Þjóðviljinn - 12.09.1978, Page 3
Þriöjudagur 12. september 1978 J>JOÖVILJINN — SIÐA 3
ERLENDAR FRÉTTIR
istuttu
✓
Akœrðir fyrir morð á fanga
BLOEMFONTEIN, Suður-Afrlku, 11/9 (Reuter) — Sex leyni-
lögreglumenn og tveir óbreyttir borgarar komu fyrir rétt i dag
og voru þeir ákæröir fyrir morö og illa meöferö á föngum.
Þessir menn voru ákærðir fyrir að hafa handtekið sex svert-
ingja, sem gert höfðu tilraun til innbrots i bóndabæ, hengt þd
nakta i keðjur og pyndað þá siðan með barsmiðum og raflosti.
Hefði einn svertinginn látið lifið viku siöar af afleiðingum með-
ferðarinnar. Mennirnir neituðu ákærunni, en ljósmyndir, sem
teknar höfðu verið af svertingjunum eftir pyndingarnar, voru
lagðar fram sem sönnunargögn.
Tvö önnur mál af svipuðu tagi eiga að koma fyrir rétt i Suður-
Afriku innan skamms: i öðru málinu eru þrir menn ákærðir fyrir
að myrða svartan fanga, og hitt málið er rannsókn á dularfull-
um dauðdaga annars svarts fanga, sem hrapaöi til bana i lög-
reglustöð. Hafa öll þessi mál beint athygli manna að meðferðinni
á svörtum föngum i Suður-Afriku.
Þrir farast í flugslysi
CASTRO URDIALES, Spáni, 11/9 (Reuter) — Litil flugvél, sem
var að taka þátt i flugkeppni, rakst utan i hæð i grennd við Castro
Urdiales, og biðu þeir þrir menn sem um borö i henni voru, allir
bana. Flugvélin lagöi af stað frá flugvellinum i Bilbao á laugar-
daginn og týndist skömmu eftir flugtak. Fjárhirðir fann flakiö
siðan i gær. Meðal þeirra sem fórust var fréttamaöur frá
spænska sjónvarpinu.
Jack Warner er látinn
LOS ANGELES 11/9 (Reuter) — Jack Warner, siöasti stóri kvik-
myndaframleiöandinn frá gullöld Hollywood, lést i Los Angeles
áJaugardagskvöldiö úr hjartabilun. Hann var 86 ára.
Jack Warner var siðastur eftirlifandi af þeim fjórum bræðrum
sem stofnuðu kvikmyndafélagið „Warner Brothers” árið 1912 og
var hann aðaldriffjöðurin i þvi til 1967. Aratugum saman var
hann einn helsti kvikmyndaframleiðandi Hollywood og komust
fáir til jafns við hann nema helst Samuel Goldwin og Louis May-
er, sem báðir eru látnir fyrir löngu. Meðal þeirra leikara, sem
Jack Warner hafði á sinum snærum, voru John Barrymore,
Humphrey Bogart, Errol Flynn, Edward G. Robinson, James
Dean, Bette Davis og Doris Day.
Bette Davis sagði um Jack Warner að hann hefði ekki komið
nálægt kvikmyndaiðnaðinum nema til þess eins að græða pen-
inga. En hann var mjög útsjónarsamur hvað snerti kvikmynda-
tækni, og er hann m.a. þekktur i kvikmyndasögunni fyrir að
hafa framleitt fyrstu hljóðmyndina, „Jass söngvarinn”,með A1
Jolson i aðalhlutverki árið 1927.
Hœtta á hungursneyð
RÓM, 11/9 (Reuter) - Yfirforseti Matvælastofnunnar Samein-
uöu Þjóðanna (FAO), Edouard Saouma.sagöi I dag, aö þjóöir
Afriku gætu nú séö fram á fæðuskort og engisprettuplágu, nema
skjótt yröi gripið til aögcröa. Sautján þjóöa Afriku biöur nú
alvarlegur fæöuskortur vegna þurrka, flóöa og styrjalda.
Astandiöer sérstaklega slæmt i Eþiópiu, Nigeriu, Mali, Tsjad og
Ghana.
Engisprettuplágan getur breiðst yfir meginland Afriku og'
valdið verulegu tjóni ef ekki verður samstundis tekið i taumana.
Matvælastofnunin hefur gert áætlun um uppbyggingu landbún-
aðar i álfunni, sem miðast við sjálfsþurftarbúskap. Aætlunin
mun verða rædd á ráðstefnu á vegum stofnuninnar i Tansaniu
18,— 29. september i ár. Hann minntist á að mikilvægt væri að
friður kæmist á i Afriku, svo auðveldara yrði að berjast gegn
engisprettuplágunni, svo og að send yrðu matvæli til þeirra
svæða þar sem fæðuskorturinn er alvarlegastur.
Nitján menn láta lífið
DELHI 11/9 (Reuter) — Nitján menn létu lifið, þegar vörubill
steyptistniðuri diki nálægt landamærum Indiands og Pakistans i
fylkinu Jammu og Kasmir. Sjö aðrir slösuðust og voru fluttir á
sjúkrahús. Vörubillinn var i eigu indverska landamæravarðliðs-
ins.
