Þjóðviljinn - 11.08.1978, Page 10
1» SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. ágúst 1978
„Stór búrekstur
í einkaeign leiðir
Globus hf.
Ný gerð votheysturna
aðeins til
offramleiðslu99
I Heimagaröi búa þau hjón
Sigurður Guttormsson böndi og
vörubilstjóri og Guðbjörg Jó-
hannesdóttir. Bóndinn var I akstri
þegar við renndum þar i hlað en
húsfreyja bauð i bæinn ef við
vilduni sitja fyrir honum.
Hún sagði aðtiðarfariðhefði ver
ið heldur leiðinlegt, spretta meö
rýrara móti og sláttur ekki hafinn
enn þar á bæ. Ekki sagði hún að
búskapur þeirra hjóna væri stór i
sniðum, enda sinnir bóndinn
annarri vinnu og er að auki öryrki
að verulegu leyti. Hins vegar er
vörubilaakstur ekki traust at-
vinna þar, helst er það akstur
fyrir bændur i nágrenninu og
fyrir vegagerðina. Mikill kvenna-
fans umkringir Sigurð, þau hjónin
eiga sex dætur og eina dóttur-
dóttur sáum við þar. Húsfreyja
sagðist ekki vera austfirðingur;
,,ég er að vestan enda hefur
Hannibal alltaf verið uppáhald i
minni fjölskyldu”. Ekki vildi hún
láta uppi hver væri hennar póli-
tiska uppáhald núna eftir að
Hannibal fór að gamlast og gekk
úr pólitik.
Pólitik er ekki trúar-
atriði
Við spurðum Sigurð fyrst um
álit hans á kosningaúrslitunum
þar eystra.
„Úrslitin komu mér engan veg-
inn á óvart þvi fólk vildi vinstri
stjórn og kaus i samræmi við það.
Hér gerðist það helst aö gamla
framsóknarfylgið gekk yfir til
okkar, kratarnir höfðu litið upp úr
krafsinu enda litið nýnæmi af
þeirra frambjóðanda, hann var
heldur tekinn að fullorðnast. Þaö
hafði lika sin áhrif að fólk er far-
ið að hugsa meira um pólitik en
áður, það er ekki lengur trúar-
atriði að fylgja sama flokknum
ævina á enda umhugsunarlaust.
Alþýðubandalagið verður þvi aö
standa sig núna. Margir myndu
t.a.m. hugsa sig um tvisvar i
næstu kosningum ef það gengi til
samstarfs við ihaldiö á þessu
kjörtimabili eða lætur deigan siga
á annan hátt. Það gildir hins
vegar um alla flokka, hvaða nafni
sem þeir nefnast, að þegar þeir
eru i stjórnarandstöðu, leggjast
þeir gegn öllu þvi sem stjórnin
gengst fyrir og svo öfugt, til þess
eins að ganga i augun á kjós-
endum. Eg geri þar litið upp á
milli flokkanna.”
Hafði stefna Alþýöubandalags-
ins i landbúnaðarmálum einhver
áhrif?
„Alþýðubandalagið hefur nú
litiö sinnt landbúnaðarmálum
fyrr en þá i vor þannig að litil
reynsla er komin á stefnu þess
þar. Ég er hins vegar að vona
að stéttarvitund bænda sé að
þroskast og þokast nær stuðningi
við verkalýðshreyfinguna.
Fólk vill vinstri stjórn.
Þessar stéttir eiga að hafa sam-
stöðu og þá er málum illa komið
ef þær láta æsa sig til styrjaldar
hvor gegn annarri”.
Stór búrekstur
Er unnt að skipuleggja land-
búnaðinn á annan og betri hátt?
#JStór búrekstur i einkaeign er
oíraun landbúnaði og leiðir aöeins
til offramleiðslu. Ég er á hinn
bóginn hallur undir félagsbú-
skap, slikt fyrirkomulag hefur
marga ótviræða kosti, einkum i
mjólkurframleiðslu. Ef hann væri
fyrir hendi gætu bændur a.m.k.
tekið sér fri eins og aðrar stéttir
þjóðfélagsins, það er glórulaust
að þeir eigi ekki kost á orlofi.
