Þjóðviljinn - 12.09.1978, Qupperneq 11
Þriðjudagur 12. september 1978 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 11
Enn tapa
Framarar
ÍBViFram 3:2
Það er nú orðið heldur langt
siðan Fram hefur unnið leik i 1.
deildinni, reyndar ekki i sex sið-
ustu leikjum. Ekki mátti þó miklu
muna að þeir jöfnuðu gegn Vest-
manneyingum, en lánleysi þeirra
er algjört.
Vestmanneyingar voru komnir
i 2-0 eftir stundarfjórðungsleik á
laugardaginn, með mörkum
Karls Sveinssonar og Sigurlásar
Þorleifssonar. Og þeir áttu enn
eftir að auka muninn gegn daufu
Framliði. Undir lok hálfleiksins
skoraði Karl annað mark sitt og
þótti það hálf klúðurslegt.
En Mummi hefur greinilega
talað yfir hausamótunum á sinum
mönnum i hálfleik og Framarar
léku mun betur i þeim siðari og
börðust þá af reglulegum krafti.
Þessi barátta bar árangur strax á
7. min. er Guðmundur Steinsson
minnkaði muninn i 3-1. Skömmu
fyrir leikslok minnkaði Pétur
Ormslev muninn enn betur. Hann
skoraði úr viti eftir að brotið hafði
verið á hinum bráðefnilega Guð-
mundi Steinssyni. Vestmanney-
ingar áttu mjög i vök að verjast
siðustu minúturnar, en tókst að
halda báðum stigunum.
Með þessum sigri tryggðu
Eyjamenn sér 4. sætið, en Fram-
arar verða að láta sér 6. sætið
nægja vegna þess hve þeir gáfu
eftir i lok mótsins.
S.S.
Lokastaðan
1. deild:
Valur 18 17 1 0 45-8 35
Akranes 18 13 3 2 47-13 29
Keflavik 18 8 4 6 31-25 20
ÍBV 18 8 3 7 29-24 19
Vikingur 18 9 1 8 27-31 19
Fram 18 7 2 9 23-31 16
Þróttur 18 4 6 8 23-27 14
KA 18 3 5 10 14-39 11
FH 18 2 6 10 22-37 10
Breiðablik 18 3 1 14 19-45 7
Markhæstu leikmenn:
Pctur Petursson, Akranes, 18
Ingi Björn Albertsson, Val, 15
Matthias Hallgrimsson, IA 11
Atli Eðvaldsson, Val 10
Sigurlás Þorleifsson, IBV, 10
Guðm. Þorbjörnsson, Val, 8
Gunnar örn Kristjánsson, Vik 8
2. deild:
KR 18 13 4 1 48-9 30
Haukar 18 8 5 5 27-22 21
ísafjörður 18 7 6 5 31-25 20
Þór 18 7 6 5 18-16 20
Reynir 18 7 4 7 22-21 18
Austri 18 6 6 7 17-19 18
Þróttur 18 7 4 7 25-30 18
Fylkir 18 7 2 9 21-22 16
Armann 18 5 2 11 22-33 12
Völsungur 18 2 3 13 18-48 27
Lið Hauka, sem vann sig upp I 1. deild. A sunnudaginn tóku leikmennirir við verðlaunum sinum á
Laugardalsvelli. — Ljósm. Leifur.
Haukar í 1. deild
Sigruöu Ármann 5:3
Haukar gerðu sér litið
fyrir og sigruðu Armann
á föstudagskvöldið. Er
liðið þvi komið upp i
fyrstu deild þar sem iBI
og Þór gerðu aðeins að ná
jafntefli i sinum leikjum
um helgina. Skipta þvi
Hafnarf jarðarliðin um
hlutverk að þessu sinni.
Armenningar komust i 2:0, en
með harðfylgi tókst Haukum að
jafna fyrir leikhlé. I siðari hálf-
leik tóku Haukar öll völd á vell-
inum og með mörkum þeirra
Lárusar Jónssonar, Guðjóns
Sveinssonar oe Sieurðar Aðal-
steinssonar, náðu Haukar sliku
forskoti, að sigur þeirra var
aldrei i hættu. Undir lokin bættu
þó Ármenningar stöðu sina ögn
með marki Smára Jósafats-
sonar.
