Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 9. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 af erlendum v&ttvangi Fjórum árum eftir „nellikuby Itinguna" í Portúgal, þegar samtök ungra herforingja bundu endi á nærri hálfrar aldar fastistaeinræði við gifur- legan fögnuð mikils þorra landsmanna, eru menn ekkert yfir sig kátir í því landi og margir horfa með ugg til framtíðarinnar. Stjórnarkreppa er. Hægri- öflin, sem báru höfuðið lágt fyrst eftir „bylting- una", eru nú fyrir löngu búin að endurheimta kjarkinn og gerast æ kröfuharðari með flokk sinn, miðdemokrata, í broddi fylkingar. Þessi flokkur, sem skipaður er stuðningsmönnum einræð- isstjórnarinnar gömlu, var með Sósíalistaf lokknum i fráfarandi stjórn en sleit st jórnarsamstarf inu á þeim forsendum að stefna Sósíalistaflokksins væri of vinstrisinnuð. Og hægri- menn eru meira að segja farnir að ráðast á stjórnar- skrána, sem gerð var eftir stjórnarbyltinguna, en hún er í nokkuð svo sósíalískum anda. Meöal stjórnmálamannanna rikir sundrung, sennilega meiri en nokkru sinni fyrr eftir fall ein- ræöisins. Og ungu herforingjarn- ir, sem felldu þaö 25. april 1974 hafa verið sviptir völdum, hér um bil allir. Þaö er full ástæöa til þess að óttast um hiö unga þingræöi Portúgala. Þvi aö stuöningsmenn Salazars gamla einræöisherra eru siður en svo valdalausir og varla siöur viösjárveröir en fyrr, þótt 1 bráðina komi þeir fram sem „lýöræðissinnar” á vegum mið- demókrata. (Fyrst eftir „nelliku- byltinguna” var hugtakiö „hægri” svo óvinsælt i Portúgal að enginn vildi kenna sig viö þaö. Eanes — stjórnaöi atlögunni gegn „nellikubyltingarmönnum” i hernum. Goncalves — á eftirlaunum. Carvalho — bannaö aö reöa stjórnmál opinberlega. Eanes — kom hvergi við sögu „nellikubyltingar innar" Sömu sökum var borinn einn sá litrikasti af herforingjum „nell- ikuby ltingarinnar”, „rauöi aömirállinn” Rosa Coutinho. Nú er fyrirhugað aö stefna honum fyrir rétt. Búist er viö aö hann veröi einnig settur á eftirlaun. Spinola gamli hershöföingi, sem gekk til samstarfs viö „nellikubyltingarmenn” meö blessun Bilderberg-klúbbsins, snerist slöan gegn þeim ogstiöi samsærisbralli meö hægriöfga- mönnum, er nú aftur kominn heim og hefur aftur fengiö hers- höföingjatign meö fullri viröingu. Hvort hann ræöur einhverju er hinsvegar umdeilt, enda kvaö Leidtogar „nellikubylt- ingarinnar” áhrifalausir Hægrimenn reyndu þá aö skil- greina sig sem miöjumenn i stjórnmálum). Tanndregnir „varðhundar" Byltingarráöið svokallaöa, skipaö herforingjum og hafandi fyrir ætlunarverk að standa vörö um árangur stjórnarbyltingar- innar, er að visu enn við lýöi. I stjórnarskránni eru ráösmenn kallaöir „varðhundarnir, sem verja skulu andann frá 25. april”. Þeir eru 19 talsins og formaður ráösins er jafnframt forseti landsins, Antonio Ramalho Eanes hershöfðingi, sem nú nýveriö setti Soares forsætisráöherra af á heldur gerræðislegan hátt og rak þannig smiðshöggið á þaö aö koma á stjórnarkreppunni. Störf Sigrídar Björnsdóttur vekja athygli í Finnlandi Sigríður Björnsdóttir hélt nýlega einkasýningu í Finnlandi og hlaut sýning hennar mjög góða dóma, Sigríður er þekkt fyrir störf sín og kennslu meðal barna á sjúkrahúsum og hélt hún nokkur erindi um það ef ni í Finnlandi. Sýndu blöðin mikinn áhuga á þvi sem Sigríður fjallaði um og tóku við hana viðtöl, auk þess sem hún var beðin að gera þátt fyrir finnska út- varpið. Auk þess sem Sigríður flutti erindi um skapandi myndlisttil lækn- inga á sjúkrahúsum, flutti hún erindi um myndlist sem endurhæfingu fyrir afbrotamenn. Þá tók Sigríður þátt í fyrsta al- þjóðlega námskeiði fyrir barnalækna. Skapandi starf á sjúkrahúsum er ný grein og i mðtun og hefur reynst erfitt að fá raunhæfa viö- urkenningu á henni hjá því opin- bera. Sigriöur er einn af braut- ryöjendum á þessu sviöi og hefur unniö við skapandi starf á sjúkra- húsum t.d. i Englandi og Skot- landi og haldiö fyrirlestra um þaö Sigriður Björnsdóttir viöa um heim, m.a. i Finnlandi Indlandi og i Bandarikjunum. I tengslum viö hiö alþjóölega námskeiö barnalækna, þar sem komnir voru saman ýmsir fremstu barnalæknar heims, flutti Sigriður erindi um skapandi starf sem mikilvægan þátt i barnalækningum. og einnig setti hún upp sýningu um það efni. þs En það er flestra mál aö