Tækin nýttust lika betur og óhag-
kvæmur akstur um langan veg
eftir faeinum tugum litra legðist
af. Um leið skapaðist grundvöllur
fyrir léttan iðnað til sveita,
Ilannibal var alltaf uppáhald I
minni fjölskyldu.
sjálfur tel ég mjög heppilegt að
bændur eigi þess kost að sækja
tekjur utfyrir búskapinn einkum
yfir dauða timann. Um sauðfé
gegnir öðru máli. Menn eru þar
lausari við á sumrin og svo er lika
heppilegt að dreifa fénu til að
verjast ofbeit. Annars tel ég að
umræða um þessi mál öll sé ekki
nægileg meðal bænda. Ef til vill
skortir á félagslegan þroska hjá
okkur?”
Niðurgreiðslur á grip
„Ég er hlynntur þvi kerfi sem
ég hef heyrt að bretar hafi á
niðurgreiðslum landbúnaðar-
vara, þ.e. að menn fái niöur-
greiðslur á grip en ekki á afurðir.
Þessum niðurgreiðslum yrði auð-
vitað að setja einhver mörk,
miðað við einhvern ákveðinn
gripafjölda, þannig að þeir sem
fleiri eiga missi þær þegar upp-
fyrir markið kemur. Áhuga-
bændurnir á þéttbýlinu eiga auð-
vitað ekki að fá þessar greiðslur,
enda er um hobbý að ræða hjá
þeim, sem ekki þarf að styrkja.
Annars má það koma fram að
þessar niðurgreiðslur eru engu
fremur styrkur til bænda en til
neytenda.”
Beinir samningar
„Já, ég er fylgjandi þvi aö
samið sé beint og milliliðalaust.
Það tekur engu tali að menn fái
vinnulaun sin allt að þvi ári
seinna en þeir vinna fyrir þeim
eins og venja er með fjárbændur
til dæmis. Og tæpast er hægt aö
láta kaupfélögin um þetta, þau
geta ekki keypt vöruna og borgað
úti hönd og legið svo með birgðir
langan tima án þess að koma
þeim i verði’
— Ertu hlynntur fóðurbætis-
skatti?
„Nei, mér þykir það óeðlilegt
að bændur, stétt sem er 30% lægri
en viðmiðunarstéttirnar, fari að
skattleggja sjálfa sig. Þar er ekki
á bætandi.”
, ös/öt
— Við munum vera með á
Landbúnaðarsýningunni sérstaka
gerð heygey msluturna, sem
ætlaðir eru til geymslu á for-
þurrkuðu heyi, cn slikir turnar
hafa verið þekktir I Bandarlkjun-
um frá þvi um 1940, sagði Þorgeir
Kliasson hjá Glóbus hf.
Turnar þessir eru úr stáli og á
þá er soðinn eða bræddur sérstak-
ur glerungur. Þeir eru 6 m. breið-
ir og hæð getur verið allt upp i 24
m. Heyið er forþurrkaö þannig að
það er með 40-60% vatnsmagni',
þegar það er sett i turninn. Það er
hakkað niður eða klippt, þannig
að meðallengd stráanna verður
svona 7-8 mm. Heyið er tekið
beint upp af velli þegar það er að-
eins búið að þorna, blásið upp i
vagn, siðan „sturtað” i box er
matar blásarann, sem blæs gras-
inu beint upp i turninn. Þegar
hann hefur svo verið fylltur er
honum lokað með loftþéttum um-
búnaði. Til þess að koma i veg
fyrir hitamyndun i heyinu er það
verkað i súrefnislausu lofti. Hinar
loftsæknu bakteriur nýta súrefnið
og framleiða þá mjólkursýru og
þegar súrefnið er þrotið þá taka
loftfælnu bakteriurnar við. A
þennan hátt er heyið verkað.
Þessir turnar hafa, sem fyrr seg-
ir, verið notaðir i Bandarikjunum
frá 1940 og er nú búið að selja um
60 slika um allan heim.
