Þjóðviljinn - 19.09.1978, Page 4

Þjóðviljinn - 19.09.1978, Page 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 19. september 1978 DJOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann. Ritstjóri: Kjartan Ólafsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meB sunnudagsblaBi: Arni Bergmann. Aug- lýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Ritstjórn, afgreiBsla, aug- lýsingar: SiBumiila 6, Simi 81333 Prentun: BlaBaprent hf. A ð hrökkva eða stökkva í áratugi hafa íslenskir sósialistar barist gegn vantrú á islenskum atvinnuvegum og möguleikum þeirra til að standa undir sjálfstæðu efnahagslífi. Þeir eru til sem halda því f ram að ekkert það stórverkef ni blasi nú við á þessu sviði sem réttlæti að Alþýðubandalagið slái af kröfum sínum um þjóðfélagsbreytingar og herlaust land, og gangi í „fjósverkin" fyrir íhaldsöflin með stjórnarþátttöku. Á mörg slík stórverkefni má þó benda, enda þótt skipt- ar skoðanir kunni að vera á möguleikum bremsustjórnar í efnahagsmálum að koma stórvirkjum fram. Það var mat Magnúsar Kjartanssonar er hann settist í stól iðnaðarráðherra árið 1971 að iðnbyltingar væri þörf á Islandi. I samræmi við það lét hann vinna að áætlun þar að lútandi. Og minna má á að í tillögum Alþýðu- bandalagsins í efnahags- og atvinnumálum fyrir kosn- ingar var lögð áhersla á að gerð yrði áætlurí um íslenska iðnþróun til loka næsta áratugs. Brýn nauðsyn er á því að vinna með skipulegri hætti að iðnþróunarmálum hérlendis og verja miklu meira fé til rannsóknarstarfsemi og vöruþróunar en nú er gert. Það nauðsynjamál má þó ekki skyggja á það sem vel hefur verið gert til þessa. Á mörgum sviðum þarf að taka póli- tískar ákvarðanir um hvort hrökkva eigi eða stökkva. Slíkar ákvarðanir geta haf t mun langærri áhrif en skrif- borðslausnir og pappírsáætlanir sem hafna oftar en ekki í ráðuneytisskúffum og rykfalla þar. Tökum dæmi: íslendingar eiga þess kost að koma sér upp töluverðum rafeindaiðnaði. Slíkur iðnaður þjónar öllum þeim markmiðum sem felast í íslenskri atvinnu- stefnu. Tækifærið er nú. Eitt tapað ár og það getur glat- ast. Vilja menn hrökkva eða stökkva? Páll Theodórsson forstöðumaður Eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans rekur þá möguleika sem íslendingar hafa á að koma upp rafeindaiðnaði í fróðlegu viðtali við Þjóðviljann síðastliðinn sunnudag. AAeð nýrri og mun ódýrari tækni hafa skapast ný við- horf í rafeindaiðnaði. Fram til þessa hafa nær öll raf- eindatæki sem við notum verið flutt inn og nemur inn- flutningsverðmæti þeirra þremur til fimm miljörðum á ári. Vegna hinnar miklu vinnu sem framundan er við endurhönnun eldri tækja og hönnun nýrra býður rafeindatæknin upp á einstakt tækifæri til að hef ja tölu- verðan rafeindaiðnað. Nægilegur heimamarkaður er fyrir hendi til þess að upp úr honum geti þróast úrf lutn- ingsmöguleikar. Þá er ætíð þörf fyrir sérhönnun tækja til ákveðinna verka og grundvöllur gæti verið fyrir sam- setningarframleiðslu á rafeindatækjum. Innlend tækniþekking er fyrir hendi og íslenskir hug- vitsmenn hafa sýnt fram á getu sína á þessu sviði. Raf- eindavinnustofa öryrkjabandalagsins hefur fæ'rt mönn- um heim sanninn um að í rafeindaiðnaði bjóðast at- vinnutækifæri sem falla vel að íslenskum aðstæðum. I sjávarútvegi og fiskvinnslu bíða fjölmörg verkefni islensks rafeindaiðnaðar. Færð hafa verið rök fyrir þvi að auka megi verðmæti sjávarafla um 2-3 miljarða króna á ári með bættri nýtingu hráef nis sem ná má með rafeindatækjum í frystihúsum. I nýjum skuttogara eru rafeindaræki fyrir 100 til 150 miljónir króna og í öllum skipa- og bátaflota Islendinga er markaður á heimsmælikvarða f yrir rafeindatæki sem við eða aðrir munu færa sér í nyt. Islensk stjórnvöld þurfa að leggja sitt af mörkum ef þróa á íslenskari rafeindaiðnað. Ekki þyrfti að verja nema svo sem andvirði eins 300 tonna fiskibáts á ári næstu ár til