Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Mibvikudagur 9. ágúst 1978 Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í Hafnarfirði, Garðakaupstað • og Bessastaðahreppi í ágúst og september 1978. Skoðun fer fram sem hér segir: Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriöjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur 14.8. G-5851 til G-6000 15.8. G-6001 til G-6150 16.8. G-6151 til G-6300 17.8. G-6301 til G-6450 18.8. G-6451 til G-6600 21.8. G-6601 til G-6750 22.8. G-6751 til G-6900 23.8. G-6901 til G-7050 24.8. G-7051 til G-7200 25.8. G-7201 til G-7350 28.8. G-7351 til G-7500 29.8. G-7501 til G-7650 30.8. G-7651 til G-7800 31.8. G-7801 til G-7950 1.9. G-7951 til G-8100 4.9. G-8101 til G-8250 5.9. G-8251 til G-8400 6.9. G-8401 til G-8550 7.9. G-8551 til G-8700 8.9. G-8701 til G-8850 11.9. G-8851 til G-9000 12.9. G-9001 til G-9150 13.9. G-9151 til G-9300 14.9. G-9301 til G-9450 15.9. G-9451 til G-9600 18.9. . G-9601 til G-9750 19.9. G-9751 til G-9900 20.9. G-9901 til G-10050 21.9. G-10051 til G-10200 22.9. G-10200 og þar yfir. Skoðun fer fram við Suðurgötu 8, Hafnar- firði frá kl. 8.15 til 12.00 og 13.00 til 16.00 alla framangreinda skoðunardaga. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá- trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. At- hygli skal vakin á þvi að skráningarnúmer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferða- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Við fullnaðarskoðun bifreiða skal sýna 1 jósastillingar vottorð. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði og Garðakaupstað. Sýslumaðurinn i Kjósasýslu, 8. ágúst 1978. Einar Ingimundarson Innskriftarborð - Vélritun Blaðaprent h.f. óskar eftir að ráða starfs- kraft. Góð islensku- og vélritunarkunnátta nauð- synleg. Uppl. i sima 85233. tl n apa Q renr LAUS STAÐA Staða ritara í skrifstofu Æfinga- og tilraunasköla Kenn- araháskóla tslands er laus til umsöknar. Laun samkv. iaunakerfi starfsmanna rlkisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6, Reykjavík, fyrir 15 ágúst n.k. — Nánari upplýsing- ar um starfiö eru veittar í skrifstofu Æfingaskólans. Menntamálaráðuneytið, 4. ágúst 1978. Patreksfjörður Vestfirskar konur þinga Samband vestfirskra kvenna hélt sinn aöalfund á Patreksfiröi 2. og 3. júni sl. Fyrri daginn skil- uðu fulltrúar starfsskýrslum fé- Iaga sinna, sem sýndu hina miklu starfsemi, sem fram fer á vegum kvenfélaganna, sérstak- lega I liknar- og mannúðarmál- um. Einnig ber þar hátt um- hyggju fyrirýmsum stofnunum, svo sem kirkjum, elliheimilum, sjúkrahúsum o.fl. I sambandinu eru nú 14 félög með um 720 félögum. Gestir fundarins voru: Sigur- laug Bjarnadóttir, alþm., og Sigriður Haraldsdóttir, ráðu- nautur Kvenfélagasambands Islands. Sigurlaug flutti erindi á fundinum, sem hún nefndi: Við- horf til skólamála. Að erindinu loknu urðu miklar umræður um efni þess og sið- an voru eftirfarandi ályktanir samþykktar: 1. Aö starfsemi grunnskóla i kauptúnum veröi samræmd i sjö og hálfan mánuð. 2. Að starfskynning verði fast- ur liöur i efstu bekkjum grunn- skóla, og skal hún vera mjög ýtarleg. 3. Að próf skuli ekki lögð niður en mati þeirra breytt þannig, aö vinna nemenda yfir veturinn veröi rétt metin, en ekki ein- göngu eölisgreind einstakra nemenda. 4. Að skora á fræðsluyfirvöld i landinu, að tryggð veröi fram- kvæmd þingsályktunartillögu um tónmenntafræðslu i grunn- Nýr slökkvi- bíllá Sudur- nes Brunavarnir Suðurnesja eiga nú i vændum nýjan slökkvibil. Er hann af Ford-gerð og svipar mjög til þess bfls, er slökkviliðið fékk áriö 1973. Billinn er meö háþrýstidælu, sem dælir 750 gallonum á min- útu og ber 3 tonn af vatni. Brunavarnir Suðurnesja eiga einn tankbil, sem ber 12 tonn af vatni. Er hægt að tengja hann við slökkvibilinn og hefur slökkviliöiö þá til umráða 15 tonn af vatni. Fjórar rúllur eru á bilnum með slöngum, sem fljótlegt er að vinda niður. í biínum er og rúm fyrir 600-800 m. af lausum slöngum, sem hægt er að tengja saman ef langt er i vatnsból, auk þess sem skáparými er fyrir nauð- synleg tæki til slökkvistarfa. Billinn kostaði um 20 milj. kr. Fyrir eiga Brunavarnir 3 dælu- bila, 1 tankbil og 1 tækja- og mannflutningabil. Svæði Brunavarna Suður- nesja nær frá Garöskaga til Hafnarfjarðar og að þeim standa fimm sveitarfélög á Suð- urnesjum: Keflavik, Njarövik, Vogar, Garður og Hafnir. (Heim.: Suðurnesjatiðindi). —mhg. skóla, sem samþykkt var á slð- asta alþingi. 