Þjóðviljinn - 09.08.1978, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. ágúst 1978
Aðeins um 2000 manns
sóttu Rauðhettu heim um
að þessu sinni, um helm-
ingi færri en i fyrra.
Rauðhettumótið var nú
haldið í þriðja sinn og
nýjabrumið því farið af
samkomunni, en engu að
síður var aðsóknin minni
en áætlað var.
Mun færri viröast hafa sótt
útiskemmtanir um þessa versl-
unarmannahelgi en oft áöur,
þrátt fyrir gott veöur um allt
land. Kannski má kenna of
miklu framboði um, enda voru
útiskemmtanir mjög vlöa og
einnig þvi að þjóðhátiðin lenti á
sömu helginni. Aberandi var
einnig að unglingar sóttu á
staði, þar sem ekkert var um að
vera eins og t.d. Laugarvatn, og
fóru þaðan i sætaferðum á böll i
nágrenninu, Arnesog Aratungu.
Rauðhettumótið einkenndist
þvi af meiri rólegheitum en vant
er; veðurguðirnir voru hagstæð-
ir og ekki er hægt að kenna
skemmtidagskránni um litla
aðsókn, enda voru þarna saman
komnir margir bestu
skemmtikraftarnir i bransán-
um. Skemmtiatriðin voru vel
sótt af krökkunum og var þeim
ágætlega vel tekið. Dansaö var
á tveimur pöllum og diskótek
var i stóru tjaldi. Brunaliðið
spilaði öll kvöldin, Tivoli lék
laugardags- og sunnudagskvöld
ásamt Fjörefni, Basil fursti tróð
upp á föstudagskvöldinu og
Mannakorn, Þursaflokkurinn,
Megas, Baldur Brjánsson, Rut
Reginalds og þýsku ræflarokk-
ararnir voru einnig með i spil-
inu.
A svæðinu var einnig hesta-
leiga, bátaleiga, þúfubió og
Þetta er Amma hennar Rauöhettu, stærsta sjoppan á staönum. Rusliö flýtur út um allt og vist er aö
skátarnir hafa nóg aö gera á næstunni viö aö hreinsa til. Aberandi var þó,að nær engin glerbrot voru á
öllu svæöinu, enda var aöeins selt gos I dósum en ekki i glerflöskum.
Eitthvaö hefur nú veriö boröaö af samlokum hér i gær, — gætu
þessi veriö aö segja. Myndin sýnir kamarhreinsarana á
Rauðhettu að störfum.
Aöeins um 2000 ungmenni sóttu Rauöhettumótiö aö þessu sinni, helmingi færra en i fyrra.
Rauöhetta ’78
Pönkið virðist hafa haft einhver
áhrif á þennan kranamann, sem
vakti kátinu Rauðhettugesta.
t glampandi sól og sumri fylgdust gestir Rauöhettu meö
skemmtiatriðum á laugardeginum.
náárœ' :
fti ■ **
Keppt var i nýjustu iþróttagreininni, og kysstust sigurvegararnir I 6 klukkutima
keppninni og gefiö var 5 minútna hlé á hverjum klukkutima.
margt fleira var við að vera i
góða veðrinu.
Starfsmenn Rauðhettu voru
um 200 og unnu þeir á vöktum
við allt sem til féll. Þá voru
einnig löggæslumenn og læknar
á staðnum og Hjálparsveit
skáta i Reykjavik sá um slysa-
vaktir. Sem betur fer fór allt vel
fram og þessir starfsmenn
höfðu litið að gera, nema hvað
löggan átti annrikt við að hella
niður vini á föstudeginum.
Gengu laganna verðir svo
vasklega fram i þessum að-
gerðum sinum að varla sást vin
á mönnum á sunnudagskvöld-
inu. Einstaka þurfti þó að taka
úr umferð vegna ölvunar, en til
þess var á staðnum Hótel
Hressó, þar sem menn fengu
súpu og aðhlynningu meðan
rann af þeim.
Myndir tók Orn ólafsson.