þess að koma fótunum undir töluverða raf- eindatækjaframleiðslu hérlendis. Þegar í stað þarf að gera nokkurra ára áætlun úm uppbyggingu þessarar iðn- greinar og tryggja framkvæmd hennar með nægu fé og skipulegri stjórnun. Mál horfa áreiðanlega við á fleiri sviðum en í raf- eindaiðnaði á þann hátt sem Páll Theódórsson lýsir: „I þessu máli held ég að við verðum okkar eigin gæfu eða ógæf u smiðir. Við getum leyst þetta verkef ni sjálf ir, en það þarf hinsvegar ekki nema dálítið sinnuleysi, jafn- vel hik, til að við missum af því tækifæri sem nú bíður okkar." Að skila þvi sem tekið var AlþýBublaBiB útskýrBi kaupgjaldsbreytingarnar m.a. á eftirfarandi hátt á föstudaginn var: ,,Þegar kjaraskerBingarlögin voru sett var mismunandi mikiö tekiö af launþegum. Af sumum var tekiö litiö sem ekkert, en af öBrum verulegar fjárhæBir. Þegar núverandi rikisstjórn setur svo samningana aB mestu igildi, þá er mismunandi miklu aöskila til baka. Þannig fá þeir sem litiö sem ekkert var tekiö af, litiB sem ekkert til baka, en þeir sem meira var tekiö frá meira til baka. Þetta á viö þegar talaö er um daglaun, hvort sem þau eru greidd i mánaöarkaupi eöa vikulega. Varöandi yfirvinnu er nú gerö veruleg leiörétting sem allir fá notiö sem hana vinna. En hvers veena eetur bá kaupiB lækkaö? Visitalan mælir breytingar verölags. Þegar verölag visitöluvara lækkar eins og nú á sér staö þá lækkar visitalan og þar meö kaupiö, nákvæmlega eins og áöur þegar hún hækkaöi kaupiö. Allt kaup lækkar þvi vegna lækkunar visi- tölu, en vegna þess aö þaö ber upp á sama tima og veriö er aö skila til baka þvi sem fyrri rikisstjórn tók frá launþegum, þá getur það litiö út þannig að veriðsé að lækka laun sumra en hækka laun annarra. Meö kaup- ránslögunum i febrúar var tekiö mismunandi mikið frá launþegum , þess vegna er mismunandi miklu aö skila viö gildistöku samninganna nú.” Heggur sá er hlífa skyldi Maður nokkur sem kallar sig Grandvar ritar lesandabréf í annaö siödegisblaöið i gær og er hinn reiöasti i garð Morgun- blaösins: ,,Ekki er þeim Morgunblaös- mönnum vandi á höndum þegar gripa þarf til ófrægingar um hið frjálsa framtak, einstaklings- frelsi og þess konar utangarös- hugtök og um þær stéttir sem helststarfaá þessum vettvangi, svo sem innflytjendur, kaupmenn og atvinnurekendur hvers konar. 1 Mbl. miövikudaginn 13. september er þannig enn ein árásin á ofannefndar stéttir, innflytjendur og kaupmenn, og núna i formi napurs háös. 1 skopmynd þeirri sem blaöiö birti þennan dag eru innflytj- endur sýndir sem einhvers konar „mafiu-glæpamenn” (meö hatt, sólgleraugu og digran vindil), en yfir þeim trónar hinn nýi viöskipta- ráöherra, sem látinn er segja meö meöfylgjandi mynd: Ég var oröinn úrkula vonar um aö mér tækist nokkurn tima að komast i aðstööu til þess aö læra svinariiö”. ... hér er vegið nokkuö djarft aö ákveöinni stétt i landinu ... (og) ... beinlinis veriö að gefa i skyn aö þessar stéttir, innflytjendur og kaupmenn, séu stéttir sem stundi „svínari” og hinn nýi viðskiptaráöherra sé sá sem þaö muni uppræta. Allar skop- myndir hafa gildi, sumar jafn- velboöskapað flytja, ogeru þær oft ekki ómerkarien heil grein i blaöi og geta þess vegna valdið deilum, ekki siöur en greinar. Og ef slikar skopmyndir heföu ekki þessa eiginleika, væru þær þar meö einskis nýtar, og varla myndu teiknarar viöurkenna slikt! ” — Þetta segir Grandvar, og til áréttingar orðum hans er hér birt smækkuö útgáfa af umræddri teikningu. Tekið í lurginn á Mogga og Vísi „Blekkingavefur flokks- blaöa” var fyrirsögnin á rit- stjórnargrein Dagblaösins á laugardaginn, og fjallaöi hún aðallega um misvísandi skrif Morgunblaðsins og Visis um aögeröir vinstri stjórnarinnar i launa- og verölagsmálum. Þar sagði ma.: „Morgunblaöiö stillti i gær (þe. á föstudaginn) upp i fjór- dálk á baksiöu fyrirsögninni „Ahrif bráðabirgðalaga rikis- stjórnarinnar. 