Þjóðviljinn - 19.08.1978, Síða 7

Þjóðviljinn - 19.08.1978, Síða 7
Laugardagur 19. ágúst 1978jÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Verkalýdshreyfingin barf aö standa vörð um jafnrétti á öllum sviöum til handa fötluðu fólki. Annað er ekki samrýmanlegt sögu hennar og markmiðum Sigursveinn D. Kristinsson verkalýös- Bréf til félaga Verkalýöshreyfingin hefur frá upphafi vega sinna veriö for- ustuafl i hvers konar baráttu fyrir auknu jafnrétti i þjóöfélag- inu. Þeir hópar, sem búiö hafa viö skaröastan hlut hafa jafnan notiö stuönings hennar, er þeir hófu baráttu fyrir rétti sinum. A þessum forsendum var ný- lega leitaö upplýsinga hjá verkalýösfélögum innan Al- þýðusambands Islands og hjá Bandalagi starfsmanna rikis og bæja um orlofshúsahverfi þess- ara aðila, sem reist hafa verið á siðari árum viöa um land. Spurt var um hvort húsin væru byggð þannig að fatlaö fólk eigi þar jafngreiðan aðgang og hinir, sem i svipinn þurfa ekki að tak- ast á viö þann vanda, sem af fötlun leiöir? Niðurstaða þessara upplýs- inga er sú að i fimm orlofshverf- um, sem verkalýðsfélögin hafa látið reisa, eru samtals um það bil eitt hundrað hús. Ekkert þeirra er búið nauösynlegri að- stöðu fyrir fólk i hjólastólum. Þessi niðurstaöa olli von- brigðum. Þeir sem við var rætt, höfðu þó skilning á þvi að hér þyrfti úrbóta við. En svo skammt er slðan vandamál fatl- aðra komust á dagskrá að þau höfðu verið utan sjóndeildar- hrings þegar bygging orlofs- húsahverfanna var hafin. Hins vegar hafa þau mál verið rædd nokkuð á allra siðustu árum og þar sem byggingaframkvæmdir standa yfir, svo sem á Norður- landi og á Austurlandi, er þess vænst að nokkur þeirra húsa, sem eru i smiðum verði að- gengileg fyrir hjólastólafólk. I Munaðarnesi, orlofshúsa- hverfi Bandalags starfsmanna rikis og bæja, er eitt hús, sem fullnægir þessum kröfum. Þar er einnig fyrirhuguð bygging aðalinngangs i matsölu og fé- lagsmiðstöö, sem opnar fötluö- um greiðan aðgang. Þvi má ekki gleyma að fjöl- margir félagar i verkalýðssam- tökunum vinna við.erfiðar að- stæður, þar sem tiðni slysa og atvinnusjúkdóma er hærri en á öðrum sviöum þjóðlifsins. Þvi má búast við að hlutfallstala ör- yrkja sé hærri meðal þessa fólks en annarra þjóöfélagsþegna. Meðal annars þess vegna þyrftu orlofsheimili verkalýðsfélag- anna að vera sem allra best út- búin til hvildar og hressingar, einnig fyrir þá, sem um stund- arsakir falla út af launaskrán- um. Það er augljós skerðing á jafnrétti, ef vinnufélagi, sem lengri eða skemmri tíma fatlast af slysi eða veikindum, getur ekki notið dvalar á orlofsheimili stéttarfélags sins einungis vegna þess að byggingin er þannig úr garði gerð, að hún er ónofhæf fyrir þá sem fatlast. Sama gildir um aðra meölimi fjölskyldunnar, þar sem afnot af orlofshúsum miðast við fjöl- skyldur jafnt og einstaklinga. Hér skal minnt á nokkur atr- iði, sem tiðast valda fötluðu fólki erfiðleikum i húsnæöis- málum: 1. Sle'tt þarf að vera að útidyr- um (ekki tröppur eöa þrep). 2. lbúðin sé þröskuldalaus þegar inn er komið. 