Hér hafa þeir ekki verið reyndir
og bændur, sem séð hafa þá úti,
draga i efa að notkun þeirra sé
gerleg hér vegna kostnaðar. En
kostnaðurinn við þá er svipaður,
samkvæmt matsverði og við
byggingu á venjulegum hlöðum
og turnum, sé tillit tekið til fóður-
gildis heysins og þess, hve
turnarnir rúma mikið af þvi að
grasið er saxað svo smátt. Þar að
auki er innifalinn i verðinu sá
vélabúnaður, sem nota þarf við
svona hirðingu.
Turnarnir eru tæmdir neöan
frá, með sérstökum losunarbún-
aði, sem snýst i hring i botni
turnsins. Þannig er bæði fylling
og losun sjálfvirk.
Þar sem alltaf myndast
þrýstingsmunur i turninum
Ein eiguleg.
vegna mismunandi hitastigs,
fylgir þeim sérstakur „öndunar-
útbúnaður", en það er gúmmi-
blaðra, sem komið er fyrir efst í
turninum og er i beinu sambandi
við loftið útifyrir.
Reynsla hefur sýnt, að fóður-
gildi þess heys, sem verkað er i
svona turnum, er mjög mikið.
Það er ekki nema 1,2-1,25 kg. af
þvi i fóðureininguna. Þurrefnis-
tap er mjög litið eða innan við 3%.
Heyið helst mjög vel og þvi fylgir
engin óþægileg lykt.
A sýningunni verðum við með
hluta af svona turni til þess að
kynna mönnum þessa nýjung.
Svo sýnum við þarna fjóra-
hjóladrifinn traktor, en á þeim
hafa nýlega verið iækkaðir tollar.
Sömuleiðis italskan heyhleðslu-
vagn, sem var reyndur hér í fyrra
en kemur nú mikið endurbættur.
Einnig loftræstiútbúnað fyrir
gripahús.
Þá verðum við og með bagga-
hleðsluvagn, sem er áhugaverður
að þvi leyti að hann tekur upp
baggana, hleður þeim á sig og
losar þá siðan af sér á sjálfvirkan
hátt á færiband, inn i hlöðu.
Vagninn tekur 88 bagga. Hleðslu-
timi er 8-10 minútur og losunar-
timi aðeins styttri. Afköstin má
svo sjá af þeirri timalengd, sem
fer í akstur.
Tveir svona vagnar voru
prófaðir hér i fyrra sumar. Þeir
reyndust mjög vel i þurru veðri
en um leið og þeir blotnuðu var
notkun þeirra erfiðleikum bund-
in. Þessir tveir vagnar voru svo
seldir bændum á Suðulandsundir
lendinu og hafa reynst ágætiega.
Trúlega stafa þeir annmarkar,
sem i ljós komu i upphafi af þvi,
að lakkið hefur ekki verið farið af
og heyið bitið sig i það þegar það
blotnaði og allt orðið stamara fyr-
ir vikið.
Við höfum jafnan reynt að
fylgjast sem best með öllum
Nýjungum á þessu sviði og mun-
um halda þvi áfram. —mhg
Grænmetisverslun landbúnaöarins
Rekjum þróunina
— Já, það er nú bara þannig, að
þótt viðtökum þátt i landbúnaðar-
sýningunni þá er hún, þvl miður
fyrir okkur, haldin á þeim tima
árs, að við höfum bókstaflega
ekkert að sýna nema þá einhverj-
ar erlendar framleiösluvörur,
sagði Jóhann Jónasson, forstjóri
Grænmetisverslunar landbúnað-
arins.
Uppskera á okkar söluvörum er
cnnþá ekki hafin.enda háð veður-
lagi eins og allir vita og það hefur
lengst af i ár ekki verið sem
heppilegast. Hjá okkur verður
þetta þvi bara þróunarsýning i
myndum. Við leitumst við að
sýna hvernig ástatt var um þessi
sölumál þegar við byrjuðum að
hafa afskipti af þeim, hvar við er-
um á vegi staddir nú i þessum
efnum og hvernig salan hefur
verið á undanförnum árum.
Vörusýningu getum við sem sagt
enga haft,en tökum annars þátt i
sýningunni á þennan hátt.
—mhg
‘ •: >.. ■
Ætli þau séu ekki úr Þykkvabænum?