Héðan fylgja Haukum aðeins
góðar óskir upp i l'yrstu deild. Ef
vel verður haldið á spööunum,
er ástæðulaust að ætla annað en
að liðið spjari sig.
ASP.
ÍBK — Víkingur 3:1
r
Isal-keppnin:
Góö
þátttaka
en slakur
árangur
isal golfkeppnin var háð um
helgina og var barist um hin
glæsilegustu verðlaun. Heldur
viðraði illa fyrir golf fyrri daginn,
en veðrið var dæmalaust gott á
sunnudaginn, og golfleikarar
nutu útiverunnar. Arangurinn
var heldur slakur og e.t.v. hefur
það sitt að scgja að landsliðs-
mennirnir voru ekki enn komnir
af N.M. i Kalmar.
Keppendur voru 116ails,sem er
mjög góð þátttaka. Að keppni lok-
inni afhenti Ragnar álforstjóri
sigurvegurunum hin glæstu verð-
laun, sem tsal gaf til keppninnar.
Keppnin var án forgjafar i karla-
flokkum, eins og venja er i
flokkakeppni, én einhverra hluta
vegna léku konurnar með forgjöf.
Úrslit urðu þess-i
Mfl. karla:
1. Magnús Halldórsson, GK. 161
högg.
2. Július R. Júliusson, GK. 164
högg.
3. Eirikur Þ Jónsson, GR. 167
högg
Mfl. kvenna:
1. Agústa Guðmundsdóttir, GR:
149 högg nettó.
2. Sólveig Þorsteinsdóttir, GK 152
högg nettó.
3. Agústa Dúa Jónsdóttir, GR: 156
högg nettó
l. fl. karla:
Keflvíkingar kræktu
í UEFA-sætið
Meö sigri sinum i
þessum leik varð
Keflavíkurliðiö i 3. sæti
fyrstu deildar og tryggði
sér þar með rétt til þátt-
töku i Evrópukeppni
félagsliða næsta sumar.
Fæsta grunaði/ að liðið
næði þessum árangri/ en
síöari hluta keppninnar
spjaraði það sig vel og sér
nú árangur erfiðis sins.
1 fyrri hálfleik léku Keflvik-
ingar undan sterkum vindi og
sóttu nær látlaust. Vikingar áttu
skyndisóknir, sem ekki nýttust.
Strax á 5. min. skoraði Einar A.
Ölafsson fyrsta mark Keflvikinga
eftir slæm mistök Diðriks i mark-
inu. Annað markið kom á 18. min.
Þórði Karlssyni var brugðið illa
inni i vitateig og vitaspyrna
tafarlaust dæmd. Úr henni skor-
aði Steinar Jóhannsson. Með
vindinn i bakið þjörmuðu Kefl-
vikingar enn að Vikingum og á
siðustu min. hálfleiksins átti
Einar þrumuskot að marki, en
einn leikmaður Vikings varði með
hendi. Sjálfur tók Einar vita-
spyrnuna og brást ekki boga-
listin. 1 leikhléi höfðu Kefl-
vikingar þvi skorað 3 mork, en
Vikingar ekkert.
1 siðari hálfleik snérist dæmið
við og vindurinn aðstoðaði iiú
leikmenn Vikings, en þeir náðu
aldrei verulegum tökum á
sóknarleiknum. Til þess létu þeir
knöttinn ferðast of mikið um há-
loftin. Arangurinn varð eitt mark,
sem Jóhann Torfason skoraði af
35 m færi og reyndist skotið al-
deilis óverjandi. Sem sé: 3:lfyrir
Keflvikinga.
Guðni Kjartansson lék nú i
vörninni i stað Gisla Torfasonar,
sem þessa dagana nýtur sólar úti
i heimi. Stóð Guðni sig með af-
brigðum vel. Einnig léku þeir
Einar A. ölafsson og óskar
Færseth stórvel. 1 liði Vikings átti
Viðar Eliasson langbestan leik.
Jóhann Bárðarson og Gunnar örn
unnu vel i leiknum, en athygli
vakti, að Óskar Tómasson var
látinn leika á miðjunni og nýttist
hann illa þar.