3. Salernisdyr þurfa aö vera jafnbreiðar og aðrar dyr ibúð- arinnar og nægilegt gólfrými til að snúa hjólastól þegar inn er komið. (Þröngar dyr og litið gólfrými á salerni eru mjög oft erfiðustu húsnæöisvandamál fatlaðra.) Þann 3. mai sl. voru sam- þykkt á Alþingi ný byggingar- lög. Fjórða grein laganna endar á þessari málsgrein: ,,1 byggingarreglugerö skal setja ákvæði varðandi umbúnað bygginga til þess að auðvelda ellihrumu og fötluöu fólki að komast leiðar sinnar”. Lögin taka gildi 1. janúar 1979 og þrem mánuðum siðar reglugerð sú er að ofan getur. Þó fatlað fólk sé á hverjum tima tiltekinn fjöldi einstak- linga, verður ekki of rækilega á það minnt að næstum daglega bætast nýir einstaklingar i þennan hóp. Það er hægt að tryggja sig gegn slysum, þannig að fébætur komi fyrir ef slys ber að hönd- um. En þaö er ekki hægt að kaupa af sér fötlun hvort sem hún stafar af slysi eða sjúk- dómi. Þvi er hyggilegt vegna allra þjóðfélagsþegna — án und- antekninga að réttur fatlaðra verði sem best tryggður. Hver veit hvernig málum kann að verða háttað aö ári, hver þá hefur rikasta þörf fyrir að njóta þeirra réttinda? Aö lokum: Verkalýðshreyfingin þarf að standa vörð um jafnrétti á öll- um sviðum til handa fötluöu fólki. Annað er ekki samrýman- legt sögu hennar og markmið- um. Einn þáttur þess máls er að orlofshúsabyggingar og félags- miðstöðvar samtakanna séu öll- um jafn aðgengilegar. Með félagskveðju Reykjavik, 15.8.1978 Sigursveinn D. Kristinsson. Hólar 1 Hjaltadal Menntun bænda: Aðsóki n l lefur mii nnkað á r * Sl( ius ;tu tveim árum ,,A undanförnum árum hefur skólaganga og menntun yfirleitt aukist mjög hér á landi. Hefur þaö tvímælalaust skipað okkur á bekk með öðrum menningarþjóðum. Þrátt fyrir þennan sess eru sum- ir starfshópar nokkuð mik- ið á eftir hvað þetta snert- ir, og má þar taka sem dæmi bændastéttina. Að vísu eru þar nú margir vel menntaðir menn, en í heild er hún alltof lítið mennt- uð...." Þessi orð ritaði Ólafur Geir Vagnsson búfræðingur i grein fyrir 10 árum. Margt getur breyst á skemmri tima og Þjóðviljinn á- kvað að gera könnun á ástandi menntamála bændastéttarinnar, hvernig menntuninni væri háttað og hversu mikill fjöldi bænda væri „lærður”. Til þess að kom- ast til botns i þvi, hringdum við i þá Matthias Eggertsson á Hólum i Hjaltadal og Magnús B. Jónsson skólastjóra á Hvanneyri. Ný lög í menntunarmálum bænda — Til þess að geta hafið nám hér á Hólum þarf viðkomandi að hafa náð 17 ára aldri og hafa lokið grunnskólaprófi, auk þess að vinna i eitt ár við búskap, sagði Matthias Eggertsson, þegar við spurðum hann hverjar kröfurnar væru um undirbúningsmenntun þeirra sem hyggðíTá bændaskóla- nám. — Námið hefur til þessa verið eins árs nám, en það á að breytast með tilkomu nýrra laga um búnaðarfræðslu sem undirrit- uð voru i mai i vor. Samkvæmt þeim á námið að verða tveggja ára framvegis, auk þess sem efla á hlut verkmenntunarinnar. Það er aö visu ljóst, að við get- um ekki keyrt samkvæmt þessum lögum næsta vetur, þar sem svona -breyting þarfnast tals- verðs undirbúnings, en haustið 1979 ætlum við að vera tilbúnir, en þó þannig, að nemendum verði boðið upp á hvort tveggja skipu- lagið ef þeir vilja velja. Eins og ég sagði áðan er það gert að skilyrði núna, að umsækj- andi um skólavist hafi starfað við landbúnað i 1 ár. Með nýju lögun- um er þvi bætt við, að nemendur verða að vinna meðal bænda I 13 vikur hvorn vetur, þannig að auk- in verkmenntun fáist. Aðsókn fer minnkandi — Hefur fækkun bænda haft