Hœttulegar mölflugur
TÓKIO 11/9 (Reuter) — Gifurlegur flokkur af mölflugum settist
á brú eina i norðurhluta Japans i dag og myndaöi þar e.k.
„teppi” sem var um einn sentimeter á þykkt. Olli þetta „teppi”
nitján árekstrum og særðust tveir menn, þegar bilar runnu i
skordýrakássunni. Brú þessi er 700 m löng og er hún skammt frá
Utsonomiya.
Allir komu þeir aftur
PEKING, 11/9 (Reuter) — Fréttastofan Nýja Kina skýrir frá þvi
i dag að margir menntamenn sem ofsóttir voru i menningarbylt-
ingunni hafi nú fengið uppreisn æru. Meðal þeirra er konrektor
háskólans, sagnfræðingurinn Tsjien Po-Tsan sem beið bana
vegna ofsókna i menningarbyltingunni, Annar er efnafræðingur-
inn FuYing, en að sögn fréttastofunnar liggur hann i kör vegna,
auðmýkingar þeirrar sem hann hefur mátt þola. A þess-
um fundi, þar sem mönnum voru gefnar upp sakir, var
sagt að meirihluti kennara og ráöamanna I háskólanum heföi
unniðgottstarf i uppbyggingu menntunar og visinda. Þær röngu
ákærur sem á menn þessa voru bornar hafa nú verið teknar til
baka. Háskólinn i Peking var einn af miðpunktum menningar-
byltingarinnar á sinum tima.
Norrænt
hlióðvarp
Qg_
sjónvarp
um
servihnött:
Viðamikil könnun
franiundan
Ráöherrancfnd Noröurlanda
(Samgöngu- og menntamálaráö-
herrarnir) ákvaö hinn 12. mars
1978 aö efnt skyldi til framhalds-
könnunar á hugmyndum um
norrænt hljóövarp og sjónvarp
um gervihnött. Greint er frá
skipulagi könnunarinnar, sem
venöur mjög umfangsmikil, i ný-
legu fréttabréfi menntamála-
ráðuney tisins.
Að framhaldskönnuninni skal
unnið með þeim hætti að eigi
siðar en 15. júni 1979 liggi fyrir
niðurstöður sem geri ráðherra-
nefndinni kleift, eftir umsagnar-
meðferð haustið 1979, að taka
vorið 1980 ákvörðun um frekari
meðferö málsins.
Atriði þau sem framhalds-
könnun þessi beinist að má flokka
i tæknileg og tækni/fjárhagsleg
mál, mál sem varða menningar-
og dagskrárstefnu, lögfræðileg
málefni og f jármögnunarmál.
Um hvern þessara málaflokkaer
könnunaraðilum falið að draga
saman svo traust gögn, að þjóð-
þing og rikisstjórnir geti á grund-
velli þeirra tekið afstöðu til máls-
ins.
Könnunin skal að meginstefnu
miðast við beina dreifingu um
gervihnött á öllum landsdag-
skrám norrænna hljóðvarps- og
sjónvarpsstöðva. Huga ber sér-
staklega að möguleikum á að
færa út kviarnar i áföngum og
vandamálum sem þvi kunna að
vera samfara. Ætlast er til að
könnunaraðilar gefi gaum að
hugsanlegri þörf á sérstökum at-
hugunum varðandi móttöku
hljóðvarps- og sjónvarpssendinga
i Færeyjum og á Grænlandi.
Framhaldskönnunin heyrir beint
undir ráðherranefndina.
Starfið að könnun hinna tækni-
legu þátta gervihnattasendinga,
fram að þeim tima er unnt yröi að
ganga frá samningi milli Norður-
landarikjanna, skiptist i tvo
áfanga.
I fyrri áfanga felst að gerð
verði ýtarlegri kerfisathugun frá
tækni/fjárhagslegu sjónarmiði. A
niðurstöðum þessa áfanga þarf að
vera unnt að reisa stjórnmála-
lega stefnuákvörðun um málið.
Könnunin skal sérstaklega
beinast að atriðum sem ráða úr-
slitum um fjárhagslega hag-
kvæmni kerfisins og forsendur
fyrir framkvæmd þess, svo og að
tæknilegum vandamálum sem
enn kann að þykja óljóst um
hvernig leysa skuli.
Siðari áfanginn er háöur þvi að
tekin hafi verið jákvæð stjórn-
málaleg ákvörðun á sam-
norrænum vettvangi og felst i
gerð rækilegrar verkkönnunar
sem leiðir til sundurliðaðrar
kerfislýsingar. Sú skilgreining
yrði ásamt öörum nauðsynlegum
gögnum lögð til grundvallar út-
boði á næsta framkvæmdastigi
verksins.
Gert er ráð fyrir, að könnun á
kostnaöi og skipulagsatriðum i
sambandi við uppbyggingu og
rekstur hugsanlegs jarðbundins
kerfis fari fram i hverju landi
fyrir sig.
