Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 13
MiOvikudagur 9. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJtNN — SIÐA 13 Staldrað við á Austurlandi Þaö eru ekki mörg byggöarlög sem geta státaö af svona fallegu frystihúsi. Þurfum síst aö Stöövarfjöröurer i hópi þeirra byggöarlaga sem byggja tilveru sina á fiski. Þegar sildin veidd- ist á Rauöa torginu var stutt I iand á Stöðvarfiröi og þar var sattaö meðan sQd var til. Síöan hafa mörg aflasæl skip veriö gerö út frá þorpinu, og eitt hiö siöasta þeirra sem náöi i sildar- ævintýriö mikla var Heimir SU 100. Aö islandssildinni frágeng- inni gerði Heimir garöinn fræg- an I Noröursjónum og var um árabil meö aflahæstu skipum þar. Og enn er saltað á Stöðvar- firði, þvi nú veiðist haustsildin aftur viö suðurströndina og sið- astliðin tvö haust hafa Stöðfirð- ingar saltaö. Vegfarendur sem eiga leið um plássið taka strax eftir éinstakri snyrtimennsku staöarins, viða má sjá skreyt- ingar á veggjum húsa og óviða geta byggðarlög státað af jafn þrifalegu og fallegu frystihúsi og Stöðfirðingar, en veggi þess prýða tilþrifamikil myndverk Sþjallað við Hafþór Guðmundsson á Stöðvarfírði eftir Geir,Pálsson, íbúa á staðn- um. Mesta íbúa- fjölgun Þjóðviljamenn börðu upp á hjá Hafþóri Guðmundssyni, en hanner innfæddur Stöðfirðingur og kennirnú i heimabyggð sinni ásamt fleiru. „Staðurinn er i uppgangi” tjáði Hafþór okkur „þvi til sönn- unar má nefna, að i engu byggð- „Besta sjoppan á Austurlandi” Það gleður eflaust mörg jafn- réttishjörtu aö frétta að á Stöðvarfiröi reka átta konur af sömu f jölskyldunni litla verslun á sumrin. Blaöamenn Þjóðviljans komu þar við á leið sinni um Austfirði til að fá sér pylsu og spjalla við afgreiðslustúlkurnar. Þær voru þó tregar til i fyrstu, settu á sig snúö og neituöu að hleypa þessum snápum inn. „Þaö er bara svo leiðinlegt” sögðu þær þegar við reyndum aö fá skýring- ar á þessari tregöu. Um siðir tókst þó að lempa þær til og þær samþykktu með hálfum huga að leyfa myndatöku á staðnum. „Þaðer stórfint að búa hérna.” — Af hverju? „Bara svo sem af þvi að við er- um fæddar hérna. Þetta er lika stórfallegur staöur.” — En á vetrum? „Þaö er ekki alveg jafn skemmtilegt”,segir Eygló Sigur- jónsdóttir sem er tvitug. „Jú, það er vist gott þá lika”, segir hins vegar Ásta Snædi's sem er 17 ára og einn af eigendum sjoppunnar. — Hvernig er félagslifið? „Það er ekki mikið. Helst eru það böllin”. — Hvert sækið þið böll? ,,Um allt Austurland. Annars vinnum við á vöktum og getum illa farið mikið á böll, við erum lika rólyndar stúlkur með af- brigðum”, segja þær stöllur. Meðan við spjöllum við stúlk- urnar eru þær i óöa önn að af- greiða.og þær hafa ekki enn sætt sig fullkomlega viö návist blaða- manna Þjóðviljans. — Er mikil vinna hér? „Þaö er nóg að gera i fiski núna, það eru allt niður I 12 ára krakkarsem vinna i honum”, og sjálfar segjast þær hafa unnið i fiski frá 14 ára aldri. — Er þaö rétt að það séu tómir framsóknarmenn á Stöðvarfirði? „Ekki lengur, nú er komið