Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. ágiist 1978 Rætt við nýbakaðan íslandsmeistara í 800 metra hlaupi, Jón Diðriksson „Hefði alveg eins getað faríð og mjólkað beljur” „Eí ég hefði ekki sett metið í 800 m. í Píteá,” sagði lón Diðriksson Jón Diðriksson sést hér leiöa hlaup á Laugardalsvelli fyrir stuttu. Hann er nú tslandsmeistari i 800 metra hlaupi og spurningin er hvort hann nær aö setja tslandsmet 11500 metrunum i kvöld en þar fær hann haröa „Ef ég hefði ekki sett metið þarna i Pitea þá hefði ég alveg eins getað farið upp í sveit og m jolkaö beljur það sem eftir væri. Ég segi þetta með fullri virðingu fyrir sveita- mönnum." Það er hinn nýbakaði Isiands- meistari i 800 metra hlaupi, Jón Diðriksson, sem hefur orðið. Hann sló hið 11 ára gamla met Þorsteins Þorsteinssonar Ur KR i 800 m hlaupi á alþjóðlegu móti sem haldiö var i Piteá i Sviþjóð fyrir stuttu. Hann hljóp vega- lengdina á 1 min 49,3 sek. en eldra metið var 1,50,1. ,,Ég byrjaði að æfa frjálsar iþróttir árið 1973 er ég kom til Reykjavikur i Menntaskóla”, sagöi Jón. ,,Ég hafði áður lagt stund á körfuknattleik en ákvað að láta hann lönd og leiö og snúa mér að frjálsum. Samt sem áður þótti mér körfuknattleikurinn skemmtilegastur allra iþrótta sem ég hafði þá stundað.” Missti af móti vegna dagblaðanna Hvenær keppir þú fyrst á móti i frjálsum? ,,Það var á Drengjameistara- móti Islands sáma ár og ég byrj- aði. Ég hafði misst af 17. júni mótinu þá um sumarið vegna þess hve dagblöðin bárust seint heim i Borgarf jörð og þótti mér það afar leiðinlegt. En á meist- aramótinu hljóp ég á 2,02,0 og þeir voru margir sem komu og óskuöu mér til hamingju með hlaupiö en ég vissi ekki mikiö um það hversu góöur árangur þetta i rauninni var. Seinna sama sumar hljóp ég 800 metrana á Meistaramóti Islands á timanum 1,58,0 og bætti mig töluvert.” Kunni ekki að hlaupa Nú hefur þú dvaliö lengi erlend- is viö nám, æfingar og keppni. Hvenær keppir þú fyrst á móti er- lendis? „Það var að mig minnir i ung- lingalandskeppni við Dani sum- arið 1973. Þar keppti ég i 1500 metra hlaupi og setti nýtt drengjamet, hljóp á 4,03,8 og varð þriðji þrátt fyrir það aö ég kynni ekki að hlaupa. Nú á siðustu árum hef ég bætt mig nokkuð og þegar ég hafði dvalið nokkuð i Englandi hjá þeim Agústi Asgeirssyni og Sig- fúsi Jónssyni var ég kominn niður i 1,53,9. Þetta var sumarið 1974. Um sumarið 1976 fer ég aftur til Englands og dvel þar víð æfíngar og fer siðan þaðan beint i Kalott- keppnina. I millitiðinni haföi ég dvalið i fjóra mánuði i Þýska- landi. Þá hljóp ég 800 á 1,52,8 og 1500 metrana á 3.52,1, og var ég mjög ánægður með þá tima. Þá um sumarið fékk ég tilboð frá tveim- ur Bandariskum háskólum um að koma til USA og æfa þar og keppa. Ég neitaði þvi vegna hræðslu við að verða notaöur sem hlaupamaskina en geta ekki hlaupið af frjálsum vilja.” Vann í „hernum” Þú heidur áfram aö bæta þig sumarið 1977 ekki satt? „Jú þaö geri ég. Þá fer ég til Þýskalands til Lilju Guðmunds- dóttur og Vilmundar og þar var þrælaö i „hernum” eins og við kölluðum vinnu okkar þá. Viö unnum á þvottahúsi rikisspital- anna i átta tima á dag sem er langur vinnudagur þar i landi, fyrir litið kaup. Þá náði ég timan- um 1,50,7 i 800 m og Gunnar Páll Jóakimsson hljóp þá sama sumar á 1,51,5 min. Ég held að við höfum haft mjög mikið gagn af þessari ferð þegar á heildina