Könnunaraðilum þeirra atriða
er varða menningarmála- og
dagkrárstefnu er ætlab að athuga
menningar- og dagskrárlegar af-
leiðingar af samnorrænni dag-
skrárdreifingu um gervitungl,
með hliðsjón af meginmark-
miðum menningarmálastefnu og
menningarsamvinnu á Norður-
löndum, þ.e. að stuðla að betri
málskilningi og viðfeðmara
menningarsamfélagi norrænna
þjóöa, skapa skilyrðitil aö ráðast
i mikils háttar verkefni sem of-
viða eru hverjujandi fyrir sig og
m.a. með þessum hætti að efla og
auka menningarlif i viðtækari
merkingu i hinum einstöku
löndum og meðal mismunandi
þjóðernis- og málhópa á Norður-
löndum.
Meðal annars ber að taka
saman yfirlit um niðurstöður af
vixindarannsóknum varðandi
þyðingu sjónvarps og hljóðvarps
fyrir einstaklinga og þjóðfélag, að
þvi leytí sem þær skipta máli i
sambandi við samnorræna dag-
skrárdreifingu um gervihnetti.
Gefa ber sðrstakan gaum að þvi
hvort ætla megi að notendahæitir
almennings (áhorfendatimi oe
val dagskrárefnis) muni breytast
með auknum valmöguleikum.
Kanna skal sérstaklega áhrifin á
börn i hópi sjónvarpsáhorfenda.
Camp David
Leynd yfir
ráðstefnunni
THURMONT, Maryland, 11/9 (Reuter) — Mikil leynd hvflir yfir
ráðstefnu Carters Bandarikjaforseta, Sadats Egyptalandsfor-
seta og Menahem Begins forsætisráðherra tsraels i Camp Dav-
>d- Setiö er á fundum án afláts, en ekkert hefur verið sagt um
innihald fundanna annað en að mjög hafi miöaö i áttina en þó sé
munurinn á afstöðu tsraela og Egypta slikur að allt sé óvist um
lokaniðurstöður ráöstefnunnar. Haft var eftir Menahem Begin I
gær að ráðstefnan gengi vel, en sagt var að Egyptar væru alls
ekki svo bjartsýnir.
I dag sat Carter á fundi með Sadat Egyptalandsforseta, og var
það fyrsti fundur þeirra siðan á föstudag, en i gær sat Carter
lengi á ráðstefnu með Menahem Begin. Ýmsir
fréttaskýrendur telja að það komi i ljós eftir tvo eða þrjá daga
hvort þessi ráðstefna ber nokkurn árangur eða ekki.
| Kona lési}
! úr kúabólu
BIRMINGHAM 11/9 (Reuter) — Janet Parker, enska konan
| sem veiktist af kúabólu, fyrir rúmlega hálfum mánuði, iést i ■
■ dag, og cr hún sú fyrsta scm hefur dáið úr þeim sjúkdómi I ellefu I
| mánuöi. Siðast skaut bólufaraldur upp kollinum I Sómaliiandi I
október i fyrra, og lést þá ein stúlka. Skömmu áður en Janet |
| Parker lést, lýstu heilbrigðisyfirvöld I Birmingham þvi yfir að ■
■ „bólufaraldurinn” i borginni hefði verið stöövaður.
I Janet Parker starfaði á rannsóknarstofu, þar sem m.a. voru
I gerðar tilraunir með kúabóluveiru. Ekki er vitaö með vissu um
I neina aðra sem veikst hafa af þessum sjúkdómi, .m þrlr aðrir eru ■
• ieinangrunog hefur veriö skýrt frá að þeir haf'ýmis sjúkdóms- I
I einkenni sem gætu verið merki um kúabólu, cn gætu llka veriö
I merki um einhvern hættulausan sjúkdóm.
| Þessir þrir menn voru meðal 260 manna sem höfðu verið I 1
■ námunda við Janet Parker og settir voru I einangrun þegar hún I
I sýktist, en eftir sextán daga var talið tryggt að þeir hefðu ekki I
i I smitast, og fengu þeir þá að fara ferða sinna, allir nema þessir I
I þrir. 1
■ Janet Parker er annaö fórnarlamb þessa bólusóttarmáls, þvi
I eftir að hún var flutt á sjúkrahús, svipti yfirmaöur rannsóknar-
I stofunnar, þar sem hún vann, sig lifi. 1 bréfi sem þessi maður, I
I prófessor Henry Bedson, skildi eftir, sagöi hann að hann bæri *
• alla ábyrgð á þessu sjúkdómstilviki. Bedson var þekktur sér- j
I fræöingur i kúabólu og hafði tekið virkan þátt I baráttunni gegn
sjúkdómnum.
Rannsóknarstofan i Birmingham var ein af þremur rann- 1
■ sóknarstofum I Englandi, þar sem kúabóluveiran var geymd, en
Ihenni hefur nú verið lokað. Málið er enn I rannsókn, en ekki er
vitað hvers vegna Janet Parker sýktist.