Þjóðviljinn - 01.08.1978, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. ágúst 1978
Meistaramótislands I sundi fór fram I Laugardalslaug um helgina. Þrátt fyrir fæö þátttakenda var mjög hart barist og nokkur góö afrek
unnin. Bjarni Björnsson hlaut Pálsbikarinn fyrir besta afrek mótsins 0g Brynjólfur Björnsson og Þórunn Alfreösdóttir settu bæöi tsiands-
met. Myndin er af Brynjólfi Björnssyni á verölaunapalli fyrir 1500 metra skriösund en þar setti hann Islandsmet. ljósm: — eik.
ísland í 2. sæti í
Kalottkeppninni
Vilmundur Vilhjálmsson kom til móts viö tslenska liöiö á Kalott. Hann
sigraöi örugglega i 100 metrunum. Siguröur Sigurösson varöannar.
tslendingar náöu afbragðs
árangri á kalottkeppninni sem
haldin var i Umeá í Sviþjóö nú um
helgina. tslensku stúlkurnar unnu
glæsilegan sigur og I karlakeppn-
inni varð tsland nr. 2. Þetta dugöi
þó ekki nema til 2. sætis þvi Finn-
ar unnu; hlutu 8 stigum meira en
landinn.
Ohætt er að fullyrða að islensku
stúlkurnar hafi hreinlega „átt”
þennan árangur þvi þær sigruðu
glæsilega i kvennakeppninni,
hiutu 154,5 stig en næstir komu
Finnar með 122,5 stig. Sýna þessir
gifurlegu yfirburðir hvilik stór-
kostleg gróska er meðal frjáls-
iþróttakvenna á Islandi og vist er
að enn glæsilegri hefði árangur-
inn orðið ef Ingunn Einarsdóttir
hefði verið meiten hiln er eins og
kunnugt er frá vegna meiðsla.
Nokkur mjög góð afrek voru
unnin i keppninni af Islendingun-
um þrátt fyrir mikinn hita, nær-
fellt 30 stig. Sigrún Sveinsdóttir
setti Islandsmet i 400 metra
grind, hljóp á 64,2 sek.
tslendingar náðu almennt mjög
góðum árangri i styttri vega-
lengdunum. Vilmundur
Vilhjálmsson sigraöi bæöi i 100 og
200 metra hlaupi og var skammt
frá meti i báðum hlaupunum,
hljóp 200 metrana á 21,3 sek (met-
ið er 21,3sek) og 100 metrana á
10,4 sek og það gerði Sigurður
Sigurðsson einnig en hann var
sjónarmun á eftir Vilmundi.
Hreinn Halldórsson sigraði
örugglega i kúlunni kastaði 19,80;
ailur að koma til hann Hreinn
okkar; Friðrik Þ. Oskarsson varð
að gera sér að góðu 2. sætið bæði I
langstökki og þrlstökki, hann
stökk 7,23 metra i langstökkinu
aðeins 1 cm á eftir sigurvegaran-
um og i þristökkinu stökk hann
15,70 metra.
Oskar Jakobsson stóð fyrir sinu
i köstunum. Hann vann kringlu-
kastið á 56,26 metrum. Vissulega
söknuðu Islendingar Erlendar
Valdimarssonar i köstunum og
kom það skýrt fram i sleggju-
kastinu, en þar vantaði otóicur
hreinlega mann. Hreinn ætlaði aö
keppa en kúluvarpið sem fram
fór á sama tima varð að ganga
fyrir. Til að bjarga stigum brá
þjálfari islenska liðsins, Stefán
Jóhannsson, sér i keppnina en
varð að sjálfsögðu lang-neðstur,
enda æfingarlaus með öllu. Hann
kastaði 26,34 metra.
Af konunum stóðu þær Lára
Sveinsdóttir og Lilja Guðmunds-
dóttir sig einna best. Lilja sigraði
i 800 og 1500 metra hlaupi og Lára
vann 100 metra grind á 14,1 sek.