5. Aö héraðsskólum verði tryggður starfsgrundvöllur meö áframhaldandi framhaldsnámi eftir grunnskóla til þess að koma i veg fyrir fólksflutninga úr héraði. Einnig veröi ráðið starfsfólk við héraðsskólana, sem hafi þaö starfssvið, að vera nemendum nokkurs konar fóst- urforeldrar. 6. Að beina eindregnum til- mælum til fræðsluyfirvalda, að þeim ákvæöum, sem i gildi eru, samanber grunnskólalög, um kennslu i heimilisfræðum i grunnskóla, sé framfylgt af fremsta negni eftir þvi, sem tök eru á á hverjum stað. Einnig að unnið verði markvisst gegn þeirri óheillaþróun, sem orðið hefur i málum húsmæðraskól- anna i landinu. Telur fundurinn að stefna beri að þvi aö endurskipuleggja starf þeirra, eftir þvi, sem hentar á hverjum staö i stað þess að leggja þá niöur. Einnig aö sú menntun til munns og handa, sem þar er veitt á lengri eöa skemmri tlma (námskeiðum), sé metin með tilliti til fram- haldsnáms á hússtjórnarbraut. Sigriður Haraldsdóttir kynnti störf Kvenfélagasambands Is- lands og skiröi sýningu þá, sem hún setti upp i sambandi við fundinn: Börnin og umhverfið. Meöal annarra mála er rædd voru, voru málefni aldraöra og heilbrigðisþjónusta á Vestfjörð- um. Alvarleg óánægja og gagnrýni kom fram á sjónvarpið varð- andi glæpa-, morö- og sora- myndir og þætti sem þar eru sýndir og flæddu inn á hvert heimili. Fundinn sátu 35 konur af sam- bandssvæðinu en það spannar yfir frá innstu hreppum Djúps- ins og vestur á Barðaströnd. Formaður er frú Þorbjörg Bjarnadóttir, skólastjóri á ísa- firði. Kvenfélagið Sif á Patreksfirði tók á móti fundinum af mikilli rausn á öllum sviðum. þb/mhg Stjórn Iðju, félags verk- smiðjufólks á Akureyri, kom saman til fundar um miðjan þennan mánuð og lét frá sér fara svohljóðandi álitsgerð: ,,A stjórnarfundi I Iðju, félagi verksmiðjufólks á Akureyri, sem haldinn var 14. júli 1978 voru teknir fyrir til umræðu þeir erfiðleikar, sem steðja nú að hverskonar iðnaðarframleiðslu I landinu, vegna hins gegndar- lausa innflutnings erlends iðn- varnings og hinnar ört vaxandi innanlands verðbólgu, sem nú er að tröllrfða öllum atvinnu- rekstri og afkomu aimennings. Stjórn Iðju lítur svo á, aö brýna nauðsyn beri til, meö til- liti til atvinnuöryggis iönverka- fólks, að takmarka svo sem frekast má innflutning iönaöar- vara, sem fluttar eru inn I land- ið til samkeppni viö Islenskan iðnað. Sérstaklega ber að hafa I huga að banna eöa draga veru- lega úr innflutningi á skófatn- aöi, vinnufötum og öðrum hlífðarfötum, sem islenskur iön- aður getur framleitt og stenst samanburö um verð og gæði. vor. Stjórn Idju á Akureyri Ándmælír hóflausum ‘ innflutningi iðnaðarvara Stjórnin bendir einnig á, að á sl. 10-20 árum hafa oröiö stór- kostlegar framfarir i vélabún- aði iðnaöarins, húsakosti hans og tæknimenntun, allt byggt á þvi grundvallarsjónarmiði, að geta séð landsmönnum fyrir nauðsynjum i þessu efni og spara gjaldeyri og auka at- vinnumöguleika i landinu. Það er þvi hörmulegt til þess aö vita, aö islensk stjórnvöld skuli af ráðnum hug leyfa ótak- markaðan innflutning á iðn- aðarvörum og skapa með þvi rekstrarerfiðleika og i sumum tilfellum algera lömun iðnaðar- ins, sem hefur i för með sér, að hundruöum iönverkafólks hefur veriö sagt upp störfum og óviss- an er framundan. Stjórn Iöju skorar þvi á stjórnvöld að taka hér upp nýja stefnu, sem marki þau sjónar- mið, að efla islenskan iðnað og veita honum þá aðstööu og vaxt- armöguleika, að landsmenn all- ir geti sem best búiö að sinu nú og I framtiðinni.” —mhg f r Umsjón: Magnús H. Gislason

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.