er litið”. Grátilegt að missa metið Þú varst nálægt meti í einnar milu hlaupi þetta sumar? „Já ég fór til Skotlands meö Hreini Halldórssyni á skoska meistaramótiö og var þar einum 10. frá Islandsmeti hljóp á 4,07,2 og þar var sárgrætilegt að missa það met. En ég er staðráðinn I að bæta það met snarlega á næsta ári og hlaupa þá undir 3 min. Þrældómur á svelli Er ekki mikill munur á aöstööu til æfinga hér heima og erlendis? „Jú hann er gifurlegur. Erlend- is þarf maður ekki að þræla sig dauðan á svelluðum gangstéttum eins og hér. Þar þarf maður ekki að hafa áhyggjur af þvi. Ég mundi segja að veðrið væri aðal- kosturinn við aö æfa erlendis. Einnig er þar mun meiri breidd en hér. Ég hef samt trú á þvi að nýja hlaupabrautin hér heima eigi eftir að lyfta frjálsum iþróttum mikið á komandi árum. En ég held einnig að hún sé ekkert svar við erfiðleikum frjálsra iþrótta hérlendis. Það þarf fyrst og fremst fleiri iðkend- ur og fleiri sérhæfða þjálfara”. Staðráðinn í að slá metið i 1500 í kvöld Hvaö hyggst þú fyrir I framtfö- inni? „Númer eitt hjá mér er aö eign- ast Islandsmet i 1500 metra hlaupi 1000 og 2000 m hlaupi auk milunnar og 800 m. Ef það tekst er ég ánægður,fyrr ekki. Ég er staðráðinn i þvi að setja met i 1500 metrunum i kvöld á Reykjavikurleikunum. Ég mundi telja það mjög jákvætt. Metið sem er i eign Agústs Asgeirssonar er orðið tveggja ára gamalt og þarf endurnýjunar við,” sagöi hinn nýbakaði Islandsmeistari og hávaxni Borgfirðingur að lokum. Framhald á 18. siðu Góður árangur hjá fötluðum Þátttakendur þeir er tóku þátt I Alheimsleikunum fyrir islands hönd. Taliö frá Viöar Guönason, Höröur Barödal, Guöný Guönadóttir og Arnór Pétursson. v . Elsa Stefánsdóttir, j Á alheimsleikum fatlaðra í Englandi Alheimsleikar fatl- aðra (Stoke Mandeville leikarnir i Bretlandi) fóru fram 23.—29. júli s.l. Þátttakendur voru alls tæplega sjö hundr- uð. Fimm íslendingar tóku þátt i leikunum: Hörður Barðdal i 100 m skriðsundi og 100 m bak- sundi, Arnór Pétursson í lyftingum og spjótkasti og Elsa Stefánsdóttir, Guðný Guðnadóttir og Viðar Guðnason i borð- tennis. Fjórir af þessum fimm keppendum eru i hjólastól. 1 sundinu var keppt I riðlum og komst Höröur Barödal i úrslita- riðil I báðum sundunum. Hann varö4. ibaksundi á 1:29.6 min og 5. i skriðsundi á 1:16.1 min. Arnór Pétursson varð fimmti i sinum þyngdarflokki i lyftingum með 95 kg. og i spjótkasti varð hann 7. og kastaði 11,84 metra. Þátttakendur i borötennis kom- ust ekki i úrslit. Samhliða leikun- um var efnt til borðtennislands- keppni milli einstakra landa og lentu saman i kvennaflokki: England, Italia, trland og Island. Elsa og Guðný kepptu f.h. Is- lands og uröu I þriðja sæti. Enda þótt allir islensku þátt- takendurnir næðu betri árangri en áður, urðu þeir aftar en á s.l. ári miðað við aðra. Framfarir eru mjög miklar og var t.d. settur fjöldi heimsmeta i sundi. Fararstjóri i þessari ferð var Sigurður Magnússon en þjálfarar og aöstoðarmenn voru: Július Arnarsson, Sveinn Aki Lúðviks- son og Aslaug Magnúsdóttir úr Reykjavikog Þröstur Guðjónsson frá Akureyri. A aðalfundi Stoke Mandeville samtakanna sem haldinn var meðan leikarnir stóðu var m.a. greint frá undirbúningi Ólympiu- leika fatlaðra 1980. Verða sumar- leikarnir i Arnheim i Hollandi en vetrarleikarnir i Geilo I Noregi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.