SSt/ASP
1. Björgvin Hölm, 165 högg
________Framhald á 14. siðu
Þórsarar
ekki á
skotskóm
Leikmenn Þórs fró Akureyri
urðu að sjá á eftir voninni um 1.
deildarsæti, er þeir gerðu
markalaust jafntefli við Austra
frá Eskifirði á laugardaginn. Það
hefur eflaust verið þeim litil sára-
hót að sama dag fengu K.A.menn
staðfestingu á áframhaldandi
veru sinni i 1. deild.
Austri sótti heldur meira undan
vindinum i fyrri hálfleik, án þess
þó að skapa sér veruleg tækifæri.
Þórsarar sneru dæminu við i
siðari hálfleik og sóttu nær lát-
laust. Þeir bókstaflega óðu i tæki-
færum, en allt kom fyrir ekki.
Draumur Akureyringa um að
eignast tvö lið i 1. deild er þvi orð-
inn að engu. g s
| Heimsmeistarakeppnin í handknatt-
\ leik í Vestur-Þýskalandi árið 1982
IÞingi Alþjóðahandknattleiks-
sambandsins lauk á sunnudag
að Hótel Loftleiðum. Fulltrúar
fjörutiu og einnar þjóðar höfðu
Iatkvæðarétt á þinginu. Komu
þeir sér saman um, að næsta
HM-keppni verði haldin i V-
Þýskalandi.
IFleiri nýjungar voru sam-
þykktar fyrir næstu HM-keppni,
, m.a. á i framtiðinni að leika sér-
Istaklega um hvert sæti frá 1-16,
og einnig munu þrjú lið halda
áfram i milliriðla, i stað tveggja
áður. Tillögu um Evrópukeppni
landsliða var visað til stjórnar-
innar og nánari umfjöllunar.
Það voru aðallega sterkari
þjóðirnar sem lögðust gegn
þessari tillögu vegna mikilla
verkefna landsliðanna. Akveðið
var að láta allar reglubreyt-
ingar biða til næsta þings þ ,á .m.
tillöguna um að engin sókn
megi standa lengur en i 45
sekúndur. Þessari reglu hefur
verið fylgt i rússneskum hand-
knattleik siðan 1970, með góðum
árangri. F'jörugasta málið sem
tekið var fyrir á þinginu var
eflaust ósk Færeyinga um að fá
að halda næstu C-keppni i hand-
knattleik árið 1980. Voru margir
þingfulltruar uggandi vegna
samgönguerfiðleika og veður
fars i Færeyjum, á þeim árs-
tima sem keppnin fer fram.
Hinn eldhressi færeyski fulltrúi
kvað þá allan þingheim i kútinn
er hann sagðist hafa talað til
Færeyja i morgun, og þeir hefðu
sagt sér að veðurútlitið fyrir
1980 væri bara þokkalegt!
Tillagan var siðan samþykkt
með nokkrum yfirburðum.
Þetta gæti þýtt það að Færey-
ingar fái tvö ný iþróttahús fyrir
keppnina. Þess má geta að
islensku fulltrúarnir studdu
frændur vora dyggilega i þessu
máli og er það vel.
Næsta þing Alþjóðahand-
knattleikssambandsins mun
verða haldið i Moskvu eftir tvö
ár.
Þetta þing bar ákveðin merki
þess að handknattleikurinn er i
sókn um alian heim, þvi þarna
voru mættir fulltrúar frá Afriku
I
■
og Asiu, en ekki hefur farið I
mörgum sögum af handknatt- |
leiksiðkan i þessum löndum. ■
Fulltrúi Sýrlands iét m.a.
hafa það eftir sér að ekki væri
óalgengt að 19 þús. áhorfendur ,
mættu á 1. deildarleiki þar i i
landi. Ennfremur sagði hann að
þeir væru með þjálfara frá
toppþjóðunum og stefndu hátt. ,
Segja má að framkvæmd
þingsins hafi verið mjög góð og
H.S.l. til mesta sóma. Skipu-
lagning þingsins mæddi mest á
Gunnari Torfasyni, sem stóð sig
frábærlega, en allir stjórnar- |
menn H.S.l. hafa verið á þön - ■
um undanfarna daga og eru nú
eflaust hvildinni fegnir.
A.S.P./S.S. I