2/3 launþega landsins lækka i dagvinnu- launum.” Daginn áður var stór- fyrirsögn: „övænt áhrif bráöa- birgöalaga rikisstjórnarinnar: Lægstu taxtar BSRB lækka frá fyrri lögum”. Visir haföi þann dag gert mikið úr frétt um, að lægstu laun „lækkuðu” um þúsundir króna. Vísir haföi meira að segja eftir utanríkis- ráöherra, aö hann liti á þetta sem „mistök”. A meðan geröu þessi blöö sáralitið úr verölækkun, sem af aögerðum rikisstjórnarinnar leiöir. Þau ætluðu sér aö gera launþega sárreiöa. Þeim átti aö finnast sem rikisstjórnin hefði verið að taka eitthvað af lág- launafólki. Hver er sannleikur- inn? Maliöerþannig vaxiö, aö ekki er tilefni til æsifyrfrsagna. Þetta eru i rauninni ekki mikil tiðindi. Vegna þess hve verö- lækkunin er mikil, milli 7 og 8 prósent af framfærsluvisitölu, verður veröbótin, sem hinir lægstlaunuöu fá, minni en veriö heföi undir lögum gömlu stjórnarinnar við óbreytt og hærra verölag. Þetta gerist þrátt fyrir það að kjara- samningar taka gildi gagnvart þessu fólki.” Vísir sem síðdegisútgáfa Morgunblaðsins Það er vitaskuld alveg rétt sem Dagblaðiö segirað leiöandi n æsifyrirsagnir eru ekki llklegar til aö rugla fólk I riminu nema um takmarkaöan tima. Reynsl- an sjálf er ólygnust um þaö, hver kaupmátturinn er, og fólk á kost á þvi aö sannreyna þaö, hvort aögeröir rikisstjórnar- innar hafa haft áhrif til hækk- unar eða lækkunar Utgjalda, miöað viö þær krónur sem fólk fær í kaup. Undanfarnadaga hefur komiö fram marktækur munur á siödegisblööunum tveimur, hvaðsnertir túlkun á þeim efna- hagsaögeröum sem rikis- stjórnin er nú aö framkvæma. Dagblaöiö hefur skjrt hlutlægt frá kaupgjalds- og verölags- breytingunum, en Visir hefur mjög eindregiö hallaö á rikis- stjórnina i fréttum sinum. Þetta ' hefur gengið svo langt aö Visir hefur orðið villandi I frétta- flutningi sinum, engu siöur en sjálft Morgunblaöiö. Þetta minir á dagana fyrir siðustu kosningar. Þá kastaöi Visir hlutleysisgrimunni mjög eftirminnilega og varö ein- dregiö stjórnmálagagn þ.e. málpipa innsta hrings Sjálf- stæöisflokksins og formælandi áframhaldandi stjórnarsam- vinnu við hægri öflin i Fram- sókn. Alltaf þegar á reynir, velur Visir þann kost aö vera „Sjálf- stæöisblaö” en hafnar þvi aö vera sjálfstætt blaö. r Islenskur Glistrup til að skerða kjörin? Indriöi G. Þorsteinsson rit- H höfundur ritar grein i Visi á | föstudaginn þar sem hann færir ■ rök aö þvi að Islendingar séu aö 1 verða aö pólitiskum aumingjum ' og ef til vill þurfi að fara aö efla | þjóöarflokk til aö afnema skatt- ■ heimtu, niðurgreiöslur og visi- ■ tölutryggingu en efla einka- „ framtakiö. Indriði skrifar ma.: ■ „Hin nýja rikisstjórn verður I farin aö verða niöurlút á næstu J vordögum. Almenningur mun | bráölega heimta kosningar að ■ nýju, vegna þess aö hann sér aö I hann hefur veriö svikinn um B þær úrlausnir, sem hann óskaði ■ eftir, þ.e. friö fyrir veröbólgu, * frið fyrir stööugum verðhækk- J unum og frið fyrir stöðugu rikis- I kvaki út af afganginum af þvi ■ einkaframtaki, sem enn stendur I halt og meitt vib biöstofur rikis- ■ báknsins og þykist vera i út- | gerð. Innflutningsverslunina J Verður að gera normala. Visi- . töluna verður aö leggja niöur aö I mestu. Og einkareksturinn ■ veröur að skilja þaö, aö hætti | hann ekki að liggja eins og bón- ■ bjargamaður við hvers manns I dyr þýöir það þjóönýtingu fyrr \ eöa siðar. Skattheimtan og ■ niöurgreiöslan er ekki annað en I lausn handa pólitiskum aum- J ingjum, sem hugsa bara um | helminginn af þjóöinni eöa svo. ■ Og þessi aumingjatimi hlýtur I einhverntima að enda.'Sé málið „ iraunog sannleikasvo vaxið, að ■ allir flokkar landsins séu svo ■ bundniu af itökum, að þeir geti J engar lausnir fundiö, verður aö | fara að efla þjóöarflokk, sem ■ gerir kröfu til aö vitleysunni I ljúki:’. Danski stjórnmálam aöurinn Glistrup. Svipaöar hugsjónir og

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.