tenn- urnar hafi veriö fyrir löngu dregnar úr „varöhundunum”. Aö forminu til á þó vald ráösins aö vera nokkurt. Þaö á aö geta frest- aö staöfestingu laga, ekki er hægt að lýsa yfir neyðarástandi nema með samþykki þess og auk þess á það aö hafa töglin og hagldirnar i hernum. Hitt er annab mál hvaö annt þvi er um árangur stjórnar- byltingarinnar og hina sósialisku stjórnarskrá. Þvi aö svo er komiö aö meirihluti ráösmanna, tiu aö minnsta kosti, eru ekki úr hópi „nellikubyltingarmannanna”, heldur i ráöiö komnir aö tilstuöl- an Eanesar forseta og lúta boöi hans og banni, sem gerir að verk- um að hann hefur ráöiö þvi sem næst 1 vasanum. Antunes og Carvalho Fyrirliöi minnihlutans i ráöinu er Melo Antunes majór, sem tók þátt i stjórnarbylt- ingunni. Hann er sagöur standa nálægt Soares forsætis- ráöherra og leiötoga Sósialista- flokksins i stjórnmálum, en báöir telja þeir sig marxista. Antunes er formaður nefndar, sem fylgj- ást á meö þvi aö stjórnarskránni sé framfylgt. Eftir stjórnarbylt- inguna gagnrýndi Antunes rót- tækari félaga sína fyrir gerræöis- legar ráöstafanir, en spurning er hvort hann er ánægöari meö kringumstæðurnar nú. Allir atkvæöamestu leiötogar stjórnarbyltingarmanna hafa fyrir löngu veriö sviptir áhrifum. Þeirra hvaö róttækastur var tal- inn Othelo de Carvalho, fjölda- sjarmör og skipuleggjandi góöur, sem talinn er hafa verið heilinn á bak viö valdatökuna 25. aprll. Hann var lækkaður I tign i hern- um og sat I fangelsi um skeið. Nú er hann leiðtogi litils vinstri- flokks, en er bannaö aö láta i ljós opinberlega skoöanir á stjórn- málum. Vasco Lourenco, sem tók viö af Carvalho sem yfirmaöur hersins i Lissabon og nágrenni, var sviptur þeirri stööu i vor og var hann sá slðasti af leiötogum apriluppreisnarinn- ar 1974, sem haföi herstjórn á hefidi. Hann var jafnframt lækk- aður úr tign hershöföingja i majórstand. „Valdaránstilraun" 1975 Aö Carvalho frátöldum var Vasco Goncalves þekktastur af leiötogum „nellikubyltingar- manna”. Hann varö forseti Portúgals nokkru eftir að Spinola hershöföingi, sem uppreisnar- menn höfbu á oddinum fyrst, haföi verið staöinn aö samsæris- bralli viö hægrimenn og flúiö land. Undir forustu Goncalvesar voru innleiddar flestar þær um- bætur, sem hægrimenn vilja nú fyrir hvern mun fá afnumdar: landbúnaöarumbætur, þjóönýt- ingar á bönkum og sumum iön- fyrirtækjum. 1 nóvember 1975 var endir bundinn á vinstrisveifluna i Portúgal og vinstrimenn i hern- um sviptir áhrifum. Þeir voru sakaöir um tilraun til valdaráns, en óljóst er hvort svo var i raun og veru eöa aö hægrimenn lugu þvi upp á þá til aö fá átyllu til aö klekkja á þeim. Sá sem þá haföi forustu fyrir hægrimönnum i hernum var núverandi forseti, Ramalho Eanes. Hann og félagar hans sökuöu Goncalves um aö vera i vitorði meö „valdaræningj- unum”. Goncalves var sviptur bæöi forseta- og hershöföingja- tign og settur á eftirlaun. hann allmjög tekinn aö gamlast. Eini herforinginn, sem fær i raun og veru aö láta aö sér kveða i Portúgal i dag, er Eanes forseti. Hann átti engan hlut ab „nelliku- byltingunni” og fáir vissu aö hann var til fyrr en hann skaust upp á yfirboröiö i nóvember 1975, þegar vinstrimenn i hernum voru brotn- ir á bak aftur. Hann var þá fyrir nokkrum mánuöum kominn heim úr herþjónustu i Angólu. Rúmu hálfu ári siðar var hann orbinn forseti. Hann er sagöur stefna aö þvi aö efla vald Portúgalsforseta til jafns viö það sem Frakklands- forseti hefur — aö minnsta kosti. dþ. AB A VESTURLANDI Þórsmörk 11.-13. ágúst Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vest- urlandi verður i Þórsmörk i ár. Verður dvalist þar helgina 11.-13 ágúst. Góðir leiðsögumenn verða með i ferð- inni. Farið verður frá Akranesi föstudag 11. klukkan 14.30 og frá Borgarnesi kl. 16.00. Þessir taka við þátttökutilkynningum: Akranes: Jóna ólafsdóttir simi 1894 Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson s. 7190 Og 7122 Hvanneyri: Rikharð Brynjólfsson s. 7013 Búðardalur: Kristjón Sigurðsson s. 95-2175 Hellissandur: Sæmundur Kristjánsson s. 6767 Grundarfjörður: Ragnar Elbergsson s. 8715 Reykjavikursvæðið: Engilbert Guð- mundsson. s. 81333 Gisli ól. Pétursson s. 42462 Skráið ykkur sem fyrst. Verð 4500-5000 kr. Allir velkomnir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.