eitt- hvað af alþýðubandalagsmönn- kvarta arlagi á Austurlandi óx ibúatala hlutfallslega jafn mikið og hjá okkur. Vafalaust á tilkoma skuttogarans okkar, Kamba- rastar, mestan þátt i þessu, en hann hefur lagt grunn að öflugu og tryggu atvinnulifi hjá okkur. Kambaröst afíahæst Aður en Kambaröst kom átt- um við togarann Hvalbak með þeim á Breiðdalsvik. Okkur dugöihins vegar ekki helmingur aflans úr Hvalbak til aö halda uppi nægri atvinnu hér á staðn- um og fengum okkur þvi i viðbót 150 tonna togbát, Mumma, og áttum hann út árið 1976.1 kring- um þau áramót seldum við hins vegar bæði Mumma og hlut i Hvalbak og lögðum drög að kaupunum að Kambaröst. Skut- togarinn kom svo sumarið 1977 og hefur siður en svo reynst Hafþór Guðmundsson, kennari, sagði okkur undan og ofan af til- verunni á Stöðvarfirði. okkur illa. Það sem af er hefur hún verið á toppnum og er nú aflahasst á Austfjöröum. Við höfum h'ka verið heppin með mannskap, áhöfnin er aö mestu leyti héðan og annar skipstjór- annaer sá landsfrægi aflakóng- Eygló (t.v.) og Asta Snædis voru i fyrstu tregar til viðræðna en bliðkuð- ust þegar á leiö. * um og krötum”, segir Eygló og verður ibyggin á svip. Það gefur tilefni til að inna hana eftir þvi hvað hún hafi sjálf kosið, en hún kaus nú i fyrsta sinn. „Ég læt sko ekkert uppi um það. Við erum þó á móti Sjálf- stæöisflokknum eða að minnsta kosti ég” Einsog að framan greindi er Asta Snædis atvinnurekandi, og án efa einn sá yngsti i landinu. Við spyrjum hana hvernig henni finnist að reka fyrirtæki. „Þaö hefur nú ekkert reynt á þaö ennþá, en ég get fullyrt að þetta er besta sjoppan á öllu Austurlandi” 1 þeim svifum kemur skari af soltnum verkalýð neðan úr frysti- húsi svo við þökkum fyrir viðtalið og förum. ur Auöunn Auðunsson. Svo það væsir ekki um okkur. Við þurftum að gera ýmsar ráöstaf- anir til aö geta keypt Kamba- röstina, m.a. voru starfandi áö- ur um 5 fyrirtæki I fiskvinnslu og þau voru öll sameinuö undir einn hatt og heita nú Hraöfrysti- hús Stöðvarfjarðar. Þetta er náttúrlega mjög til bóta. Söltum haustsíld Hér er talsverð loðnubræðsla frá febrúarbyrjun og frameftir april. Við höfum nokkuö rætt um að auka þróarrými sem er mjög brýnt ef auka á afköst bræðslunnar. Jafnframt höfum við nú saltað haustsild siðustu tvö árin en hérna var aðstaöa fyrir hendi frá þvi á sildarárun- um. Segja má að eftir að sfldin hvarf hafi ástandið daprast hér á Stöðvarfirði, en þó var að- staða okkar ef til vill betri en margra annarraá Austfjörðum, þvi heimamenn höfðu átt flest atvinnutækjanna sem hér voru, og fjármagniö fluttist þvi ekki úr bænum. Menn hlupust heldur ekki frá vandanum heldur lögðu ótrauðir i uppbyggingu og það hefur gengiö vonum framaf. Við þurfum þvi sist að kvarta” sagði Hafþór að lokum. ös/öl sjónvárpið bilaó? Skjárinn Siónvarpsverkstói „ sími Bergsíaáasírati 38 2-19-40 Rpulagnir Nylagmr, breyt- ingar, hitaveitu- tengingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 a kvöldin)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.