Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 15
Miövikudagur 9. ágiist 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Reykjavíkurleikamir í írjálsum hefjast í kvöld: Fáum við að sjá heims- met í kringlukasti? Heimsmeistarinn kastar kringlunni í Laugardalnum í kvöid. Fjöldi erlendra keppenda. Mac Wilkins heimsmeistari i kringlukasti er ekki kraftalegur aö sjá en leggir þú leiö þina á Laugardalsvöllinn munt þú komast aö ööru. Þaö gæti fariö svo aö hann setti nýtt heimsmet. Hinir árlegu Reykja- víkurleikar í frjálsum iþróttum verða að þessu sinni dagana 9. og 10. ágúst nk. og fara fram á nýja ,/Tartan- veilinum" i Laugar- dalnum. Er hér um að ræöa fyrsta íþrótta- mót, sem háð er á slík- um velli hérlendis. Frjálsíþróttasam- bandið hefur nú eins og i fyrra boðið heims- frægum iþróttamönn- um til mótsins, heims- methöfum, ólympiu- meisturum og norður- landamethöfum. Þekktastur þessara kappa er Bandarikjamaöurinn Mac Wilkins.sem á heimsmetiö i kringlukasti, en þaö er 70,86 metrar. Hann sigraði á ólympiuleikunum i Montreal 1976. Wilkins er mjög örugg- ur, kastar aldrei skemmra en 65 til 66 metra og i góöum islenskum vindi veit maöur aldrei hvað gerist. Kannski veröur sett heimsmet i fyrsta sinn i Reykjavik? Wilkins er ótrúlega fjölhæf- ur. Besti árangur hans i öðr- um greinum er: Kúluvarp 20,84 m, sleggjukast 61,26 m, spjótkast: 78,44 m. Aðrir Bandarikjamenn, sem örugglega koma til mótsins eru: Charlie Wells, sprett- hlaupari, sem á best 10 sek i 100 m hlaupi, en tapaði þó fyrir Vilmundi Vilhjálms- syni á Reykjavikurleikunum i fyrra. Hann var mjög óhress með þaö og hyggst nú bera sigurorð af okkar fót- fráasta frjálsiþróttamanni. Sex mjög góöir millivega- og langhlauparar koma einnig frá Bandarikjunum, þeireru: Doug Brown3000 m 8:04,0 min, 5000 m 13:40,6 min. Jim Crawford 1500 m 3:40,2 min, 3000 m 8:01,2 og 5000 m 13:35,4. Tiny Kane,800 m 1:47,7 min, 1500 m 3:39,1 min. George Malley, 1500 n>3:40,2 min, 3000 m 7:59,8 min. Mike Manke, 800 m 1:48,5 min, 1500 m 3:37,1 min. Craig Virgin, 1500 m 3,46,1 min, 3000 m 7:54,9 min, 5000 m 13:25,4 min. Frá Finnlandi kemur hinn heimsfrægi kúluvarpari Reijo Stahlberg, en hann varö Evrópumeistari i kúlu- ‘ varpi innanhúss i vetur. ' StShlberg hefur náö aöeins betri árangri en Hreinn I Halldórsson eða best 21,26 metrar og er af flestum sér- fræðingum álitinn annar besti kúluvarpari veraldar eins og er. Hreinn var álitinn sá þriöji besti i fyrra eins og kunnugt er. Þó aö Hreinn hafi ekki varpað eins langt i sumar og hann gerði i fyrra vegna meiðsla er hann nú að ná sér á strik og við skulum vona, að hann og StShlberg þreyti skemmtilega keppni. Norðmenn senda okkur sinn fræga kringiukasta Knut Hjeltnes, sem á best 65,66 metra og kúlunni hefur hann kastað lengst 20,04 m. Ef Óskar nær sér vel á strik ætti hann að geta veitt Hjeltnes harða keppni. Frá Sovétrikjunum koma fjórir iþróttamenn, þaraf ein kona. Þeir eru: Nikolai Walahanovitsch, kúluvarp- ari meö um 20 metra best. Iwan Morgol, spjótkastari, kastaði 82,50 metra i fyrra. Starowoitow Michail, spretthlaupari, á best 10,3 sek i 100 m., Kowaltschuk Irina, keppir i millivega- lengdum 400 og 800 m hlaup- um. Hún á aðeins betri tima en islensku stúlkurnar. 'Eins og af þessari upptaln- ingVmá sjá fáum við að sjá margan frægan kappann i kvöld og annaö kvöld. Verð- ur sett heimsmet i kvöld? Það er spurning sem brenn- ur á vörum margra. Kringlukastarinn Mac Wilkins sem á heimsmetið eins og áður sagði gæti hæg- lega gert það ef islenskir vindar verða hagstæöir. Þó verður fróðlegast aö sjá hvort islensku keppendunum Hreini Halldórssyni, Óskari Jakobssyni, Jóni Diörikssyni og Vilmundi Vilhjálmssyni tekst að standa i andstæöing- um sinum og ef svo verður verða e.t.v. sett Islandsmet. Jón Diðriksson hinn ný- bakaði tslandsmeistari i 800 metra hlaupi hefur lýst þvi yfir (m.a. i viðtali hér á siðu 14) að hann sé staðráðinn i aö setja nýtt tslandsmet. En menn mega ekki gleyma þvi að mikið veltur á áhorfend- um. Þeir mega ekki láta sig vanta á leikana. Með mikl- um stuðningi þeirra geta islensku keppendurnir gert vel og ef þeir fá góðan stuðn- ing frá áhorfendum má telja fullvist að svo verði. Þetta er einstakt tækifæri sem enginn má láta fram hjá sér fara. Keppnin hefst klukkan 19,30 i kvöld og verður þá keppt i eftirtöldum