einhver áhrif á aðsókn að skólan- um? — Aðsóknin hér hefur að visu minnkað siðustu tvö árin, en ég er ekki tilbúinn til að skrifa undir að það sé vegna fækkunar bænda. Að minnsta kosti held ég að seint verði hægt aö benda á hana sem meginorsök. Hins vegar hefur bú- skapur átt ákaflega erfitt upp- Matthias Eggertsson dráttar undanfarin ár og þess vegna kann að vera einhver óhug- ur i krökkum við að fara i slíkt nám. Þeir fara frekar i eitthvað annað, þar sem um fleiri náms- brautir er að velja. Nei, ég get ekki nefnt fækkun- ina i tölum. Hér hafa alltaf allir komist að sem sótt hafa um, — aðeins verið misjafnlega rúmt •um þá innan skólans. — Leggja allir sem útskrifast fyrir sig búskap? — Nei. En með þessu eina orði er auðvitað ekki öll sagan sögð. Þeir sem útskrifast héðan eru um 19 ára að aldri og það gefur auga leið að á þeim aldri eru menn ekki reiðubúnir að byrja búskap. Sum- ir fara i eitthvað annað og koma jafnvel aldrei nálægt búskap það sem eftir er ævinnar. Aðrir biða átekta og taka siðar við búum for- eldra sinna, og énn aðrir fara i framhaldsnám, gerast sæðingar- menn o.s.frv. Búfræðipróf veitir eiginlega engin réttindi önnur en réttinn til að fara i framhaldsnám. Hins vegar hefur mikið veirið um það rætt að lán til bænda tækju að ein- hverju leyti mið af menntun þeirra, en um þau mál eru afar skiptar skoðanir. — Hve stór hluti bændastéttar- innar er með búfræðimenntun? — Samkvæmt könnun sem gerð var vegna setningar nýju laganna eru þeir um tuttugu prósent allra bænda á landinu. — Er aðstaða skólanna nægi- lega góð? — Nei, það er óhætt að segja aö svo sé ekki. Verknámskennslan þyrfti að breytast til batnaðar, en uppbygging tækjabúnaðar hefur gengið ákaflega seint vegna fjár- skorts. Þessir skólar hafa verið af- skaplega miklir bóknámsskólar, enda er slikt nám miklu ódýrara en hið verklega. Þannig geta ekki verið nema 4-7 nemendur i hverj- um bekk i verklegu námi, meðan 20-30 nemendur geta verið i hverjum bekk i bóknámi. Verk- lega kennslan þarfnast þannig margfalt fleiri kennara. Auk svo kostnaðarins við tækjakaup og við að fylgjast með öllum fram- förum i tæknivæðingu búreksturs. — Er tæknivæðingin kannski of mikii? — Ég held þvi fram, að tækni- Tæknivæðing í landbúnaði er að verða umtals- vert vandamál, segir Matthías Eggertsson væöingin sé að verða umtalsvert vandamál og sé að skapa mikla erfiðleika i islenskum landbún- "aði. Bændur virðast nefnilega ekki gera sér grein fyrir þvi að tæknivæðingin gerir það að verk- um að vinnukraftinum verður of- aukið. Við erum að berjast við aö halda fólkinu i sveitunum, en á sama tima er það fælt i burtu með þvi að láta tæknina taka að sér öll störf. Svo er bændum ráölagt að stækka búin til að nota tæknina og afla meiri tekna, en þá kemur vaxandi framleiðslukostnaður af- urðanna i hausinn á þeim. Bændasamtökin hafa ekki borið gæfu til að ná samstöðu um að bregðast við þessu á gagnlegan hátt. Auk þess má svo benda á það, að þessi aukna tæknivæðing kall- ar á aukna orkunotkun sem hreinlega stenst ekki til lengdar. Við nálgumst orkuskort innan margra ára og þá sitjum við uppi með mikla tækni sem verður okk- ur fjötur um fót. Og slikt bitnar vitanlega mest á stærstu búun- um. —hm

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.