Þjóðviljinn - 11.08.1978, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 11.08.1978, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. ágúst 1978 Þannig litur husiö ut Innkaup hf. Norsk álklæðning — Þaö, sem við erum mcö á Landbúnaðarsýningunni eru ál- klæðningar á þök og veggi og henta þær bæði utan húss og inn- an. sagði Björn Möller hjá Inn- kaupum h.f. Þessi álklæðning er norsk framleiðsla og við höfum haft umboð fyrir verksmiöjuna frá ár- inu 1961. Salaáþessari klæðningu var ekki mjög mikil hérlendis fyrstu árin en siðustu þrjú árin hefur hún verið veruleg. Má þvi segja, að töluverð reynsla sé komin á þessa álklæðningu hér á landi og má fullyrða, aö hún liki mjög vel. Hún hefur t.d. verið mikið notuð til þess að klæða inn- an fjós og önnur gripahús og þyk- ir hentug til þeirra nota. Eins og fyrr segir er þessi framleiðsla norsk og fæst klæðn- ingin i 11 litum. Verksmiöjan, sem við höfum umboð fyrir, hefur samvinnu við Landbúnaðarhá- skólann i Asi i Noregi og gerir til- raunir meö efnið i samráði við hann. Við munum sýna þarna bæði efnið sjálft, myndir af húsum með klæðningunni og hvernig unnið er að þvi að klæða húsin. —mhg Regnoogmn roðnar af stolti HEMPEEs þakmálníng þegar hann lítur niður á HEMPEEs þökín og sér hve fallegum blæbrigðum mánáúrbtumhans Nu eru fyrirliggjandi 14 gullfallegir litir af HEMPEL'S þakmálningu. Um gæði HEMPEL'S þakmálningar þarf ekki að efast. HEMPEL'S er einn stærsti framleiðandi skipamálningar I heiminum. Seltan og umhleypingarnir hér eru þvi engin vandamál f,-ir sérfræðinga HEMPEL’S MARINE PAINTS. Framleiðandi á Islandi Slippfélagið íReykjavik hf Málníngarverksmiðjan Dugguvogi—Símar 33433 og 33414 Sláturfélag Suðurlands D-X dráttar- vélalínan ELDHÚS að fornu og nýju — Viö verslum fyrst og fremst með ýmsar landbúnaðarvélar og þátttaka okkar i I.andbúnaöar- sýningunni verður þvi i þvi fólgin, að sýna þær vélar og kynna, sagði Július Halldórsson hjá Hamri h.f. Þarna verður sýnd nýjasta gerð Dautz-dráttarvéla en það er hin svonefnda D—X—lina, sem kynnt var á landbúnaöarsýningum i Evrópu nú i vor og vakti þar geysilega mikla eftirtekt. Þá verðum við þarna einnig meö frambyggða dráttarvél með drifi á öllum hjólum og svo hið nýj- asta, sem til er af hinum venju- legu geröum. Auk þessa verðum við þarna með kartöfluupptökuvél, stóra gerð og nýja og mjög fullkomna og afkastamikla. Einnig sýnum viö margskonar heyvinnutæki svo sem sláttuþyrlur, heyþyrlur, múgavélar o.fl. Við reynum að sýna þá þróun, sem orðið hefur i vélvæðingunni og sem m.a. bein- íst að þvi, aö gera vinnuna sem áreynsluminnsta fyrir þann, sem stjórnar vélunum. —mhg Heyhleðsluvagn að verki. — Afurðasölufyrirtæki land- búnaðarins eru saman með sýn- ingardeild á Landbúnaðarsýning- unni á Selfossi en það eru Mjólk- urbú Flóamanna, Grænmetis- verslun landbúnaðarins, Fram- leiðsluráö landbúnaöarins, Osta- og smjörsalan, Afurðasöludeild Sambands isl. samvinnufélaga og Mjólkursamsalan, og Sláturfélag Suðurlands. Svo mælti Vigfús Tómasson, sölustjóri hjá Slátur- félagi Suðurlands i stuttu viðtali við blaðamann Þjóðviljans. Við hjá Sláturfélaginu munum sýna þarna þær framleiðsluvör- ur, sem við erum með og þá þró- un, sem orðið hefur i þessari framleiðslu á seinni árum. Auk þess verðum við þarna með sölu- kynningu á vörum okkar og stendur hún tvo klukkutima á dag, alla sýningardagana. Við munum verða með framleiðslu- vörur okkar i sölupökkum, sem við seljum á. sérstöku kynningar- verði og verða þeir til sölu sýn- inguna út. Veittar verða ýmsar upplýsingar um fyrirtækið bæði i myndum og máli og skýrt verður út fyrir sýningargestum hvernig starfsemi okkar er háttað. Segja má, að lögð verði áhersla á þrjá megin þætti: vörukynningu, kynningarsölu og kynningu á fyr- irtækinu sjálfu. Geta má þess og, að þarna munum við sýna tvö eldhús, ann- arsvegar hlóðaeldhús, svo sem þau tibkuðust um aldir og raunar allt fram á daga þess fólks, sem nú er komið á efr: ár og svo hins- vegar eldhús ofanverðrar tuttug- ustu aldar, með öllum þeim ný- tisku tækjum, sem þar eru t^lin eiga heima. —mhg. Hamar hf.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.