greinum. Karlar: 400 m hlaup, 800 m hlaup (B hlaup)m hástökk, 100 m hlaup, 1500 m hlaup, kúlu- varpi, kringlukast. Konur: 100 m hlaup, 400 m hlaup, 1500 m hlaup. SK. Jón tryggði Val í úrslrt Valur sigraöi Þrótt i undanúr- aði eitt mark en Þróttarar náðu slitaleik Bikarkeppni KSl en leik- ekki að skora þrátt fyrir mýmörg urinn var háður á Laugardals- tækifæri. vellinum i gærkvöldi. Valur skor- Staðan i leikhléi var 0:0. Vantar þjálfara Sunddeild Armanns óskar eftir að ráða sundþjálfara fyrir komandi keppnistima- bil. Umsóknir sendist undir- rituðum, eigi siðar en 15. ágúst 1978, sem einnig veitir nánari upplýsingar um starfið. Siglfirðingar spreyta sig a ny í urshtum (irslit i 3. deildinni eru nú óðum að verða ljós, og er t.d. langt siöan Siglfiröingar tryggðu sér á ný sæti i úr- slitakeppninni. Sigurpanga KS-ingahefuri sumar verið óslitin og þegaraöeins einum leik er ólokiö hafa þeir fengið 14s tig úr 7 leikjum, eða 100% vinningshlutfall. Markatalan er þrjátiu mörk gegn aðeins þremur og segir það sitt um yfirburöina. Siglfirðingar leika I D-riðli og eiga aðeins einum leik ólokið, en þaö er gegn Sauöárkróki. Arangur Sigl- firðinga er athyglisveröur, 1 og ekki dregur það úr ágæti hans að I sumar hafa þeir „innfæddan” þjálfara, Frey Sigurðsson, Siglfiröing I húö og hár. I fyrra komst KS I úrslita- keppnina og lék gegn Fylki um 2. deildarsæti. Skildu liðin jöfn I viöureign sinni, og urðu þvl aö mætast aftur, en þá sigraði Fylkir eftir fram- lengdan leik. Knattspyrna yngri flokka KS er gróskumikil, en þar þjálfar Haraldur Erlends- son, fyrrum Breiðabliks- maöur, alla flokka. Valsmenn voru frískari I fyrri hálfleik eða fyrri helminginn af honum en þá tóku Þróttarar að vakna til lifsins og sóttu þeir stift lokaminútur fyrri hálfleiks en án árangurs. Baldur Hannesson var næst þvi aö skora er hann stóð einn og óvaldaður fyrir framan mark Vals viö markteig en skot hans fór framhjá Rétt áður átti sér stað umdeilt atvik. Þá átti Atli Eðvaldsson gott skot aö marki Þróttar en Olfar Hróarsson bjargaði á marklinu og vildu margir meina að hann hefði stað- iö fyrir innan marklinuna þegar hann spyrnti frá, en dómarinn, Ragnar Magnússon sá ekkert at- hugavert og lét leikinn halda áfram. Rétt fyrir lok hálfleiksins átti Sverrir Brynjólfsson i höggi við varnarmann Vals og hafði beturog varkominn einn innfyrir en skot hans fór viðs fjarri mark- inu. Þaö var siðan á 39. minútu sið- ari hálfleiks aö Jón Einarsson skoraöi sigurmarkiö eftir góðan undirbún „ Hann hafði áður fengiö góða sendingu frá Magnúsi Bergs og lagði Atli boltann vel fyrir Jón sem var einn og óvaldaður I vita- teig Þróttar og skot hans rataði rétta leið. 1:0 og sigur Vals i höfn. Hjá Val var Sævar Jónsson bestur. Gerði vart vitleysu en einnig áttu þeir Atli Eövaldsson og Magnús Bergs góðan leik. Valsmenn hafa nú leikið i 1016 minútur i' sumar án þess að fá á sig mark og er það einsdæmi. Að leika knattspyrnu i 16 klukkustundir og 56 minútur er met sem seint verður slegið. Hjá Þrótti var Sverrir Einars- son einna skástur en einnig áttu þeir Rúnar Sverrisson I markinu og Jóhann Hreiðarsson góðan leik. Leikinn dæmdi Ragnar Magnússon og gerði þaö illa. SK Jón Einarsson skoraði sigurmark Vals i undanúrslitaleik Bikar- keppninnar i gærkvöldi ► „Þetta er mjög léleg framkoma” „Þetta finnst mér mjög léleg framkoma hjá FRÍ og beinlinis móðgandi við kvenfólkið” sagði Guðrún lngólfsdóttir er við spurð- um hana út i Reykjavikurleikana sem hefjast i kvöld. A dagskrá er ekkert sem heitiö getur kastgrein hjá konum. „Það veröur ekki annað sagt en að með þessari framkomu sé FRI að gera út af við þær fáu stelpur sem leggja á sig að æfa köst. Það hefði verið hægt að fá kastkonu frá einhverju Noröurlandanna ef vilji heföi veriö fyrir hendi, en svo var ekki. Þetta finnst mér mjög lélegt og beinliiss móðgandi” sagði Guörún. Það verður aö taka undir þessi orö Guðrúnar. Það að hafa ekki neina kastgrein fyrir konur á leikunum er fyrir neðan allar hellur og virðing þeirra sem með slik mál fara virðist ekki vera til. Sérstaklega er þetta slakt þegar haft er i huga aö Guð- rún á mjög svo frambærilegan árangur i kringlukasti og hefði getað veitt hvaða kringlukastara sem er á Norðurlöndum veröuga keppni. Er vonandi að slikt endurtaki sig ekki. SK.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.