Yfirleitt stóðu stúlkurnar fast
fyrir sinu og árangurinn var mjög
jafngóður sem að sjálfsögðu hef-
ur mikið að segja i keppni sem
þessari. Greinilegt er á þessari
keppni að tsland hefur mikla
sigurmöguleika i framtíðinni. tJr-
slitin samanlagt urðu sem hér
segir:
1. Finnland 348,5 stig
2. tsland 340,5 stig.
3. Noregur 271,5 stig.
4. Sviþjóö 244,5 stig.
SK/hól.
Skagamenn
gefa
ekkert eftlr
— unnu FH 3:0
tslandsmeistarar Skagamanna
ber jast eins og ljón til aö halda i
við Val i baráttunni um Islands-
meistaratitilinn i knattspyrnu.
Eftir tapið fyrir Val fyrr i mótinu
töldu margir aö tA — liöiö myndi
brotna saman og þaö yröi auð-
veldur leikur hjá Val aö vinna
sigur i mótinu. Fyrstu leikirnir
hjá 1A undirstrikuöu þetta. Þeir
áttu i miklu basli á meöan Valur
vann hvern leikinn á fætur öörum
á mjög sannfærandi hátt. En ekki
var þess langt aö biöa aö tA —
menn næöu fyrri styrkleika og
enn hafa þeir ekki tapað stigi eftir
ósigurinn fyrir Val. Sannarlega
ótrúlegir yfirburöir hjá þessum
risum tslensku knattspyrnunnar.
Skagamenn bættu tveimurstig-
um i safnið uppá Skaga á laugar-
daginn. Andstæðingurinn FH,
sem nú er i mikilli fallhættu á
deildinni veitti allmikla mót-
spyrnu en hafði ekki heppnina
með sér. Strax á upphafsminút-
unum skoruðu Skagamenn. Þar
var um hálfgert sjálfsmark að
ræða. Jón Askelsson breytti
stefnu boltans eftir skot frá
Kristni Björnssyni. Leikurinn var
mjög hratt og skemmtilega leik-
inn eftir markið og greinilegt að
FH-ingar voruekkertá þeim bux-
unum að gefa sig. Þeir áttu
nokkrar skemmtilegar sóknarlot-
ur en allt kom fyrir ekki. Og á 26.
min. sannaði Pétur Pétursson
hæfni sina er hann skoraði eftir
frábæra sendingu frá Kristni
Björnssyni.
I seinni hálfleik skiptust liðin á
sóknarlotum og voru sóknir ÍA
öllu hættulegri, þeir Pétur og
Kristinn Björnsson sköpuðu oft
hættu og Karl Þórðarson er einnig
stórhættulegur. Hjá FH var nokk-
uð um minni háttar tækifæri en
markið eða mörkin létu alveg á
sér standa. Ólafur Danivalsson
var einna bestur og Janus stóð að
venju fyrir sinu. Þá er Asgeir
Arinbjarnarson greinilega i
framför.
Þrátt fyrir allgóðar tilraunir
var mark ekki skorað og úrslitin
þvi 2:0 1A I vil. —hól.
Úrslit í
/
Urvals
deUd
1 dag fer fram einn leikur i
Úrvalsdeildinni svokölluðu. Það
er leikur Fram og KR en það lið
sem sigrar i leiknum kemst i
úrslit mótsins. Leikurinn fer
fram á Framvellinum og hefst
kl. 18.30. Hinn undanúrslita-
leikurinn hefur enn ekki farið
fram en enn er ekki vist hvaða
lið leika hann. Þó er vitað að
IBK, Valur og IBA leika um
réttinn til að komast i 4-liða
úrslitin. —hól
Lilja Guömundsdóttir var iöin viö
aö hala inn stig. Hún sigraði bæöi
i 800 og 1500 metra hlaupi.