna og um leið að standa við gerða kjara- samninga.- Tillögur Al- þýðuflokksins gerðu hins vegar ráð fyrir vax- andi verðbólgu, nýrri gengisfellingu, kaup- lækkun og fyrirsjáam legum stórfelldum vanda atvinnuveganna um næstu áramót. Benti þjóðhagsstjóri á i viðtöl- um við viðræðunefndir flokkanna, að gengis- lækkun með tilheyrandi verðlagsáhrifum stefndi hlutunum áreiðanlega aftur i sama strandið um næstu áramót. Hér á siðunni er birtur útdrátt- ur úr samanburðardæmum á á- hrifum tillagna Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins á kaup- gjald og verðlag til áramóta. Til- lögur Alþýðubandalagsins gera sem sjá má ráð fyrir 6% kaup- máttaraukningu til áramóta þeg- ar staðið er við samningana. Al- þýðuflokkurinn ætlar að visu að setja samningana i gildi með ann- arri hendinni en siðan að sam- þykkja 7% kauplækkun á eftir. Kaupránsflokkarnir eru þvi orðn- ir þrir nú aðeins mánuði eftir al- þingiskosningar. Ýtarlegrisamanburður á tillög- um flokkanna birtist á siðum 10 og 11 i blaðinu i dag. Þar kem- ur m.a. fram að kaup hefði að til- lögum Alþýðuflokksins hækkað um 22% til áramóta, siðan gerði hann ráð fyrir að launamenn gæfu eftir 7% þar af, þannig að eftir stóð óleystur vandi upp á 15% um áramót — enn eitt geng- islækkunartilefnið ef fylgt er lög- málum hagfræðinga Seðlabank- ans og Þjóðhagsstofnunar. Dæmi Alþýðuflokksins gekk þvi ekki upp. Af hverju mistókst ad mynda vinstri stjórn? Grein eftir Svavar Gestsson Sjá sidu 10 Blaóamaiina- fúndur Alþýöu- bandalagsins Sjá baksíðu Áhrif tillagna Alþýöuflokksins á kaupgjaldsþróun: 1. Af leiðingar 15% gengislækkunar........7% 2. Vísitöluhækkun 1.9. 10%/ en niðurgreiðslur yrðu 6% : ............... 4% 3. Grunnkaupshækkun 1.9: ............... 3% 4. Samningarnir«gildi 1.9: ............... 3% 5. Vísitöluhækkun 1.12. áætlun : ......... 5% Samtals kauphækkun i krónum 22% Verðlagsáhrif tillagna Alþýðuflokksins: 1. Gengislækkunaráhrif .................... 7% 2. Vísitöluhækkun 1.9...................... 4% 3. Vísitöluhækkun 1.12. 5% 4. Áhrif samninganna ..................... 2% Heildarhækkun 18% Áhrif tillagna Alþýðubandalagsins á kaupgjalds- þróun: 1. Grunnkaupshækkun 1.9: ................. 3% 2. Vísitöluhækkun 1.9: 3% 3. Vísitöluhækkun 1.12: 3% Samtals kauphækkun i krónum 9% Verðlagsáhrif tillagna Alþýðubandalagsins: 1. Verðlagshækkuntil 1.12: ............. 3% 2. Áhrifinaf samningunum í gildi: ...... 2% Heildarhækkun 5%

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.